Nýja dagblaðið - 24.04.1938, Blaðsíða 2
2
DAGBLAÐIÐ
N Ý J A
Blöð og tímarit
Bnfræðingariim
V. árgangur.
Nemendasamband Hvanneyr-
arskóans hefir nú tekið að sér
útgáfu Búfræðingsins. Quð-
mundur Jónsson frá Torfalæk
verður áfram ritstjóri hans, en
hann og Þórir Guðmundsson
stofnuðu ritið upphaflega og
gáfu það út vélritað.
Búfræðingur flytur að þessu
sinni margar merkilegar grein-
ar um búnaðarmál. Guðmund-
ur Jónsson skrifar um hreinsun
mjólkuríláta, undirburð búfjár-
áburðar, heysleða, verð á verk-
færum, brýr á skurðum, kar-
töfluplóga o. fl. Runólfur
Sveinsson skrifar um fóðrun
kálfa, fóðrun sauðfjár, fram-
tíð Hvanneyrarskólans og vöru-
vöndun og vörumat, Kristján
Karlsson skrifar um svínarækt,
Erlingur Davíðsson skrifar um
kornrækt, Ásgeir Ólafsson um
mjólk og sjúkdóma, Sigurður
Sigurðsson um búnað á Græn-
landi og Gunnar Ámason um
N. J. F. Auk þess er sérstakur
tilraunabálkur, smávegis, frétt-
ir af Hvanneyringum o. m. fl.
Ritið er alls um 160 bls.
Skinfaxl
29. árg., I. heftL
Skinfaxi fytur ýmsar merkar
greinar nú eins og venjulega.
Ritstjórinn skrifar um félags-
starfsemi æskunnar, Agnar E.
Kofoed-Hansen um hlutverk
æskunnar í flugmálum, Halldór
Kristjónsson um hlutverk ung-
mennafélaganna 1 héraðsskól-
unum og Magnús Guðmunds-
son um vonir æskunnar. Eru
þetta allt greinar, sem verð-
skulda að vera lesnar og fjalla
um efni, sem þörf er að gefa
meiri gaum.
Skinfaxi hefir jafnan helgað
talsverðu af rúmi sínu til frá-
sagna um ýmsa listamenn og
verk þeirra. Að þessu sinni
skrifar ritstjórinn grein um
Ríkarð Jónsson og fylgja henni
14 myndir. Ríkarður skrifar
sjálfur grein, þar sem hann
segir frá samveru sinni við
Benedikt á Auðnum á síðastl.
hausti, en Ríkarður gerði þá
brjóstlíkneskí af honum fyrir
forstjóri S. í. S. Er sú frásögn
hin skemmtilegasta. Henni fylg-
ir mynd af brjóstlíkneskinu, er
Ríkarður gerði, og mynd af rit-
hönd Benedikts í haust. Var
hann þá nær 92 ára gamall.
Auk þessa flytur Skinfaxi tvö
kvæði, sögu, frásagnir um starf
U. M. F. 1, greinar um skíða-
menningu, skógrækt o. fl.
Freyr
3. hefti, 33. árg.,
er nýkomið út. Eru í ritinu ýms-
ar merkar greinar um búnaðar-
mál. Má þar meðal annars nefna
frásögn um árangur af jarð-
ræktartilraunum Ræktunarfé-
lags Norðurlands, og grein eftir
Ásgeir Einarsson dýralækni, um
snýkjudýrasjúkdóm, sem ný-
fundinn er hér á landi. Auk
þess eru greinar um Búnaðar-
skóla fyrir unglinga i Dan-
mörku,, mæðiveikina, kartöflur,
þangmjöl til fóðurs og fleira.
Mjólk o
Eftirfarandi smágrein er
lauslega þýdd úr danska bún-
aðarblaðinu „Ugeskrift for
Landmænd“ 12. nóv. 1937:
„Þegar læknar ráða fólkí,
einkum börnum, frá að drekka
kaffi, stafar það af því, að kaff-
ið inniheldur éiturefni, er nefn-
ist Koffein. Það verkar æsandi á
taugakerfið, en um leið veikl-
andi á það og allan líkamann.
Margar rannsóknir hafa sam-
hljóða leitt það í ljós, að þegar
mjólk er látin út í kaffið, þá
minnka og hverfa alveg hinar
skaðlegu verkanir kaffisins, því
að eggj ahvítuefni mjólkurinnar
ganga í efnasamband við Koffe-
inið og gera það óskaðlegt. Það
er því einkum skaðlegt að drekka
svart kaffi, en blanda af jafn
stórum skömmtum af heitri
mjólk og kaffi, sem t. d. er notað
í Frakklandi undir nafninu
„Café-au-lait“, er ráðlagt til
drykkjar af ýmsum læknum.
g kaffi
Hið sama gildir um te. Koffein
þess og sútunarsýra botnfellur
og skaðsemi þeirra sambanda
hverfur við blöndun með mjólk.
Það er alþekkt, að Englendingar
drekka sterkt te, en einmitt í
Englandi er það algengt að láta
allmikið af mjólk í teið og gera
það þannig óskaðlegt.
Allmargir reykingamenn þykj -
ast hafa reynzlu fyrir því, að
gegn mikilli tóbaksnotkun, en í
því er eiturefnið nicotin, er gott
að drekka 1—2 glös af mjólk
daglega."
Kaffineyzla mætti minnka
mikið hér á landi frá því sem
er, en þegar kaffi er drukkið, þá
ætti aldrei að hafa það svart,
heldur mikið blandað mjólk, ekki
rjóma, því að í honum er lítið af
eggjahvítuefnum. Ágætt væri að
blanda það undanrennu, en
sennilega finst sumum sú kenn-
ing ekki vera gómsæt.
G. J.
FORNARDYGGÐIR
„Fornar dyggðir"
sem bæjarbúar hafa
skemmt sér ákaflega
mikið að í vetur, verð-
ur í dag sýnd bæði kl. 2
(nónsýning) og kl. 8 í
kvöld. Einnig verður
hún leikin annað
kvöld. Ástæðan til þess
að sýningar eru hafðar
svo þétt, er sú, að flýta
verður sýningum eins
og hægt er, vegna þess
að einn aðalleikarinn
er á förum úr bænum.
Vegna veikindaforfalla hjá Leikfélaginu, lét það revyunni eftir
sunnudagskvöldið, sem venjulega er fastur sýningardagur hjá
félaginu, Er því nú að verða hver síðastur, að sjá þessa fyndnu
og fjörugu sýningu, sem sagt hefir verið um, „að fólk hafi ekki
við að hlæja að“.
MiiiiitimiiimiiiiuitiiiimimmimmiiiiiiiiuiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimitiiiiiiiiitmimiiiMiiiiiiiiimmiiiiimiiiiimiiiiimiii
► Borgíð Nýja dagblaðið!
MMMiiiiummmiMmimiiummimiiimiimmmMmmMmimmiimmmmmimimiMmimimMMiiiiimmmimiiMiimmmi
Otborgun tekjuafgangs
hefst n. k. mánudag á eftirfarandi stöðum:
f Reykjavík: Skólavörðustíg 12 (skriíst.)
f Hafnarfirði: Strandgötu 28.
f Keflavík: í sölubúðinni.
í Sandgerði: í sölubúðinni.
í Reykjavík verðnr borgað út til félags-
manna frá kl. 4—5 e. h. alla virka daga nema
laugardaga, en utanfélagsmenn, sem eru að
vinna sig inn í félagið, eru beðnir að koma
til viðtals á skrifstofuna Ul. 10—11 f. h.
F erðaskrif stof a rikisins
hefir ákveðið að starfrækja á komandi sumri söludeild fyrir
íslenzka muni, sem seljanlegir eru erlendum ferðamönnum.
Áherzla verður lögð á, að munirnir séu sem fallegastir og að
öllu leyti vel til búnir og einnig sem íslenzkastir að gerð.
Fólk, sem óskar að koma munum í umboðssölu í deildina,
er beðið að tilkynna það í síðasta lagi fyrir 10. maí.
Frekari upplýsignar á skrifstofunni frá kl. 10—12 f. h. —
Sími 4523.
Fer&asUrifstofa ríUisins.
Garðaeigendur.
Við undirritaðir tökum að okkur alls-
konar garðavinnu.
Upplýsingar eftir kl. 8 síðdegis.
Einar Vernharðsson, sínti 1138.
Asyeir Ásyeirsson, stini 4380.
G ó ð s t ö r
tll sölu.
Samband ísl. samvinnuíélaga.
Sími 1080.
Gula bandið
er bezta og ódýrasta smjörlíkið.
í heildsölu hjá
Samband ísi. samvinnufélaga
Sími 1080.
Kjarnar — (Essensar)
Höium bírgðir af ýmiskonar kjörnum til iðnaðar
ÁSengisverzlun ríkisins.