Nýja dagblaðið - 22.03.1938, Síða 4
REYKJAVÍK, 22. MARZ 1938.
6. ÁRGANGUR — 67. BLAÐ
/QCOOvQGamla BÍÓÍÍKÍS
■j LtTILSVIRT j;
:■ ko\a ■:
jjl Gullfalleg og vel leikin I;
■; þýzk, mynd, gerð eftir /
leikriti Oscar Wilde, frá
Ohne Bedeutung. I;
Aðalhlutverkin leika :■
GUSTAF GRÚNDGENS í
»g :j
KÁTHE DORSCH :■
V.V.V.V.V.V.’.V.VAV^.V.V
í/. ’.V.V.V
Hljómsveit Reykjavíkur
Bláa kápan
Sýnd annað kvöld kl. 8%.
AÖgöngmniðar seldir í dag í
Iðnó frá kl. 4—7. Sími 3191.
KAVPIÐ
Frá Tengchow
til Islands
CFrh. af 2. síðu.)
að ítalskt skip kom. Það mun
tæpast hafa verið tilviljun, að
fyrsta útlenda skipið, sem kom
þar til hafnar, eftir að borgin
féll í hendur Japana, var ítalskt.
Með þessu skipi fengum við far
til Hong-Kong, og náðum þar
þýzku skipi, sem við höfðum áð-
ur keypt með far til Evrópu. Þá
voru 32 dagar liðnir frá því, að
við lögðum af stað frá Tengchow.
Hér fannst okkur ferðalagið eig-
inlega á enda.
LeiSurloh
Við komum til Þrándheims 13.
janúar og þar varð konan
mín eftir með börnin, en ég hélt
til Kaupmannahafnar eftir dá-
litla viðdvöl. í maílok fer ég
aftur til Noregs og sæki hana og
dveljumst við þá fyrst um sinn
á íslandi.
— Hverju spáið þér um enda-
lok stríðsins þar eystra?
— Sem hálfgildis Kínverji,
vona ég, að Japanir hafi ekki
nægilegt þol til þess að brjóta
þjóðina undir sig. Fjárhagur
Japans var slæmur áður en
stríðið hófst, og hver dagur hefir
ógurleg útgjöld í för með sér.
Kínverjar eru hinsvegar þraut-
seigir og stjórn Chiang Kai Shek
traust og án efa sú bezta í Kína-
veldi, síðan lýðveldið var stofn-
sett. Kína er líka land, sem er
sjálfu sér nægt á hernaðartím-
um, um aðra hluti en hergögn.
Hitt mun enginn Kínverji gera
sér vonir um, að sigrast á Jap-
önum í beinum vopnaviðskipt-
um. —
NYJA DAGBLAÐIÐ
Aðvðnui,
Hér með vill nefndin vekja athygli innflytjenda
byggingarefnis og annarra á því, að hún hefir sett
þau skilyrði fyrir veitingu gjaldeyris- og innflutn-
ingsleyfa fyrir timbri og cementi, að þessar vörur
verði ekki seldar til bygginga á íbúðarhúsum, sem
eru stærri en svo að 430 teningsmetrar tilheyri
hverri íbúð, eða til annarra húsa og mannvirkja,
sem þurfa erlent efni fyrir meira en kr. 5000.00
með útsöluverði, nema samþykki hennar komi til,
og gildir þetta jafnt hvort viðkomandi hefir undir-
skrifað skuldbindingu hér að lútandi eða ekki,
þannig að innflytjendur bera ábyrgð á að ofan-
greind skilyrði séu ekki brotin.
Reykjavík, 18. marz 1938.
Gjaldeyris-
og innílutningsneind.
Ylir landamærín
Alþýðublaðið telur það svik
mikil, að Framsóknarmenn skuli
stundum ráða fram úr málum
með íhaldinu. En hvað gerði Al-
þýðuflokkurinn í kjördæmamál-
inu 1931, í síldarbræöslumálinu
1935 og í atkvæðagreiðslu um
síldarverðið 1937?
*
Álítur Alþbl. að þingmenn Al-
þýðuflokksins hefðu átt að
greiða atkvæði móti kjördæma-
breytingunni á þingi 1933, til að
þóknast Framsóknarmönnum þó
að socialistar væru þá alveg
samdóma íhaldinu um það mál?
Má telja, aö „niðurlæging" Al-
þýðuflokksins hafi byrjað við
þessa afstöðu flokksins?
*
Þjóðviljinn á sunnudaginn
hælir mexikönsku stjórninni
fyrir frjálslyndi. Hún var eina
stjórnin, sem vildi leyfa Trotsky
landvist fyrir nokkru síðan og
hlaut fyrir það mikinn fjand-
skap Stalins og kommúnista.
Fjárhagur Síldar-
verksmiðja ríkisins
(Frh. af 3. síðu.)
eðlilegt að sjómenn og útgerð-
armenn gerðu kröfur um um-
bætur á verksmiðjunum og um
byggingu nýrrar síldarþróar.
Við þessum kröfum þeirra varð
verksmiðjustjórnin og sömu-
leiðis ríkisstjórnin. í stað þess
að borga þeim uppbót á síld-
inni fyrir árið 1936, þá þótti
sjálfsagt að endurbæta verk-
smiðjurnar, og byggja þró, svo
hægt yrði að taka við meiri
síld en áður. Og ábyggilega
græddu sjómenn og útgerðar-
menn á þessum umbótum s. 1.
sumar. Vegna nýjú þróarinnar
var hægt að taka á móti miklu
meiri síld, en annars hefði
verið hægt. En vegna þess hvað
veiðin var óhemju mikil, aldrei
var hægt að vinna upp úr
þrónum í margar vikur og verð-
fall varð gífurlegt á lýsinu, þá
er því ekki að neita, að verk-
smiðjurnar sjálfar hefðu staðið
sig betur nú, ef þróin hefði
ekki verið byggð, því að þá
hefðu verksmiðjurnar ekki
tekið á móti eins mikilli síld
og þær gerðu og því minna
gætt fyrir þær verðfallsins á
lýsinu, þar sem svo mikið af
því var selt fyrirfram á ágætu
verði.
í sambandi við þetta mál vil
ég leyfa mér að geta þess, að
verksmiðjustjórnin, sem fór frá
vorið 1936, var búin að sam-
þykkja að leggja í allmikinn
kostnað það ár til umbóta á
verksmiðjunum, og var mikið
af því, sem framkvæmt var það
ár, samkvæmt samþykktum
þeirrar stjórnar. Þetta segi ég
aðeins til að sýna fram á, að
þrátt fyrir það, að útkoma árs-
ins 1935 væri verksmiðjunum
mjög óhagstæð, þá taldi þá-
verandi verksmiðjustjórn brýna
nauðsyn bera til þess, að
leggja í allmikinn kostnað til
umbóta verksmiðjunum.
Aðalatriðið.
Enn eru heimtaðar viðbætur
og umbætur við S. R. Útlitið
með verðlag á vörum verk-
smiðjanna er nú afar ískyggi-
legt. Ég veit að við hr. Jón
Gunnarsson erum sammála
um, að nú beri að fara gæti-
lega.
Að lokum vil ég undirstrika,
að það er ekki stórt mál fyrir
verksmiðjurnar, hvort að meir
eða minna af endurbótum
þeirra á s. 1. ári er sett á við-
haldsreikning eða ekki, en að-
alatriðið í framtíðinni er að
tryggja sjómönnum og útgerð-
armönnum sannvirði fyrir síld-
ina, með því að taka hana til
vinnslu, en kaupa hana ekki
föstu verði. Þá fær hver sitt,
og verksmiðjurnar geta þá
aldrei orðið áhættufyrirtæki,
sem þær annars geta vel orðið.
Ef síldin er keypt föstu verði,
þá getur svo farið að ár, sen*.
er slæmt fyrir sjómennina, geti
orðið sæmilegt fyrir verksmiðj-
urnar, og aftur á móti að ár,
sem er ágætt fyrir sjómennina,
geti sett verksmiðjurnar í fjár-
hagslegt öngþveiti. En verði
síldin tekin til vinnslu, en ekki
keypt, þá verður auðvitað um
leið að meta réttlátlega, hvað
færist á viöh'ald og hvað til
eignar verksmiðjunum ár
hvert. Afborganir, fyrningar-
sjóðsgjald, varasjóðsgjald og
reksturskostnaður allur tekst
allt af síldinni, og það er ekki
von að sjómennirnir vilji borga
meira, svo sem auka afskriftir
af eignum.
Þorsteinn M. Jónsson.
v.v.v • ■>AV.V.V
v.v.v wyja BIO ivvww
V
LLYIVT- ■:
F\BU»LfiI\\ :[
með undrabarninu: ;■
Shirley Teniple ;j
Mynd þessi er talin ein \
bezta mynd þessa óviðjafn- :■
anlega litla leikara. Jafn í
ánægjuleg fyrir fullorðna I;
sem börn. I;
Sýnd kl. 9. í
i
Barnasýning kl. 6. ■
Aðgöngumiðar J
seldir frá kl. 4. jj
.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.
- Kaup og sala -
Lítið steinhús til sölu eða í
skiptum fyrir bústofn og land-
búnaðartæki. Árni Jónasson,
Hörpugötu 10, Reykjavík.
Þýzkar cígarettur
LLOYD
10 stk. pakkmn 70 an.
Fást í verzlunum.
PRENTMYNDASTOFAN
L EIFTUR
Hafnarstræti 17, (uppi),
býr til 1. flokks prentmyndir.
Sími 3334
»Lagarfoss«
fer á fiinmtudagskvöld
24. marz, um Vestm.-
eyjar og Austfirði, til
Kaupmannahafnar.
Ú T S Æ Ð 1
Þeir, sem hafa pant-
að útsæði af liinum
hraðvöxnu tegundum,
Rósin og Dutee of Yorh
verða að vitja þeirra
í þessari viku.
Gmenmetisverzlun
ríhisins.
Ú TBREIÐIÐ
NÝJA DAGBLADID!