Nýja dagblaðið - 24.02.1938, Blaðsíða 3
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
3
Nægir að benda á, að ef ekki
hefðu orðið töp vegna gengis-
fallsins á Ítalíu og ekki þurft að
leggja fram fé vegna mæðiveik-
innar, myndi rekstrarafgangur-
inn hafa orðið um 1,4 millj.
króna, eða allmiklu hærri en
ráðgert var í fjárlögunum.
Ríkisskuldirnar
Ef við athugum þá þessu næst
reikning þann um eignahreyf-
ingar, sem ég las hér áðan, þá
sjáum við að ca. 390 þús. kr.
vantar til þess að allar afborg-
anir af föstum iánum ríkissjóös
séu greiddar af tekjum ársins,
— án þess að nokkur ný lántaka
færi fram. Afborganir af þeim
skuldum, sem ríkissjóður stend-
ur sjálfur straum af, nema kr.
1,35 millj. og af þeim lánum
ríkisins, sem aörar stofnanir
greiða ca. 420 þús. kr. Fastar
afborganir af öllum ríkislánum
nema því nál. 1780 milj. kr. Ættu
því skuldir ríkisins að hafalækk-
að á árinu um ca. 1.400 millj. kr.,
ef ekki kæmu fleiri kurl til graf-
ar. En í því sambandi ber þess
að geta, að ríkissjóður hefir
greitt nokkrar upphæðir, sem
ekki eiga heima meðal útgjalda
í rekstrarreikningi og ekki held-
ur í yfirliti því um eignahreyf-
ingar, er ég las upp. Þessar
greiðslur snerta viðskiptareikn-
inga ríkissjóðs og ýmsra stofn-
ana. Ber fyrst að telja hækkun
á varasjóðum ríkisstofnana kr.
114 þús. kr., þá bráðabirgðalán
og greiddar ábyrgðir 122 þús.
kr., og að lokum hluta héraða
af mæðiveikiskostnaði 160 þús.
kr. Samtals nema þessar greiðsl-
ur 396 þús. kr. Niðurstaðan verð-
ur því sú, að þessi viðskipti
hafa þyngt á ríkissjóði um 390
þús. kr. á árinu 1937, og verða
þess valdandi að skuldir ríkis-
ins á árinu 1937 hafa eigi lækk-
að um 1.400 þús. heldur rétt
um 1 milljón króna eins og skal
nánar rakið í yfirliti um breyt-
ingar á skuldum ríkissjóðs ár-
ið 1937, og yfirliti um skuldirn-
ar í ársbyrjun og árslok.
Skuldaupphæðirnar eru mið-
aðar við 31. desember 1936
og 1937. Getur orðið lítilsháttar
breyting á lausaskuldum við
endanlegan frágang landsreikn-
ingsins, en ekki ætti það að
muna neinu verulegu.
Skuldalœkkunin
tí sl. ári
Samkvæmt þessu yfirliti hafa
þær skuldir, sem rikissjóður
stendur sjálfur straum af lækk-
ar um kr. 565 þús., og kemur
það heim við þær tölur, sem að
framan hafa verið nefndar um
rekstrarafkomu og aðrar út- og
innborganir. Þá hafa skuldir
ríkisins, sem aðrir greiða af
verið lækkaðar um 423 þúsund.
Heildarniðurstaðan er því sú,
eins og áður segir, að skuldir
rikisins hafa lækkað á árinu
um kr. 988 þús., eða nálega 1
millj. kr. Eins og skuldayfirlitið
ber greinilega með sér, þá hefir
orðið nokkur breyting á skuld-
unum að öðru leyti. Lausaskuld-
ir hafa hækkað um ca. 730 þús.,
en iækkunin öll orðið á föstum
lánum. Skuld rikissjóðs við
Landsbankann þ. 31. des. 1937
hefir þó hækkað nokkru meira
en þessari fjárhæð nemur, og er
það vegna þess að lausaskuld
við landheigissjóð hefir iækkað
á móti.
Hagur ríkisins hefir töluvert
batnað á árinu 1937, þrátt fyrir
óvænt óhöpp, þar sem skuldir
hafa lækkað um ca. 1 milljón
króna. Einnig hafa eignir nokk-
uð vaxið, þótt ekki verði gerð
grein fyrir því hér sérstaklega.
Ýmislegt hefir verið um það
rætt af háttvirtum andstæðing-
um, að ríkisssjóður hafi aukið
skuldir sínar við Landsbankann,
og það eitt út af fyrir sig talið
bera vott um erfiða afkomu.
Það væri að vísu æskilegast, eins
og ég hefi margsinnis bent á,
að unnt væri að greiða samn-
ingsbundnar afborganir af
skuldum ríkissjóðs án þess að
taka lán í því skyni. En
þótt þetta sé hið æskilega, þá
verða menn að gera sér það vel
ljóst, að á þessu eru miklir erf-
iðleikar, þar sem afborganir af
öllum skuldum ríkisins nema
um 1.780 millj. króna árlega.
Ef þetta tækist svaraði það til
þess að allar skuldir ríkisins
væru greiddar á 27 árum. í fjár-
lögum yfirstandandi árs er gert
ráð fyrir að þetta geti tekizt.
Reynslan á eftir að leiða í ljós,
hvort það tekst, en fróðlegt er
í því sambandi að gefa því
gaum, að ef ríkissjóður hefði
ekki ekki orðið fyrir hinuni ó-
væntu óhöppum síðastliðið ár,
af völdum mæðiveiki og gengis-
falls lírunnar, þá hefði tekist að
lækka skuldirnar um 1.670 millj.
króna. Það er rétt, að Lands-
bankinn á erfitt með að sjá
ríkissjóöi fyrir iánum til þess
að greiða niður aðrar skuldir.
Alþingi hefir því heimilað ríkis-
stjórninni samkv. tillögu henn-
ar að taka innanlands allt að
3 millj. króna ián. Mun ríkis-
stjórnin reyna að notfæra sér
þessa heimild, þótt það muni
að sjálfsögðu verða gert á eigi
skemmri tíma enn 3 árum.
Fjjúrlayufrumvaririff
fyrir áriif 1939
Fjárlagafrumvarp það fyi’ir
árið 1939, sem hér liggur fyrir
til 1. umræðu, er nálega eins
að efni og fjárlög yfii’standandi
árs, sem afgreidd voru rétt fyr-
ir áramótin og sé ég því ekki
ástæðu til langra skýringa á því.
Engin ástæða var til verulegra
breytinga. Ef við athugum þetta
frumvarp og fjárlög yfirstand-
andi árs í sambandi við niður-
stöður ái’sins 1937, þá sjáum
við, að allar tekjur reyndust ár-
ið 1937 kr. 18 millj., en eru áætl-
aðar 17.4 millj. í fjárlagafrv.
fyrir 1939 og fjárlögum yfir-
standandi árs. Hafa þær því
reynzt 600 þús. kr; meiri en
áætlað er í frumvarpinu. Nú
ber þess að geta, að nýri’a tekna
var aflað á síðasta þingi, sem
ætla má að nemi 1,5 millj. kr.
Verður því að álíta tekjuáætlun
fjárlagafrv. og fjárlaga yfir-
standandi árs sæmilega varlega.
En þess verður að gæta vel að
verðlag er lækkandi frá þvi
sem var á siðastliðnu ári og tel
ég því að öllu samanlögðu á
engan hátt hægt að tefla á tæp-
ara vað um áætlun tekna og
gjalda en gert er í frumvarpinu
eins og það er nú. Það verður
ávalt að gera ráð fyi'ir ófyrir-
sjáaniegum útgjöldum, þótt
reyna verði eftir megni að
standa gegn þeim. Það er því
ekki unnt að bæta neinum veru-
legum útgjöldum á frumvarp
þetta til fjárlaga ef varleg á
að vera afgreiðsla þess.
V erzlunarjjiifnuðurinn
á árinu 1937
Þá mun ég fara nokkrum orð-
um um viðskiptin við útlönd
og gjaldeyrisverzlunina 1937. Ég
hefi að vísu utan þings gert all-
nákvæma grein fyrir þessum
málum. Geri ég ráð fyrir að
háttvirtir alþingismenn hafi
kynnt sér þessa greinargerð
þótt hún væri ekki ætluð Al-
þingi sérstaklega og verð þvi
stuttorðari en ella.
Útflutningur - síðastliðið ár
nam samkvæmt bráðabirgða-
skýrslum hagstofunnar, kr. 58,8
millj.' kr. eða rúmlega 10 millj.
kr. meiru en 1936. Innflutning-
ur nam samkvæmt sömu heim-
ildum, 51,6 millj. kr., en árið
1936 kr. 41,6 millj. Lætur því
nærri, að bæði út- og innflutn-
ingur hafi hækkað um 10 millj.
kr. síðastliðið ár. Viðskipta-
jöfnuður var hagstæður um 7,2
miiij. kr. Þessi innflutnings-
hækkun á ekki rætur að rekja til
þess, aö slakað hafi verið á inn-
flutningshöftunum, heldur ná-
lega eingöngu til hækkaðs verð-
lags og farmgjalda. Einnig til
aukinna verksmiðj ubygginga og
aukinnar síldarútgerðar.
Er þetta hagstæðasti verzlun-
arjöfnuður, sem náðst hefir síð-
an árið 1932.
Ekki hefir tekizt að afla full-
kominna skýrslna um hinar
svokölluðu „duldu greiðslur“, en
talið hefir verið, og til þess
bendir óneitanlega margt, að
verzlunarjöfnuðurinn hafi und-
anfarin ár þurft að vera hag-
stæður um allt að 6 millj. kr., til
þess að skuldir þjóðarinnar við
útlönd eigi færi vaxandi. En
þá eru ekki meðtaldar afborg-
anir af föstum lánum, og ef
enginn innflutningur lánsfjár
ætti sér stað, þyrfti verzlunar-
jöfnuðui’inn að vera hagstæöur
um töluvert hæri’i fjárhæð ef
gjaldeyrisverzlunin ætti að geta
gengið án erfiðleika. Þegar tekið
er tillit til þess, að árið 1937 var
nokkur innflutningur erlends
lánsfjár til landsins, þótt hann
væri með minnsta móti, ætti
ekki vafi á því að leika, að
greiðslujöfnuður hefði náðst á
síðastliðnu ári ef ekki hefðu
komið til greina alveg sérstak-
ar ástæður. En eins og alkunn-
ugt er, hafa erfiðleikar gjald-
eyi’isverzlunarinnar verið xrijög
miklir árið 1937 og eru enn mjög
tilfinnanlegir. Hafa menn al-
mennt varla gert sér grein fyrir
hvernig á þessu stendur, þar
sem verzlunarjöfnuðurinn er
hagstæðari en áður hefir verið.
Eins og ég gat um í yfirliti því
um gjaldeyrisverzlunina, sem
ég áðan vitnaði til, stafa erfið-
leikarnir á þessu ári aðallega af
þvi, að vörusalan til þeirra
landa, sem ekki greiða okkur í
frjálsum gjaldeyri, hefir orðið
ca. 2 milljónum króna meiri á
árinu en vörukaup okkar hjá
þessum þjóðum, og sú fjárhæð
af útflutningsverðmæti því ekki
verið greidd til landsins á árinu.
Þar við bætist svo, að skuldir
bankanna voru í árslok heldur
lægri en um næstu áramót þar
á undan, vegna minnkaðra fisk-
birgða. Þetta eru höfuðástæð-
urnar fyrir því, að þótt verzlun-
arjöfnuður sl. árs væri með
bezta móti, hefir gjaldeyris-
verzlunin gengið níjög örðug-
lega.
NÝJA DAGBLAÐIÐ
Útgefandi: Blaðaútgáfan h.f.
Ritstjóri:
ÞÓRARINN ÞÓRARIN SSON.
Ritstjórnarskrifstofurnar:
Lindarg. 1 D. Símar 4373 og 2353.
Afgr. og auglýsingaskrifstofa:
Lindargötu 1D. Sími 2323.
Áskrifarverð kr. 2,00 á mánuði.
í lausasölu 10 aura eintakið.
Prentsmiðjan Edda h.f.
Símar 3948 og 3720.
,.Duldar greiðslur“
1938
Samkvæmt yfirliti, sem hag-
stofan hefir gert um afborganir
og vexti á yfirstandandi ári, af
föstum, erlendum lánum ríkis-
sjóðs, banka, sveitar- og bæjar-
félaga og einstaklinga, nema af-
borganir kr. 4.7 millj. og vextir
kr. 3.5 millj., eða samtals af-
borganir og vextir árlega 8.2
millj. kr. og mun þó fremur van-
talið, þar sem mjög er hæpið,
að Hagstofan hafi fengið upp-
iýsingar um öll smærri lán ein-
staklinga. Þetta er hærri fjár-
hæð en þurft hefir að greiða
undanfarin ár og kemur það til
af því, að nú bætist við afborgun
af Sogsláninu, og ýmsum öðrum
lánum. Er enginn efi á því, að
hallinn á „duldu greiðslunum“
fer vaxandi. Ég hefi falið Hag-
stofunni rannsókn á þessu. Nið-
urstöðutölur liggja þó ekki fyrir
ennþá, en mér virðist allt benda
til þess, að hallinn á duldu
greiðslunum muni nema allt að
10 millj. kr., ef afborganirnar af
föstum lánum eru taldar með.
Ef verzlunarjöfnuðurinn væri
hagstæður um 10 millj. kr.,
myndu skuldir þjóðarinnar við
útlönd, þá að sjálfsögðu lækka
verulega, eða sem svaraði föst-
um afborgunum. Ef enginn inn-
flutningur lánsfjár á sér stað,
þyrfti verzlunarjöfnuðurinn því
væntanlega í framtíðinni að
vera hagstæður um ca. 10 mill-
jónir, til þess að erfiðleikar
gjaldeyrisverzlunarinnar færu
ekki vaxandi. Hitt er annað mál,
hvort kleyft er að ná slíkri nið-
urstöðu að óbreyttu ástandi
fiskverzlunarinnar og með því
að leggja annað eins fjármagn
í uppbyggingu iðnaðarins og
gert hefir verið undanfarin ár.
Eins og stendur er mjög þungt
fyrir fæti í þessum málum, og
a. m. k. ekki minni ástæða til að
framkvæma innflutningshöftin
stranglega enn verið hefir und-
anfarið.
Mcðalútflutnmgur þrfggja sföustu ára er,
vegna lokunar saltfisk smarkaðanna, 8 millj.
kr. lægri að meðaltali á ári en næstu 10 ár
á undan. Þrátt fyrir það er verzlunarjöfnuð-
urinn hagstæður um 5.3 millj. kr. að meðal-
tali síðustu árin. en ekki nema um 2.5 millj.
kr. fvrri 10 árin.
Um nokkur undanfarin ár
hefir þjóðin átt við mikla gjald-
eyriserfiðleika að striða og er
ekki um annað meira rætt
manna á milli en þau vandræði.
í raun og veru hafa þessir erfið-
leikar stöðugt gert vart við sig
síðan 1931, þótt fyrst þrengdi
verulega að eftir 1934. Þá hefir
einnig verið rætt töluvert um á-
stæðurnar fyrir þessum erfið-
leikum. Sökum þess, aö áríðandi
er fyrir þjóðina alla að gera sér
ljósa grein fyrir því á hvaða leið
hún er í þessu efni, og ennfrem-
ur vegna þess, að nauðsynlegt er
fyrir þá, sem viðskipti eiga við
okkur, að eiga aðgang að upp-
lýsingum um þessi mál, vil ég
með nokkrum orðum leitast við
að gera fyllri grein en áður hefir
verið gerð íyrir þróun síðustu 10
—20 ára.
Lokun saltfisks-
markaðanna
Það verður að líta svo á,
að alger timamót hafi orðið
í verzlun okkar og viðskiptum,
þegar Spánn og Ítalía lokuðu að
miklu leyti mörkuðum sínum
fyrir íslenzkum saltfiski.
Árið 1934 er síðasta árið, sem
nokkurn veginn eðlileg viðskipti
áttu sér stað við þessi lönd, og
hið nýja timabil í utanrikis-
verzlun okkar hefst því Tneð ár-
inu 1935. Árið 1934 seldum við
til Ítalíu 16725 tonn af verkuð-
um og óverkuðum saltfiski. Sið-
astliðið ár seldum við þangað
7576 tonn. Árið 1934 seldum við
til Spánar 18589 tonn, og var
það þó miklu minna en oft áður,
en síðastliðið ár seldum við
þangað 578 tonn. Árið 1934
seldum við til Portúgal 19546
tonn, en síðastliðið ár 12330 tn.
Árið 1934 seldum við til annarra
landa samtals 9551 tonn, en árið
1937 17896 tonn. Við samanburð
þessara talna verður ljóst, að
aukning útflutningsins til ann-
arra landa en Suðurlandanna
þriggja, nemur aðeins ríflega
þeirri tonnati<lu, sem lækkað
hefir útflutningurinn til Portu-
gal. Nærri lætur því, að útflutn-
ingslækkunin til Spánar og ít-
alíu, ca. 27 þús. tonn, hafi orðið
án nokkurrar hækkunar á móti.
Nemur lækkunin nærri því
heildarfiskafla ársins 1937. Það
eru því engar ýkjur, þótt því
sé haldið fram, að við þetta hafi
skapazt nýtt tímabil í viðskipt-
um okkar við aðrar þjóðir. Nær
því um sama leyti bættist hér
við, að Þjóðverjar, ein af aðal-
viðskiptaþjóðum íslands, hætti
að greiða fyrir útflutningsvörur