Nýja dagblaðið - 24.02.1938, Síða 3

Nýja dagblaðið - 24.02.1938, Síða 3
N Ý J A DAGBLAÐIÐ 3 Nægir að benda á, að ef ekki hefðu orðið töp vegna gengis- fallsins á Ítalíu og ekki þurft að leggja fram fé vegna mæðiveik- innar, myndi rekstrarafgangur- inn hafa orðið um 1,4 millj. króna, eða allmiklu hærri en ráðgert var í fjárlögunum. Ríkisskuldirnar Ef við athugum þá þessu næst reikning þann um eignahreyf- ingar, sem ég las hér áðan, þá sjáum við að ca. 390 þús. kr. vantar til þess að allar afborg- anir af föstum iánum ríkissjóös séu greiddar af tekjum ársins, — án þess að nokkur ný lántaka færi fram. Afborganir af þeim skuldum, sem ríkissjóður stend- ur sjálfur straum af, nema kr. 1,35 millj. og af þeim lánum ríkisins, sem aörar stofnanir greiða ca. 420 þús. kr. Fastar afborganir af öllum ríkislánum nema því nál. 1780 milj. kr. Ættu því skuldir ríkisins að hafalækk- að á árinu um ca. 1.400 millj. kr., ef ekki kæmu fleiri kurl til graf- ar. En í því sambandi ber þess að geta, að ríkissjóður hefir greitt nokkrar upphæðir, sem ekki eiga heima meðal útgjalda í rekstrarreikningi og ekki held- ur í yfirliti því um eignahreyf- ingar, er ég las upp. Þessar greiðslur snerta viðskiptareikn- inga ríkissjóðs og ýmsra stofn- ana. Ber fyrst að telja hækkun á varasjóðum ríkisstofnana kr. 114 þús. kr., þá bráðabirgðalán og greiddar ábyrgðir 122 þús. kr., og að lokum hluta héraða af mæðiveikiskostnaði 160 þús. kr. Samtals nema þessar greiðsl- ur 396 þús. kr. Niðurstaðan verð- ur því sú, að þessi viðskipti hafa þyngt á ríkissjóði um 390 þús. kr. á árinu 1937, og verða þess valdandi að skuldir ríkis- ins á árinu 1937 hafa eigi lækk- að um 1.400 þús. heldur rétt um 1 milljón króna eins og skal nánar rakið í yfirliti um breyt- ingar á skuldum ríkissjóðs ár- ið 1937, og yfirliti um skuldirn- ar í ársbyrjun og árslok. Skuldaupphæðirnar eru mið- aðar við 31. desember 1936 og 1937. Getur orðið lítilsháttar breyting á lausaskuldum við endanlegan frágang landsreikn- ingsins, en ekki ætti það að muna neinu verulegu. Skuldalœkkunin tí sl. ári Samkvæmt þessu yfirliti hafa þær skuldir, sem rikissjóður stendur sjálfur straum af lækk- ar um kr. 565 þús., og kemur það heim við þær tölur, sem að framan hafa verið nefndar um rekstrarafkomu og aðrar út- og innborganir. Þá hafa skuldir ríkisins, sem aðrir greiða af verið lækkaðar um 423 þúsund. Heildarniðurstaðan er því sú, eins og áður segir, að skuldir rikisins hafa lækkað á árinu um kr. 988 þús., eða nálega 1 millj. kr. Eins og skuldayfirlitið ber greinilega með sér, þá hefir orðið nokkur breyting á skuld- unum að öðru leyti. Lausaskuld- ir hafa hækkað um ca. 730 þús., en iækkunin öll orðið á föstum lánum. Skuld rikissjóðs við Landsbankann þ. 31. des. 1937 hefir þó hækkað nokkru meira en þessari fjárhæð nemur, og er það vegna þess að lausaskuld við landheigissjóð hefir iækkað á móti. Hagur ríkisins hefir töluvert batnað á árinu 1937, þrátt fyrir óvænt óhöpp, þar sem skuldir hafa lækkað um ca. 1 milljón króna. Einnig hafa eignir nokk- uð vaxið, þótt ekki verði gerð grein fyrir því hér sérstaklega. Ýmislegt hefir verið um það rætt af háttvirtum andstæðing- um, að ríkisssjóður hafi aukið skuldir sínar við Landsbankann, og það eitt út af fyrir sig talið bera vott um erfiða afkomu. Það væri að vísu æskilegast, eins og ég hefi margsinnis bent á, að unnt væri að greiða samn- ingsbundnar afborganir af skuldum ríkissjóðs án þess að taka lán í því skyni. En þótt þetta sé hið æskilega, þá verða menn að gera sér það vel ljóst, að á þessu eru miklir erf- iðleikar, þar sem afborganir af öllum skuldum ríkisins nema um 1.780 millj. króna árlega. Ef þetta tækist svaraði það til þess að allar skuldir ríkisins væru greiddar á 27 árum. í fjár- lögum yfirstandandi árs er gert ráð fyrir að þetta geti tekizt. Reynslan á eftir að leiða í ljós, hvort það tekst, en fróðlegt er í því sambandi að gefa því gaum, að ef ríkissjóður hefði ekki ekki orðið fyrir hinuni ó- væntu óhöppum síðastliðið ár, af völdum mæðiveiki og gengis- falls lírunnar, þá hefði tekist að lækka skuldirnar um 1.670 millj. króna. Það er rétt, að Lands- bankinn á erfitt með að sjá ríkissjóöi fyrir iánum til þess að greiða niður aðrar skuldir. Alþingi hefir því heimilað ríkis- stjórninni samkv. tillögu henn- ar að taka innanlands allt að 3 millj. króna ián. Mun ríkis- stjórnin reyna að notfæra sér þessa heimild, þótt það muni að sjálfsögðu verða gert á eigi skemmri tíma enn 3 árum. Fjjúrlayufrumvaririff fyrir áriif 1939 Fjárlagafrumvarp það fyi’ir árið 1939, sem hér liggur fyrir til 1. umræðu, er nálega eins að efni og fjárlög yfii’standandi árs, sem afgreidd voru rétt fyr- ir áramótin og sé ég því ekki ástæðu til langra skýringa á því. Engin ástæða var til verulegra breytinga. Ef við athugum þetta frumvarp og fjárlög yfirstand- andi árs í sambandi við niður- stöður ái’sins 1937, þá sjáum við, að allar tekjur reyndust ár- ið 1937 kr. 18 millj., en eru áætl- aðar 17.4 millj. í fjárlagafrv. fyrir 1939 og fjárlögum yfir- standandi árs. Hafa þær því reynzt 600 þús. kr; meiri en áætlað er í frumvarpinu. Nú ber þess að geta, að nýri’a tekna var aflað á síðasta þingi, sem ætla má að nemi 1,5 millj. kr. Verður því að álíta tekjuáætlun fjárlagafrv. og fjárlaga yfir- standandi árs sæmilega varlega. En þess verður að gæta vel að verðlag er lækkandi frá þvi sem var á siðastliðnu ári og tel ég því að öllu samanlögðu á engan hátt hægt að tefla á tæp- ara vað um áætlun tekna og gjalda en gert er í frumvarpinu eins og það er nú. Það verður ávalt að gera ráð fyi'ir ófyrir- sjáaniegum útgjöldum, þótt reyna verði eftir megni að standa gegn þeim. Það er því ekki unnt að bæta neinum veru- legum útgjöldum á frumvarp þetta til fjárlaga ef varleg á að vera afgreiðsla þess. V erzlunarjjiifnuðurinn á árinu 1937 Þá mun ég fara nokkrum orð- um um viðskiptin við útlönd og gjaldeyrisverzlunina 1937. Ég hefi að vísu utan þings gert all- nákvæma grein fyrir þessum málum. Geri ég ráð fyrir að háttvirtir alþingismenn hafi kynnt sér þessa greinargerð þótt hún væri ekki ætluð Al- þingi sérstaklega og verð þvi stuttorðari en ella. Útflutningur - síðastliðið ár nam samkvæmt bráðabirgða- skýrslum hagstofunnar, kr. 58,8 millj.' kr. eða rúmlega 10 millj. kr. meiru en 1936. Innflutning- ur nam samkvæmt sömu heim- ildum, 51,6 millj. kr., en árið 1936 kr. 41,6 millj. Lætur því nærri, að bæði út- og innflutn- ingur hafi hækkað um 10 millj. kr. síðastliðið ár. Viðskipta- jöfnuður var hagstæður um 7,2 miiij. kr. Þessi innflutnings- hækkun á ekki rætur að rekja til þess, aö slakað hafi verið á inn- flutningshöftunum, heldur ná- lega eingöngu til hækkaðs verð- lags og farmgjalda. Einnig til aukinna verksmiðj ubygginga og aukinnar síldarútgerðar. Er þetta hagstæðasti verzlun- arjöfnuður, sem náðst hefir síð- an árið 1932. Ekki hefir tekizt að afla full- kominna skýrslna um hinar svokölluðu „duldu greiðslur“, en talið hefir verið, og til þess bendir óneitanlega margt, að verzlunarjöfnuðurinn hafi und- anfarin ár þurft að vera hag- stæður um allt að 6 millj. kr., til þess að skuldir þjóðarinnar við útlönd eigi færi vaxandi. En þá eru ekki meðtaldar afborg- anir af föstum lánum, og ef enginn innflutningur lánsfjár ætti sér stað, þyrfti verzlunar- jöfnuðui’inn að vera hagstæöur um töluvert hæri’i fjárhæð ef gjaldeyrisverzlunin ætti að geta gengið án erfiðleika. Þegar tekið er tillit til þess, að árið 1937 var nokkur innflutningur erlends lánsfjár til landsins, þótt hann væri með minnsta móti, ætti ekki vafi á því að leika, að greiðslujöfnuður hefði náðst á síðastliðnu ári ef ekki hefðu komið til greina alveg sérstak- ar ástæður. En eins og alkunn- ugt er, hafa erfiðleikar gjald- eyi’isverzlunarinnar verið xrijög miklir árið 1937 og eru enn mjög tilfinnanlegir. Hafa menn al- mennt varla gert sér grein fyrir hvernig á þessu stendur, þar sem verzlunarjöfnuðurinn er hagstæðari en áður hefir verið. Eins og ég gat um í yfirliti því um gjaldeyrisverzlunina, sem ég áðan vitnaði til, stafa erfið- leikarnir á þessu ári aðallega af þvi, að vörusalan til þeirra landa, sem ekki greiða okkur í frjálsum gjaldeyri, hefir orðið ca. 2 milljónum króna meiri á árinu en vörukaup okkar hjá þessum þjóðum, og sú fjárhæð af útflutningsverðmæti því ekki verið greidd til landsins á árinu. Þar við bætist svo, að skuldir bankanna voru í árslok heldur lægri en um næstu áramót þar á undan, vegna minnkaðra fisk- birgða. Þetta eru höfuðástæð- urnar fyrir því, að þótt verzlun- arjöfnuður sl. árs væri með bezta móti, hefir gjaldeyris- verzlunin gengið níjög örðug- lega. NÝJA DAGBLAÐIÐ Útgefandi: Blaðaútgáfan h.f. Ritstjóri: ÞÓRARINN ÞÓRARIN SSON. Ritstjórnarskrifstofurnar: Lindarg. 1 D. Símar 4373 og 2353. Afgr. og auglýsingaskrifstofa: Lindargötu 1D. Sími 2323. Áskrifarverð kr. 2,00 á mánuði. í lausasölu 10 aura eintakið. Prentsmiðjan Edda h.f. Símar 3948 og 3720. ,.Duldar greiðslur“ 1938 Samkvæmt yfirliti, sem hag- stofan hefir gert um afborganir og vexti á yfirstandandi ári, af föstum, erlendum lánum ríkis- sjóðs, banka, sveitar- og bæjar- félaga og einstaklinga, nema af- borganir kr. 4.7 millj. og vextir kr. 3.5 millj., eða samtals af- borganir og vextir árlega 8.2 millj. kr. og mun þó fremur van- talið, þar sem mjög er hæpið, að Hagstofan hafi fengið upp- iýsingar um öll smærri lán ein- staklinga. Þetta er hærri fjár- hæð en þurft hefir að greiða undanfarin ár og kemur það til af því, að nú bætist við afborgun af Sogsláninu, og ýmsum öðrum lánum. Er enginn efi á því, að hallinn á „duldu greiðslunum“ fer vaxandi. Ég hefi falið Hag- stofunni rannsókn á þessu. Nið- urstöðutölur liggja þó ekki fyrir ennþá, en mér virðist allt benda til þess, að hallinn á duldu greiðslunum muni nema allt að 10 millj. kr., ef afborganirnar af föstum lánum eru taldar með. Ef verzlunarjöfnuðurinn væri hagstæður um 10 millj. kr., myndu skuldir þjóðarinnar við útlönd, þá að sjálfsögðu lækka verulega, eða sem svaraði föst- um afborgunum. Ef enginn inn- flutningur lánsfjár á sér stað, þyrfti verzlunarjöfnuðurinn því væntanlega í framtíðinni að vera hagstæður um ca. 10 mill- jónir, til þess að erfiðleikar gjaldeyrisverzlunarinnar færu ekki vaxandi. Hitt er annað mál, hvort kleyft er að ná slíkri nið- urstöðu að óbreyttu ástandi fiskverzlunarinnar og með því að leggja annað eins fjármagn í uppbyggingu iðnaðarins og gert hefir verið undanfarin ár. Eins og stendur er mjög þungt fyrir fæti í þessum málum, og a. m. k. ekki minni ástæða til að framkvæma innflutningshöftin stranglega enn verið hefir und- anfarið. Mcðalútflutnmgur þrfggja sföustu ára er, vegna lokunar saltfisk smarkaðanna, 8 millj. kr. lægri að meðaltali á ári en næstu 10 ár á undan. Þrátt fyrir það er verzlunarjöfnuð- urinn hagstæður um 5.3 millj. kr. að meðal- tali síðustu árin. en ekki nema um 2.5 millj. kr. fvrri 10 árin. Um nokkur undanfarin ár hefir þjóðin átt við mikla gjald- eyriserfiðleika að striða og er ekki um annað meira rætt manna á milli en þau vandræði. í raun og veru hafa þessir erfið- leikar stöðugt gert vart við sig síðan 1931, þótt fyrst þrengdi verulega að eftir 1934. Þá hefir einnig verið rætt töluvert um á- stæðurnar fyrir þessum erfið- leikum. Sökum þess, aö áríðandi er fyrir þjóðina alla að gera sér ljósa grein fyrir því á hvaða leið hún er í þessu efni, og ennfrem- ur vegna þess, að nauðsynlegt er fyrir þá, sem viðskipti eiga við okkur, að eiga aðgang að upp- lýsingum um þessi mál, vil ég með nokkrum orðum leitast við að gera fyllri grein en áður hefir verið gerð íyrir þróun síðustu 10 —20 ára. Lokun saltfisks- markaðanna Það verður að líta svo á, að alger timamót hafi orðið í verzlun okkar og viðskiptum, þegar Spánn og Ítalía lokuðu að miklu leyti mörkuðum sínum fyrir íslenzkum saltfiski. Árið 1934 er síðasta árið, sem nokkurn veginn eðlileg viðskipti áttu sér stað við þessi lönd, og hið nýja timabil í utanrikis- verzlun okkar hefst því Tneð ár- inu 1935. Árið 1934 seldum við til Ítalíu 16725 tonn af verkuð- um og óverkuðum saltfiski. Sið- astliðið ár seldum við þangað 7576 tonn. Árið 1934 seldum við til Spánar 18589 tonn, og var það þó miklu minna en oft áður, en síðastliðið ár seldum við þangað 578 tonn. Árið 1934 seldum við til Portúgal 19546 tonn, en síðastliðið ár 12330 tn. Árið 1934 seldum við til annarra landa samtals 9551 tonn, en árið 1937 17896 tonn. Við samanburð þessara talna verður ljóst, að aukning útflutningsins til ann- arra landa en Suðurlandanna þriggja, nemur aðeins ríflega þeirri tonnati<lu, sem lækkað hefir útflutningurinn til Portu- gal. Nærri lætur því, að útflutn- ingslækkunin til Spánar og ít- alíu, ca. 27 þús. tonn, hafi orðið án nokkurrar hækkunar á móti. Nemur lækkunin nærri því heildarfiskafla ársins 1937. Það eru því engar ýkjur, þótt því sé haldið fram, að við þetta hafi skapazt nýtt tímabil í viðskipt- um okkar við aðrar þjóðir. Nær því um sama leyti bættist hér við, að Þjóðverjar, ein af aðal- viðskiptaþjóðum íslands, hætti að greiða fyrir útflutningsvörur

x

Nýja dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.