Nýja dagblaðið - 19.07.1938, Blaðsíða 2
2
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
Jan Kiepura, hinn heimsfrœgi
söngvari, hefir nú ákveðið að
endurreisa hið nafnkunna söng-
leikhús í Varsjá.
Forsaga þessa máls er sú, að
vegna fjárhagsöngþveitis söng-
leikhússins, sem er í ríkisins
eign, hefir það ekki starfað und-
anfarið. Starfsfólk þess fékk
ekki kaup sitt greitt, og leiddi
það af sér þriggja vikna verkfall
þess.
Kiepura hefir dvalið í Varsjá
nú undanfarið og unnið að því
að koma söngleikhúsinu á fót að
nýju. Sem skilyrði fyrir því
starfi sínu hefir hann sett það,
að honum verði falin yfirstjórn
leikhússins. Síðan kveðst hann
munu fá pólska listamenn, sem
nú dvelja utanlands, til þess að
hverfa heim og helga söngleik-
húsinu krafta sína.
Kiepura hefir þegar fengið
nauðsynlegt fjármagn til um-
ráða í þessu skyni. Meðal lista-
manna, sem framvegis munu
starfa við leikhúsið, nefnir hann
Arthur Rudzinski, er hann telur
öezta hljómsveitarstjóra í heim-
inum, Leopold Stokowsky, sem
oft er nefndur í sambandi við
Gretu Garbo, Martha Eggerth,
konu sína, og svo auðvitað sjálf-
an sig.
Kiepura fullyrðir, að sér muni
takast að hefja söngleikhúsið í
Varsjá til jafns við beztu söng-
leikhús heimsins.
*
/ Tékkoslóvakíu er gefinn út
mesti fjöldi blaða, enda er þar
í landi mikill áhugi fyrir stjórn-
málum og allskyns nýjungum.
Blaðafyrirtœkið Melantrich er
hið stœrsta þar í landi. Það gef-
ur út fjölda blaða og tímarita,
sem öll styðja Benes forseta og
núverandi stjórn.
Keppinautur Melantrich er
Tempo, blaðafyrirtæki, sem að
mestu er í eigu Stribny, foringja
tékkneskra þjóðernissinna.
Fjárhagur tékkneskra blaða er
yfirleitt slœmur. Stafar það af
hinum mikla fjölda blaða og
hörðu samkeppni þeirra í milli.
Verð blaðanna er einnig lágt.
í Prag koma út 42 blöð. —
Stœrsta blaðið er Vecerné Ceske
Slovo. Það er kvöldblað og selst
í 800 þús. eintökum daglega.
*
Daíly News í New York, sem
blaðaútgáfa Hearsts gefur út,
lœtur sér allra blaða tíðrœddast
um hjónaskilnaði. Af öðru efni
blaðsins má nefna: stórþjófnaði,
morð og mannrán. Blaðið leggur
mikið kapp á að skýra mjög ná-
kvœmlega frá hjónaskilnaðar-
málum, enda kitlar slíkt eyru
lesenda þess.
Fyrir skömmu síðan sagði
blaðið frá hjónaskilnaðarmáli,
sem var mjög spennandi og
hneykslandi. Aðalpersónurnar í
þessu máli voru John Medill Pat-
terson, aðalritstjóri Daily News,
og frú hans!
TIL ATHUGUNAR:
Ástin verður ekki sigruð með
öðru en flótta. Napoleon.
Garnir
Kaupum saltaðar, vel verkaðar garnir og
hArvötn og ilmvötn frA Afengis-
VERZLUN RÍKISINS ERU MJÖG IIEVT-
UGAR TÆKIFÆRISGJAFIR
langa úr kindum, kálfum, nautum og
svínum.
Garnastöðin, Reykjavík,
___________Síml 4241.______
Kaupum
tómar flöskur og glös undan
bökunardropum með skrúfaðri
hettu, í Nýborg pessa viku til
föstudagskvölds
Áfengisverzlun ríkisins
Reykjavík - Akureyri
Næsta hraðferð til Akureyrar nm Rorg-
arnes er á fimmtudag.
Bifrei&astöð Steindórs.
Sími 1580.
Lífvörður einvaldanna
Fjölbreyttar og umfangsmiklar ráðstafanir eru gerffar til
þess aff vernda líf einvaldanna. Þeir hafa stöðugan lífvörð,
og er hann jafnan mjög aukinn, er þeir koma fram opin-
berlega. Þegar Hitler fór til Róm í byrjun maí síðastliðins,
birti New York Times greinar um ráðstafanir þær, sem gerð-
ar eru til þess að vemda líf þeirra Hitlers og Mussolini.
Hér fer á eftir fyrrihluti greinarinnar, sem er um lífvörð
Hitlers.
Fulltrúar þýzku leynilögregl-
unnar fóru til Róm í vor, mánuði
á undan Hitler, til þess að ræða
við ítalska leynilögreglumenn
um þær ráðstafanir, er gera
þyrfti til þess að vaka yfir ríkis-
kanzlaranum. Þegar Hitler væri
kominn yfir landamæri Ítalíu,
skyldi hann vera á ábyrgð ít-
alskrar leynilögreglu og fasista-
flokksins. Hitler ferðaðist í
einkalest, og með honum voru
margir dulklæddir leynilögreglu-
menn, auk einkalífvarðar hans.
Þetta föruneyti fylgdi honum
hvert sem hann fór, nema þegar
hann ók með Mussolini í einka-
vagni hans. Margir fulltrúar
leynilögreglunnar stóðu í stöð-
ugu sambandi við þá deild ít-
ölsku leynilögreglunnar, sem
skyldi vaka yfir ríkiskanzlaran-
um. Þessi útvaldi hópur dreifði
sér meðal gestanna umhverfis
Hitler, og átti sérstaklega að
hafa auga á þýzkum gestum, er
kynnu að þrengja sér óviðkunn-
anlega nærri „der Ftihrer“.
Kanzlarans er einnig vel gætt
heima 1 Þýzkalandi. Gæzlunni er
þar skipt milli einkalífvarðar
hans, sem er 3000 manns, sér-
stakrar deildar Gestapo, tuttugu j
til þrjátíu manns, átta til
tólf einkennisklæddra Gestapo-
manna og þeirrar deildar prúss-
nesku lögreglunnar, sem komið
er fyrir í stjórnarskrifstofunum
í Berlín og ýmsum þýðingar-
mestu stöðum í hjarta Berlínar.
Sá, sem opinberlega ber mesta
ábyrgð á lífi kanzlarans, er Sepp
Dietrich, yfirmaður lífvarðarins.
Þessi lífvörður var áður deild úr
S.S. Nú er þessi lífvörður alger-
lega sjálfstæður, og ber aðeins
ábyrgð gerða sinni gagnvart Die-
trich og Hitler. Mennirnir eru
sérstaklega valdir í þenna líf-
vörð, og þeir verða að vera 6 feta
háir. Lífverðinum er skipt í tvær
deildir. Önnur deildin hefir að-
setur sitt í húsnæði hins gamla
herskóla frá keisaratímunum í
Lichterfelde. Hin deildin hefir
aðalaðsetur sitt í Munchen.
í hverri viku eru valdir úr
hundrað menn, til þess að vaka
yfir kanzlaranum á stjórnar-
skrifstofunum í Berlín, en þar
hefir verið komið upp sérstöku
húsnæði fyrir þá. Þeir halda
vörð við allar dyr byggingar-
innar, og nokkrir þeirra eru ætíð
reiðubúnir í herbergi, sem er
skammt frá aðaldyrunum. Ann-
að hundrað er einnig valið úr
einu sinni í viku, og er því komið
fyrir í einkaíbúð kanzlarans í
Berchtesgaden, en þar hjá hefir
verið byggt hús yfir þessa menn.
Þar eru þeir einnig látnir halda
vörð við allar dyr.
Lifvörðurinn er ekki síður bú-
inn en aðrar herdeildir. Þeir
hafa yfir að ráða bryndrekum,
stríðsvögnum, fallbyssum og
fjölda vélbyssa. Ef til uppreistar
kæmi, gæti lífvörðurinn veitt
öflugt viðnám, og það jafnvel
lengi.
Herforingjar og aðrir þeir, er
teknir eru í lífvörðinn, verða að
sverja Hitler sérstakan trúnað-
areið, og þeir verða allir að vera
áhangendur hinnar nýju þýzku
trúar. Fulltrúar Gestapo eru á-
byrgir gagnvart Heinrich Himm-
ler, sem er yfirmaður þýzku lög-
reglunnar og S.S., en það er í
nánu sambandi við Gestapo.
Nokkrir Gestapo-menn fylgja
Hitler hvert sem han fer.
Þeir, af hinni venjulegu lög-
reglu, sem vaka yfir kanzlaran-
um, hafa það einkum með hönd-
um, að gefa ferðamönnum ýms-
ar upplýsingar og vísa þeim leið,
er heimsækja stjórnarskrifstof-
urnar. Við öll hlið stendur lög-
reglumaður og S.S.maður. S.S.-
maðurinn er ætíð með stálhjálm
á höfði.
Þegar Hitler sýnir sig opinber-
lega, hefir ein deild úr S.S. það
hlutverk að halda mannfjöldan-
um í hæfilegri fjarlægð. í þessari
deild eru alls um 9000 menn. Þeir
búa í hermannaskálum og hlýta
sama heraga og venjulegir her-
(Framhald á 3. síðu.)