Nýja dagblaðið - 21.06.1938, Page 3

Nýja dagblaðið - 21.06.1938, Page 3
N Ý J A DAGB LAÐIÐ 3 „Að leita sannleikans“ þegar hann seint í ræðu sinni bætir við eftirfarandi orðum um mistök þau, sem stundum hafa orðið á vali prófessora að há- skólanum, því prófossor Alex- „ander segir þar svo: „Þegar háskólinn var stofnað- ur, voru valdir til hans kennar- ar þeir menn, er beztir voru taldir í sinni fræðigrein hér á landi. Þótt meðal þeirra hafi verið margir ágætir menn, hygg ég þó, að fullyrða megi, að til háskólans hafi fyr og síðar val- ist menn, sem ekki hafa full- nœgt þeim kröfum, er gera verð- ur til háskólakennara um vís- indalega menntun oa kennara- næfileika“. Af framansögðu hlýtur al- menningi að vera Ijós aðstaða prófessorsins. Ég ætla því ekki að fara fleiri orðum um hana. n. Á sama bæjarstjórnarfundi taldi Bjarni Benediktsson mér það mjög til lasts, og þannig segir einnig Mbl. frá ræðu hans, — með orðum, sem ekki verða nema á einn veg skilin —• að ég væri „rikur fjárplógsmaður" og að „gyðíngsháttur okrar- anna“ væri mér „hugleikinn“. Nú vil ég spyrja lagaprófess- orinn: Hefir ekki undir núver- andi þjóðskipulagi verið hægt að eignast neitt fé nema með því að vera „gyðinglegur okrari“ eða „f j árplógsmaður“ ? Til þess að létta prófessornum svarið við þessari spurningu, hefi ég tekið til athugunar eign- ir 5 manna, og borið þá saman við mig. Samkvæmt síðustu skattskrá hefi ég tekið eigna- skatt þessara manna og reiknað út eftir henni eignir þeirra, svo að ekki skakkar á einu þúsundi króna hjá hverjum. Tveir þess- ara manna eru bæjarfulltrúar fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Einn þeirra er þekktur útgerðarmað- ur, einn iðnaðarfrömuður og einn stórkaupmaður, sem mun vera talinn ein af fjárhagslegum höfuðstoðum Sjálfstæðisflokks- ins. Til samanburðar tek ég svo sjálfan mig og tilfæri hjá hverj- um einum upphæð eignaskatts og upphæð nettóeignar eins og hún sýnir sig að vera samkvæmt upphæð eignaskattsins. Eignaskattur Nettóeign Jón Björnsson, stórkaupmaður ........ ki. 3.356,00 kr. 490.000,00 Ólafur Johnson, konsúll ............. — 2.949,60 — 439.000,00 Tómas Tómasson, framkvæmdastjóri . — 2.648,80 — 401.000,00 Halldór Þorsteinsson, skipstjóri .... — 2.422,40 — 373.000,00 Guðmundur Ásbjömsson, kaupmaður . — 1.232,80 — 220.000,00 Sigurður Jónasson ................... — 357,60 — 94.600,00 arflokksins fyrst og fremst. Fyrír utan 2 síðustu bæjar- stjórnarfundi, hefi ég setið á bæjarstjórnarfundum, er haldn- ir voru 17. febrúar og 3. marz s. 1. í bæði skiptin samkvæmt tilmælum aðalfulltrúa Fram- sóknarflokksins. Öðrum fundum bæjarstjórnar, nema þeim 2 síðustu, sem ég einnig hefi setið eftir tilmælum Framsóknar- flokksins, vegna fjarveru aðal- fulltrúans, hefi ég enga tilraun gert tii aö taka sæti á. Ég mun að visu einu sinni eða tvisvar hafa setið stundarkorn sem áheyrandi á fundum bæjar- stjórnar og mun 1 bæði skíptin hafa átt tal við Jónas Jónsson, ýmist áður en fundir hófust, eða hann gengið til mín út á áheyrendabekkina meðan fund- ur stóð yfir. Það gerðu líka aðr- ir bæjarfulltrúar, eins og t. d. Valtýr Stefánsson ritstjóri. Man ég að Valtýr átti a. m. k. í annað skiptið samtal við mig um hags- munamál blaðanna, sem þá lá fyrir Alþingi, og sem honum var mikið í mun að ég ynni að með honum að greiða úr. Gæti V. St. þvl borið vitni um „fundar- hæfni“ mína þá. Hvort þessar 2 stuttu komur mínar á áheyrendabekki bæjar- stjórnar hafa haft þær skringi- legu verkanir á ímyndunarafl lagaprófessorsins að þær hafi eftir á skapað I huga hans fram- angreinda sögu, sem enga stoð hefir í veruleikanum, eða hvort að hann hefir beinlínis logið sögunni upp vísvitandi, veit ég eigi. Hafi ímyndunaraflið leikið svo ferlega á lagaprófessorinn, að þessi fullkomlega ósanna saga hafi orðið til í huga hans, og hann trúað að hún væri sönn, hygg ég að það geti varla orðið tvennar meiningar um það, að maðurinn sé ekki fylli- lega „normal". Sé hér hinsvegar um visvitandi lygasögu að ræða, virðist prófessorinn heldur al- varlega hafa vikið af götu sann- leikans, sem er þó, samkvæmt þvi sem að ofan er tílvitnað í ræðu próf. Alexanders, æðsta markmið háskólaprófessora að fylgja, og væntanlega þá einnig, er þeir láta ljós sitt skina utan við sjálfan háskólann. Ef til vill hefir próf. Alexander þó haft próf. Bjarna í huga, IÝJA MGBLAÐIB Útgefandi: Blaðaútgáfan h.f. Ritstjórl: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. RitstJ órnarskrlístof umar: Llndarg. 1 D. Símar 4373 og 2353. Afgr. og auglýslngaskxiístofa: Lindargötu 1D. Sími 2323. E3tir kl. 5: Síml 3948. Askrlítarverð kr. 2,00 á mánuði. í lausasölu 10 aura elntaldð. Prentsmiðjan Edda h.f. Símar 3948 og 3720. Mínníhlutinn í hæjarstjórninni Á seinasta bæjarstjómar- fundi urðu talsverðar deilur milli fulltrúa Framsóknar- flokksins og íhaldsmeirihlutans út af reglugerðum Rafmagns- veitunnar og Sogsvirkjunar. Fulltrúi Framsóknarflokksins sýndi fram á með ljósum rök- um, hversu hættulegt og órétt- mætt það væri að gera Raf- magnsveitu Rvíkur að eins- konar innheimtustofmm fyr- ir bæjargjöldin og ætla bænum að nota tekjuafgang Sogsvirkj- unarinnar sem eyðslueyri í stað þess að verja honum til nýrra, nauðsynlegra framkvæmda í sambandi við stöðina. í áfram- haldi af þessari gagnrýni sinni bar fulltrúi Framsóknarflokks- ins fram breytingartillögur, sem bættu úr þessum hættulegu ágöllum. Þótt hér sé um sjálfsagðar og gagnlegar breytingar að ræða, vekur það enga sérstaka furðu, þó íhaldið snúist gegn þeim, vegna þess að það var áður búið að taka aðra afstöðu í málinu. Það er afstaða hinna minni- hlutaflokkanna í bæjarstjórn- inni, sem vekur miklu meiri at- hygll. Það er full ástæða fyrir bæjarmenn að gefa henni næg- an gaum, vegna þess að hún er lika táknræn fyrir öll þeirra vinnubrögð í bæjarstjórninni. Tillögur Sigurðar Jónasson- ar eru þannlg vaxnar, að það er bein flokksskylda minni- hlutafulltrúanna 1 bæjarstjórn- inni, að styðja þær eftir megni, ef þeir ætla að standa við gefin kosningaloforð. Þess vegna mátti vænta fulls stuðnings þeirra og að þeir beittu áhrifum sinum bæði í bæjarstjórninni og flokksblöðunum til að afla þeim fylgis, sem yrði það sterkt að íhaldið sæi sitt óvænna og neyddlst til að láta undan. En í stað þess að fara þannig að, hafa fulltrúar hinna mlnni- hlutaflokkanna ekkert gert til að vinna að framgangi þessara tillagna. Þeir hafa að vlsu látið falla lausleg ummæli um það, að þeir væri þeim samþykkir. En að öðru leyti hafa þeir bein- linis reynt að styrkja aðstöðu i- haldslns. Á bæjarstjómarfund- inum reis Björn Bjarnason t. d. á fætur til þess eins að reyna að hjálpa Bjarna Benediktssyni tll að svívirða Sigurð Jónasson. Og I Alþýðublaðinu er leltazt við eftir megni að kasta hnútum að Sigurði Jónassyni fyrir ó- sæmilegt orðbragð um ihaldið í umræðum um þetta mál! Það er allt, sem Alþýðublaðið virð- ist hafa um það að segja. Skýring á þessari framkomu fulltrúa sósíalista og kommún- ista, er ákaflega einföld. Hún er sprottín af einfeldnislegum ótta við það, að Framsóknarflokkn- um verði þakkaður sigurinn í málinu, ef hann ynnist. Þennan sama ótta hefir tramkoma þeirra sýnt 1 fjölmörgum öðr- um málum, sem Framsóknar- flokkurinn hefir borið fram, t. d. fátækramálunum, fiskhöll- inni, ísverðinu, sundkimnáttu sjómanna o. s. frv. Þeir hafa hjálpað íhaldinu til að svæfa þessi mál með allskonar vífi- lengjum og útúrsnúningum. Hefðu þeir í þess stað veitt að- stoð sina til þess að afla mál- unum fylgis, myndi ihaldinu hafa veitzt ókleyft að leggja þau á hylluna og almennings- álitið knúð það fyr tll að láta imdan. Þegar athuguð eru þessi vinnubrögð umræddra flokka og málefnaleysi þeirra í bæjar- stjórninni kemur ósigur „sam- fylkingarinnar“ í vetur ekki kynlega fyrir sjónir. Andstaða socialista gegn íhaldinu á sein- asta kjörtimabill var mjög veik 1 bæjarstjórninni, Alþýðublaðið skrifaði sáralítið um þessi mál, en kommúnistar eyddu öllum sinum starfskröftum til að svl- virða Framsóknarflokkinn og Alþýðuflokkinn og virtust naum- ast muna eftir því að íhalds- flokkurinn væri tll. Hjá komm- únistum virðist nú sækja í sama horfið og fyr. Aðalsprauta þelrra, Björn Bjamason, talar sjaldan til annars en að svívirða fulltrúa Framsóknarflokksins, enda er Morgunblaðið farið að skjalla hann fyrir kurteisi! Al- þýðuflokkurinn er nú fállðaðri en áður. Stefán Jóhann er mörgum störfum hlaðinn, svo hæfileikar virðast ekki fá notið sin, hvorki í bæjarráði eða bæj- arstjórn. Frú Soffía er greind kona og hefir lagt margt gott til málanna, en er ennþá lltt kunnug bæjarmálum. Jón Axel virðist ekkert hafa lært, en hins vegar gleyma þvi, að hann hafi verið kosinn til þess að vera á móti íhaldinu, því hann tekur yfirleitt ekki til máls, nema tll þess að láta einhver öfundar- orð falla í garð Framsóknar- flokksins og veitir ihaldinu þannig óbeinan styrk gegn um- bótatillögum flokksins. Ritstjóm Alþýðublaðsins vlrðist einnig vera enn á svipaðrl „línu“. Meirlhlutavaldi íhaldsins verð- ur ekki hrimdið, nema með djarfri og fjölþættri umbóta- baráttu andstæðinga þess. Al- mennlngur verður að sjá þess glögg merki að það sé til bóta að skipta um stjóm á bænum. Þessvegna hefir Framsóknar- flokkurinn valið tll forystu af sinni hálfu þann mann, sem hafið hefir baráttu fyrlr fleir- um og margvislegri umbótamál- um en nokkur annar íslending- ur, og þann mann, sem verið hefir áhrifamesti og hug- kvæmdarikasti andstæðingur Ihaldsins í bæjarstjóminni. Af hálfu þessara manna mun ekki skorta að lögð verðl fram ný og mlkilsverð mál, sem bæjarbúum I. Próf. Alexander Jóhannesson segir frá því í ræðu, er hann hélt um Háskóla íslands og framtíð hans á nýafstöðnu stúdenta- möti á Þingvöllum, að fyrsti rektor háskólans hafi þannig markað stefnu háskólans, er hann var settur í fyrsta sinn: „Markmið háskóla er fyrst og fremst þetta tvennt: 1) að leita sannleikans í hverri frœðigrein fyrir sig — og 2) að leiðbeina þeim, sem eru 1 sannleiksleit, hvernig þeir eigi að leita sannleikans i hverri fræðigrein fyrir sig.“ Síðar í ræðunni segir prófess- orinn: „Það er eðlilegt, að margur muni spyrja hvort háskóli vor hafi innt þetta hlutverk af hendi hin fyrstu 27 árin, sem hann hefir starfað”...........“ Við lestur ræðu prófessorsins varð mér hugsað til atviks. sem gerðist á síðasta fundi bæjar- stjórnar Reykjavíkur. Þar ris upp lagaprófessor Bjarni Bene- diktsson og ber fram eftirfar- andi sögu um mig og formann Framsóknarflokksins. Sam- kvæmt frásögn Morgunblaðsins af fundinum, hljóðar sagan þannig: „Minnti Bjarni Benediktsson Sigurð á þann atburð, er hann nokkru eftir síðustu bæjar- stjórnarkosnhigar ætlaði að vaða inn á bæjarstjórnarfund, en aðalfulltrúi Framsóknar- flokksins Jónas Jónsson var þar fyrir. Jónas sá þegar, að Sigurð- ur var ekki „fundarhæfur“ og stöðvaði hann í fordyrinu. Varð nokkurt stímabrak milli þeirra. Vildi Sigurður ólmur inn á fund- inn. En Jónasi tókst að hafa vit fyrir honum og hvarf Sigurður á brott. En svo slysalega vildi til fjrrir þeim flokksbræðrum, að Sigurður var með tillögur þær I vasanum, er Framsóknarflokk- urinn ætlaðl að koma á fram- færi á fundinum, og gat aðal- fulltrúinn ekki náð þeim. Varð frammistaða hans því hin spaugilegasta. En hann tók þvi með þolinmæði, því hann þótt- ist hafa komið í veg fyrir það, sem verra var.“ Samkvæmt meginreglum há- skólans, skyldl maður ætla, að prófessor í lögum við háskól- ann, sem þar að auki er vara- dómari i hæstarétti, hafi hér sagt í öllum atriðum rétt frá, en þótt undarlegt megi virðast er það ekki svo. Hvert einasta atriði í þessari sögu Bjarna lagaprófessors um mig eru hel- ber ósannindi, og visa ég um það atriði til formanns Framsókn- yrðu til margvislegs hagræðis, ef samþykkt yrðu. Með þvi að fylkja llði íhaldsandstæðinga til sóknar um slík mál, I stað þess að láta öfund og afbrýðissemi hjálpa íhaldinu til að tefja framkvæmd þeirra, verður að- eins hægt að knýja fram stefnu- breytingu i bæjarmálunum og hnekkja yflrráðum ihaldsins. Hafa nú þessir 5 menn eignast fé sitt með gyðinglegu okri eða fjárplógsmennsku? Tveir þess- ara manna eru stórkaupmenn, einn þeirra er kaupmaður. Fé mitt hefi ég fyrst og fremst eignast í sambandi við helld- söluverzlun, er ég rak i félagi með öðrum á árunum 1925—31. Á þeim tíma hygg ég að hinir tveir ofangreindu stórkaupmenn hafi slzt grætt minna fé en ég. Annar þeirra verzlaði að hluta með nákvæmlega sömu vöru og félag mitt. Eða ber sérstaklega að ásaka mig fyrir það, að ég gekk í ríkisins þjónustu fyrir 6 árum og hefi starfað hjá því fyrir helmingi lægra kaup en ég hafði hjá einkafyrirtækinu? Síðan ég hættl að starfa fyrir einka.fyrirtæki, sem rak heild- verzlun, hefi ég hagnast nokk- uð á húseign, sem ég lét byggja á ódýrasta tima, árið 1932. Er (Framhald á 4. siSu.J

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.