Nýja dagblaðið - 27.01.1938, Page 2

Nýja dagblaðið - 27.01.1938, Page 2
2 N Ý J A DAGBLAÐIÐ B-lístínn Hafnarstræti 16 Símar: 1529 og 1629. Fitinur Jónsson alpm. heíir orðiðs „KommúnistaSIokkarnír eru viljalaust verkfæri í höndum Alþjóðasambands kommúnista í Moskva“ Miðstjórn K. F. í. var einu sinni vikið Srá aS Rússum og nýtt Sramkvæmdaráð sett í staðinn Eftir að Finnur Jónsson al- þingismað’ur hafði birt grein þá í Alþýðublaðinu, sem getið var um hér í blaðinu í gær, var hafin mikil sókn gegn honum í blöðum kommúnista. Sérstak- lega reyndu kommúnistar að af- sanna það, að þeir væru undir áhrifum frá Moskva og sögðu að Alþjóðasamband kommúnista réði ekki meira yfir kommún- istaflokknum en Alþjóðasam- band jafnaðarmanna yfir Al- þýðuflokknum. Þessu svaraði Finnur í grein í „Alþýðuflokkurinn er að öllu sagði hann m. a.: „Alþýðuflokkurinn er að öllu leyti sjálfráður um sín mál, þó hann sé í öðru alþj óðasamband- inu, og eru engin dæmi þess, að nokkrar fyrirskipanir hafi nokkurn tíma verið gefnar af þvi um framkvæmdir innan- lands eða að alþýðusambandið hafi nokkurntíma skotið málum til Brússel til úrskurðar. Hins- vegar vita allir að á hverju einasta þingi alþjóðasambands- ins eru samþykktar fyrirskipan- ir (tesur), sem allir kommún- istaflokkar verða skilyrðislaust að hlýða. Valda skipanir þess- ar eða „tesur“ oft miklum deil- um innan kommúnistaflokk- anna. Foringjarnir reka hver annan á víxl og svo er öllu skot- ið til úrskurðar til stjórnar al- þjóðasambands kommúnista í Moskva. Þar eð foringjar komm- únista hér eru nú jafnvel farnir að afneita þessum staðreyndum skal í stuttu máli rifjuð upp eftirfarandi dæmi: Utanstefnur eins og á Sturlungaöld. Árið 1932 voru á flokksþingi Kommúnistaflokks íslands í Reykjavík lagðar fram „tesur“ frá alþjóðasambandi kommún- ista. Nokkrir kommúnistar sýndu mannskap sinn með því að mótmæla þeim hluta trúar- játningarinnar, er ákvað að Al- þýðuflokkurinn væri höfuðstoð borgarastéttarinnar á íslandi. Meðal þessara fullhuga voru Einar Olgeirsson, Haukur Björnsson o. fl. Voru þeir nú kærðir til höfuðstöðvanna í Moskva fyrir trúvillu, hægri- villu, af þeim rétttrúuðu. Úr- skurðurinn frá Moskva kom um haustið 1933 1 hinu fræga Opna bréfi, sem birt var í Verklýðs- blaðinu. Deilurnar innan Kom- múnistaflokksins á íslandi héldu þó áfram og risu klögumálin fjöllunum hærra. Gekk mjög á utanstefnum til Moskva, á sama hátt og á utanstefnum til Nor- egs á Sturlungaöld. Brottrekstr- ar geröust tíðir, og var Stefán Pétursson rekinn úr flokknum í júlí 1934 fyrir „hægri villur“, eftir að sýnt þótti, að hann yröi ekki beygður; en um leið var öll hin löglega kosna mið- stjórn Kommúnistaflokks ís- lands sett af fyrir „vinstri vill- ur“ í baráttunni gegn „hægri villum" Stefáns og í staðinn skipað sjö manna framkvæmda- ráð með allra hæstum úrskurði frá Moskva. Einar og Haukur krupu að krossinum eins og Sinoviev og Kamenev á sínum tíma, og fengu að vera áfram í flokknum „í náð“. Allt þetta og mildu meira er opinbert, og má í því efni vísa til Verklýðsblaðsins sáluga, og vakti þetta talsverða athygli á sinni tlð, og tjáir ekkert fyrir kommúnistaforingjana að neita þessu. Flokksaginn frá Moskva hefir ætíð verið einvaldur í Kommúnistaflokknum, og hefir gegnt mestu furðu, hvernig jafnvel duglegir og gáfaðir menn hafa verið gerðir að bjálfum frammi fyrir almenningi með slíkum skrípaleik. Um eitt skeið tíðkaðist að kommúnistaforingjarnir voru látnir vitna í Verklýðsblaðinu og biðja opinberlega fyrirgefningar á villum sínum. Einna mesta eftirtekt vöktu vitnanir þeirra ísleifs Högnasonar og Gunnars Jóhannssonar, þar sem þessir hörðu bardagamenn lýsa sjálf- um sér sem skoðanalausum vesalingum og Gunnar m. a. biður frammi fyrir alþjóð afsök- unar á því, að hann hafi látið „félaga Steinþóru" (sem er kona hans) „hafa á sig tækifærissinn- uð áhrif“! Svo kom úrskurður- inn frá Moskva, og sjá, Gunnar og ísleifur höfðu haft rétt að mæla. Einar Olgeirsson mun einnig hafa skrifað álíka synda- játningu, en verið hlíft við að birta hana, vegna þinglcosninga á Akureyri, sem voru að fara í hönd.“ Ölltim þeim, skildum og vandalansnm, I sciu glöddu mig á áttræðisafmæli mínu, | | með heifilaóskaskeytum, lteimsóknum og i | gjöfum, votta ég innilegt Jsakklæti mitt. f HSjarni Þorteelsson, | skipasmiður. | llllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII Allir þeir sem viljavinnalyrir listaun eru beðnir að gefa upplýsingar á skrifsiofu B-listans Hafnarstræti 16 Símar 1529 og 1629 Kjötverzlanir Seljum hreinsaðar kindagarnír. Garnastöðin, Reykjavík. Sími 4241. Fatadúka og föt úr kambgarni, sem eingöngu er unnið úr fyrsta ilokks íslenzkri ull, en ekki ítölsku eða þýzku kambgarni, fáið þér aðeíns hjá G E F J U N. Ullarverksmíðjan Geijun er eína verk- smíðjan hér á landi, sem spunníð getur kamhgarn. Föt saumuð á einum degi. — Nýjasta tizka. Fyrsta flokks vlnna og hraðsaumur. Verksmiðjuútsalan Gefjun -- Iðunn Aðalstræti. Skíða- kvik- myudin einnig ál skýr- ingar öll kvöldin Skíðanámskeið íþróttafélags Reykjavíknr í húsi K.F.U.M. viö Anstmannsstíg, 1., 2., 3. og 4. febr., kl. 9 e. m. öll kvöldin, og að Kofiviðarhóli suirnud. 6. og 13. febráar. Þáittæka tilkynnist I síma 3811. — Kennsla í jjíví sem »11 n skíSafólkí er nanð- synlegt að vita. Kennslu- gjald 5 kr. Tækífærísverð. Ýmsar vörur, svo sem: Kvenpeysur, Barnaföt o. fl. sem hafa óhreinkast við mátun eða heimlán, eða sem á eru smá prjónagallar, seljast með tækifærisverði. Laugavegi 40. V esta Sími 4197. ÚTBREIÐIÐ NÝJA DAGBLAÐIÐ.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.