Nýja dagblaðið - 08.05.1938, Síða 2
2
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
Frá HAPPDRÆTTINUí
A morgun er síðasti söludagur í 3. Ilokki.
Hafið þér munað eftir að endurnýja ?
Sýning á skólavinnu barna í Laugarnesskólanum,
verður opin í dag, sunnudaginn 8. maí, frá kl. 1—8 e. h.
Börn í öllum efri bekkjum sæki handavinnu og vinnu-
bækur sínar mánudaginn 9. maí, kl. 2 e. h.
Kennsla hefst. aftur í 6 neðri bekkjum skólans mið-
vikudaginn 11. maí.
Þann dag mæti til kennslu öll böm í skólahverfinu,
fædd 1931, kl. 1 e. hád., og einnig öll önnur börn skóla-
skyld, sem nýflutt eru í skólahverfið, og þau börn
skólaskyld, sem ekki hafa mætt til prófs í skólanum
í vor.
SKÓLASTJÓRINN.
Austurbæjarskólinn.
Sýulng handavlnim barna er opin í dag,
sunnudagiim 8. maí, frá kl. 10—22. —
Óheypis aðyangur.
SKOLASTJÓRim .
Ægir,
31. árg., 4. hefti,
er nýkominn út. í ritinu eru
margar fróðlegar greinar um
fiskveiðar og fiskirannsóknir,
auk aflaskýrslna. Má m. a.
nefna grein um merkingar á
þorski og steinbít eftir dr. A. V.
Táning, forstöðumann dönsku
hafrannsóknanna, Sjávarútveg-
ur Þjóðverja, Hvernig verður
fiskmarkaðurinn á Spáni í
framtíðinni, Nýtt hraðfrysti-
tæki o. fl. Einnig er stutt og gott
aflayfirlit frá verstöðvunum yfir
apríl, tafla yfir fiskafla til 31.
marz og önnur til 15. apríl og
útflutningsskýrslur í marz.
Lífið,
2. árg., 3.—4. hefti,
er nýkomið út. Er það allmikið
rit, 160 blaðsíður. í ritinu eru
margar greinar, bæði um upp-
eldismál og annað efni. Má þar
nefna grein um hinn víðfræga
sálfræðing, Sigmund Freud og
kenningar hans, eftir prófessor
Theodór Hartvig, Vandræðabörn,
eftir Björn H. Jónsson skóla-
stjóra, Áfengisneyzla í siðum og
venjum samkvæmislífsins, eftir
Friðrik Á. Brekkan rithöfund,
Hirðuleysi og lögbrot, eftir Björn
Blöndal Jónsson löggæzlumann,
Bjargið börnunum og Heimssýn-
ingin í París, eftir ritstjórann,
Klæðið landið, eftir Hákon
Bjarnason skógræktarstjóra o. fl.
Er ritið fjölbreytt að efni.
Landssmíðjan
Vegna villandi ummæla um
Landssmiðjuna, undanfarið, vil
ég gefa eftirfarandi upplýsingar,
almenningi til fróðleiks.
Ágóði Landssmiðjunnar hefir
frá 1930 numið alls kr. 121.256.99.
Landssmiðjan hefir greitt rík-
issjóði vexti af framlagi, sam-
tals kr. 36.021.40 og tekjuskatt
síðastliðið ár kr. 5.320.00.
Vélar hafa verið keyptar fyrir
samtals kr. 113.441.94 og er nú
bókfært verð þeirra komið niður
í kr. 53.597.98. Verkfæri keypt
fyrir samtals kr. 36.999.32 og er
bókfært verð þeirra komið niður
í kr. 7.081.11. Afskrift véla og
verkfæra hefir því verið alls kr.
88.862.17.
í Landssmiðjunni vinna um 50
menn að staðaldri og hafa þeir
síðastliðið ár greitt útsvar til
bæjarins kr. 7.530.00 og tekju- og
eignaskatt til ríkisins ca. kr.
2.500.00.
Vinnulaun hefir Landssmiðjan
greitt alls kr. 1.342.903.71, þar af
síðustu 2 ár kr. 404.903.64.
Alls hefir Landssmiðjan haft
32 nemendur, þar af hefir 21
nemandi tekið fullnaðarpróf.
Ág. Sigurðsson.
aðeins Loftur.
Reumerth j ónin
°S þ)óðleikhúsid
(Frh. af 1. síðu.)
hrífa eingöngu hinir mestu lista-
menn. Flest hið hversdagslega í
þeim efnum er gleymt eftir einn
dag.
Frú Anna Borg mun að vísu
vera danskur ríkisborgari með
giftingunni. En þó að hún til-
heyri öðru ríki að lögum þá hef-
ir hún meir en bætt úr því. Sjálf
er hún sannur íslendingur, ef
til vill meiri en margir þeir, sem
ekki fara að heiman. En hún
hefir auk þess gert mann sinn að
íslending. Hann þekkir ísland
vel, og hann ann öllu því, sem
er íslenzku þjóðinni til fremdar
og sóma. Þessvegna kemur hann
hér til að gera sitt til að hrinda
leikhússmálinu í framkvæmd. Þau
hjón gera tvennt í einu. Þau
gefa leikhúsgestunum, og þeir
verða margir, kost á leiklist, sem
mun verða flestum þeirra ó-
gleymanleg. Og með áhuga sín-
um fyrir leikhúsbyggingunni
munu þau vekja þjóðina af löng-
um svefni um þetta þýðingar-
mikla mál.
Sigurður Jónasson forstjóri
hafði tryggt leikhúsinu lán er-
endls, ef ráðlegt hefði þótt að
ljúka við salinn með lánsfé.
Hann vann að þessu máli vegna
bæjarins og í samráði við þá
menn, sem hafa mikinn áhuga
á að fegursta bygging landsins
fyllist af lífi og mannamáli. í
þinginu er nú orðin almenn
velvild á þessu máli í öllum
aðalflokkum þingsins. Samt
mun ekki að sínni horfið að því
að taka lán í þessu skyni. Held-
ur mun farin sú leið að leysa
leikhússjóðinn á næsta Alþingi
úr þeim dróma, sem Ásgeir Ás-
geirsson feldi á hann, er hann
tók við stjórnarforustu vorið
1932. Sundhöllin stóð líka auð
og köld í mörg ár, og margir
hugðu hana missmíði eina. En
hver vill nú missa Sundhöllina?
Hver vanþakkar nú þessa miklu
höfuðkirkju iþróttanna? Eng-
inn. Svo mun og fara um leik-
húsið. í því húsi mun dafna
margháttað andlegt líf. Þar
munu börn og unglingar höfuð-
staðarins læra sögu ættjarðar-
innar með leiksýningum, er þau
standa að. Þar munu þeir menn
sem tala íslenzku eins vel og
Jónas Hallgrímsson yrkir,
kenna í einu 800 ungum íslend-
ingum hvernig móðurmálið er
borið fram. Auk þess sjónleikir,
kvikmyndir, söngleikir, hátíð-
legir fyrirlestrar, viðhafnar
samkomur o. s. frv. Þegar Þjóð-
leikhúsið tekur til starfa, verð-
ur það stallsystir sundhallar-
innar, megin undirstaða hinn-
ar nýju bæjarmenningar á ís-
landi. J. J.
VERÐ VIÐTÆKJA ER LÆGRA HER A
LANDI, EN I ÖÐRUM LONDUM ALF-
UNNAR.
Viðtækjaverzlunin veitlr kaupendum viOtækja meirl
tryggingu um hagkvæm viðskipti en nokkur önnur
verzlun mundi gera, þegar bilanir koma fram í tækj-
unum eða óhöpp bera að höndum.
Ágóða Viðtækjaverzlunarinnar er lögum samkvæmt
eingöngu varið til reksturs útvarpsins, almennrar út-
breiðslu þess og til hagsbóta útvarpsnotendum.
Takmarkið er: Viðtæki inn á hvert heimili.
Víðtækjaverzlun ríkísíns
Lækjargötu 10 B. Sími 3823.
Gula bandið
er bezta og ódýrasta smjörlíkið.
í heildsölu hjá
Samband fsl. samvinnuíélaga
Sími 1080.
T ónlístarskólúm
Nemendaliljóinleikar i Gantla Bíó í dag
kl. 3 e. li.
Aðgöngumiðai* seldir í Gamla Bió
frá kl. 1.