Nýja dagblaðið - 22.06.1938, Page 1
Hafiff þér notað
BLITS
þvottaduft?
Reyniff þaff f næsta
þvott, og þér sann-
færizt um gæðin.
ID/\Q»IBIii\OH€)
6. ár ' m 4 Reykjavík, miðvikudaginn 22. júní 1938. 140. blaff
ANN ÁLL
173. dagur ársins.
Sólaruppkoma kl. 2,02 Sólarlag kl.
10,57. Árdegisháflæður í Reykjavík kl.
11,50.
Veffurútlit í Reykjavík:
Norðangola. Bjartviðri.
Næturlæknir
er i nótt Kristín Ólafsdóttir, Ingólfs-
stræti 14, sími 2161. Næturvörður er í
Laugavegs- og Ingólfsapóteki.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 10,00 Veðurfr. 12,00 Hádegisútv.
15,00 Veðurfr. 19,10 Veðurfr. 19,20
Hljómpi.: Planólög. 19,40 Augl. 19,50
Préttir. 20,15 Útvarpssagan („Október-
dagur“, eftir Sigurð Hoel). 20,45 Út-
varpskórinn syngur. 21,15 Hljómplöt-
m-: a) Kvartett, Op. 18, nr. 1, eftir
Beethoven. b) Lög leikln á sláttar-
hjlóðfæri. 22,00 Dagskrárlok.
Póstferðir á morgun.
Frá Rvík: Mosfellssv.-, KJalarness-,
Reykjaness-, Ölfuss- og Flóapóstar.
Hafnarfj. Seltjamarnes. Þrastalundur.
Þingvellir. Laugarvtan. Kjósarpóstur.
Ljósafoss. Norðanbílpóstur. Þykkva-
bæjarpóstur. Fagranes til Akraness.
Laxíoss til Akraness og Borgamess.
Til Rvikur: Mosfellssv.-, Kjalamess-,
Reykjaness-, Ölfuss- og Flóapóstar.
Hafnarfj. Seltjarnarnes. Þrastalundur.
Þhigvellir. Ljósifoss. Breiðafjarðar-
póstur. Norðanbílpóstur. Dalapóstur.
Austanpóstur. Barðastrandarpóstur.
Fagranes frá Akranesi. Laxfoss frá
Borgai-nesi og Akranesi.
Skipafréttir.
Gullfoss var í Kaupmannahöfn i
gær. Goðafoss er á leið til Vestmanna-
eyja frá Hull. Brúarfoss var á Akur-
eyri 1 gær Dettifoss fór frá Vestmanna-
eyjum í gærkveldi. Lagarfoss er á leið
tU Kaupmannahafnar frá Seyðisfirði.
Selfoss var á Akranesi í gær. — Esja
kom til Reykjavikur kl. 1 e. h. í gær
frá Vestmannaeyjum og Glasgow.
Súðin var á Skagaströnd kl. 5 í gær.
Prestkosningar
eru nýafstaðnar 1 vVeim prestaköll-
um. í Árnesprestakalll 1 Strandasýslu
var aðeins einn i kjöri, séra Þorsteinn
Björnsson settur prestur í Árnesi. Á
kjörsfcrá eru 219, en 87 sóttu kjörfund
og af þeim fékk séra Þorsteinn 71
atkvæði. Kosning var því ólögmæt, þar
eð ekki gat helmingur kjósenda sótt
kjörfund vegna vegalengda. í Kirkju-
bæjarklaustursprestakalli í Vestur-
SkaftafeUssýslu var einnig aðeins
einn í kjöri, séra Gísli Brynjólfsson.
Kosning varð einnig ólögmæt þar, þar
eð skip kom að söndunum og varð að
afgreiða það, og vegna þess mættu ekki
helmingur þeirra, er á kjörskrá voru.
Á kjörskrá eru 305, 143 sóttu kjörfund
og af þeim hlaut séra Gísli 140.
Stefán Guðmundsson
syngur í Gamln Bíó í kvöld kl. 7,15
með aðstoð Haraldar Slgurðssonar
pianóleikara.
Jónas Jónsson
alþinglsmaður er nú staddur norður
í kjördæmi sínu, Suður-Þingeyjarsýslu,
og heldur þar leiðarþing. Mim hann
ekki væntanlegur tU bæjarins fyr en
um mánaðamót.
Bltndravinafélag íslands
hélt aðalíund sinn nú fyrir skömmu.
Félagið hefir starfað ötuUega á s.l. ári.
Nemendur á blindraskólanum voru 5
og imnu fjórir þeirra elnnig á vinnu-
stofunum. Kennt var og sund og fleira.
19 blindh- memi starfa á vegum fé-
lagsins. 9 vinna á vtnnustofu félagsins,
5 vinna heima hjá sér hér í bænum
eða í nágrenni hans, en 4 mönnum,
sem búa lengra burt, hefir verið
útvegað efni tU burstagerðar og vefn-
aðar. Félagið hefir sjálft með höndum
sölu framleiðslunnar. Stjórn félagsins
úthlutaði þeim tíu ókeypis viðtækjum,
sem heimild er fyrir á fjárlögum, en
um það höfðu sótt 57 manns. Stjórnin
var öU endurkosin, en hún er þannig
skipuð: Þorsteinn Bjarnason formað-
ur, Helgi Eliasson varaformaður,
Helgi Tryggvason ritari, Þórey I>or-
lelfsdóttir gjaldkeri og Guðm. R.
Ólafsson meðstjórnandi.
Sjóður stofnaður til minningar nin
De Vaiera vann frú Stefaníu Guðmundsdóttur
glæsííegan sigur Tekjum hans verður varíð tíl eílíngar
Jafnaðarmenn
biða inikinn ósigur
vegna andstöðn
sinnar gegn gerð-
ardómi i kanp-
gjaldsmálum.
LONDON:
De Valera heflr fengið hreinan meiri
hluta í írska þingtnu og hefir 15
þingmenn umfram andstöðuflokkana.
Voru aðalniðurstöðurnar birtar í gær.
Flokkur De Valera hefir hlotið 77 sæti.
Flokkur Cosgraves 45 sæti, verka-
mannaflokkurinn 9 sæti, óháði flokk-
urinn 7. Það sem vekur mesta athygli
við kosninguna, er það hve verka-
mannaflokkurinn hefir tapað fyrir
flokki De Valera. FÚ.
Verkamannaflokkurinn hafði áður
úrslltavald í þinginu. Hann haíði neit-
að að samþykkja frv. frá stjóminni
um gerðardóm í launadeiiu opinberra
starfsmanna og þess vegna rauí De
Valera þingið. Virðist andstaðan gegn
gerðardómi 1 kaupgjaldsmáll ólikleg til
þess að auka fylgi jafnaðarmanna í
írlandl eins og víðar .
Fjárhagsvand-
ræði Japana að
vaxa þeím yiir
höfuð
Þeim er nauðsyn-
legt að fá skjótan
enda á Kinastyrj-
öldinni.
OSLÓ:
Þýzka fréttastofan í Tokló skýrir frá
því í gær, að innanríkismálaráðherra
Japana hafl gefið út opinbera tilkynn-
ingu, þar sem hann skýrir frá þvi, að
stjórnin muni gera allt, sem í hennar
valdi stendur til þess að binda enda á
striðið í Kina svo fljótt, sem auðlð er.
Yfirlýsing þessi stendur vafalaust i
sambandi við þá Londonarfrétt, að
tekjur hins opinbera í Japan minnka
mjög verulega, en útgjöld fara stór-
vaxandi. Talið er að á yíirstandandi
ári mirni tekjur rikisins verða, sem
svara 20 milljón sterllngspundum
lægrl en siðastliðið ár, en útgjöld 17
milljónum hærri en við útgjöldln bæt-
ist auk þess herkostnaður, sem nemur
283 milljónum sterlingspunda.
Sókn hjá Kínverjnm.
Londonarfrétt segir að Japanir hafi
opinberlega tilkynnt í gær, að kin-
verskur her, sem telur 200.000 manns
hafl ráðizt á setullðsstöðvar Japana 1
Shansi. Er af þessu ráðið, að Kínverj-
ar hafi aukið lið sltt vlð Shansi, með
því að flytja hermenn frá Lunghai-
vígstöðvunum þar sem bardagar hafa
lagst niður vegna vatnsflóðanna frá
Gulafljótl. Japanir játa einnig i þess-
ari tilkynningu, að vatnsflóðln hafi
eyðilagt samgöngutæki bifreiða- og
bifhjólasveita þeirra á flóðasvæðlnu.
— FÚ.
íslenzkrí leíklíst
Nýja dagblaðinu hefir
borizt eftirfarandi bréf:
„í fyrrakvöld var okkur
afhentur sjóður, tengdur
við nafn móður okkar, Stef-
aníu Guðmundsdóttur, að
upphæð kr. 1.000,00 og
skjal, sem hljóðar þannig:
„Nokkrir vinir frú Stefaníu
sál. Guffmundsdóttur leikkonu
gangast fyrir því, aff stofnaffur
verffi sjóffur, er beri nafn henn-
ar og notaffur verffi til aff efla
leikmennt hér í landi, eftir því
sem nánar verður ákveðiff í sam-
ráffi viff eftirlifandi böm henn-
ar. —
Vér undirrituff teljum mjög
vel viffeigandi, að minning frú
Stefaniu verffi á þenna hátt
tengd við leikmenntina f fram-
tíðinni og leyfum oss aff mæla
meff því viff alla, sem unnu og
möttu leiklist hinnar látnu lista-
konu, aff þeir leggi sinn skerf
tii þess, aff sjóffurinn geti orffiff
samboffinn hinni framliffnu".
25 undirskriftir.
Viljum viff færa stofnendum
þessa sjóffs okkar beztu þakkir
fyrir þá virðingu, er þeir sýna
minningu móður okkar og vona
að ijtin fagjra hugmynd vina
hennar og okkar megi ná tak-
marki sinu.
^aufásveg 5, 20. júní 1938.
Systkinin Borg."
Viff heimsókn Reumertshjón-
anna, og hinn glæsilega leik frú
Önnu Borg, hefir endurminn-
ingin mn frú Stefaníu, móður
hennar yngst upp i hugum
hinna eldri Reykvikinga. Mun
þaff engum efa undirorpiff, að
glæsilegri listamannshæfileikar
á sviffi leiklistar hafa aldrei
komið hér fram, en þeir, sem
hún bjó yfir, og m^tti vitundin
um hve stórbrotnir og sjaldgæfir
þeir hæfileikar voru, verffa til
þess, aff auka trú okkar ú fram-
tiðina, — framtiff okkar sem
menningarþjóðar.
Frú Stefanía var jafnglæsileg
í harmleik og gleffileik. Auk þess
mun hún hafa búiff yíir sjald-
gæfum leikstjórnarhæfileikum.
Þegar frúin réffist i þaff stór-
fyrirtæki aff fara leikför með
þrem börnum sinum til hinna
dreifffu íslendingabyggða 1 Kan-
ada, og tókst að láta þetta svara
kostnaffi, þá var þaff einungis
Stefanía Guðmundsdóttir
sem Trina 1 „Trína 1 stofuíangelsi".
Þetta var fyrsta hlutverk frú Stefaniu
og er myndin tekin, er hún kom i
fyrsta sinn fram á leiksvlði 30. janúar
1893.
fyrir þá sök, hve löndum okkar
vestra lá í augum uppi hve hér
var sjaldgæfur listamaffur á
ferff.
Hefði frú Stefanía fæffst með
stærri mennlngarþjóff, eða ekki
alveg svona snemma á morgni
islenzkrar endurreisnar, þá
hefffu snilldarhæfileikar henn-
ar notið sin enn betur og boriff
hærra yfir.
Hennar minningu er skylt að
halda í heiffri.
43 iarþcgarmeð Esju
irá Glasgow
Esja kom úr sinni fyrstu íör milli
Glasgow og Reykjavíkur um hádegið
i gær. Farþegar voru 43 að þessu
slnnl, þai' af 24 konur. Eru farþegamir
vlða að en þó flestir frá Skotlandi
eða 27, frá Englandi eru 12. Ein kona
er frá írlandi, ein frá Canada, eln
frá Florida U. S. A. og ein frá Nýja
SJálandi.
Eftirspurn er nú mikil eftir fari með
Esju, og áður en íerðir hófust, höfðu
fleirl sótt um far en alls fóru með
sklpinu i fyrra.
Esja mun leggja af stað héðan tll
Glasgow næstkomandi föstudag.
ÍKVEÐJA firá f
Reumerts-
hjónunum
Meff Drotninguiml í : :
jjj fyrrakvöld fóru þau Anna :j:
: og Páll Reumert heimleið- : :
is, eftir hina sögulegu dvöl jij
i; sína hér heima.
Áffur en þau fóru, sendu i j :
jjj þau Nýja dagblaðinu svo- :
jjj látandi kveðju til birt- j j
jíj ingar:
Við getum ekki farið af jjj
j:jj landi burt án þess að fœra jj j
jjjj þjóðinni okkar síðustu :i:
jjj þakkir fyrir þessa yndis- j:
l legu íslandsför
Sú alúð og ástsemd, sem jjij
jjj alstaðar hefir streymt á :j:
:j: móti okkur, knýtir hjörtu :j:
jjj okkar enn fastari böndum f
jjj við fsland. jjj
Beztu ámaðaróskir og ;j:j
ijf ástarþakkir fj
frá
Önnu Borg og
Poul Reumert.
Sundmeistara-
mótinu lokið
Þrjú swndmet enn
Sundmeistaramótinu lauk i gær-
kvöldi í Sundhöllinni. Hófst keppnin
með 400 metra bringusundi karia.
Fyrstur varð Ingi Sveinsson Æ. á 6
mín. 23,7 sek. sem er nýtt met. Gamla
metið var 6 min. 33,2 sek. og settl
Ingi það 1 fyrra. Annar varð Jóhannes
Björgvinsson Á. á 6 mín. 41,8 sek. og
þriðji Esra Pétursson Æ. á 7 mln. 25,6
sek.
Næst fór fram keppni í 200 metra
bringusundi fyrir konur. Fyrst varð
Þorbjörg Guðjónsdóttir Æ. á 3 min.
39.3 sek. Önnur varð Brynja Guð-
mundsdóttir Æ. á 3 mín. 54,6 sek.
Steinþóra Þórisdóttir U. M. F. R.
synti á 3 min. 47,2 sek., og hefði því
eftir tíma átt að fá önnur verðlaun,
en sund hennar var dæmt ógilt þar eð
hún skipti skakt, snart bakka aðeins
með annari hendi i stað þess að snerta
með báðum. Steinþóra er aðeins 12 ára
gömul og mjög efnileg sundmær.
Þá fór fram keppni i 100 metra
bringusundi fyrir drengl innan 16 ára.
Fyrstur varð Jón Baldvinsson Æ. á 1
mín. 37,7 sek. Annar var Einar Stein-
arsson Æ. á 1 min. 41,5 sek. og þriðji
Guðmundur Þórarinsson Á. á 1 mín.
46.4 sek.
1500 metra frjáls aðferð karla var
siðasti liðurinn á mótinu. Keppendur
voru skráðir tveir, en annar þelrra,
Pétur Eiríksson, mætti ekki, þar eð
hann var ekki búinn að ná sér eftir
Engeyjarsundið síðastliðinn sunnudag,
en þá fékk hann slæman slnadrátt.
Jónas Halldórsson var því einn þátt-
takandl í sundinu. Syntu fimm góðlr
sundmenn á mótí honum og varð hann
jafn þeim. Tíminn hjá honum var 21
min. 30,2 sek., sem er nýtt met. Gamla
metið setti hann sjálfur í fyrra, en
það var 22 min. 06,2 sek. En sagan er
nú ekki öll sögð með þvi, þvi að Jónas
setti um leið nýtt met í þúsund metra
(Framhald á 4. bíSu.)