Nýja dagblaðið - 01.02.1938, Síða 3

Nýja dagblaðið - 01.02.1938, Síða 3
N Ý J A DAGBLAÐIÐ 3 Hljómsveit Reykjavíkur Bláa kápan Frumsýnmg verður á míðvíkudag \ÝJA DAGBLAÐED Útgefandi: Blaðaútgáían h.f. Ritstjóri: í ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. Ritst j órnarstkrif stof umar: Lindarg. 1 D. Símar 4373 og 2353. Afgr. og auglýsingaskrifstofa: Lindargötu 1D. Sími 2323. Áskrifarverð kr. 2,00 á mánuði. í lausasölu 10 aura eintakið. Prentsmiðjan Edda h.f. Símar 3948 og 3720. Effir storminn Kosningaveðrið hefir geisað um landið og nú er aftur kom- ið logn. Áróðursbyljirnir voru víða harðir, og stormsveipir í meira lagi. Nú liggja úrslitin glöggt fyrir augum landsmanna. Pramsóknarflokkurinn hefir í fyrsta sinn sótt fram nálega á allri víglínunni og unnið stóra sigra. Allt í kring um land hafa Framsóknarmenn nú fulltrúa í bæjarstjórnum og hreppsnefnd- um hinna stóru kauptúna, nema á ísafirði og í Hafnarfirði. Á báðum þeim stöðum hefir verið gengið seinna til verks en skyldi. En þó má bæta úr því áður langir tímar líða. Mjög víða í kaupstöðum og kauptúnum hafa Framsóknar- menn úrslitaatkvæði, og geta myndað meiri hluta til vinstri eða hægri. Það mun hvergi gert nema að vel íhuguðu máli, og jafnan í sambandi við úrslit þýðingarmikilla mála. Framsóknarflokkurinn hefir frá upphafi viðurkennt tvo ná- búaflokka, samkeppnisflokk og sameignarflokk, sem viðbúan- lega nágranna. En hann hefir frá öndverðu risið á móti hin- um erlendu byltingarflokkum, sem standa undir erlendri stjórn og yfirráðum. Mun bar- áttan gegn þeim verða þvi á- kveðnari og markvissari, sem meiri möguleikar eru til að þeir geti skaðað land og þjóð, sem verkfæri í höndum erlendra valdamanna. Stefna Framsóknarmanna á næstu árum mun að sjálfsögðu markast fyrst og fremst af við- horfinu til atvinnuveganna. Keppinautar okkar til hægri og vinstri hafa boðað samkeppni eða ríkisrekstur. Þeir hafa boðað sífellda atvinnustyrjöld milli verkamanna og atvinnu- rekenda. Þeir hafa um undan- farin ár háð slíka styrjöld með mikilli hörku. Báðir liggja í valnum, mjög særðir. Atvinnu- rekendur yfirleitt févana, skuldugir og að réttu láns- traustslausir, og sökum dýr- tíðar hvorki samkeppnisfærir á markaði innanlands eða utan. Verkamenn atvinnulausir mik- inn hluta árs, og dýrtiðarvinna eða sveitarhjálp þrautaúrræðið. Innan skamms munu þessir tveir flokkar finna glöggt að þeir' hafa siglt skipum sinum í strand, og að lífið heimtar ný úrræði. Við samvinnumenn þekkjum þetta úrræði, og það því fremur sem það er ekki nýtt. Það er samvinna á sjó og landi. Hér I Reykjavík þarf mikinn nýjan Það er útl’it fyrir að Hljóm- sveit Reykjavíkur, með Tónlist- arfélagið að bakhjalli, hafi tekið það inn á stefnuskrá sína, sem fastan lið, að sýna bæjarbúum einn söngleik á vetri hverjum. Er þetta vel farið og er óhætt að segja, að það sé öllum leikhús- og söngvinum hið mesta gleði- efni. í fyrsta lagi er það í fullu samræmi við starfsemi þessa fé- DR. FRANZ MIXA. lagsskapar, að veita á þann hátt nemendum sínum, — bæði hljóð- færaleikurum og söngfólki því, sem menntun hefir hlotið á skól- anum, tækifæri til að reyna hæfileika sína frammi fyrir til- heyrendum, — og hvar er betra tækifæri til þess, en í góðum söngleik í vandaðri uppsetningu, þar sem söngstjóri og leikstjóri gera hinar fyllstu kröfur til leikendanna. f öðru lagi er félagið hér að leggja framtíðarundirstöðu að vinsælum og glæsilegum lið 1 hljómlistarlífi höfuðstaðarins, og um leið að byggja upp nýja grein í hinni fátæklegu leiklist Reykja- vikurbæjar. Fréttamaður Nýja dagblaðsins hefir snúið sér til hins duglega framkvæmdastjóra Hljómsveit- arinnar, Ragnars Jónssonar, er hann hitti á leið á æfingu i Iðnó. — Hvenær verður frumsýning hjá ykkur? — Miðvikudaginn 2. febrúar, svarar Ragnar. skipakost, sennilega að miklu leyti þá tegund vélbáta, sem liggja úti fyrir sunnan og vest- an land á vetrarvertíð, en eru hentugir til síldveiða fyrir norð- an land. Allir menn á þessum skipum, allir sem vinna að afl- anum í landi, allir, sem vinna að sölunni og á skrifstofum, verða að vera félagsbræður og bera úr býtum, eins og samvlnnu- menn í sveitum, það sem varan gefur á opnum markaði. Þessi lausn mun í bili hvorki geðfelld leiðtogum samkeppnismanna eða sameignarmanna. Þeir munu heldur ekki hallast að þessu ráði fyr en þeir vita hvar þeir standa með skip sín brotin á flúðum samkeppni og inn- byrðis styrjaldar. Þar hafa þeir — Gerið þér yður góðar vonir um sýninguna? — Já,- mjög góðar. Annars vil ég sem minnst um það segja nú. Frumsýningin á að geta talað fyrir sér sjálf. Þó er mér óhætt að segja að glæsilegri óperetta hefir ekki sézt hér í Reykjavík, né jafngóður söngur í leik. Þessi óperetta er eftir hina kunnu, þýzku gleðileikahöfunda, Her- mann Feiner og Bruno Hardt- Warden. Hún er ein af þeim, er mesta athygli hafa vakið í Evr- ópu á síðustu árum, víða verið sýnd og alstaðar hlotið geysilega aðsókn, enda er hún leikin enn víðsvegar um lönd. Árin 1927—28 var hún t. d. sýnd 340 sinnum á sama leikhúsinu í Kaupmanna- höfn. — Eftir hvern eru lögin? — Walter Kollo, og söngtexti eftir Willi Kollo. Þau eru svo heillandi aðgengileg og auðlærð, að hún er strax á hvers manns vörum. Þess utan eru dansarnir hinir fegurstu. Hefir Ásta Norðmann samið og æft dansana, og lagt í það mikla vinnu, frá kl. 5—7 daglega nú í margar vikur, og svo hefir sam- æfing á leiknum verið frá kl. 8 til 12, svo þér sjáið, að það hefir verið unnið ósleitilega að þessu. — Dr. Mixa mun stjórna hljómsveitinni, éins og áður? — Já, hann stjórnar Hljóm- sveit Reykjavíkur, sem sér um undirleikinn, og svo stjórnar hann söngnum, og er óhætt að segja, að allir þeir, sem þarna vinna, leggi sig alla fram, enda lítur út fyrir að árangurinn verði eftir því. — Hvenær gerist þessi leikur? — Forleikurinn fer fram árið 1816 í Potsdam, en fyrsti þáttur 30 árum siðar á sama stað. Hinir tveir þættirnir gerast og 1 sömu borg. — Hvaða leikendur verða svo í leiknum? — Greifadæturnar Marie, Be- ate og Anette leika þær Katrín Mixa, Svanhvít Egilsdóttir og Sigrún Magnúsdóttir. Frú Elísa- sjálfir komið sínum málum. Þeir geta ekki kennt öðrum um gengisleysi sitt. Tap bankanna á rekstri þeirra er sönnun þess, að þjóðfélagið hefir trúað þeim lengi og vel. En þegar skipbrotsmennirnir koma til okkar Framsóknar- manna bæði frá hægri og vinstri, þá mun okkur ljúft að hefja með þeim nýtt landnám í hinu gamla landi, þar sem öll atvinna er látin bera sig, þar sem allir vinna saman, þar sem enginn nefnir atvinnustyrjald- ir, og þar sem afrakstur fram- leiðslunnar skiptist réttlátlega milli allra. Sigur Framsóknar- manna á sunnudaginn var, gefur samvinnustefnunni byr undir báða vængi. J. J. HARALDUR BJÖRNSSON. bet Einarsdóttir hefir og mjög skemmtilegt hlutverk. Ungu mennirnir, Jörgen, Heinz og Hans eru leiknir af Bjarna Bjarnasyni, Ragnari Árnasyni og Magnúsi Sigurðssyni. Óskar Guðnason leikur greifann, föður systranna þriggja, og Pétur Jónsson leikur frænda þeirra, sem syngur mikið og nýtur hann sín vel. Lárus Ingólfsson leikur skritinn skósmíðameistara — hann hefir og séð um búninga alla og tjöld, en Arnór Halldórs- son leikur sísyngjandi og dans- andi skósmíðasvein. Haraldur Björnsson leikur frí- herra í forleiknum, Detlef von Rankenau, sem óviljandi leggur undirstöðuna að æfintýrum — og alvöru leiksins, sem er ó- venjulega áhrifamikill og efnis- ríkur, eftir því sem þessi tegund leikrita er vön að vera. Einnig leika þeir þarna með, Hendrik Berndsen og Valdemar Helgason, sem hefir stórt þjónshlutverk. — Hver hefir snúið leiknum á íslenzku? — Jakob Jóh. Smári þýddi þennan leik fyrir mörgum árum, eftir ósk Haraldar Björnssonar, þótt ekki hafi hann fengið hann sýndan fyrr en nú. Nýja björgunarskúfan EINKASKEYTI PRÁ KHÖPN: Björgunarskútan „Sæbjörg“, sem smíðuð hefir verið á skipa- smíðastöðinni i Frederikssund í Danmörku, hefir nú farið fyrstu reynsluför sína og tókst ágætlega. Viðstaddir voru í för- inni fulltrúar frá skipasmíða- stöðinni, fulltrúi frá Bolinders- félaginu í Svíþjóð. Þorsteinn Þorsteinsson skipstjóri i Þórs- hamri í Reykjavík, sem hefir séð um smíði skipsins og fl. Kristján Kristjánsson skipstjóri og íslenzk áhöfn mun innan fárra daga taka við skipinu og er gert ráð fyrir að það leggi af stað frá Danmörku í kringum 10. febrúar. — FÚ. KAliPIÐ tJTLÖND: Hore-Belísha Sá ensku ráðherranna, sem hefir vakið mesta athygli á sl. ári, er Hore-Belisha hermálaráð- herra. Hann er kominn af Gyð- ingaættum og er 45 ára gamall. Menntun sína hlaut hann á há- skólunum í Oxford og Heidel- berg. Þegar heimsstyrjöldin brauzt út, gekk hann í herinn og vann sér liðsforingjanafnbót. Hann varð þingmaður fyrir frjálslynda flokkinn 1922 og hef- ir jafnan síðan náð endurkosn- ingu. Síðan 1931 hefir hann fylgt þeim hluta frjálslynda flokksins, sem styður þjóðstjórnina. Árið 1934 varð hann samgöngumála- ráðherra og innti mikið starf af höndum, m. a. kom hann í fram- kvæmd margvíslegum umbótum til að draga úr slysahættu á helztu samgönguleiðunum. Þeg- ar Neville Chamberlain varð for- sætisráðherra í maímánuði sl., uppskar Hore-Belisha árangur- inn af þeim dugnaði sínum, með því að honum var falið hið vandasama embætti hermála- ráðherrans. Síðan hefir enginn enskur ráðherra verið meira umtalaður en Hore-Belisha. Jafnvel Eden og Chamberlain hafa komizt í skuggann. Hore-Belisha hefir gert fjölmargar ráðstafanir til að afla hernum vinsælda og bæta kjör hans. Enski herinn er allt öðruvísi uppbyggður en herir annara landa. Menn eru ekki skyldaðir í hann, heldur er reynt að fá þá til að starfa í honum um langt skeið af frjáls- um vilja. Hore-Belisha vinnur að því, að herþjónustan geti orðið einskonar æfistarf þeirra, sem hana stunda. Þannig eigi Englendingar að eignast þjálf- aðri og hraustari hermenn en nokkur önnur þjóð. Þessar ráðstafanir Hore-Be- lisha virðast ætla að bera til- ætlaðan árangur. Umsóknir um inntöku í herinn hafa aldrei verið fleiri en á siðastl. hausti. Annað það, sem Hore-Be- lisha hefir gert og mikla at- hygli hefiT vakið, er það, að hann hefir skipað nýja menn í margar helztu trúnaðarstöður hersins. Við val þessara manna hefir hann þverbrotið eldri regl- ur. Áður komust nær eingöngu gamlir menn í þessar stöður; hann hafi valið nær ein- göngu unga menn. Þó Hore-Belisha láti mikið á sér bera í opinberu lifi, er einka- líf hans mjög óbrotið. Hann er ókvæntur, heldur bústað sínum í London leyndum, og borðar sjaldan á þekktari hótelum eða klúbbum, eins og flestir enskir stjórnmálamenn. Hann er sagð- ur vera sístarfandi að áhuga- málum sínum og minni hans er viðbrugðið. Ræðumaður er hann góður. Hann er ekki mik- ill fyrir mann að sjá og ýmsir segja, að honum svipi að ýmsu leyti til Disraeli. Ensk blöð benda til þess að Hore-Belisha sé að vinna sér einna mest traust enskra ráð- herra og margir spá honum (Framhald á 4. síðu.)

x

Nýja dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.