Nýja dagblaðið - 20.03.1938, Síða 1

Nýja dagblaðið - 20.03.1938, Síða 1
■4 O O O o o O O o O o o o é tTSALA þessa viku. Lolcað næstu viku vegna viSgerðar á búðinni. V-E-S-T-A Sími 4197. Laugaveg 40. ID/^Gp IB \UMÐ II \Ð 6. ár. Reykjavík, sunnudaginn 20. marz 1938. 66. blað ANNÁLL 79. dagur ársins. Sólaruppkoma kl. 6,35. Sólarlag kl. 6,38. — Árdegisháflæður í Reykjavík kl. 7,55. Veðurútlit í Reykjavík: Norðaustan gola. Léttir til. Ljósatími bifreiða er frá kl. 6,50 síðdegis til kl. 6,25 árdegis. Næturlæknir er í nó'tt Halldór Stefánsson, Ránar- götu 12, sími 2234. Næstu nótt Jón G. Nikulásson, Freyjugötu 42, sími 3003. — Næturvörður er þessa viku í lyfja- búðinni Iðunn og Reykjavíkurapóteki. Dagskrá útvarpsins: Kl. 9,45 Morguntónleikar: Tónverk eftir Bach (plötur). 10,40 Veðurfr. 12,00 Hádegisútvarp. 13,00 Enskuk., 3. fl. 13,25 íslenzkuk., 3. fl. 14,00 Guðs- þjónusta í útvarpssal (Ræða: séra Bjöm Magnússon). 15,30 Miðdegistón- leikar: a) Tónleikar Tónlistarskólans. b) Klassískir valsar (plötur). 17,10 Esperantók. 17,40 Útv. til útl. (24,53m). 18,30 Barnatími. 19,10 Veðurfr. 19,20 Erindi Búnaðarfél.: Jarðvegur og jarð- lög (Jakob H. Líndal bóndi). 19,40 Augl. 20,00 Fréttir. 20,15 Norræn kvöld, IV.: Svíþjóð. a) Ávarp (Jón Eyþórs- son). b) Ræða: Aðalræðismaður Svía, Otto Johannsson. c) (20.30) Sænsk tónlist. (Endurvarp frá Stokkhólmi). d) (21,00) Erindi: Guðlaugur Rósin- kranz yfirkennari. e) Sænsk tónlist. f) Frá Stúdentalífi í Uppsölum: Sigur- björn Einarsson, fil. kand. g) Glunta- söngvar (plötur). h) Upplestur á sænsku (plötur). i) Sænsk tónlist. Hlé. Danslög. 24,00 Dagskrárlok. Póstferðir á morgun: Frá Reykjavik: Mosfellssveitar-, Kjalarness-, Kjósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og Flóa-póstar. Hafnarfjörð- ur. Seltjarnarnes. Fagranes til Akra- ness. Grímsness- og Biskupstungna- póstar. Selfoss til útlanda. Til Reykjavíkur: Mosfellssveitar-, Kjalarness-, Kjósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og Flóa-póstar. Hafnarfjörð- ur. Seltjarnames. Fagranes frá Akra- nesi. Lyra frá útlöndum. Flokkakeppni í fimleikum verður háð 26. apríl. Keppt verður um Farandbikar Oslo-Turnforening, handhafi Glímufélagið Ármann. Öll- um félögum innan í. S. í. er heimil þátttaka. Keppendur gefi sig skrif- lega fram við Glímufélagið Ármann og sendi stundaskrá flokkanna eigi sið- ar en 11. apríl n. k. Laugamenn fóm í kynnisför til Akureyrar í fyrradag eins og sagt var frá í blað- inu í gær. Kaupfélagið bauð þeim ásamt nemendum menntaskólans á sýningu ágætrar samvinnukvikmyndar í kvikmyndahúsi bæjarins. Um kvöldið var danzað í húsakynnum mennta- skólans. Drengjahlaup Ármanns verður háð sunnudaginn fyrstan í sumri (24. apríl). Keppt verður um nýjan bikar, gefinn af Eggert Krist- jánssyni stórkaupmanni. Keppt er í fimm manna sveitum. Öllum félögum innan í. S. í. er heimil þátttaka. Keppendur skulu hafa gefið sig fram skriflega við stjórn Glímufélagsins Ármanns, eigi síðar en viku fyrir hlaupið. Leikfélag Reykjavíkur sýnír í kvöld í síðasta sinn sjónleik- inn „Fyrirvinnan". Miðstlórnar- fundnr verður haldinn í Eddu- húsinu á morgun, mánu- dag, klukkan 5. Kaupfélag Evfirðinga heldur áfram að vaxa Lithauar létu undan Öllum kröfum Pól- verja hefir verið Það gók viðskipti sín verulega á síðastl. ári og félagsmönn- um þess fjölgaði um 3 hundruð Kaupfélag Eyfirðinga hélt aðalfund á Akureyri á mið- vikudag og fimmtudag síð- astliðinn. Á fundinum voru mættir 137 fulltrúar hinna 23 félagsdeilda, auk fram- kvæmdastjóra, stjórnar og endurskoðenda. Meðlimir kaupfélagsins voru um síðustu áramót samtals 2843 og hefir þeim þá fjölgað á ár- inu um 282. Félagið seldi erlendar vörur og innlendar iðnaðarvörur fyrir rúmar 3 millj. króna á árinu 1937 og er það rúml. 600 þús. kr. meira en í fyrra. í sláturhúsi fé- lagsins var slátrað 26443 kind- um. í smjörlíkisgerðinni voru framleidd 189241 kg. af smjör- líki og feiti eða 6,5 þús. kg. meira en 1936. Auk þess voru þar framleidd 1738 kg. af safti úr íslenzkum berjum og 2000 kg. af ávaxtamauki. Frá verksmiðj- unum Sjöfn og Freyju, sem kaupfélagið á að hálfu á móti S. í. S., voru vörur seldar fyrir 372449 kr. eða rúmlega 68 þús. kr. meira en árið áður. Tekjuafgangurinn var 165 þús. krónur. Var samþykkt að greiða skyldi félagsmönnum 10% af á- góðaskyldum vörum, 10% ágóða af vörum úr brauðbúðinni gegn afhendingu sölumiða, 10% af vörum og lyfjum frá lyfjabúð- inni, sem starfrækt hefir verið í tvö ár, kr. 1,50 í uppbót á hverja smálest salts og 1 krónu á hverja smálest kola. Þó seldi félagið kolin lægra verði, en aðr- ar verzlanir, sem höfðu kol á boðstólum. Endanlegt verð 1. flokks ullar varð kr. 4,80 hvert kg. eftir að reiknuð hefir verið 30 aura upp- bót. Önnur ull var bætt upp með 20 aurum. Innstæður félagsmanna í stofnsjóðum sínum voru við árs- lokin 1.318 þús. kr. og sameign- arsjóðir 1356 þús. kr. Skuldir félagsmanna hafa farið minnkandi á árinu. Á fundinum var samþykkt það nýmæli, að starfsfólk félagsins skuli leggja 3% af kaupi sínu í lífeyrissjóð og leggi þá kaupfé- lagið af mörkum jafnháa upp- hæð. Aðalfundur iullnægt LONDON: Stjórnmálahorfurnar í Evrópu hafa nokkuð batnað við það að stjórnin í Lithauen hefir gengið skilyrðislaust að kröfum pólsku stjórnarinnar, en þær voru í aðalatriðum þær, að stjóm- málalegu sambandi væri komið á milli Póllands og Lithauen og að samgöng- ur milli landanna yrðu opnaðar á ný, en þetta hvoru tveggja hefir legið niðri síðan 1920. Sendiherra Lithaua í Eistlandi fór í gær á fund sendiherra Pólverja í Eist- landi og tilkynnti honum þessa á- kvörðun stjórnarinnar í Lithauen. Landamærin voru opnuð þegar í gær, og samgöngur verða komnar í fullt lag fyrir mánaðarlok. Sendisveitir verða settar á fót áður en mánuður- inn er úti. Ögnir loftárás- anna á Spání 442 þýzkar og ít- alskar flugvélar í notkun hjá upp- reisnarmönnum LONDON: Franska stjórnin hefir lagt fram mótmæli í Salamanca vegna hinna tíðu árása sem flugvélar uppreisnar- manna hafa gert á Barcelona undan- farna sólarhringa. Hún hefir einnig snúið sér til brezku stjórnarinnar með tilmæli um að hún mótmæli þessu einnig. Þá hefir franska stjórnin sent brezku stjórninni afrit af skjölum til sönnunar því að 442 þýzkar og ítalsk- ar flugvélar séu nú í notkun hjá upp- reisnarmönnum. ' Það er sagt að á síðastliðnum þrem- ur dögum hafi 1300 manns farizt í 18 loftárásum á Barcelona. FÚ. T ékkoslo vakí a slakar til við Þjóðverja LONDON: Stjórnin í Tékkóslóvakíu hefir úr- skurðað að í hverju héraði skuli stjórn þannig skipuð að þjóðernisminnihlut- ar eigi sæti i stjórninni í hlutfalli við fólksfjölda í hverju héraði. Með þessu móti hyggst stjórnin að friða Sudeten- Þjóðverja, með því að þeir verða nú að heita má einráðir í héraðsmál- um sínum. FÚ. Eilend olíufélög míssa eígnír sínar og réttíndí í Mexiko Þau neituöu að hlýðnast gerðar- dómi í kaup- gjaldsmálum LONDON: Stjórnin í Mexico hefir svift brezk og amerísk olíufélög þar í landi starfs- réttindum sínum og tekið framleiðslu- tæki þeirra eignanámi en þau eru met- in á 80 milljónir sterlingspunda. Þeim verða greiddar skaðabætur í næstu 10 ár. Þessar ráðstafanir stjórnarinnar eru gerðar vegna þess að olíufélögin hafa ekki hlýtt úrskurði hæstaréttar, um að greiða verkamönnum sínum launahækkun og veita þeim aðrar kjarabætur, sem þeir höfðu verið með gerðardómi dæmdir til að veita þeim. Þjóðbankinn í Mexico hefir einnig ákveðið að gull- og erlend gjaldeyris- verzlun skuli lögð niður um stundar- sakir. FÚ. Mjólkursamlagsíns AÖalfundut Mjólkursamlags K. E. A. var haldinn fyrir nokkru. Voru þar mættir 53 fulltrúar mjólkurframleiðenda, auk margra gesta. Jónas Kristjánsson samlags- stjóri skýrði frá starfsemi sam- lagsins á siðastl. ári. Samlaginu hafði borizt 2.762.866 y2 kg. mjólkur með 3.596% meðalfitu- magni. Miðað við árið 1936 varð mjólkuraukningin um 225 þús. kg. Af áðurnefndu mjólkurmagni hafði samlagið selt sem nýmjólk 858.838 lítra, en úr 1.9 millj. kg. var unnið smjör og skyr og ost- ur. Á árinu hafði framleiðendum verið greitt kr. 455.565,09, en eftirstöðvar á reksturreikningi um áramót urðu kr. 51. 589,26, sem samþykkt var að verja tli verðuppbótar. Meðalverð mjólk- ur til framleiðenda varð þannig 19 aurar fyrir lítrann. Á árinu var útsöluverð mjólk- (*rh. á 4. síðu.J ú IDanir heiðra minningu Jóns Baldvinssonar. Fundir beggja deilda danska þingsins í fyrradag hófust með því, að forset- arnir fluttu minningar- ræður um Jón Baldvins- son og minntust hans sem hins gagnmerkasta stjórnmálamanns og myndi orðstír hans lengi lifa heima og erlendis. Er það i fyrsta skipti, sem minning látins íslendings er á þann hátt heiðruð í H erlendu þjóðþingi. Fjórir togfarar fara á ufsaveiðar Fyrsti árangurinn af gerðardóms- lögunum Árangur gerðardómslaganna hefir þegar orðið sá, að þrír tog- arar hafa farið á ufsaveiðar og sá fjórði fer út í dag eða á morgun. Voru það Tryggvi gamli, Kári og Belgaum, sem fóru í gær, en Otur varð ekki fullbúinn í gær- kveldi. Margir togarar hefðu verið á ufsaveiðum í vetur, ef verkfallið hefði ekki verið, því þó sam- komulag væri um kaupið á ufsaveiðum,. vildu . útgerðar- menn ekki láta þá fara út fyr en samkomulag hefði náðst um kaup á öðrum veiðum. Það er víst, að þessir togarar væru í höfn enn, ef deilan hefði haldizt óbreytt. Gerðardómurínn Gerðardómurinn lauk ekki störfum sínum í gær en mun að öllum líkind- um gera það á morgun og í síðasta lagi á mánudagsmorguninn. Hefir hann fengið öll gögn sáttasemjara og sáttanefndar til afnota og flýtir það mjög fyrir störfum hans. Vínnudeílan á SígluL Samningaumleitanir hafa farið fram að undanförnu á milli stjómar Síld- arverksmiðja ríkisins og verklýðsfé- lagsins á Siglufirði, án þess að þær hafi nokkurn árangur borið. Stjórn síldarverksmiðjanna hefir því óskað eftir að sáttasemjari tæki upp afskipti af málinu og freistaði, hvort ekki væri hægt að koma á sætt- um.

x

Nýja dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.