Nýja dagblaðið - 15.03.1938, Síða 1
ÚTSALA
þessa viku.
Lokað
næstu viku vegna hreingern-
ingar á búðinni.
V-E-S-T-A
Sími 4197. Laugaveg 40.
ID/^GrlBIL^iÐlliÐ
6. ár. Reykjavík, þriðjudaginn 15. marz 1938. 61. blað
ANNALL
64. dagur ársins:
Sólaruppkoma kl. 6,50. Sólarlag kl.
6,25. — Árdegisháflæður í Reykja-
vík kl. 4,50.
Veðurútlit í Reykjavík:
Allhvass norðan. Úrkomulaust.
Kaldara.
Ljósatími bifreiða
er frá kl. 6,50 síðdegis til kl. 6,25
árdegis.
Næturlæknir
er í nótt Bergsveinn Ólafsson, Há-
vallagötu 47, sími 4985. — Næturvörð-
ur er þessa viku í Ingólfsapóteki og
Laugavegsapóteki.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 8,30 Dönskukennsla. 10,00 Veður-
fregnir. 12,00 Hádegisútvarp. 15,00
Veðurfregnir. 18,45 Þýzkukennsla. 19,10
Veðurfregnir. 19,20 Þingfréttir. 19,40
Auglýsingar. 19,50 Fréttir. 20,15 Tón-
leikar Tónlistarskólans. 20,50 Hús-
mæðratími: Tæknin í þarfir heimil-
anna (frú Jónína Sigurðardóttir Lín-
dal á Lækjamóti). 21,10 Útvarp frá
fundi stúkunnar „Verðandi“, nr. 9 í
Reykjavík. 23,00 Dagskrárlok.
Póstferðir á morgun:
Frá Reykjavík: Mosfellssveitar-,
Kjalarness-, Kjósar-, Reykjaness-,
Ölfuss- og Flóa-póstar. Hafnarfjörð-
ur. Seltjarnarnes.
Til Reykjavíkur: Mosfellssveitar-,
Kjalarness-, Kjósar-, Reykjaness-,
Ölfuss- og Flóa-póstar. Hafnarfjörð-
ur. Seltjarnarnes. Norðanpóstur og
Snæfellsnespóstur.
Skipafréttir.
Gullfoss fer til Leith og Kaup-
mannahafnar í kvöld. Goðafoss er í
Kaupmannahöfn. Brúarfoss fór frá
Gautaborg í gær áleiðis til Kaup-
mannahafnar. Dettifoss er í Grimsby.
Lagarfoss var á Akureyri í gærmorgim.
Selfoss kom til Reykjavíkur frá út-
löndum um hádegi í gær. — Esja var
á Norðfirði kl. 4 í gær. — Lýra er í
Bergen.
Sundmót
hefst í Sundhöllinni í kvöld kl. 8,30.
Verður þar keppt í 50 m. drengjasundi,
frjáls aðferð, 500 m. bringusundi karla,
50 m. sundi kvenna, frjáls aðferð,
400 m. bringusundi kvenna og 4x100
m. boðsundi karla. Mótið heldur áfram
á fimmtudaginn. Keppendur eru alls
49 frá 5 félögum.
Skólakcppnin.
Á sunnudaginn fór fram keppni á
milli Samvinnuskólans og Kennara-
skólans og Háskólans og gagnfræða-
skóla Reykvíkinga. Samvinnuskólinn
og Háskólinn sigruðu. í dag kl. 6 fer
fram keppni á milli Háskólans og
Samvinnuskólans.
Fundur
er 1 kvöld í Alþýðuhúsinu í deild
nr. 5 í Kaupfélaginu. Allir meðlimir
kaupfélagsins geta séð í hvaða deild
þeir eru á skriflegu fundarboði, sem
þeir hafa fengið. Menn eru áminntir
um að sækja deildarfundina, sem eru
bæði skemmtilegir og þýðingarmiklir.
Skátar.
Skátastúlkur og drengir. Mætið við
Miklagarð, Laufásvegi 13, á morgun
kl. 1,15, stundvíslega, vegna jarðar-
farar Davíðs Sch. Thorsteinssonar.
Næsti háskólafyrirlestur
þýzka sendikennarans verður í kvöld
kl. 8. Fjallar um gamanleiki Gerhart
Hauptmanns.
Fomar dyggðir
verða sýndar í kvöld kl. 8.
Veðriff (mánud. kl. 17):
Fyrir sunnan land er alldjúp lægð,
sem hreyfist til norðausturs. Sunnan-
lands er austlæg átt með rigningu og
5—7 st. hita. Norðanlands (Snæfellsnes
til Langanes) er hvöss A-NA-átt með
mikilli snjókomu eða slyddu. Á Suð-
vesturlandi mun vindur verða norð-
lægur á morgun.
Átkvæðagreiðslan um tillögur sáttasemjara
Sjómenn ielldu
tillögurnar, en
útgerðarmenn
svara út í hött
Göring ögrar
Tékkoslovakíu
Svar tékkneska
hermál ar áðherr-
ans
LONDON:
í ræðu, sem Göhring hélt í Berli.n
á sunnudaginn, sagði hann, að enginn
hefði neinn rétt til þess að skipta
sér af því, þótt Þjóðverjar nálguðust
Þjóðverja stjórnmálalega. „Vér áskilj-
um oss rétt“, sagði Göhring, „til þess
að vernda hag Þjóðverja í öðrum
löndum. Þeir sem hugsa sér að koma
í veg fyrir það, munu komast að raun
um, að þeir standa andspænis fall-
byssum vorum, og að vér munum ekki
hika við að hleypa af þeim".
Hermálaráðherra Tékkóslóvakíu ræðu
á sunnudaginn.. Hann sagði m. a.:
„Tékkóslóvakía er öðruvísi sett en
Austurríki.. Hún er við því búin að
veita mótstöðu, ef til innrásar skyldi
koma, og hún á sér bandamenn, sem
myndu koma henni til hjálpar. Látum
hvern og einn gera sér það Ijóst, að
vopnuö innrás í Tékkóslóvakíu myndi
undir eins leiða til Evrópustyrjaldar”.
Franska stjórnín
LONDON:
Leon Blum hefir myndað stjórn með
stuðningi vinstri flokkanna. Hann er
sjálfur forsætisráðherra og fjármála-
ráðherra. Utanríkismálaráðherra er
Poul-Boncour, en hann er einhver
öflugasti fylgismaður Þjóðabandalags-
ins. Bæði Chautemps og Delbos hafa
lofað stjórn Blums stuðningi sínum.
— FÚ.
Afsfaða Chamberlaíns:
- Atburðírnír í Austurríkí varða ensku
þjóðína míkhi' Hver þegn verður að vera
víðbúínn að gera skyldu sína. -
LONDON:
Chamberlain flutti ræðu i neðri mál-
stofunni í gær, þar sem hann gerði
grein fyrir afstöðu brezku stjórnar-
innar til atburðanna í Austurriki.
Chamberlain sagði, að ómögulegt
væri fyrir þýzku stjórnina að bera á
móti því, að sjálfstæði Austurríkis væri
mál sem snerti brezku stjórnina.
Bæði Bretland og Austurriki væri með-
limir Þjóðabandalagsins og aðilar að
samningum, þar sem tekið væri fram
um sjálfsforræði, og mætti ekki gera
á því neina breytingu, nema með sam-
þykki Þjóðabandalagsins. í öðru lagi,
sagði Chamberlain, hlýtur þetta, að
grafa undan öryggi annara þjóða, og
verður ekki að svo stöddu séð fyrir um
afleiðingar þess.
Bretar nanðbeygðlr
til aukins vígbún-
abar.
„Á stundum sem þessari er nauð-
synlegt að rasa ekki um ráð fram
og yfirvega orð sín', sagði Chamber-
lain. „Hver brezkur þegn verður að
verða við því búinn að leggja fram
krafta sina, ef þess verður krafizt".
„Það er fánýtt“, sagði Chamberlain,
„andspœnis slíkum atburðum, að ein-
blína á fyrri vígbúnaðarfyrirœtlanir
Vér höfum því ákveðið", sagði hann,
„að taka þau mál til endurskoðunar og
munum tilkynna ákvörðun vora siðar".
Skíðamótid
Jón Þorsfeínsson vann skíðastökkið
NEVILLE CHAMBERLAIN
Yilji Breta
einskisvirtur.
Chamberlain sagði einnig að 10.
marz hefði von Ribbentrop verið til-
kynnt, að brezka stjórnin teldi það
miklu skipta, að þýzka stjórnin léti
þj óðaratkvæðagreiðsluna afskiptalausa.
Sjálfur kvaðst hann hafa lagt áherzlu
á þetta við von Ribbentrop.
ítalir virða frönsku
og ensku stjórnina
ekki svars.
Um tvö þúsund manns voru á
skíðamótinu í Hveradölum á
sunnudaginn, langflestir héðan
úr bænum, en nokkuð var þar
af fólki austan úr Árnessýslu.
Veður var hið bezta framan af
deginum, en þegar á leið tók aó
slydda.
Skíðastökkin hófust í Fleng-
ingarbrekku, um einn km. í
austur frá skíðaskálanum, kl.
rúmlega 12. Keppendur voru 21.
Úrslit keppninnar urðu þau,
að Jón Þorsteinsson úr Skiða-
félagi Siglufjarðar, sá sami og
sigraði í göngunni, bar sigur úr
býtum og stökk 25 metra í fyrri
atrennu, en 29,5 m. Lhinni síð-
ari og fékk 221,5 stig. Hyllti
fólkið sigurvegarann óspart. Jón
er aðeins sextán ára að aldri.
Næstlengst stökk Jón Stefáns-
son úr Skíðafélagi Siglufjarðar,
24 og 28,5 metra og fékk 208,3
st. Þriðji varð Ketill Ólafsson úr
| Skíðafélaginu Siglfirðingi, stökk
22 og 28,5 metra og hlaut 205,4
stig. Fjórði Jóhann Sölvason úr
Skíðafélaginu Siglfirðingi, stökk
23,5 og 26,5 metra og fékk 201,5
stig. Fimmti Sigurgeir Þórar-
insson úr Skíðafél. Siglfirðingi,
stökk 23 og 26 metra og fékk
200,4 stig.
Af Reykvíkingum reyndist
beztur Gunnar Jónsson úr K. R.
Hann var sá áttundi í röðinni
og stökk 21,5 m. í fyrri atrennu
og 25,5 í þeirri síðari og fékk
192,2 stig.
Sniðbrekkuhlaupið hófst kl.
rúmlega 2. Var þá veður tekið
að versna. Keppendur voru 44.
Var þetta í fyrsta skipti, sem
slík keppni fór fram hér á landi.
Vegalengdin, sem runnin var,
var 400 metrar.
Sigurvegari í sniðbrekku-
hlaupinu var Björgvin Júlíusson
(Frh. á 4. siOu.)
Brezka stjórnin hefir gtaðið í stöð-
ugu stjórnmálalegu sambandi við
frönsku stjórnina síðan dr. Schuss-
nigg sagði af sér, sagði Chamberlain.
Bretar höfðu snúið sér til Frakka
og Frakkar til ítala. Öllum væri kunn-
ugt hverju ítalska stjórnin hefði svar-
að, en svar hennar hefði einungis
verið birt blöðunum, en ekki tilkynnt
stjórnum Frakka og Breta á þann
hátt, sem lög gerðu ráð fyrir.
Spánii næsta
fórnarlambið.
Sir Archibald Sinclair, foringl
frjálslynda flokksins, sagði, að atburð-
ir síðustu daga hefðu sýnt, að endur-
vígbúnaður væri ekki nægileg trygg-
ing gegn ofbeldi og innrásum. Þeir
hefðu sýna að hugsjónir Þjóðbanda-
lagsins um sameiginleg átök yrði að
efla á ný og gera að raunveruleika.
Hann sagðist ekki álíta, að Tékkósló-
vakía yrði næsta fórnarlamb Þýzka-
lands, heldur Spánn og að brezka
stjórnin ætti nú að beina öllum kröft-
um að því að fá enda bundinn á íhlut-
un Þýzkalands og Ítalíu um Spánar-
styrjöldina. FÚ.
Lárus Rist
er nýkominn til bæjarins. Hefir
hann ferðast á vegum ungmennafé-
laganna um Skagafjarðarsýslu, Húna-
vatnssýslu, Strandasýslu og Norður-
ísafjarðarsýslu.
AtkvæffagTeiðslan um hinar
nýju tillögur sáttasemjara fór
fram í félögum sjómanna og út-
gerffarmanna í gærkveldi.
Úrslitin urffu þessi:
Útgerffarmenn samþykktu til-
lögurnar meff þeim skilmálum aff
þeir fengju viffunandi lausn á
þeim kröfum, sem þeir hafa gert
til ríkisins, bæjarstjórnanna í
Hafnarfirffi og Reykjavík og
hreppsnefndarinnar á Patreks-
firffi, um afléttingu álagna og
stuðning við útgerffina.
Sjómenn felldu tillögurnar
meff 284 atkvæðum gegn 226.
Auffir voru 19 sefflar og 1 ógildur.
í Reykjavík voru greidd 452 atkv.
og í Hafnarfirffi 78 atkv. Alls
hafa verið- greidd 530 atkv. og
mun láta nærri aff um 40% af fé-
lagsmönnum sjómannafélag-
anna hér og í Hafnarfirffi hafi
tekiff þátt í atkvæffagreiffslunni.
TiIIögur sáttasemjara voru í
affalatriffum þessar:
Fast kaup á saltfiskveiffum
hækki um 5% effa sem svarar
því, aff mánaffarkaup háseta
hækki frá 10—12 kr.
Á síldveiðum verffi premían 3
aurar á mál, meffan verffiff á því
er 5 kr. effa minna. Úr því hækki
premían um 1/io úr eyri fyrir
hverja 25 aura, sem verffiff
hækkar.
Innlímun Austurríkis
LONDON:
Hitler er nú kominn til Vínarborgar
og mun dvelja þar i nokkra daga.
Hann heimsótti aðeins æskustöðvar
sínar og lagði blómsveig á leiði for-
eldra sinna.
Á sunnudagskvöldið voru gefin út
lög um sameiningu Þýzkalands og
Austurríkis. Jafnframt var tilkynnt
að þjóðin yrði látin greiða atkvæði um
þau. Samkvæmt þessum lögum verður
Austurríki einn hluti Þýzkalands, þótt
það hafi sérstaka stjórn með aösetri
í Vín.
Austurríski herinn hefir unnið Hit-
ler trúnaðareið. Reichenau, einn
þekktasti hershöfðingi Þýzkalands,
hefir verið skipaður yfirmaður hans.
Hitler hefir sent Mussolini þakkar-
skeyti fyrir afstöðu hans til þessara
mála.
Enn er allt á huldu með Schussnigg.
Sumar fréttir telja að hann sé i gæzlu-
varðhaldi í Vín, en aðrar að honum
hafi verið fylgt til landamæranna. FÚ.