Nýja dagblaðið - 22.01.1938, Page 4

Nýja dagblaðið - 22.01.1938, Page 4
REYKJAVÍK, 22. JANÚAR 1938 NYJA DAGBLAÐIÐ 6. ÁRGANGUR — 17. BLAÐ B-lístinn Haínarstrætí 16 Símar: 1529 og 1629. Kíw.Gamta BíóvXíw í i S Tíl drauma- ij *- Jl landsins ji Efnisrík og hrífandi þýzk !■ I talmynd, tekin af Ufa-fé- laginu. — Aðalhlutverkið leikur af framúrskarandi snilld sænska söngkonan ZARAH LEANDER Börn fá ekki aðgang. Síðasta sinn. VV.V.V.W.V.V.V.V.V.V^.W Ördugasti vetur Hitlersstjórnarinnar Framh. af 2. siðu. til viðreisnar. Atvinnulif sér- hverrar þjóðar á við sína örð- ugleika að etja. Sumstaðar vantar hráefni, sem annað land hefir gnægð af. Þar þarf einn að miðla öðrum. Atvinnulífið stendur hallara fæti nú en 1929 og því álít ég, að maður hafi ekki tíma til að láta nokk- urt tækifæri ónotaö. Hefði þessi grein ekki birzt í blaði Görings sjálfs, myndi margur hafa álitið, að hér væri stefnt gegn fjögurra ára áætluninni, sem fyrst og fremst byggist á viðreisninni innanlands. En sé þess gætt, hversu ástatt er um ritfrelsi í Þýzkalandi, þar sem vakað er yfír hverju smáplaggi og enginn má í neinu atriði ganga í berhögg við vilja stjórn- Andstaða gegn Göring? Árshátíð Samvinnumauna og starfis- mannaíélags S. I. S. verdur haldin í Oddfellowhúsinu sunnudaginn 23. janúar og hefst kl. 9 síðdegís. Fjölbreytt skemmtiskrá. Skemmtínefndin. arinnar, hefði samt verið fávís- legt að skoða þetta öðruvísi en sem liðveizlu við Göring. Þann- ig er á málin litið af hálfu þeirra mörgu manna heima í Þýzkalandi, sem vona og óska að hneigzt verði til þessarar stefnu. Dr. Schacht tel- Birgðirnar ur viðleitnina til á þrotum. viðreisnar innan- lands góða og þýðingarmikla, en hún nægir ekki einu sinni hlutaðeigandi þjóð. í Þýzkalandi skilja yfir- menn sem undirgefnir hinn sára brodd þessara orða. Hitler hefir veitt sex milljónum atvinnu- leysingja vinnu, lögleitt her- þjónustu, sem ein milljón æsku- manna verður að inna af hönd- um ár hveTt, og komið á þegn- skylduvinnu, þar sem nokkur hundruð þúsund manna eru lög- þvinguð til starfs. Allar þessar ráðstafanir hafa orðið til að auka hina almennu kaupgetu. En til innkaupa á neyzluvörum er ekki hægt að nota jafnmik- inn gjaldeyri og áður, því að þá væri ekki hægt að kaupa Félag róttækra stúdenta heldur DANZLEIK í Iðnó í kvöld, er hefist kl.10 5 manna hljómsveit leikur. Hásinu lokað kl. 11,30. Aðgöngumidar seldir í dag firá kl. 4 í Iðnó. — ALLIR í IÐNÓ í KVÖLD. — nóg hráefni til viðhalds fram- leiðslunni. Þó voru kaup á neyzluvörum orðin óeðlilega lít- il, þegar Hitler kom til valda, sökum atvinnuleysis og annara erfiðleika. Sú alhliða vöntun, sem nú gerir vart við sig, vegna þess að eldri birgðir eru á þTot- um, sanna það, að viðreisnin verður auðveldari með alþjóð- legu samstarfi en fjögra ára á- ætluninni. En fyrst um sinn verður þýzka þjóðin að spara við sig, enn meira en hún hefir gert hingað til. Frá áramótum var smjörklípan, sem ætluð er einum manni til vikunnar, skert í 170 grömm, jafnhliða því, sem enn strangari skömmt- un fer fram heldur feiti, tólg. á öllu, sem inni- svo sem fleski og Sök ann- ara þjóða, en ekki Hitlers! Það undarlega er, að þessi skortur allur hefir ekki reynzt þess megn- ugur að uppræta trú manna á forsjá Hitlers. Hans dýrð virðist jafn mikil og á þeim dögum, er smjör og aðrar nauð- synjar var auðfáanlegt án minnstu hindrana. Menn hafa snúið ásökunum sínum í garð annara þjóða, þær hafi verið þröskuldur í vegi Þjóðverja til að ná á ný yfirráðum yfir lönd- um, sem veita ríkulega þær lífs- nauðsynjar, sem Þýzkaland get- .v.v.w w.-.w .y.VmW Nýja Bíó .-.v.v.v í Charlie Chan ■: S . . . := i operunm J; Óvenjulega spennandi og I; ^ vel gerð leynilögreglu- I; ^ mynd frá FOX'félaginu. í % Aðalhlutverkin leika snillingarnir ;j Warner Oland og í Borís Karloíf. Aukamynd: frá Shanghaí. £ 1 w.v.v.v.v.v.v.w.v.w.w I* — Börn fá ekki aðgang. 3: Á krossgölum (Framh. af 3. siðu.) Brýnjólfsson heldur. En þetta hús hefði aldrei komizt upp og aldrei getað byrjað sem kvik- myndahús, nema fyrir öflugan stuðning Framsóknarmanna. En þetta hús er á hinn bóginn und- irstaða sjálfstæðs félagslífs í Keflavík. ur ekki veitt sínum mörgu son- um og dætrum. Margendur- teknar upphrópanir hafa sem sagt fallið í frjóan jarðveg. Sökin hvílir á baki hinna er- lendu ríkja, en ekki þýzku naz- istastjórninni, segja þessir til- biðjendur Hitlers. FESTARMEY FORSTJÓRANS 12 Ég hafðí ekki komið þar inn, síðan hrunið kom. — frá því ég var laus og liðug, þegar mér datt sízt í hug að ég myndi brátt erfiða sem vélritunarstúlka hjá Vestur-Asíu-félaginu frá klukkan níu til sex, ganga í heimasaumuðum kjólum og vera í stöðugum ótta um að ég myndi missa þessa stöðu, sem launuð var með tuttugu og fimm shillings á viku. Siðast er ég hafði verið þarna og drukkið te, að af- lokinni veizlu, voru þeir með mér, Jack bróðir minn og Sidney Vandeleur, sem hafði keypt yndislegar rósir til að skreyta kjólinn minn og hafði gert hljóm- sveitinni orð, að spila uppáhaldsvalsana mína. Já, eins og Jack sagði, þá myndi Sidney alltaf vilja gera allt fyrir mig. Ég býst við, að Jack hafi haldið, þegar þessi hundrað pund komu, sem björguðu heiðri hans, að þau væru frá Sidney Vandeleur. Jæja, ég gat ó- mögulega verið að lýsa fyrir honum stöðunni, sem systir hans var komin í. Hamingjunni sé lof, að Vandeleur-fjölskyldan var hinu megin á hnettinum og ég hélt, að þau myndu ekki koma heim næsta árið. Er að því kæmi, væri minn timi úti og þau þyrftu ekkert um þessa málamyndar- trúlofun að vita, — nema, að hún væri búin að vera. „Ég hringdi og bað um borð,“ sagði Waters, er við komum inn á veitingastaðinn, hlýjan og ilmandi , þar sem fullt var af fallegum fötum og brosandi andlit- um, yfir litlu borðunum. Okkar borð var í yndislegu horni og rétt hjá var autt borð, álagt fyrir þrjá. Borðið var skreytt með ljósrauðum rósum, alveg eins og hjá Sidney Vandeleur forðum. Hvílíkur munur og á marmaraborðinu í „Ljónagryfjunni", þar sem ungfrú Robinson, Smithie og Holt litla sátu nú og stóðu á öndinni yfir þessum atburði, en hve mörgum sinnum heldur vildi ég ekki vera hjá þeim. „Jæja, ungfrú Trant, hvað viljið þér fá að borða?“ Eina tilbreyting mín um miðjan daginn síðasta árið vað: Kjötsúpa og brúnuð epli, eða þá: Steikt egg og brauð, með glasi af heitri mjólk. „Mér er alveg sama.“ „Þá skal ég panta.“ Og afskaplega var það góður matur, sem hann pantaði. Jafnvel steingerfingi þótti gott að fá bisque de homard og frysta hvítsíld — það sýndi þó, að hann líktist öðrum dauðlegum mönnum að sumu leyti. Ég óskaði þess, að Cicely væri komin — henni þykir svo góður svona matur, — góður matur, svo að hún gæti notið þessa með mér. Ég vildi, að við hefðum getað haft allt þetta út af fyrir okkur og masað saman yfir því. Hve við hefðum notið alls þess dýrmætis, allt frá fallega borðbúnaðinum, til ánægjunnar yfir að spjalla í hálfum hljóðum en ótruflaðar, um allt, sem við sáum í kring um okkur. Ég hefi heyrt sagt, að konur tali gjarnan heldur við konur en karlmenn, jafnvel þótt þær vilji hitt fremur. Ég held, að ég hafi ekki oft hitt karlmenn, sem ég vildi frekar tala við, en skemmtilega stúlku. Maður verður að segja flest tvisvar við karlmennina og þeir skilja ekki alltaf samt. En Waters er auðvitað ekki, eins og stúlkurnar segja daglega, venjulegur karlmaöur. Samt var ég ekki eins óstyrk í nærveru húsbóndans, þegar ég var í umhverfi, sem ég kunni betur við mig í heldur en skrifstofunum. Ég gat næstum gleymt, að hann var svona. Hann varð — það er að segja, mér fannst hann líkur því, er ég í gamla daga sat með þunglama- legum manni til miðdegisverðar, eða hafði leiðinlegan dansherra. Samtalið okkar á millí var nefnilega fá- einar athugasemdir út í bláinn, þess á milli löng þögn. Á meðan leit ég í kringum mig og sá hitt fólkið yfir matnum hlæjandi og masandi, auðsjáanlega að skemmta sér, en ekki í viðskiptabraski. Stundum var horft yfir að borðinu sem við sátum við. Ég hugsaði um, hvað fólk héldi um okkur — stóra, ljóshærða unga manninn, með fas og látbragð yfir- stéttarmannsins, vel greitt hár, skínandi, gljáburstaða skó, og litlu, dökkeygu stúlkuna með svarta flauels- hattinn, sem virtist margfalt dýrari en samræmzt gat snotru, en ellilegu kápunni. Ef til vill hugsaði það, að þessi ungi maður með alvörugefna andlitið væri svona leiður yfir því að þurfa að sýna frænku sinni úr sveitinni höfuðborgina. Máske hélt það, að við værum raunverulega trúlofuð, það stóð á sama. Það var enginn á veitingastaðnum, sem þekkti okkur. Ég hugsaði kæruleysislega út í, hver skyldi nú setjast við auða borðið rétt hjá okkur. „Ungfrú Trant, þér hafið séð vel um, að hinar stúlk- urnar vissu, með hverjum þér fóruð út?“ „Já, þær horfðu allar út um gluggann, þegar við ókum af stað.“ „Gott,“ mælti Waters. Nú fannst mér aftur sem brygði fyrir glettni í stál- gráu augunum, eins og þegar hann var að tala um hæfileika mína og vinnuna. En það var eins og þá. ' Glettnin var horfin áður en ég var viss í minni sök. Ég var ánægð. Maður vill ekki, að vél beri skyn á glens og gaman. Og mér myndi ekki veitast auðvelt að leika opinbera trúlofun með öðrum en vél. „Ég ætla að taka yður til miðdegisverðar tvisvar, þrisvar sinnum þessa viku,“ mælti hann með sömu raddbrigðum og hann var vanur aö skipa fyrir með, „og ef til vill í te. Á laugardaginn ætla ég að biðja

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.