Nýja dagblaðið - 22.07.1938, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 22.07.1938, Blaðsíða 1
rwjiA C/\Gei/*MDIC) 6. ár Reykjavík, föstudaginn 22. júlí 1938. 166. blað ANN ÁLL 202. dagur ársins. Sólaruppkoma kl. 3,03. Sólarlag kl. 10,02. Árdegisháflæður í Reykjavík kl. 11,50. Veðurútlit í Reykjavík: Austan- eða norðaustankaldi. Léttir sennilega til. Næturlæknir er í nótt Axel Blöndal, Mánagötu 1, sími 3951. Næturvörður er í Ingólfs- apóteki og Laugavegsapóteki. Dagskrá útvarpsins: Kl. 10,00 Veðurfr. 12,00 Hádegisútv. 15,00 Veðurfr. 19,10 Veðurfr. 19,20 Hljómpl.: Giftingarlög. 19,40 Augl. 19,50 Fréttir. 20,15 Erindi: Fóstbræðra- lag og vinátta með Grikkjum • (Jón Gíslason dr. phil.). 20,40 Strokkvartett útvarpsins leikur. 21,05 Hljómplötur: a) Tilbrigði eftir Dohnany. b) Har- móníkulög. 22,00 Dagskrárlok. Fyrsti flokkur K. R. fer af stað til Færeyja með Lyra þann 28. þ. m. til knattspyrnukeppni við Færeyinga. Er það knattspyrnu- félag í Trangisvaag, sem hefir boðið K.R. til Færeyja. — Ákveðnir eru þrír leikir í Færeyjum, fyrsti í Þórshöfn, annar í Trangisvaag og síðasti leikur- inn sennilega við úrvalslið. Einnig getur komið til mála að fjórði leik- urinn verði háður. Það er ekki vitað hvort allir kappliðsmenn K. R. úr fyrsta flokki geta tekið þátt í förinni, en hún stendur í 12 daga, eða frá 28. þ. m. til 8. ágúst Skipafréttir. Gullfoss kom til Kaupmannahafnar í fyrradag. Goðafoss er í Hull. Brúar- foss var á ísafirði í —«r. Dettifoss fór til útlanda í gærkvöldi kl. 8. Lagar- foss var á Reykjarfirði í gær. Selfoss er á leið til Aberdeen. — Esja og Súðin fara frá Reykjavík í kvöld. Esja um Vestmannaeyjar til Glasgow, og Súðin i strandferð austur um land. Síldveiði var lítil í gær, en það sem barst til Siglufjarðar var saltað. Nokkuð sást af síld í fyrradag út af Grímsey og við Mánareyjar. Skíðabraui á Hellísheíði Norskir skíðagarpar munu koma hingað á vetri komandi og taka þátt í skíðamóti því er haldið verður þá hér á Hellisheiðinni og á skíðabraut, sem byrjað verður að leggja upp úr næstu helgi og á að verða tilbúin þá. Áætlað er að hún kosti um 20 þús. kr. Brautin mun verða í Flengingabrekku, sem er skömmu austan við Skíða- skálann. Skíðabraut þessi á að verða ærið myndarleg, á stærð við hina frægu Holmenkollenskíðabraut. Ríkisstjórnin hefir boðið fram kr. 7 þús. til byggingar brautarinnar, með því skilyrði að jafnmikið fé fáist frá bæjarsjóði, og má telja næsta ólík- legt að það fáist ekki. Gotl samkomulag míllí Irönsku og brezku ráð- herranna LONDON: í frönskum blöðum ríkir mikil ánægja yfir viðræðum Halfax lávarð- ar og frakknesku ráðherranna. Rætt var um Spánarmálin, Tékkóslóvakíu, (Framh. á 4. siSu.) Bæjarstjórnarmeírihlutínn Stóríengleg her- sýniug í París í tilefni a£ kon- ungfskomunni Georg konungur býður Lebrun for- seta í heimsókn LONDON: í gær var seinasti heimsóknardagur brezku konungshjónanna í París. Alla síðastl. nótt átti borgin að vera ljós- um, fánum og blómum skreytt og alls- konar skemmtunum og hátíðahöldum haldið áfram. Aðalviðburður dagsins ■ í gær var hin mikla hersýning í Versölum, sem allar deildir landhersins og nýlendu- hersins tóku þátt í, riddaralið frá Frakklandi og nýlendunum, stórskota- lið og véibyssudeildir, skriðdrekasveit- ir og sveitir hjólreiðamanna. Á her- sýningu þessari gat að líta flest þau nútímatæki, sem frakkneski herinn hefir yfir að ráða, m. a. skriðdreka af öllum stærðum. Eru sumir mjög smá- ir, en þeir stærstu um 52 smálestir og eru þeir svo raníbyggðir, að tveggja hæða hús hrynja, ef þeim er ekið á þau. 50 þús. hermenn tóku þátt í hersýningunni, sem sýndi ótvírætt hversu fullkominn og öflugur landher Frakka er. Heiðursvörð konungs skip- aði sveit úr riddaraliði frá Algier. Vöktu riddararnir á hinum arabisku fákum sínum mikla athygli. Það er opinberlega tilkynnt, að Le- brun, forseti frakkneska iýðveldisins, hafi þegið boð Bretakonungs um að heimsækja England. FÚ. Mikíll mannfjöldi fylgdi krónprisss- hjónunum til skips EINKASKEYTI FRÁ KHÖFN: Þegar m.s. Dronning Alexandrine lagði af stað frá Kaupmannahöfn í fyrradag höfðu menn safnast saman niður við höfnina í þúsundatali, til þess að árna Friðriki ríkiserfingja og Ingiríði krónprinsessu góðrar ferðar til íslands. Meðal þeirra, sem viðstaddir voru brottförina af íslendinga hálfu, var Sveinn Björnsson, sendiherra o. m. fl., en af Dana hálfu fulltrúar hafnar- stjórnar Kaupmannahafnar og Sam- einaða gufuskipafélagsins, Knútur prins og Caroline Mathildi prinsessa fylgdu krónprinshjónunum til skips. Þegar skipið hafði leyst festar kvaddi mannsöfnuðurinn krónprins- hjónin með húrrahrópum, en að því loknu kallaði krónprinsinn: „Berið foreldrum mínum kveðju". — Glaða sólskin var er skipið lagði af stað. FÚ. vill ekkí gefa opmbera skýrslu um undírbúníng hítaveitulánsins Hverjtt parf haam að leyna? Frá bæjarsijórnarfundi í gær Þau tíðindi gerðust á bæj- arstjórnarfundi í gær, að fulltrúar Sjálfstæðisflokks- ins felldu tillögur frá Sig- urði Jónassyni þess efnis að bæjarstjórninni yrði af borg arstjóra og bæjarráði gefin nákvæm skýrsla um „um- leitanir um lán til hitaveit- unnar“ og annan undirbún- ing í sambandi við hana. Umræður um hitaveitumálið hófust með því að Siguiföur Jónasson beindi þeirri fyrir- spurn til setts borgarstjóra, hvort sá orðrómur væri réttur, að lán til hitaveitunar fengist ekki í Svíþjóð nú og hvort eng- ar líkur væri til þess að lánið myndi fást þar síðar. Settur borgarstjóri svaraði þessu á þá leið, að borgarstjóri Hvalfjarðariör F. U. F. Lagt verður á stað frá prentsmiðjunni Eddu á laugardagskvöld kl. 8. Ekið inn í Botnsdal og tjaldað þar. Kveiktir varðeldar, setið við þá og sagðar sögur. Á sunnudag verður gengið að Glym, á Botns- súlur, skoðaðir hellar o. fl. Að gönguferðinni lokinni verður e. t. v. farið út í Harðarhólma. Fyrir Hval- fjarðarbotninum er mjög fagurt, skógivaxnar hlíðar, fagurt útsýni til hafs og fjalla, gott skjól o. s. frv. Kunnugur maður verður með í förinni. Á leiðinni verður skoðaður Bárðar- hellir í Brynjudal. Þátttakendum verður séð fyrir tjöldum, kaffi og nægri mjólk. Svefnpoka eða teppi verður fólk að hafa með sér, og allir ættu að búast skjólgóðum föt- um. Þátttaka verður að til- kynnast í síma 2353 fyrir kl. 7 í kvöld. hefði nýlega skýrt honum frá, að sænski bankinn, sem ætlaði að veita lánið, vildi ekki lána nægi- legt fé til fyrirtækisins að svo stöddu. Að öðru leyti gæti hann ekki svarað fyrirspurn Sigurðar. Sigurður Jónasson lagði þá fram eftirfarandi tillögu: „Bæjarstjórnin ályktar að fela bæjarráði að leggja fyrir fyrsta eða annan reglulegan bæjar- stjórnarfund nákvæma skýrslu um hitaveitumálið. Sé þar skýrt frá hvernig gengið hafa umleit- anir um Ián til hennar og hve mikið er búið að kosta til undir- búnings og rannsókna frá byrj- un. Ennfremur hvernig boranir ganga og hvað bæjarráð ætlar sér fyrir um framtíðargang málsins." Sigurður færði þau rök fyrir tillögu sinni, að vegna þess, hvernig undirbúningnum hefði verið háttað væri slík skýrsla nauðsynleg. Ástæðan til þess, að hann óskaði eftir slíkum upp- lýsingum væri síður en sú, að hann vildi ræða þetta mál á (Framhald á 4. siSu.) Undanhald Vísís Hvers vegaa birtsr hann ehki „kæruna“, sem hann er stöðugt að dylgja um? Vísir staðfestir það greinilega í gær, að helzta séreinkenni hans sé í því fólgið að rægja undir rós, en þora aldrei að skýra greinilega frá þeim mál- um, sem hann er að dylgja með. Fyrir tveimur dögum birti Vís- ir ritstjórnargrein, þar sem því var m. a. haldið fram, að dóms- málaráðherra liti gilda tvenns- konar lög, þannig, að hann beitti ákæruvaldinu gegn andstæð- ingum sínum, en hilmaði yfir brot samherja sinna. Nýja dagblaðið skoraði þá á Vísi að tilgreina dæmi þessum rógi sínum til staðfestingar og lofaði að greiða fyrir hann augl- lýsingarkostnaðinn, ef blaðið gæti á þann hátt fengið uppiýs- ingar um eitt einasta mál um- mælum sínum til sönnunar. Með því að tilgreina ekkert slíkt dæmi í grein sinni í gær og þó enn frekar með því að „afþakka“ tilboð N. dbl. um aug- lýsingakostnaðinn viðurkennir ritstjóri Vísis að hann hafi farið með staðlaust fleipur og að eng- in kæra sé til, sem sanni mál lians, þar sem hann álítur það ekki ómaksins vert að auglýsa eftir henni. Ritstjórinn játar jafnframt (Framh. á 4. síSu.) Héraðsmót U. M. F. Skarphéðins Góður árangur í ipróttum Hið árlega héraðsmót U. M. F. Skarphéðins var háð að Þjórsártúni sunnudaginn 11. júlí. Mótið setti Sigurður Greipsson, íþróttakennari Haukadal. Síðan hófust íþróttir. Hreppa-kórinn söng undir stjórn Sigurðar Ágústssonar, bónda, Birtinga- holti. Var gerður góður rómur að þætti þeirra söngmanna. Úrslit íþróttanna: Glímur. Sex menn kepptu um Skarphéðins-skjöldinn. í fyrstu umferð urðu 4 glímumenn jafn- ir með 3 vinninga hver og kepptu þeir til úrslita. Urðu leikslok þau, að Jón Bjarnason frá Hlemmiskeiði hlaut 5 vinn- inga og vann skjöldinn. Steindór Gíslason frá Haugi hlaut 4 vinn- inga. Hann var áður skjaldar- hafi. Þriðji var Hermann Guð- mundsson frá Blesastöðum. Þótti dómnefnd glímur manna svo ófimlegar, að eigi væri fært að veita verðlaun fyrir fegurð- arglímu. Stökk. í langstökki kepptu 11. Lengst stökk Hinrik Þórðarson, Útverkum 5,88 m. Magnús Guð- mundsson, Blesastöðum, stökk 5,74. Steindór Gíslason, Haugi, stökk 5,73 m. í hástökki kepptu 10. — Guð- mundur Ásgústsson, Hróarsholti, stökk 1,60 m. og setti met fyrir héraðsmótið. Metið var 1,55 og átti það Hinrik Þórðarson. Hin- rik Þórðarson stökk nú 1,55 m. Jón Bjarnason, Hlemmiskeiði stökk 1,50 m.. Þrístökk þreyttu 6. — Magnús (Framh. á 4. síSu.)

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.