Nýja dagblaðið - 22.06.1938, Qupperneq 2
2
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
ÚTLÖWD:
KONRAD HENLEIN
Stórslúkan
meira fylgjandi banni
Undanfarna mánuði hafa fáir
stjórnmálamenn verið oftar
nefndir í fréttaskeytum stór-
blaðanna, en Konrad Henlein,
foringi Sudetta í Tékkóslóvakíu.
Konrad Henlein er nú fertug-
ur að aldri. Hann er austurrísk-
ur að uppruna. Kornungur gekk
hann í austurríska herinn og
barðist á ítölsku vígstöðvunum.
Hann sýndi þar mikinn rösk-
leika og hafði hlotið nokkrar
viðurkenningar, þegar ítalir
tóku hann til fanga og héldu
honum í fangabúðum á Sardiniu
þangað til heimsstyrjöldinni
lauk. Eftir heimkomuna fékkst
hann fyrst við verzlunarstörf, en
leiddist þau, og tók þá að stunda
íþróttir. Varð hann skjótt þekkt-
ur íþróttakennari og eftir nokk-
urra ára starf var hann gerður
að yfirmanni íþróttakennslunn-
ar meðal Þjóðverja i Tékkosló-
vakíu. Það var í sambandi við
stórt íþróttamót, er haldið var
haustið 1933, sem Henlein til-
kynnti stofnun flokks síns. —
Menn bjuggust ekki við miklu af
honum. fyrst í stað, en úrslit
þingkosninganna, sem fóru
fram tveim árum seinna, sýndu
ljóslega að Henlein hafði fengið
góðan byr í seglin. Flokkur hans
fékk þá 1.300.000 atkvæði og 44
þingmenn kosna. Siðan hefir
fylgi hans aukizt mikið og nú
hafa allir þýzku flokkarnir,
sem áður störfuðu í Sudetta-
héruðunum, sameinast flokki
hans, nema jafnaðarmanna-
flokkurinn.
Það, sem Henlein krefst fyrst
og fremst er einskonar sjálf-
stjórn fyrir Þjóðverja í Tékkó-
slóvakíu, en hann segist ekki
vilja aðskilnað við Tékkósló-
vakíu, nema Þjóðverjum verði
neitað um sjálfstjórnina. Verði
tékkneska stjói’nin, ekki við
þeirri kröfu segist Henlein muni
óska eftir atkvæðagreiðslu í
Sudettahéruðunum um það,
hvort þeim beri heldur að fylgja
Þýzkalandi eða Tékkóslóvakíu,
og hann segist ekki vera í nein-
um vafa um, hver endalok þeirra
atkvæðagreiðslu muni verða.
Andstæðingar Henleins telja,
að hann sé ekkert annað en
erindreki Hitlers og þó kröfum
hans að þessu sinni yrði full-
nægt rhyndi ekki nást neinn
varanlegur friður milli tékk-
nesku stjórnarinnar og Sudetta,
heldur myndu þeir síðarnefndu
byrja með róttækari kröfur á
ný, því takmark þeirra sé að
sameinast Þýzkalandi. Hinsveg-
ar virðast ýmsir áhrifamiklir er-
lendir stjórnmálamenn trúa á
einlægni Henleins og að ekki
vaki fyrir honum að rjúfa satti-
bandfð við Tékka. Meðal þeirra
virðast m. a. ýmsir af frjáls-
lyndari stjómmálamönnum
Englendinga, en Henlein hefir
nokkuru sinhum ferðast til
London og þá rætt við ýmsa
áhrifamestu andstæðinga brezku
stj órnarinnar um þessi mál, en
aldrei við fulltrúa stjórnarinnar
sjálfrar.
Henlein er enginn áróðurs-
maður á borð við Hitler eða
HENLEIN
Goebbels, hvorki í ræðu eða riti.
Hann er þó sagður sérstaklega
sannfærandi ræðumaður og
framkoman karlmannleg og
hiklaus, og því vel til þess fallin
að afla honum trausts. Hversu
slyngur stjórnmálamaður hann
er virðist þó enn óreynt, því
fylgi hans ber frekar að þakka
heppilegum skilyrðum, sem
myndast hafa fyrir slíka hreyf-
ingu, bæði af ytri og innri
ástæðum, en honum sjálfum.
Símar 1964 og 4017.
en nokkuru sínni fyr
Stórstúkuþinginu lýkur í dag.
í gærkveldi var fulltrúum hald-
ið samsæti á Hótel ísland.
Á þinginu voru ýms mál tekin
til meðferðar. Einkum var mik-
ið rætt um lögbók templara og
gerðar á henni ýmsar breyting-
ar, m; a. vegna þess, að hún er
nú uppseld og þarf því að gefa
hana út í nýju upplagi.
Þingið samþykkti að „lýsa því
yfir, að stefna Reglunnar er ein-
dregnari en nokkru sinni fyr:
Algjör útrýming áfengis úr
landinu, með fullkomnu banni,
svo fljótt sem verða má“.
Þá samþykkti þingið að mæla
með frv. því um héraðabönnin,
sem borið var fram á síðasta Al-
þingi.
í framkvæmdanefnd Stór-
stúku íslands voru kjörnir:
Stór-templari: Friðrik Á.
Brekkan, Rvík..
Stór-kanslari: Jóh E. Berg-
sveinsson, Rvik.
Stór-varatemplari: Jensína
Egilsdóttir, Hafnarfirði.
Fyrverandi stórtemplari: Sig-
fús Sigurhjartarson, Rvlk.
Stór-ritari: Jóhann Ögm.
Oddsson, Rvik.
Stór-gjaldkeri: Guðgeir Jóns-
son, Rvík.
Stór-kapilán: Gísli Sigur-
geirsson, Háfnarfirði.
Stór-gæslumaður unglingast.:
Steindór Björnsson, Rvik.
Stór-fregnritari: Björn Magn-
ússon, Rvík.
Stór-gæzlumaður löggjafarst.:
Felix Guðmundsson, Rvík.
Stór-fræðslumálastjóri: Einar
Björnsson, Rvík.
Alls voru 77 fulltrúar msettir
á þinginu.
aðeins Loftur.
Er mjúk sem rjómi og
hefir yndislegan rósailm.
Fæst í öllum verslunmm,
sem leggja áherslu á vöru-
gæSi.
Arður til hluthafa
Á aðalfundi félagsíns t>. 18. ti.
m>, var sampykkf að greiða 4°|0 —
fjóra af hundraði — í arð til hlut-
hafa fyrír árir 1937.
Arðmiðar verða innleystir á
aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík
og á afg^reíðslum félagsins át um
land.
H.f. Eímskípafélag Islands
Reykjavik - Akureyri
Næsta hraðferð til Akureyrar um Borg-
arnes er á flmmtudag.
Bifreiðastöð Steindórs.
Sími 1580.
Garnir
Kaupum saltaðar, vel verkaðar gamir og
ianga úr kindum, kálfum, nautum og
svínum.
Garnastöðin, Reykjavík,
Sínú 4241.
Tíl brúðargfjafa t
Handskorinn krisfall í miklu úrvali. Schramberg-
er heimsfræga kunst Keramik í afar miklu úrvali.
Schramberger Keramik ber af öðru Keramik, sem gull
af eir.
K EINARSSON & BJÖRNSSON.
skal vakin á því, að Landsbanki
íslands og Útvegfsbanki tslands h.f.
og löggiltar gjaldeyrisskipfistöðvar
peirra hafa eínkarétt til að kaupa
og selja erlendan gjaldeyri.
Er pví öllum öðrum óheimilt að
skipta erlendum gjaldeyrí fyrir ís-
lenzkan og liggja við sektir, allt að
kr. 50000,-
Ðankarnir geta fialié ákveönum stofnunum eða
einstaklingum að annast skipti á erlendum
gjaldeyri ferðamanna, og veita peir pá sérstakt
umboð í pessu skyni.
Fjármálaráðuneytið.