Nýja dagblaðið - 02.07.1938, Blaðsíða 4

Nýja dagblaðið - 02.07.1938, Blaðsíða 4
REYKJAVÍK, 2. JÚLÍ 1938 NYfA DAGBLAÐIB 6 argangdr -149 biað C A M L A BIÓ IRöskur strákur j Gullfalleff og hrífandi am- j erísk mynd. | Aðalhlutverkin leika: | Jachie Cooper Joseph Calleia og undrahundurinn j Rin-Tin-Tin Aukamynd: Liitkvikmynd af j fjöllum Kanada. j Síðan er fögur sveit. Fastar áætlunarferðir frá Rvík að Kirkjubæjarklaustri alla þriðjudaga. Frá Kirkjubæjar- klaustri til Reykjavíkur alla föstudaga. Vandaðar bifreiðar. Þaulæfðir bílstjórar. Afgr. Bif- reiðastöð íslands. Sími 1540. - Kaup og sala - Sportblússur og Georgette- hálsklútar. Hattastofa Svönu og Lárettu Hagan. Heggur sá, er hlífa skyldi (Framhald af 3. síðu.J baki í tón-bókmenntum. En verði hinsvegar beitt upptekn- um hætti tómlætis, og jafnvel andúðar gegn íslenzkum tón- verkum, verður engu tónskáldi vært í landinu, og þá hlýtur allur tónlistar-metnaður þjóð- arinnar að veslast upp og deyja og við verðum þá, í þeirri grein, ekki annað en sálarlaust, dans- andi skrípi útlendrar tuttugustu aldar ómenningar, sem við gleyptum, með úlfsgræðgi, hraðar en við gátum kyngt, hvað þá melt Ég vil svo enda þessar línur með þeirri ósk, að Emil Thor- oddsen, og aðrir mætir drengir, sem hér er óhjákvæmilega deilt á, láti sér skiljast að mér geng- ur ekki óvild til, heldur kannske miklu fremyr hið gagnstæða. Því ég þykist enganvegin sízt flytja þetta mál þeim í vil sem ég álít að gerst hafi brotlegir við þjóðernislega háttvísi, en þó vitanlega fyrst og fremst af því að sannfæring mín og þjóð- erniskennd knúðu mig til þess. Og einmitt þess vegna þykir mér sennilegt að þeir hinir sömu geti undirstrikað flest eða allt sem hér er sagt, eftir að þeir hafa virkilega lagt málið niður fyrir sér, og hefir þá skrif þetta náð þeim æskilegasta á- rangri, sem ég get kosið, sem sagt, að hafa betrandi áhrif á músikalskt og menningarlegt áhrifavald þjóðarinnar. Akureyri 26. júní 1938. Björgvin Guðmundsson. Þakkaravarp Alviðra, 23. júní 1938. Öllum hinum mörgu vinum okkar frændfólki og mágfólki, bæði hér i Dýrafirði og Reykja- vík, vottum við okkar innileg- asta hjartans þakklæti, fyrir þá miklu hjálp, samúð og hluttekn- ingu, er okkur hefir verið auð- sýnd í veikindum og fráfalli okkar elskuðu sona og bræðra, er önduðust á Vífilstaðahæli. Guðm. sál. Haukdal 12. apríl og Sigurbjörn sl. Haukdal 2. júní síðastl. Sérstaklega ber okkur að þakka U. M. F. Mýrahrepps og kvenfélaginu Hugrún í Hauka- dal ,er sendi þeim á síðastliðnu hausti myndarlegar peninga- gjafir, og ennfremur U. M. F. Mýrahrepps fyrir sína mikil- vægu aðstoð við jarðarför þeirra beggja. Og ekki hvað sízt ber okkur að þakka frú Guðnýju Gilsdóttur og manni hennar Guðjóni Sigurðssyni vélstjóra frú Björgu Guðmundsdóttur, frú Þorbjörgu Guðmundsdóttur og Kristjáni Ásgeirssyni, og öllu þeirra skylduliði svo og fleirum vinum okkar í Reykjavík, sem útveguðu umbúðir um þeirra jarðnesku leifar og komu þeim okkur að kosnaðarlausu á skips- fjöl, ásamt margháttuðum glaðn ing, sem allt þetta fólk auðsýndi þeim með heimsóknum í veik- indum þeirra og á annan hátt. Að síðustu þökkum við Eim- skipafélagi íslands fyrir flutn- ing á jarðneskum leifum okkar elskuðu sona og bræðra til Dýra- fjarðar. Öllu þessu fólki biðjum við drottinn að launa af nægtum náðar sinnar, eftir þvi, sem hann sér bezt henta. Guðrún Guðmundsdóttir. Ágúst Guðmundsson. Garðar Haukdal Ágústsson. Marvin Haukdal Ágústsson. Aldur heimsmeist aranna í knatt- spyrnu Til fróðleiks fyrir íslenzka knattspyrnumenn skal hér skýrt frá aldri þeirra manna, sem tóku þátt í lokakeppninni um heims- meistaratitilinn í knattspyrnu. í liði ítalanna voru: Olivieri 27 ára, Foni 26, Rava 22, Serantoni 31, Andreolo 26, Locatelli 22, Biavati 22, Meazza 28, Piola 25, Ferrari 31, Colaussi 24. í liði Ungverjanna voru: Szabo 28 ára, Koranyi 31, Biro 27, Szalai 26, Turai 33, Lazar 27, Sas 23, Szengller 23, Sarosi 26, Vince 29, Kohut 32. Allir Ungverjarnir voru frá Budapest, en þrir ítalarnir voru frá Milano, þrír frá Róm, tveir frá Turin, tveir frá Bologna og tveir frá Triest. iam>miii«m:«ii»niiiim»8tmm8::iiinii»«itiiiiiit:nni:«mæ«8mm«>«ntm Reykjavík - Akureyri j IVæsta hraðferð um Akranes til Akur- | eyrar er á mánudag | frá Bifreiðastöð Steindórs. | Sími 1580. | amimmiitiitiitiiiiiiiitittiiiiiiiiiiiiitititiiitiiitiiiiimiiiiiiiiitiiiiinmmnnnmninnr Tólg í tunnum og skjöldum alltaf fyrirliggjandi. Samband ísl. samvínnuíélaga. Sími 1080. Kjarnar — (Essensar) Höfum birgðtr af ýmiskon- ar kjörnum til iðnaðar. — ÁFENGISVERZLUN RÍKISINS GAGNRÝNl Leon Blum LONDON: Leon Blum gagnrýnir stefnu brezku stjómarinnar í Spánarmálunum, í grein, sem hann ritar í gær í franska blaðið Populaire. Hann segir, að brezka stjómin hafi ekki gert sér grein fyrir því, að Pranco muni ekki geta losað sig undan áhrifum Þjóðverja og ítala, eftir að styrjöldinni sé lokið, ef upp- reistarmenn sigri. Brezku stjórninni skjátlist, ef hún álíti að hún geti dreg- ið úr áhrifum Berlin-Róm-möndulsins með vináttu sinni við Mussolini. Það sé skortur á skilningi að álíta, að unnt sé að flýta fyrir almennu samkomulagi við Mussollni með undanslætti. — FÚ. Svíar auka flugherínn Sænska stjómin hefir ákveðið, að af aukafjárveitingu þeirri, er þingið veitti nýlega til landvarna, skuli 12.8 millj. króna varið til kaupa á hernaðarflug- vélum og til þess að koma upp flug- höfnum. — FÚ. Þjóðver jar unnu Víking (Framhald af 1. siðu.) marki. Þegar eftir var mjög skammt af leik, tókst þeim þó að gera mark. Víkingar gerðu nú tilraun til að hefja gagnsókn, en tókst ekki. Endaði því lelkurinn með sigri Þjóðverja, 4 : 1. N V J A B I Ú Á hálum ísll tt « Ljómandi fallegr og « skemmtileg' kvikmynd, er :i gerist á vetrarhóteli í Sviss. p Aðalhlutverkin leika: H Tyrone Potver og skautadrottningin Sonja Henie Hin hrífandi og æfintýra- ríka ástarsaga, er myndin sýnir, og afburða-leikni Sonju Henie á skautum, mun veita áhorfendum mikla ánægjustund. Aukamynd: Talmyndafréttir frá Fox. P1 ö ntus júkdómar og varnir gegn þeim, eftir INGÓLF DAVÍÐSSON, er bók handa garðeigendum. 60 myndir til skýringar. Fæst hjá bóksölum. Verð aðeins 2 kr. Landsmót skáta (Framhald af 3. slðu.) notuð til varðeldasýninga, þar skemmta skátar frá hinum ýmsu þjóðum og landshlutum með söng og hljóðfæraslætti og ýms- um sýningum. Einn daginn nota skátarnir til þess að kynnast sögu Þingvalla og sögustöðum. Á morgnana fara skátarnir á fætur kl. 7.30. FERÐALÖG. Farið verður í ferðalög til staða nálægt Þingvöllum, svo sem í Hvalfjörð, að Glym, gengið á Súlur, hellar skoðaðir o. fl. Þann 11. júlí taka allir skátarnir sig upp og ferðast í bifreiðum yfir Lyngdalsheiði að Geysi og Gullfossi og að Hvítárvatni. Þar uppi í óbyggðum verður svo tjaldborgin reist á ný og dvalið þar daglangt til þess að skátarn- ir eigi þess kost að kynnast ó- byggðum landsins. Ef hægt verð- ur, verður farið til Kerlingar- fjalla. Síðan verður haldið til Reykjavíkur með viðkomu að Ljósafossi. Einn dagur verður síðan notaður til þess að skoða höfuðstað landsins. ALMENNIN GSDAGUR. Laugardaginn 9. júlí og sunnu- daginn 10. júlí er almenningi heimilt að heimsækja skátamót- ið, gegn því að kaupa merki mótsins, sem seld verða á mót- staðnum. Varðeldar, sem mjög verður vandað til, verða bæði kvöldin og hefir almenningur aðgang að þeim, ef þeir áður hafa keypt merki mótsins. Þjóðverjar báru mjög af allan leik- inn, bæði í staðsetningu og allri leikni í meðferð knattarins. Sterkustu mennirnir í liði Víkings voru án efa þeir Brandur Brynjólfsson og Þorsteinn Ólafsson. Þeir voru báðir mjög duglegir. Markmaðurinn hjá Vík- ing var og góður og bjargaði hann mörgum hættulegum skotum.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.