Nýja dagblaðið - 24.02.1938, Blaðsíða 2

Nýja dagblaðið - 24.02.1938, Blaðsíða 2
2 N Ý J A DAGBLAÐIÐ vextir af þeim eru nokkru hærri en af hinum föstu lánum. Vaxtagreiðslurnar hafa því far- ið lítið eitt hækkandi, míðað við Landsreikn. 1936, en ástæð- an til þess að sjálf umfram- greiðslan nemur þessari fjár- hæð, er sú, að þegar fjárlögin fyrir árið 1937 voru undirbúin, snemma á árinu 1936, var gert Táð fyrir meiri skuldalækkun 1936 og 1937 en raun hefir á orðið. Stjórnur-, löygjafar- og löggœzlukostnaður 9. gr. fjárlaganna, alþingis- kostnaður, hefir farið fram úr áætlun um liðlega 100 þús. kr. Stafar það af því, að Alþingi kom saman tvisvar árið 1937, og hlaut því kostnaðurinn að verða meiri en fjárlög ráðgerðu. Sam- anlögð útgjöld á 10. gr., vegna stjórnarráðsins, hagstofunnar og utanríkismála, hafa aðeins farið 16 þús. kr. fram úr áætl- un. Er sú upphæð svo lág í sam- anburði við fjárveitinguna, að ég sé ekki ástæðu til að fara frekar orðum um hana. — Um- framgreiðslur á 11. gr. A og B hafa orðið 220 þús. kr. Eru þar margir liðir, sem hver um sig hafa farið nokkuð fram úr. Skrifstofukostnaður tollstjórans i Reykjavík, tollgæzla, landhelg- isgæzla og ýmsir aðrir smærri liðir. Sé ég ekki ástæðu til að rekja þá sérstaklega, þar sem þeir eru margir, en ekki háar umframgreiðslur á hverjum um sig. Heilbrigðisntál Þá kem ég að 12. gr. fjárlag- anna, fjárveitingum til heil- brigðismála. Umframgreiðslur hafa orðið 236 þús. kr., sem er all veruleg fjárhæð, og veldur rekstur sjúkrahúsanna hækk- uninni nær eingöngu. Rekstrar- halli þeirra hefir orðið um 235 þús. kr. meiri en gert er ráð fyrir í fjárlögum. Fjárveitinga- nefnd hafði að vísu gert þá breytingu á fjárlögunum, að hún áætlaði sparnað í rekstri sjúkrahúsanna 1937 10% af út- gjöldum þeirra, en hinsvegar verður að segja eins og er, að ekki var bent á neinar leiðir til þess að sparnaðurinn gæti framkvæmst, fremur en gert var í sambandi við samskonar sparnaðaráætlun árið 1936. Niðurstaðan hefir nú orðið sú sama og þá, að sparnaðurinn hefir ekki orðið framkvæmdur. Rekstrarhallinn hefir hinsvegar orðið 140 þús. kr. meiri en á- ætlað var, þótt ekki sé reiknað með 10% sparnaðinum. Halli sjúkrahúsanna hefir reynzt 75 þús. kr. hærri en 1936. Verður að álíta að sá mismunur geti ekki talizt óeðlilegur, þar sem hann mun að mestu leyti stafa af hækkuðu verðlagi á kolum og öðrum slíkum nauðsynjum. Launabreytingar skilst mér að hafi orðið sáralitlar frá því sem var árið áður. Rekstur sjúkrahúsanna er orðínn ákaflega þungur baggi á ríkissjóði, og verður að sjálf- sögðu tekinn til rækilegrar at- hugunar af fjárveitinganefnd þessa þings. Þarf að áthuga á hvern hátt megi þar koma við sparnaði, en hitt er þýðingar- laust, að gera áætlun um sparn- að, sem engar leiðir virðast opn- ar til að framkvæma. Vegagerð og vegu- viðhald 13. gr. A, vegamál, hefir farið verulega fram úr áætlun, eða um 334 þús. krónur. Þar af er að vísu 37 þús. kr. hækkun á þeim vegum, sem lagðir eru fyr- ir tekjur af benzínskatti, en þar sem eyðslan í þá vegi fer eftir því, hvernig ákveðinn tekjulið- ur innheimtist, þarf í rauninni ekki að telja slíkt með venju- legum umframgreiðslum, og eru þær því rétt taldar 300 þús. kr. á þessum lið. Viðhaldskostnað- ur þjóðvega hefir farið 209 þús. kr. fram úr áætlun, tillag til sýsluvegasjóða um 19 þús. kr., framlag til brúargerða um 30 þús. kr., skrifstofukostnaður vegamálastjóra 17 þús. kr., og nokkrir aðrir liðir minna, enda hirði ég ekki að greina það hér. Eins og allir sjá, þá er það einkum viðhaldskostnaður þjóðveganna, sem veldur þess- ari miklu umframgreiðslu til vegamála. Hafði þó fjármála- ráðuneytið mjög brýnt það fyrir hlutaðeigendum, að reyna að halda viðhaldskostnaðinum inn- an þess ramma, sem fjárlög á- kváðu. Fjárveitingin var kr. 650 þús. Hinsvegar er því hald- ið fram, að ómögulegt hafi ver- ið að halda þjóðvegunum við fyrir minni fjárhæð árið 1937 en kr. 859 þús. Er hér um gífurlega aukningu viðhaldskostnaður að ræða frá því sem áður hefir verið, þrátt fyrir óbreytt kaup- gjald. Verður a<J geta þess, að á þessu á Alþingi sjálft mikla sök, og eiga flestir þingmenn þar ó- skilið mál. Rétt um leið og gengið var frá fjárlögunum fyr- ir árið 1937, voru samþykkt hér á Alþingi ný vegalög, sem gerðu að þjóðvegum fjölmarga vegi um land allt, er áður höfðu ver- ið í sýsluvegatölu. Þrátt fyrir þessa stórfelldu breytingu, hækkaði þingið ekkert fjárveit- ingu til vegaviðhalds frá því sem var í frumvarpi stjórnar- innar, og sem var vitanlega miðað við óbreytt ástand í þess- um efnum. Samkvæmt upplýs- ingum frá vegamálastjóra eru það hvorki meira né minna en 70 þús. kr., sem viðhald þessara nýju vega hefir kostað ríkissjóð á árinu 1937. Sýnist mér aug- ljóst, að með núverandi tekjum sínum getur ríkissjóður ekki eytt jafn miklu fé í þessu skyni og gert hefir verið síðastliðið ár. Hlýtur að reka að því fyrr eða síðar, að eitt af tvennu verði að gera: Hækka benzín- skattinn og gangi hækkunin til viðhalds eða breyta aftur um stefnu í vegamálum og færa aftur í tölu sýsluvega eitthvað af þeim vegum sem hafa verið teknir í þjóðvegatölu. Ég geri ráð fyrir, að af þessu tvennu munu margir fremur kjósa fyrri kostinn. Strandferðir, hafnir og vitar Útgjöldin samkvæmt 13. gr. B — til samgangna á sjó — hafa orðið um 83 þús. kr. meiri en fjárlög heimiluðu. Er þetta bein afleiðing af verðhækkun vara til strandferðaskipanna, eink- um kola. Þrátt fyrir þetta hefir rekstrarhalli strandferða- skipanna orðið heldur minni 1937 en 1936, enda urðu skipin fyrir óhöppum árið 1936, sem hækkuðu kostnaðinn. 13. gr. C, vita- og hafnamál, hefir farið fram úr áætlun um kr. 34 þús. Er sú hækkun ein- ungis á rekstri vitamálanna, og gefur ekki nánara tilefni til at- hugasemda að sinni, þar sem hækkunin er á mörgum liðum. Hinsvegar mun þetta auðvitað athugað af fjárveitinganefnd Kennslunuíl 14. gr. B, kostnaður við kennslumál, hefir farið 215 þús. kr. fram úr áætlun. Hefir það löngum viljað við brenna, að þessi grein færi fram úr áætlun, enda fræðslumálin öll orðin mikið bákn. Hækkun þessi, um- fram áætlun, er á mjög mörgum liðum og get ég ekki farið hér að rekja það til hlýtar, en tveir stærstu liðirnir eru barnakenn- aralaun, sem hafa reynzt 100 þús. kr. umfram áætluh, og rekstrarstyrkur gagnfræðaskóla, sem er 36 þús. kr. hærri en fjár- lög ráðgerðu. Nemendafjöldi í gagnfræðaskólum hefir farið mjög vaxandi, og þar af leiðandi útgjöld rikissjóðs, því eins og kunnugt er, greiðir ríkissjóður styrk til skólanna í hlutfalli við nemendafjölda. Til verUlegra fyrir- tteUjju o. fl. Útgjöld samkvæmt 16 gr., til verklegra fyrirtækja, hafa reynzt um 100 þús. kr. lægri en gert var ráð fyrir. Hafa nokkrir liðir greinarinnar verið svo rif- lega áætlaðir að nokkur afgang- ur hefir orðið. Greiðslur samkvæmt 17. gr., til almennrar styrktarstarfsemi, hafa orðið 115 þús. kr. minni en fjárlög ráðgerðu. Stafar þetta af því, að kostnaður við alþýðu- tryggingar hefir ekki orðið eins mikill og gert var ráð fyrir. 19. gr., óviss útgjöld, hafa orð- ið 160 þús. kr. hærri en fjárlög ákveða. Sé ég ekki ástæðu til að sundurliða það frekar nú en áð- ur hefir tíðkazt við sama tæki- færi. Að sjálfsögðu koma þessar greiðslur sundurliðaðar í lands- reikningi. Umframeyðsla 19. gr. er mjög svipuð og undanfarin ár. — Nokkarar greinar fjárlaganna hefi ég ekki nefnt i þessu sam- bandi. Hafa greiðslur samkvæmt þeim orðið svo nærri fjárveit- ingu, að ekki þykir taka því, að telja þær upp hér. Sérstök lög og þingsályktanir Þá eru loks nokkrar greiðslur samkvæmt sérstökum lögum, þingsályktunum og væntanleg- um fjáraukalögum. Greiðslur samkv. þingsályktunum hafa numið kr. 166 þús. Aðallega stafa þessar greiðslur af tapi, er ríkissjóður varð fyrir vegna gengisfalls ítalskrar myntar ár- ið 1936, og sem kemur fram í reikningum ársins 1937. Nemur hluti ríkissjóðs af þessu tapi tæpum 120 þús. kr. Það hefir svo oft og ítarlega verið gerð grein fyrir þessu máli opinber- lega, að ég sé þess enga þörf hér, en vitanlega er þetta styrkur til fiskimanna, sem áttu Labrador- fiskinn, er seldur hafði verið til Ítalíu. Ennfremur hafa verið greiddar 20 þús. kr. vegna at- hugunar á raflögnum út frá Sogsvirkjuninni, 10 þús. kr. til fiskimiðarannsókna (framlag á móti fiskimálanefnd) og 5.500 kr. kostnaður við milliþinga- nefnd í bankamálum. Sam- kvæmt væntanlegum fjárauka- lögum, hafa verið greiddar kr. 10.557.00, og eru þar taldar þær greiðslur einar, sem ekki er tal- in nein heimild frá Alþingi til þess að greiða. Þar af hafa gengið til athugunar um bygg- ingu sementsverksmiðju kr. 4.600.00, og rekstrarstyrkur til húsmæðraskólans á Laugalandi kr. 4.600.00. Þá eru ótaldar þær greiðslur á rekstrarreikn- ingi, sem greiddar eru samkv. heimild í sérstökum lögum, án þess að fjárveiting hafi verið ætluð til þeirra í fjárlögum. Að þessu sinni eru greiðslur þessar ærið háar og hafa orðið ríkis- sjóði þungar i skauti. Samtals eru þær að upphæð kr. 674.240.00. Þar af eru nokkuð margar smá- ar greiðslur, sem í raun og veru er ekki ástæða til að gera grein fyrir hér, þar sem þær birtast nákvæmlega sundurliðaðar á sínum tíma, en 3 liðir mynda að- alupphæðina. Er þá fyrst að nefna þátttöku ríkissjóðs í kostnaði af lögreglu Reykjavík- ur, ca. kr. 40 þús. Á árinu 1937 var lögregluliði Reykjavíkur fjölgað svo, að samkvæmt lög- unum um lögre^lumenn, var ríkissjóði skylt að greiða >/6 hluta kostnaðar við lögregl- una, eftir að fjölgunin hafði verið framkvæmd. Ákvöröunin um aukningu lögreglunnar var tekin eftir að gengið hafði verið frá fjárlögunum og því ekki reiknað meö þessari greiðslu. Annar liður, sem verulega mun- ar um, er framlag til fiskimála- nefndar, kr. 135 þús. Þegar þing var rofið á sl. vori, hafði ekki verið gerð ráðstöfun til þess að mæta fjárþörf fiskimálanefndar þannig að nefndin gæti haldið uppi þeirri starfsemi, sem hún hafði með höndum, unz tóm gæfizt til að leysa fjármál henn- ar til frambúðar. Nú hafa þau verið leyst, en það varð ekki hjá því komizt, að leggja fram fé til starfsemi nefndarinnar á árinu 1937 og kemur það þá vitanlega sem umframgreiðsla á því ári. Varnir gegn fjár- pestinni Þá kem ég að þeim liðum, sem mestum erfiðleikum hafa valdið rikissjóði. Eru það útgjöldin til varnar útbreiðslu sauðfjárveik- innar, og kostnaður við ýmis- konar rannsóknir og tilraunir í því sambandi. Heildarkostnað- urinn á árinu 1937 vegna veiki þessarar, hefir orðið ca. kr. 740 þús. Eru þá meðtaldar 57 þús. kr., sem greiddar voru til að halda uppi nokkrum verklegum framkvæmdum í þeim héruðum, sem harðast urðu úti vegna veikinnar, umfram þaö, sem gert hafði veriö ráð fyrir í fjár- lögum. En sú fjárhæð er sett í fjárlög ársins 1938 og því eigi talin til útgjalda á reikningi ársins 1937. Að henni frádreg- inni er kostnaður vegna sauð- fjárveikinnar kr. 683 þús. síðast liðið ár. Kr. 120 þús. af því fé hafa verið endurgreiddar úr Bjargráðasjóði. 'Það, sem ríkis- sjóður hefir því beinlínis greitt í þessu skyni, eru kr. 560 þús. Samkvæmt lögum um varnir gegn útbreiðslu veikinnar, ber þeim héruðum, sem eigi hafa orðið fyrir veikinni, að endur- greið'a ríkissjóði % hluta af beinum kostnaði við varnirnar. Nemur sú fjárhæð, sem ríkis- sjóður á útistandandi hjá hér- uðum samkvæmt þessu, kr. 160 þús. Kostnaðurinn, sem færður er á rekstrarreikning ríkissjóðs nemur því kr. 402.500.00. En 160 þús. kr. verða færðar sem eign ríkissjóðs hjá hlutaðeig- andi héruðum. Hafa þegar verið gerðar ráðstafanir til að hefja innheimtu þessara upphæða, og verður að óreyndu gengið út frá, að þau héruð, sem enn hafa eigi orðið fyrir barðinu á vágesti þessum, greiði fúslega sinn hluta af kostnaði við varnirnar. Verður hann að teljast mjög léttbær, miðað við gagn það, sem þegar hefir af þeim orðið. Tal- ið er, að tekizt hafi að stöðva framrás veikinnar við hinar yztu varnarlínur, a. m. k. norð- an- og sunnanlands. Þá hefir verið gerð ítarleg grein fyrir umframgreiðslum ársins 1937. Sézt þá, að þær eru með tvennu móti: Annarsveg- ar vegna óumflýjanlegrar verð- hækkunar, svo sem aukinn rekstrarkostnaður sjúkrahús- anna og strandferðaskipa rík- issjóðs, og hinsvegar kostnaður vegna ráðstafana, sem engan óraði fyrir að til framkvæmda kæmu, þegar fjárlög ársins voru samin og samþykkt, t. d. kostnaður vegna sauðfjárveik- innar og gengisfalls lírunnar. Mér þykir í þessu sambandi rétt að vekja athygli á því, að um- mæli ýmsra háttvirtra alþingis- manna, er þeir hafa viðhaft bæði utan þings og innan, að umframgreiðslur ríkissjóðs stöf- uðu aðallega af greiðslu hærri launa en Alþingi gerði ráð fyrir meö fjárveitingum eru gjörsam- lega villandi og röng, eins og samanburðurinn hér að framan hefir glögglega sýnt. Hitt er annað mál, að útaf ber um ein- stök atriði í því efni og þurfa samtök á Alþingi að eflast sem mest til þess að skapa aðhald í þeim málum. Tekjjuafgungurinn Samkvæmt rekstrarreikningi er gert ráð fyrir kr. 874.000,00 rekstrarafgangi árið 1937, og er það að vísu um 170 þús. kr. minna en fjárlög ráðgerðu. En þrátt fyrir það er þetta hag- stæðasta rekstursniðurstaða, sem orðið hefir um mörg ár. Ber sérstaklega að minnast í því sambandi hinna mörgu óhappa, sem ríkissjóður hefir orðið fyrir.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.