Nýja dagblaðið - 05.02.1938, Side 1

Nýja dagblaðið - 05.02.1938, Side 1
IWJIA ID/^Q»IBIL?MÐH€) J 6. ár. Reykjavík, laugardaginn 5. febrúar 1938. 29. blað Aðaliundur Fiskífélagsíns í gær Kosníng sýningarráds til að undirbúa þátttöku fslands I New York sýníng-unní Stofnanir og einstaklingar hafa lagt fram 150 þúsund krónur ANNÁLL 36. dagur ársins. Sólarupprás kl. 9,02. Sólarlag kl. 4,24. — Árdegisháflæður kl. 8,15. Ljósatími bifreiða er frá kl. 4,25 síðdegis tU kl. 8,55 árdegis. Næturlæknir er í nótt Bergsveinn Ólafsson, Há- vallagötu 47, sími 4985. — Næturvörður er 1 lyfjabúðinni Iðunn og Reykja- víkurapóteki. Dagskrá útvarpsins: 8,30 Dönskukennsla. 10,00 Veður- fregnir. 12,00 Hádegisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. 18,45 Þýzkukennsla. 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Strokkvartett út- varpsins leikur. 19,40 Auglýsingar. 19,50 Fréttir. 20,15 Kvöld Slysavarnafélags- ins: Ávörp ,ræður, söngur, hljóðfæra- leikur. 22,00 Danslög. 24,00 Dagskrár- lok. Veðrið (föstudag kl. 17): Við vesturströnd íslands er alldjúp lægð, sem þokast til NA. Vindur er víðast hægur S—SV hér á landi með snjóéljum á Suður- og Vesturlandi. Frost er 1—6 st. Vindur mun verða V—NV-lægur á Suður- og Vesturlandi á morgun. Veðurútlit í Reykjavík: Vestan eða norðvestankaldi. Snjóél en bjart á milli. Póstferðir á morgun: Frá Reykjavík: Þingvallapóstur. Til Reykjavíkur: Dronning Alexandrine að norðan og vestan. Sig. Skagfield syngur f Gamla Bíó þ. 9. þ. m. kl. 7,14.. Við hljóðfærið hr. C. BUUch. — Þetta verður síðasta söngskemmtun Skagfields hér, því hann fer utan með Lyra 10. þ. m. Ármenningar fara 1 skíðaför á sunnudaginn og verður lagt af stað frá íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar kl. 9 árdegis. Farmiðar fást í Brynju fram tU kl. 6 og á skrif- stofu félagsins kl. 6—9 í kvöld. Engir fá far, sem ekki hafa tryggt sér far- miða. Ennfremur fara bUar í dag upp að skála kl. 3% og kl. 8 og þuría þeir, sem ætla með þeim að panta far með tveggja klukkustunda fyrirvara. Tónlistarfélagið gengst fyrir grímudanzleik (Kunst- nerkarneval) á Hótel Borg, 24. þ. m. Nokkrir þekktir listamenn bæjarins troða upp 1 nýjmn, óvenjulegum hlut- verkum. — Salurlnn verður skreyttur skopmyndum af listamönnum o. fl. Aðgangur kostar 12,50 fyrir manninn (smjör og brauð innifalið). Grímur — húfur o. fl. hefir félagið til sölu hjá Hattav. Gunnlaugar Briem nokkru fyrir danzleikinn. AUir verða að hafa grímur, og æskilegt er að sem flestir hafi einhvern grímubúning (domino). Hlutavelta Æskunnar. Gjöfum til hlutaveltu Æskunnar verður veitt móttaka í Góðtemplara- húsinu kl. 5—7. Ef sækja þarf munina, þá hringið í síma 3355 kl. 5—7. Sjá augl. í blaðinu í dag. Leikfélag Reykjavíkur hafði siðastliðinn fimmtudag frum- sýningu á hinu ágæta leikriti „Fyrir- vinnan“ eftir W Sommerset Maugham og var því mjög vel tekið af áhorfend- um. Næsta sýning verður annað kvöld. Skipafréttir. Gullfoss kom til ísafjarðar i gær- kvöldi. Goðafoss var í Reykjavik í gær. Brúarfoss var Khöfn í gær. Dettifoss var í gær á leið til Grimsby frá Vest- mannaeyjum. Lagarfoss var í gær- morgun á Hvammstanga. Selfoss var í gær á leið til Leith frá Antwerpen. — Esja var væntanleg til Raufarhafn- ar kl. 6 í morgun. Messur á morgun: í Laugarnesskólanum á sunnud. kl. 5 e. h. (Sjómannadagur). — Barna- guðsþjónusta kl. 10,30. Garðar Svaf- arsson. — Messað 1 Aðventkirkjunni sunnud. kl. 8,30 síðdegis. Flugvélar spánskra uppreísnarmanna sökkva brezku skipi LONDON: Snemma í gærmorgun sökktu tvær sprengjuflugvélar brezku skipi frá Glasgow, skammt út frá Barcelona. Flugvélarnar voru greinUega merktar með merki uppreisnarmanna. Skip spönsku stjórnarinnar björguðu skip- verjum, en þeim hafði tekizt að kom- ast í skipsbátinn rétt um leið og skipið sökk. Með skipinu var eftir- litsmaður hlutleysisnefndarinnar og var honum einnig bjargað. Skipstjóri og fyrsti stýrimaður hafa sagt fréttaritara Havasfréttastofunn- ar frá árásinni. Þeir segja, að flugvél- arnar hafi fyrst flogið lágt, og skotið úr vélbyssum sínum til aðvörunar. Skipverjar hafi þegar búið sig undir að fara í skipsbútinn en áður en hægt var að setja bátinn út, féllu tvær sprengjur á þilfarið, fremst í skipinu, þriðja sprengikúlan lenti ofan í reyk- háf skipsins, en sprakk ekki. Loks féllu tvær sprengjur rétt framan við stjórnpallinn, og köstuðust menn í sjóinn við sprenginguna. Bátunmn var komið út um það bil, sem skipið var að sökkva. Skipstjórinn og stýrimaðurinn segja, að skipið hafi verið merkt 5 brezkum fánum, og auk þess hafi verið við hún fáni sá, sem átti að sýna að umboðs- maður hlutleysisnefndarinnar var inn- anborðs. Þeir segja, að þótt ekki hafi verið orðið fyllilega ljóst af degi, þá hafi ekki flugmönnum getað dulizt að skipið var brezkt. Spanskt stjórnar- skip bar að skömmu síðar og tók það skipbrotsmenn um borð og flutti þá til Barcelona. Brezka stjórnin lýsti því yfir í dag, að hún ætlaði sér að auka eftirlitið á sínu gæzlusvæði í Miðjarð- arhafi án tillits til þess, hvað aðrar þjóðir gera í þeim efnum. Frakkar hafa lýst því yfir, að þeir muni gefa fyrirskipanlr um að sökkva öllum kaf- bátum, sem sjáist á kafi utan land- helgislínu Spánar á þvi svæði, sem þeim er ætlað að gæta. í frétt frá Barcelona er sagt, að flugvélar uppreisnarmanna hafi gert árásir á fjórum stöðum innan valda- svæðis spönsku stjórnarinnar í fyrra- dag. FÚ. Brezk heímsókn I Arabíu LONDON: Hertoginn af Athlone, bróðir Mary ekkjudrottningar í Bretlandi er í þann veginn að leggja af stað, ásamt her- togafrúnni, í heimsókn til Ibn Saud, keisara í Saudi-Arabíu. Þetta er í fyrsta skipti, sem nokkur meðlimur brezku konungsfjölskyldunnar fer f. heimsókn til Arabíu. FÚ. Styrkir úr Sáttmálasjóði. Þeir, sem hafa 1 hyggju að sækja um styrk úr sáttmálasjóði, skulu hafa sent umsóknir ásamt fullnægjandi upplýs- ingum til Bestyrelsen for Dansk- Islansk Forbundsfond, ICristiansgade 12, Köbenhavn K, í síðasta lagi fyrir 1. marz. Á síðastl. hausti var skipuð nefnd af ríkisstjórninni til að undirúa þátttöku íslands í heimssýningunni í New York næsta ár. Hafði ríkisstjórnin áð- ur átt tal við fulltrúa ýmsra stofnana til að kynnast áliti þeirra. í nefnd þessari áttu sæti Stefán Þorvarðarson fulltrúi, Jón Árnason framkvæmdar- stjóri, Júlíus Guðmundsson kaupmaður, Ragnar E. Kvaran landkynnir og Garðar Glslason kaupmaður. Nefndin hefir síðan snúið sér til ýmsra stofnana og einstakl- inga og fengið loforð hjá þeim um fjárframlög til sýningarinn- ar. Hafa alls safnast þannig um 150 þús. kr. Stærsta framlagið er frá Sambandi ísl. samvinnu- félaga. Meðal annara þeirra, sem styrkja sýninguna, eru Landsbankinn, Útvegsbankinn, Fisksölusambandið, síldarverk- smiðjur ríkisins, Fiskimála- nefnd, Lýsissamlag botnvörpu- skipa, ýmsir stórkaupmenn o. fl. Auk þess hefir Alþingi sam- þykkt að veita 125 þús. kr. til sýningarinnar. Reykjavíkurbær mun sennilega leggja fram ein- hverja fjárhæð. Þessi undirbúningsnefnd kall- aði fulltrúa þeirra, sem heitið hafa framlögum, saman á fund í gær til að kjósa sýningarráð. Voru kosnir í sýningarráð af ríkisstjórnin tilnefndi þriðja Nýl vardbáturlnn aShentur ríklnu Pálmi Loftsson forstjórl fór norður til Akureyrar nú í vikunni til að veita nýja varðbátnum móttöku fyrir rík- isins hönd. í fyrrakvöld var haldið samsæti fyrir þá, sem hafa unnið að bátnum. Auk þess voru boðnir bæjarfógeti, þingmaður kaupstaðarins, skólameist- ari, bæjarfulltrúar o. fl. í samsætinu flutti Pálmi Loftsson ræðu og rakti þar sögu landhelgis- málanna seinustu árin. Auk þess fluttu ræður skólameistari, annar yfirsmiður skipsins, þingmaður kjördæmisins o. fl. Varðbáturinn kostar um 130 þús. kr. og er um 70 smál. Hann gengur 11 mílur á kl.st. Frágangur hans allur er talinn mjög vandaður. Fyrir smíði hans hafa staðið Gunnar Jónsson og H. Ryel. | fundinum Aðalsteinn Kristins- | son framkvæmdarstjóri, Ásgeir Þorsteinsson forstjóri, Eggert Kristjánsson kaupm., Finnur Jónsson alþm., Guðmundur Vil- hjálmsson forstjóri, Hallgrímur Benediktsson kaupm., Helgi Bergs forstjóri, Helgi Pétursson fulltrúi, Matthías Þórðarson forminjavörður og Thor Thors alþm. Ríkisstjórnin tilnefndi Jónas Jónsson alþm., Steingrím Steinþórsson alþm., Árna Frið- riksson fiskfræðing, Jón Bald- vinsson alþm., Emil Jónsson alþm. Eru því alls 15 menn í sýningarráðinu. Sýningarráðið- kýs síðan tvo menn í framkvæmdarráðið, en manninn, sem verður formaður þess og framkvæmdarstjóri. Skemmtikvöld Bjarna Björnssonar BJARNI BJÖRNSSON. Á þriðjudagskvöldlð kemur heldur Bjarni Björnsson skemmtikvöld í Gamla Bíó, þar sem ýmsir mætir menn munu birtast áheyrendum og skrafa um hugðarefni sín í svipuðu formi og útvarpsumræður fara fram. Helgi Hjörvar hefir að sögn verið ráðinn til þess að stjóma fundinum. Enn- fremur mun Bjarni syngja gleðisöngva ýmsa. Það mun mála sannast, að ýmsa Reykvíkinga sé farið að lengja eftir að heyra til Bjarna og sjá hann á sviði. Síðast þegar hann efndi til gleðistundar með bæjarbúum, varð hann að endurtaka skemmtun sína ell- efu sinnum og ávallt við húsfylli. Það er líka eins og fólk þurfi ekki að sjá nema hrokkinn hausinn á Bjama til þess að komast i gott skap. Skýrslur frá starfs- mönnurn Fískiíélags Má vænta vaxandi fiiskígengdar á næstu árum? - Friðun Faxaflóa - Aðalfundur Fiskifélags íslands var haldinn í Kaupþíngssalnum í gær. Fundarstjóri var Bene- dikt Sveinsson . Forseti félagsins, Kristján Bergsson, gaf skýrslu um störf- in á síðastliðnu ári með stuttri ræðu og gerði lítillega grein fyr- ir fjárhagnum. Að því loknu flutti Árni Frið- riksson fiskifræðingur erindi um fiskiransóknir sínar. Hann hef- ir um sjö ára bil starfað á veg- um Fiskifélagsins, en lætur nú af þeim störfum og hefir ráðizt í þjónustu atvinnudeildar há- skólans, þar sem sköpuð hafa verið prýðileg skilyrði til vís- indarannsókna á ótæmandi verkefnum, sem bíða. Aðalstarfið á þessu ári hefir nú sem fyrr verið rannsóknir á þorski og sild. Mikill fjöldi þorska hafa verið mældir og af aldursákvörðunum er það ljóst, að árgangurinn 1930 er mjög efnilegur og er líklegt, að nokk- ur hluti hans hryggni í fyrsta skipti í ár. Þorskrannsóknir virðast yfirleitt benda til þess, að á næstu árum sé að, vænta vaxandi gengdar af nýjum þorsk-árgöngum. Eldri síldarrannsóknir hafa leitt í Ijós, að hér við land er um tvö síldarkyn að ræða, annars- vegar vorgotssíidina, sem veið- ist að sumrinu fyrir Norður- landi og hinsvegar sumargots- síld, sem veiðist í hlýrri sjó í Faxaflóa og víðar. Á milli þess- ara síldarkynja er hægt að greina með því að telja hryggj- arliðina. Var haldið áfram rann- sóknunum á þeim grundvelli. í seinni tíð hefir á ári hverju verið farin rannsóknarferð á Þór og hefir rannsóknarstofa verið útbúin í skipinu með til- liti til þessa og bráðlega munu verða sett í skipið sjálfrltandi dýptarmælitæki. f þeim ferðum hefir mikið verið unnið að mæl- ingum á djúphita og yfirborðs- hita sjávarins, svifrannsóknum, rannsóknum á lifnaðarháttum karfa, rækju og leturhumars og fleiru. Nýlega hefir verið tekin upp nákvæm rannsókn á vatnafisk- um. Hefir verið reynt að leysa (Framhald & 4. siSu.)

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.