Nýja dagblaðið - 19.07.1938, Blaðsíða 1
ÍWJIA
ID/^GflBIL^IÐIHÐ
6. ár Reykjavík, þriðjudaginn 19. júli 1938. 163. blað
Frá flugsýningunni í fyrradag. — Til hœgri á myndinni sjást tveir áhugasamir áhorf-
endur, Guðbrandur Magnússon forstjóri og Agnar Kofoed-Hansen flugmaður, þar sem
þeir standa fyrir framan hVjóðnemann.
Flugsýníngin var glæsileg
Áhorfendur skiptu fiúsuudum. V eðurskilyrði
ágæt þótt (»oka byrgði allt umhverfi.
ANN ÁLL
199. dagur ársins.
Sólaruppkoma kl. 2,55. Sólarlag
kl. 10,04. Árdegisháflœður í Reykjavík
kl. 9,20.
Naeturlæknir
er í nótt Björgvin Finnsson, Vestur-
götu 41, simi 3940. — Næturvörður er
í Ingólfsapóteki og Laugavegsapóteki.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 10,00 Veðurfr. 12,00 Hádegisútv.
15,00 Veðurfr. 19,10 Veðurfr. 19,20
Hljómpl.: Ensk lög. 19,40 Augl. 19,50
Fréttir. 20,15 Upplestur: Sögur eftir
Mark Twain (Guðbrandur Jónsson
prófessor). 20,40 Haraldur Sigurðsson
leikur á píanó. 21,10 Hljómpl.: a) Sym-
fónía í D-dúr, eftir Mozart. b) Lög
úr óperum. 22,00 Dagskrárlok.
Póstferðir á morgun:
Frá Rvik: Mosfellssv.-, Kjalamess-,
Reykjaness-, Ölfuss- og Flóapóstar.
Hafnarfjörður. Seltjarnarnes. Þrasta-
lundur. Þingvellir. Laugarvatn. Álfta-
nesspóstur. Bílpóstur til Akureyrar, og
Stykkishólms, Strandas.póstur. Fagra-
nes til Akraness, Laxfoss til Borgar-
ness, Brúarfoss til Akureyrar.
Til Rvíkur: Mosfellssv.-, Kjalarness-,
Reykjaness-, Ölfuss- og Flóapóstar.
Hafnarfjörður. Seltjarnarnes. Þrasta-
lundur. Þingvellir. Laugarvatn. Álfta-
nesspóstur. Breiðafjarðarpóstur. Fagra
nes til Akraness, Laxfoss frá Borgar-
nesi.
Skipafréttir.
Súðin kom til Reykjavíkur kl. 10% í
gærmorgun. Esja kom til Reykjavíkur
kl. 7 í morgun.
B-liðsmótið
hófst síðastliðinn fimmtudag. Þá
vann Valur Víking með 3:2 og K.R.
Fram með 5:3. — Á laugardaginn
vann K.R. Víking með 2:0 og Valur
Fram með 3:1. — í gærkvöldi vann
Fram Víking með 10:0. — Síðasti
kappleikur mótsins fer fram í kvöld
og hefst kl. 8. Keppa þá K.R. og Valur,
en þau standa nú jöfn með 4 stig
hvort.
Glímufélagið Ármann
hélt innan félagsmót fyrir drengi
12—14 ára á sunnudaginn uppi í Jós-
epsdal. Tíu drengir tóku þátt í mót-
inu. Úrslit urðu sem hér segir:
60 metra hlaup: Ólafur Ólafssoní
9 sek., 1350 metra hlaup: Gunnar
Gíslason, 5 mín. 32% sek. Langstökk:
Þorsteinn V. Bjarnar, 4,20 m. Þrístökk:
Þorsteinn V. Bjarnar, 9,36 sek. Há-
stökk: Guðm. Þórarinsson, 1,25 m.
Kringlukast: Guðmundur Þórarinsson
27,71 m.
Ferðafélag íslands
ráðgerir að fara ýmsar skemmti-
ferðir á næstunni.
Hekluför. Lagt á stað næstkomandi
laugardag kl. 4 síðdegis og ekið austur
að Galtalæk og gist þar. Snemma á
sunnudagsmorgun farið ríðandi upp í
rétt og gengið þaðan á Heklu-tinda.
Listi liggur frammi og séu farmiðar
teknir fyrir föstudagskvöld.
Gönguför á Eyjafjallajökul. Á laug-
ardags-eftirmiðdag ekið austur undir
Eyjafjöll ,gist þar á bæjum eða í
tjöldum, en á sunnudagsmorgun geng-
ið á jökulinn. Farmiðar teknir fyrir
föstudagskvöld.
Gönguför á Tröllakirkju. Farið með
e.s. Laxfoss til Borgarness kl. 2 á laug-
ardag og ekið upp Borgarfjörð, gist á
bæjum eða í tjöldum. Á sunnudags-
morgun ekið upp á Holtavörðuheiði
og gengið á Tröllakirkju, en til baka
í Norðurárdalinn og dvalið þar um
stund, síðan farið í Borgarnes og með
„Laxfoss“ heim á sunnudagskvöldið.
Farmiðar séu teknir fyrir föstudags-
kvöld.
Mývatnsför 2. ferð. 8 daga ferð
norður að Mývatni. Dettifoss og Ás-
byrgi og aðrir viðkomustaðir eins og
í fyrri ferðinni. Lagt á stað á föstu-
dagsmorgun 22. júlí (ekki laugardags-
morgun). Áskriftarlisti liggur frammi
til miðvikudagskvölds kl. 6, en farmið-
ar séu teknir fyrir kl. 12 á hádegi á
fimmtudag á skrifstofu K. Ó. Skag-
fjörðs, Túngötu 5, Reykjavík.
Það, sem fyrst og fremst
fangaöi huga Reykvíkinga
síðastl. sunnudag, var flug-
sýningin á Sandskeiðinu,
fyrsta flugmótið, er haldið
var á íslandi. Það er talið,
að á fimmta þúsund manna
hafi verið saman komnir
þar efra á meðan sýningin
fór fram, en á öðrum sam-
komustöðum í grennd við
bæinn var nær mannlaust.
Lögreglan hefir skýrt svo
frá, að lögreglubifreið, er ók
til bæjarins, í þann mund,
sem fólkið þyrptist hvað óð-
aSt upp eftir, hafi mætt 240
bifreiðum á veginum milli
Sandskeiðs og Elliðaánna.
Miður góðar veðurhorfur
höfðu vakið ýmsum nokkurn
ugg. Aðfaranótt sunnudagsins
lágu þykkir þokubólstrar yfir
fjöllunum og heiðinni. Með
morgninum grisjaði mjög í þok-
una, en mestallan þann tíma, er
sýningarnar stóðu yfir, byrgði
hún þó Hengilinn, Esjuna og
Vífilsfell ofan í miðjar hlíðar.
En þessir þokubakkar trufluðu
ekki sýninguna hið minnsta, því
að yfir sjálfum flugvanginum
var eins og auð vök í skýjabakk-
anum með heiðum himni yfir.
Litlu eftir að flugsýningunum
lauk ultu skýjatröfin einnig yf-
ir þessa heiðu vök.
Kl. 3 setti Agnar Kofoed-
Hansen flugmótið og bauð alla
þá velkomna, er þangað höfðu
sótt. Síðan flutti Skúli Guð-
mundsson atvinnumálaráðherra
stutta ræðu. Drap hann á þær
framfarir, er orðið hefðu á sviði
samgangnanna síðari árin. En
nútíminn krefst medri hraöa,
sagði hann, og það bíður fiug-
vélanna að uppfylla þær kröfur.
Þá flutti sendiherra Þjóð-
verja, Renthe Fink, ræðu um
flugíþróttina, skilyrði hennar
hér, og flutti þakkir fyrir hversu
opnum örmum hinum þýzka
svifflugleiðangri hefði verið
tekið.
Að þeirri ræðu lokinni hófust
flugsýningarnar, fyrst flug svif-
flugulíkana, þá renniflug nokk-
urra ungra íslendinga og síðar
' listflug í svifflugum og hreyfil-
|! flugu. Flestir munu hafa dázt
að þeim listum, sem þeir sáu
l| með eigin augum, að hægt var
: að leika í vélarlausu flugtæki.
En mestan fögnuð áhorfenda
vakti hið glæsilega listflug Þjóð-
verjans Ludwig, sem lék hinar
furðulegustu listir í loftinu,
ekki aðeins á hreyfilflugu, held-
ur einnig á vélarlausri svifflugu.
Áhorfendur klöppuðu hinum
frækna fluggarpi óspart lof í
lófa, og þegar hann tilkvaddur
gekk að hljóðnemanum og lét
til sín heyra, var honum þakk-
að af vinsemd og aðdáun við-
staddra áheyrenda.
Að sýningunum afstöðnum fór
fram hringflug fyrir almenning
og notuðu um 40 manns tæki-
færið til þess að fljúga. Allt fór
mjög skipulega fram á mótinu
og má fyrst og fremst þakka
það skipulagsgáfu hr. Bau-
manns, sem stjórnaði flugdegin-
um. Alls voru þarna á Sandskeið
inu 8 flugtæki, 2 flugvélar, 6
svifflugur og renniflugur.
Þau einu mistök, er segja má,
að átt hafi sér stað af hálfu
þeirra, sem fyrir undirbúningi
stóðu, var það, hve þeir voru fá-
liðaðir, sem unnu að sölu að-
göngumerkja. En almenningur
á þess kost að bæta úr þessum
annmarka, með því að greiða
sem bezt fyrir sölu á happdrætt-
ismiðum þeirra Svifflugfélags-
manna.
Öllu, sem fram fór á flugmót-
inu var útvarpað. Agnar Kofoed-
Hansen skýrði frá fluginu, en
Guðbrandur Magnússon hélt
ræðu um samgöngumál, og flug-
mál og skýrði frá ýmsu því, er
við bar á sýningarsvæðinu.
Þetta flugmót er merkisat-
burður í sögu flugmálanna. Það
mun áreiðanlega hafa áorkað
miklu um að breyta viðhorfi al-
mennings til flugs og flugtækja,
ekki aðeins meðal þeirra þús-
unda, er áttu þess kost, að vera
viðstaddir, heldur einnig hinna,
(Framhald á 4. siðu.)
Síldaraf linn fjórd-
ungur þess, sem
hann var á sama
fíma í fyrra
Allur bræðslusíldaraflinn var orð-
inn í lok seinustu viku 153.437 hl. Er
það næstum því fjórum sinnum minni
afli en á sama tíma tvö undanfarin
ár.
í fyrra var aflinn á sama tíma orð-
inn 568.039 hl. Árið 1936 var hann
599.436 hl.
í gær komu 20 skip til ríkisverk-
smiðjanna í Siglufirði með 6000 mál
samtals. Til hinna verksmiðjanna
komu 6 skip með 1700 mál samtals.
Síldin veiddist mestöll í Skagafirði og
kastað var inn við Kolkuós og Hófsós.
Síldarvart varð út af Hrollaugshöfða
og Haganesvík. Veiðin var mjög mis-
jöfn — frá 50—600 mál. Veiðiveður
var gott í Skagafirði, en hvasst á aust-
an úti fyrir Siglufirði og dimm þoka
var í fyrrinótt. — Á vegum síldarút-
vegsnefndar hafa verið seldar um
90.000 tunnur matjesíldar — 30 þús.
til Ameríku, 30 þús. til Þýzkalands,
25 þús. til Póllands og 3—4 þús. til
annarra landa.
Frækilegt ilug yíír
Atlanshaf
írskur maður Slýg-
ur Srá Ncw-York til
Dublin á gamalli
og hálfónýtri flug-
vél og án landa-
bréfs
LONDON:
Amerískur flugmaður lagði af stað
frá New York í gærmorgun í flug-
ferð yfir Atlantshafið og lenti heilu
og höldnu nálægt Dublin eftir 21
klukkustundar flug. Hann hélt leyndu
um fyrirætlun sína og er Atlantshafs-
flug þetta talið eitthvert hið furðu-
legasta flug, sem sögur fara af ýmissa
hluta vegna.
Flugvél hans, sem er sögð af svip-
aðri gerð og sú, sem Lingbergh flaug
í yfir Atlantshafið, er 9 ára gömul og
illa útlitandi. Þeir, sem staddir voru
á flugvellinum, er flugmaðurinn, sem
er íri, Douglas Corrigan að nafni, var
að leggja af stað, hlógu dátt að skrifli
hans. Corrigan kvaðst ætla til Long
Beach í Californíu, en engum datt í
hug að hann myndi komast þangað.
Gekk honum erfiðlega að hefjast
frá jörðu, enda var flugvélin ofhlaðin
bensíni. Loks hófst þó flugvélin í loft
upp eftir langa mæðu, en mönnum
til mikillar undrunar stefndi Corrigan
til austurs á haf út. Komu þá fram
getgátur um það, að hann mundi ekki
áræða að snúa við og fljúga í vestur,
fyrr en hann hafði flogið nokkura
stund, en Corrigan sneri ekki við og
flaug áfram til austurs og hvarf
brátt sjónum manna. Þetta var nokk-
uru eftir klukkan tíu í fyrramorgun.
Komst nú sá orðrómur á kreik, að
hann mundi ætla að fljúga yfir At-
lantshaf, enda þótt kunnugt væri, að
hann hefði engin tæki sér til stuðn-
ings við að halda réttri stefnu nema
gamlan kompás og armbandsúr sitt.
Hann hafði engin landabréf meðferðis
og honum hafði tvívegis verið synjað
um leyfi til þess að fljúga yfir At-
lantshaf. Hann lenti við Dublin, sem
fyr segir eftir 21 klukkustundarflug.
Hafði hann þar skamma viðdvöl og er
nú á leið til Croydon flugvallanna
við London. FÚ.
Norræna kennara-
mótínu lokið
Þátttakendumir í norræna kennara-
aranámskeiðinu komu hingað til bæj-
arins kl. 7 í gærkvöldi eftir rösklega
vikudvöl á Laugarvatni. Allir láta þátt-
takendur hið bezta af veru sinnl
eystra, ekki hvað sízt erlendu gest-
irnir.
Tveir fyrirlestrar voru ‘ daglega
fluttir um margvísleg efni, íslenzkar
bókmenntir, íslenzka skóla, íslenzka
tungu og sögu, o. fl. Þeir, sem fyrir-
lestrana fluttu, voru Alexander Jó-
hannesson, Ásgeir Ásgeirsson, Bjami
Bjarnason, Einar Ól. Sveinsson, Þor-
kell Jóhannesson; lektor Kretzscher frá
Kaupmannahöfn og Haug mennta-
skólakennari frá Osló.
Tveir umræðufundir voru haldnir,
um sögukennslubækur Norðurlanda og
norræna samvinnu og kennaraskipti.
Frummælendur voru Vilhj. Þ. Gísla-
son og Guðlaugur Rósinkranz.
íslenzka var kennd tvo tíma dag-
(Framhald á 4. síðu.)