Nýja dagblaðið - 26.04.1938, Page 1
Þcp Iicrið af
í
—P—E—Y—S—U—
, frá
Y E S T U
Laugaveg 40 — Sími 4197
IWJIA
ID/^GrlBIL^MÐIHÐ
6. ár. Reykjavík, þriðjudaginn 26. apríl 1938. 93. blað
es
ANN ÁLL
116. dagur ársins.
Sólarupprás kl. 4,23. Sólarlag kl. 8,31.
Árdegisháflæður í Reykjavík kl. 2,25.
Veðurútlit í Reykjavík:
Suðvestan átt, stundum allhvasst.
Skúrir eða slydduél.
Póstferðir á morgun:
Frá Rvík: Mosfellssveitar-, Kjalar-
ness-, Kjósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og
Flóapóstar. Hafnarfjörður. Seltjarnar-
nes. Goðafoss til Akureyrar.
Til Rvíkur: Mosfellssveitar-, Kjalar-
ness-, Kjósar-, Reykjaness-, Ölfuss- og
flóapóstar, Hafnarfjörður Seltjarnar-
nes.
Ljósatími bifreiða
er frá kl. 8.55 að kvöldi, til kl. 4 að
morgni.
Dagskrá útvarpsins.
Kl. 8,30 Dönskukennsla. 10,00 Veður-
fregnir. 12,00 Hádegisútvarp. 15,00
Veðurfregnir. 18,45 Þýzkukennsla. 19,10
Veðurfregnir. 19,20 Lesin dagskrá
næstu viku. 19,30 Þingfréttir. 19,40 Aug-
lýsingar. 19,50 Préttir. 20,15 Útvarps-
hljómsveitin leikur. 20,45 Frá útlönd-
um. 21,05 Akureyrarkvöld: a) Karla-
kórinn „Geysir" syngur (söngstjóri:
Ingimundur Árnason). b) Erindi: Um
uppeldi og skólamál, I. (Snorri Sigfús-
son,. skólastjóri). c) Karlakórinn
„Geysir" syngur. 22,15 Dagskrárlok.
Næturlæknir
er í nótt Halldór Stefánsson, Ránar-
götu 12, sími 2234 — Næturvörður er
í Laugavegs- og Ingólfsapóteki.
Skipafréttir.
Gullfoss kom til Leith á miðnætti i
fyrrinótt. Goðafoss er í Reykjavík.
Brúarfoss er væntanlegur að vestan og
norðan á hádegi í dag. Dettifoss er í
Hamborg. Lagarfoss var á Siglufirði
í gærmorgun. Selfoss er í Vestmanna-
eyjum. Súðin var væntanleg til Króks-
fjarðarness kl. 9—10 í gærkvöldi.
Dagskrá Alþingis.
Sjö mál eru á dagskrá í neðri deild
í dag. Meðal þeirra eru vinnulöggjöf-
in, frv um breytingar á iðnaðarlögun-
um og frv. um breytingar á siglinga-
lögum. í efri deild eru þrjú mál á dag-
skrá, þar á meðal till. Jónasar Jóns-
sonar um vélstjóra- og stýrimanna-
skólann.
Tveir íslenzkir blaðamenn
sækja blaðamannamót norræna fé-
lagsins í Stokkhólmi dagana 17.—24.
maí n.k. Eru það Jón Helgason frá
Nýja dagblaðinu og Hersteinn Pálsson
frá Vísi Mun Jón fara utan með Brú-
arfossi í kvöld.
Bræðurnir frá Ormarslóni
endurtaka harmoníkuhljómleika sína
i Nýja Bíó í kvöld kl 7, vegna mikillar
aðsóknar og fjölda áskorana. — Þeir
bræður eru á förum úr bænum.
F. U. F.
hélt fjölmennan fund í gærkvöldi.
Var þar rætt um sumarstarfsemi fé-
lagsins og stofnun landssambands
ungra Framsóknarmanna. — Voru
kosnir 11 fulltrúar til að mæta á
stofnfundi Landssambandsins.
Línuveiðarinn Sæhrímnir
kom á laugardag til Reykjavíkur með
um 8000 girðingarstaura til mæðiveikis-
varnanna norðan af Ströndum. Hér
tók skipið girðingarefni og heldur
áleiðis til Sauðárkróks í dag. Mun það
taka staura í leið sinni á Ströndum.
Eru staurar þessir unnir úr rekaviði,
en nóg er af honum þar norður frá,
og segja Húnvetningar, sem munu hafa
6—8 ára reynslu á slíkum staurum, að
þeir endist mun betur, en girðingar-
staurar, er fluttir eru inn frá útlönd-
um. Er þetta mjög skiljanlegt þvi að
yfirleitt er þetta mjög góður viður.
Athygli
skal vakin á auglýsingu frá Strætis-
vögnum Reykjavíkur, sem birtist á
öðrum stað í blaðinu í dag.
Hungursnevð vflrvofandi i Kina
Kreppulöggjöf
í Frakklandí
I ýmsum íðngrein-
um verður veítt
undanpága irá 40
klst. vinnuvikunni
LONDON:
Franska stjórnin hélt ráðherrafund
í gær, og varð þar samkomulag um
meginatriðin í sérstakri kreppulöggjöf,
sem stjórnin hefir í hyggju að koma
á, til viðreisnar frjármála- og atvinnu-
lífi landsins og til eflingar landvöm-
um þess. Verður hin fyrirhugaða lög-
gjöf svo rædd og gengiö frá henni til
fullnustu nú fram til mánaðamótanna,
en búizt er við að fyrsta tilskipunin
verði gefin út 3. maí.
Ráðstafanir þær, sem hér ræðir um,
taka til framleiðslustarfsins, með það
fyrir augum að auka framleiðsluna
svo sem verða má. í öðru lagi að halda
gjaldeyrismálum Frakklands á grund-
velli þriggja-velda gjaldeyrissáttmál-
ans og varðveita núverandi gengi
frankans. í þriðja landi ýmsar breyt-
ingar á ákvæðunum um 40-stunda
vinnuviku, þannig, að tilslakanir verða
veittar frá þeim ákvæðum í vissum
iðngreinum. í fjórða lagi, áætlun um
opinberar framkvæmdir, sem m. a.
miða að útrýmingu heilsuspillandi
íbúðarhverfa í borgum. Og í fimmta
lagi, miða ráðstafanir stjórnarinnar
að því að hagnýta til fullnustu auðæfi
nýlendanna og þá tekjulind, sem ferða-
mannastraumurinn getur veitt. FÚ.
Ferð frönsku ráð-
herranna til
London
LONDON:
í gær var opinberlega tilkynnt hvern-
ig háttað yrði heimsókn þeirra Dala-
dier, forsætisráðherra Frakka og
Bonnet, utanríkismálaráðherra, er þeir
kæmu til London. Er ákveðið að þeir
sitji árdegisveizlu hjá forsætisráðherra
fimmtudaginn 28. þ. m. og fari síðan í
heimsókn til Windsor Castle og sitji
miðdegisveizlu með Bretakonungi og
drottningu hans síðdegis sama dag. Þá
fara þeir og í heimsókn til Halifax
lávarðar. FÚ..
Þrjátíu mílljónir flóttamanna á vonarvöl
Mótstaða Kínverja við Such-
ow hefir styrkt þær vonir, að
Kínverjum muni heppnast að
hindra frekari sókn Japana.
Striðsfréttaritari Karl von
Wiegand, sem dvalið hefir í
Kína, telur þó horfurnar fyrir
því ekki líklegar.
— Yfir Kína, segir hann,
vofir nú geigvænlegri hungurs-
neyð en dæmi eru til áður i
sögu landsins.
Um 30 millj. manna hafa flú-
ið orustuhéruðin og halda suð-
ur og vestur á bóginn. Allt
þetta fólk er heimilislaust,
hefir ekkert fyrir sig að leggja
og ekki að neinu að hverfa. Það
er máske stærstu fólksflutning-
ar sögunnar, sem styrjöldin í
Kína hefir komið af stað.
Nákunnugir menn telja að í
Sichuanhéraðinu einu hafi 20
millj. manna neyðzt til að yfir-
gefa heimili sín. Ástandið í hér-
uðunum meðfram Gula fljót-
inu, sem stundum er nefnt
„kirkjugarður Kina“, er meira
en geigvænlegt. Þarna búa um
70 millj. manna. Bæði yfirvöld
Kínverja og Japana horfast hér
í augu við óviðráðanlega örð-
ugleika.
Ástandið er enn verra sökum
þess, að kínverski herinn hefir,
samkvæmt gömlum hernaðar-
venjum, lagt landið á bak við
sig í einskonar eyði. Hann hefir
sprengt stíflugarða og brýr,
brennt heilar borgir og flutt
allar vistir í burtu. Allir stíflu-
garðar meðfram Gula fljótinu
hafa verið eyðilagðir og þegar
vatnavextirnir koma, leggjast
stór landssvæði undir vatn og
lífi millj. manna er hætta búin.
Skuggar hungurneyðarinnar
hvíla yfir þeim héruðum, sem
styrjöldin hefir á einn eða
annan hátt náð til. Bænd-
urnir hafa yfirgefið jarðir
sínar, akrarnir leggjast í ó-
rækt, enginn sáir og þess vegna
verður ekki hægt að reikna með
neinni uppskeru, þegar líður á
sumarið.
Hún stjórnar irels
ísbaráttu Kín-
verja
MAYLING, kona Chiang Kai Shek.
Margir blaðamenn, er dvelja í Kína,
telja að það sé hún, sem raunveru-
lega stjórnar frelsisbaráttu Kínverja.
Meðal þeirra, sem halda því fram, er
Karl Wiegand. — Mayling var þó ný-
lega að láta af yfirstjórn kínverska
flughersins, vegna ágreinings við
rússnesku flugmennina. Bróðir henn-
ar tók við því starfi í hennar stað.
Aflabrögðin
í verstöðvunum við Faxaflóa hefir
aflazt mjög lítið undanfarið. Gæftir
hafa verið afar tregar og lítill fiskur
þegar á sjó hefir gefið.
Afli togaranna er einnig tregur, þó
hann sé heldur að glæðast. Til Reykja-
víkur komu í gær togararnir Arin-
björn hersir með 101 fat lifrar, Karls-
efni með 80 föt, Belgaum með 114 föt
og Geir með 112 föt. Til Hafnarfjarð-
ar komu togararnir Garðar með 161
fat og Haukanes með 71 fat.
Bátar, er ganga frá Vestmannaeyj-
um, hafa aflað mjög vel undanfarið.
Á laugardag tvísóttu til dæmis margir
bátar í net sín. í gær var einnig hlað-
afli í Eyjum.
SkemmiunFramsókn
arfélags Keflavíkur
Ný málaferH
í Moskva
25 prestar ákærðir
fyrir samsæri og
landráð
London:
í Sovét-Rússlandi hafa 25 prestar,
þar á meðal erkibiskupinn og biskup-
inn af Moskva, verið teknir fastir,
sakaðir um að hafa tekið þátt í sam-
særi til að kollvarpa stjórninni, hafa
staðið í sambandi við njósnara er-
lendra ríkja, og verið valdir að
skemmdarstarfsemi. FÚ.
Færeyíngar á
N.-York sýníngunni
EINKASKEYTI FRÁ KHÖFN:
Niclasen landsþingsmaður Færey-
inga skýrir svo frá, að Færeyingar
muni að öllum líkindum senda fær-
eyskt skip á sýninguna í New York,
mannað 12 Færeyingum i þjóðbúning-
um. Skipinu verður fenginn staður á
stöðuvatni einu á sýningarsvæðinu.
Tilgangurinn er að útbreiða kynni af
Færeyingum, fiskveiðum þeirra og
fiskivörum. FÚ.
Framsóknarfélag Keflavíkur gekkst
fyrir skemmtisamkomu síðastl. laugar-
dagskvöld, í verkalýðshúsinu í Kefla-
vík. Húsfyllir var, og fór skemmtunin
hið bezta fram.
Danival Danivalsson setti skemmt-
unina fyrir hönd félagsins og bauð
menn velkomna. Síðan var sýndur
sjónleikurinn „Hjúskaparskrifstofan",
sem vakti mikla ánægju meðal áhorf-
enda. Ennfremur var til skemmtunar:
Ræða, upplestur, kvartett-söngur og
dans.
Sjónleikurinn og kvartett-söngurinn
var hvorttveggja undirbúið og æft að
tilhlutun Framsóknarfélagsins og sýn-
ir það að í félaginu eru áhugasamir
og dugandi menn.
Vinnulöggjöfin
komin úr nefnd
mm
Onnur umræða í
neðri deild í dag
Frv. til laga um stéttarfélög og
vinnudeilur verður til 2. umr. í neðri
deild í dag.
Frv. hefir undarfarið verið til at-
hugunar í allsherj'amefnd og hefir
nefndin haft um það marga fundi.
Leggja þrír nefndarmenn, Bergur
Jónsson, Gísli Guðmundsson og Vil-
mundur Jónsson, til að frv. verði sam-
þykkt. Thor Thors og Garðar Þor-
steinsson telja sig einnig samþykka
frv. í aðalatriðum og mæla með sam-
þykkt þess. Þeir bera þó fram sérstak-
lega tillögur, sem mynda stórbreyta
frv., ef samþykktar yrðu.
í heild ber nefndin fram nokkrar
tillögur, sem eru aðallega orðalags-
breytingar eða til samræmingar við
eldri lög.
Héðinn Valdimarsson og þingmenn
kommúnista hafa borið fram fjöl-
margar breytingartillögur.
Þriðju umræðu um frv. í neðri deild
verður útvarpað.
Stöðvar
Stýrimanna
íélagíð ílutn
íngaskípin?
Samningar hafa undan-
fariff staffiff yfir milli Eim-
skipafélags íslands og
Skipaútgerffar ríkisins ann
arsvegar og Stýrimanna-
félags íslands hinsvegar.
Síffastliffinn laugardag
var samningstUraunum
hætt, þar eff ekki reynd-
ist mögulegt aff koma
á samkomulagi. Sátta-
semjari ríkisins var þátt-
ll takandi í fundum samn-
ingsaffila, en mun hafa
taliff svo mikiff bera á milli,
að hann sæi sér ekki fært
aff leggja fram miðlunar-
tillögu.
Samkvæmt vifftali viff
Jón Axel Pétursson mun
hafa komiff til orffa að
stöffva flutningaskip þau,
er hér eru stödd í höfn, ef
ekki takast samningar áff-
ur en þau eiga aff láta úr
höfn, sem engar horfur
eru fyrir.
Skip þau er fara eiga
héðan í dag og á morgun
eru Brúarfoss í kvöld og
Esja og Goffafoss annaff
kvöld.