Nýja dagblaðið - 22.07.1938, Page 3

Nýja dagblaðið - 22.07.1938, Page 3
N Ý J A DAGBLAÐIÐ 3 Pjðlieijir wii i! joki liult Brct- oijnirliimillioi Samkeppnin um viðskiptin við Balkanríkin NÝJA DAGBLAÐEB Útgefandi: Blaðaútgáfan hj. Rltstjórl: ÞÓRARENN ÞÓRARINSSON. Rltst j ómarsfcrif stof umar: Llndarg. 1 D. Slmar 4373 og 2353. Afgr. og auglýslngasfcrifstofa: Lindargötu 1D. Siml 2323. Eftlr kl. 6: Bimi 3948. Áskriftarverð fcr. 2,00 á mánuði. í lausasölu 10 aura eintafcið. IPrentsmiðjan Edda hJf. Simar 3948 og 3720. Hítaveítuláníð Daginn eftir að Morgunblaðið skýrði frá þeirri ömurlegu niður- stöðu af seinustu utanför Péturs borgarstjóra, að lán til hitaveit- unnar fengist ekki í Svíþjóð, byrjar það nýjan þátt í sínum gamla hernaði gegn Framsókn- armönnum sem „fjandmönnum Reykjavíkur". Þannig birtist hin vonda sam- vizka íhaldsins í hitaveitumál- inu. Það finnur, að það á skilið andúð allra Reykvíkinga fyrir meðferðina á því máli. Þess vegna er gripið til hins gamla örþrifaráðs að reyna að vekja hatur til annarra en sökudólg- anna sjálfra. Það er gamla sag- an um glæpamanninn, sem reynir að láta sekt sína lenda á saklausum. Það er eðlilegt að íhaldið óttist reiði Reykvíkinga fyrir fram- komu sína í hitaveitumálinu. Hún hefir verið með slíkum end- emum. Meðan verið var að byggja héraðsskólana á heitum stöðum, linnti ekki á svívirðing- um og háði í íhaldsblöðum út af þessum hneykslanlegu fram- kvæmdum! En þegar reynslan hafði unnið þar glæsilegan sig- ur og gremjan jókst hér í bæn- um yfir þvi að láta þessar miklu orkulindir ónotaðar í nánd við bæinn, byrjuðu forráðamenn í- haldsins fyrst að rumska. En all- ar þeirra framkvæmdir í þessum málum voru gerðar með hang- andi hendi og ónógri verkfræði- kunnáttu. Vegna þessa áhuga- leysis og kunnáttuskorts, hefir hinn mjög svo ófullkomni und- irbúningur tekið mörg ár í stað þess, að hann hafði í mesta lagi þurft að taka eitt ár, ef unnið hefði verið að honum markvisst og skipulega. íhaldið sýndi það líka bezt sl. vetur, að það hafði annan áhuga fyrir hitaveitunni en að koma henni í framkvæmd. Pétur borg- arstjóri er látinn laumast til út- landa í þeim erindum að útvega lán til hitaveitunnar. Hann hafði engan stuðning frá bönkunum eða ríkisstjórninni, þar sem þessir aðilar vissu ekkert um er- indi hans. Það eina, sem hann hafði í höndunum, voru reikn- ingar skuldugs bæjarfélags og ó- fullkomið „riss“, sem átti að heita kostnaðaráætlun um hita- veituna. Það, sem Jón Þorláks- son hafði tveim árum áður ekki lagt í slíka sendiför, nema með stuðningi ríkisstjórnarinnar, mátti öllum vera augljóst, að Pétur myndi koma lánlausari úr þessari för en hann var, þegar af stað var farið. För Péturs misheppnaðist líka algerlega, hvað það snerti að hún flýtti fyrir framkvæmd hita veitunnar, en hún heppnaðist á þann hátt, sem íhaldið hafði ætlað sér. Þvert ofan í allar staðreyndir, var Pétur látinn lýsa því opinberlega yfir, að lán til hitaveitunnar væri fengið, og vegna þess, að Pétur hafði verið álitinn ekki ósannorður eða ó- vandaður maður, voru talsvert margir, sem lögðu trúnað á þessi ummæli hans. íhaldinu tókst með þessum hætti að vinna sér mun meira fylgi í seinustu bæj- arstjórnarkosningum, en það annars hefði fengið. En nokkru eftir kosningarnar vöknuðu þeir, sem trúað höfðu Pétri, við vondan draum, þeir komust að raun um að hér höfðu verið framin stórfelldustu kosn- ingasvik, sem þekkzt hafa á íslandi. Allt fleipur Péturs um að lánið væri fengið, voru ósann- indi frá rótum. íhaldið hafði misnotað það álit Péturs, að hann væri sæmilega heiðvirður maður, eins freklega og unnt var, en líka sýnt hvaða mann hann hafði að geyma í raun og veru. Reykvískir kjósendur höfðu ver- ið meira blekktir en jafnvel þekkjast verst dæmi til við mála- myndarkosningar í einræðis- löndum. Meira óvináttubragð var ekki hægt að sýna þeim. Eftir að Pétur hafði jafn svik- samlega blekkt kjósendur í bæn- um og var orðinn reyndur að hinu mesta lánleysi í lántökum var hann þó enn sendur út af örkinni og átti nú að fá lán í Svíþjóð. Nú var ekki, frekar en áður.leitað eftir stuðningi bank- anna og ríkisstjórnarinnar við lántökuna eins og Jón Þorláks- son gerði 1935. Þessi för virðist heldur ekki hafa borið neinn á- rangur. Er víst að meðferð íhalds ins hér heima á þessu máli og sú útreið, sem Pétur fékk í Eng- landi, hafa ekki verið eins æski- leg meðmæli í augum hinna sænsku fjármálamanna og þurft hefði. Ef málum Reykjavíkur hefir nokkurntíma verið misboðið, þá hefir íhaldið gert það í hita- veitumálinu. Það er áhugaleysi bæjarstjórnarmeirihlutans fyrir hitaveitunni á undanförnum ár- um og tilraunir hans á þessu ári til að gera hana að pólitísku „númeri“, sem hafa verið einu hindranirnar í vegi hennar. Og það hættulegasta er, að flan Péturs Halldórssonar til Eng- lands og afgreiðsla málsins þar hefir að vonum vakið ótrú í aug- um erlendra fjármálamanna. Það má vera að það hafi ekki verið beinn ásetningur íhaldsins að láta þessar seinustu aðgerðir sínar verða til þess að spilla fyr- ir málinu eins og raun er á orð- in. En þær sýna það eigi að síð- ur, að það er vonlaust um fram- kvæmd hitaveitunnar meðan hún er í höndum þeirra óláns- manna, sem um hana hafa fjall- að á undanförnum árum Og Reykvíkingar mega vera illa minnugir, ef þeir trúa íhald- inu fyrir stórmálum sínum í framtíðinni. Þýzkaland sækir að smá- ríkjunum austan við sig eft- ir tveimur leiðum. Með því að mynda þar stjórnmálaflokka, sem vinna í þýzkum anda, og með því að gera þau sér háð um viðskipti og atvinnuhætti. Flest þessara landa hafa snú- izt til öflugra varna gegn hinni fyrnefndu hættu, svo sem ráða má af viðhorfi Ung- verja og tiltektum Rúmena gagnvart Codreanu. Yið- leitni Þjóðverja til þess að ná tökum á smáríkjum með fjármagni hefir hinsvegar mætt harðri mótspymu af hálfu Englendinga. Eftirfar- andi grein, sem fjallar um þessa átakaþungu baráttu, birtist í Social-Demokraten og er eftir blaðamanninn Heinrich Múller. Hún er lítið eitt stytt hér. Það var Sehacht, sem fyrstur lagði rökrétta áherzlu á mögu- leika Þjóðverja til þess að gera smáríkin sér háð með fjár- magni. Hið óskiljanlega sein- læti Breta og stjórnmálastefna Frakka leiddi það af sér, að rík- in í Austur-Evrópu, sérstak- lega Balkanlöndin, treysta æ meir á þýzka markaði. Þannig hefir útflutningur Rúmena til Englands rýrnað um 70% á einu ári, og til Frakklands um 50%. Hvað eftir annað hefir Chur- chill bent á þá hætu, sem ægði smáríkjunum þar eystra. Nú er hægt að benda á ó- yggjandi rök, er hníga að því, að Frakkar og Bretar ætli að treysta fjárhagsleg ítök sín í Balkanlöndunum. — Financial News í London birti í miðjum júnímánuði mjög opinskáa grein, þar sem sagt var að við- skiptamiðstöð Breta í Mið- og Austur-Evrópu myndi bráðlega taka upp ákveðnari starfshætti en fyrr. 19. júní var tilkynnt í Pester Lloyd, að enski verzlun- armálaráðherrann, Oliver Stan- ley, hefði gefið yfirlýsingu, er gekk í þá átt, að Bretar myndu með fjármagni sínu styrkja verzlunarsamböndin við Aust- ur-Evrópurikin. Hér standa Englendingar vel að vigi. Þeir geta goldið allt með fullgildri mynt og þurfa ekki að viðhafa sömu aðferðir sem Þjóðverjar, er nýlega prönguðu nokkurum hundruðum þúsunda af munn- hörpum út í Rúmeníu, sem borgun fyrir olíu og hveitL Þetta enska fjármagn forðar líka hlutaðeigandi löndum frá þeirri hættu, sem áhrif hinna þýszku ítaka höfðu skapað. Enda er það ekki aðeins við verzlunar- samningana við Ungverjaland, að Þjóðverjar hafa sett fram kröfur stjórnmálalegs eðlis. Lánið til Tyrkjja tryggir Englamli markað fyrir málma. Hinar fyrstu samningaum- leitanir um þessi mál af Breta hálfu, hófust við Tyrkland í byrjun ársins og lyktaði með því, að Tyrkir fengu 16 millj- ónir sterlingspunda að láni. Af þessu fé verður 6 milljónum varið til hernaðarþarfa, en 10 milljónum til þess að undirbúa hagnýtingu ýmissa auðæfa landsins og mikill hluti þess gengur til kaupa á enskum málmi og vélum. Síðan skal allt borgast með hráefnum. Með þessum hætti hafa Englending- ar tryggt sér svo mikinn kopar, sem þeir hafa þörf fyrir, og þrengt Þjóðverjum til hliðar. Við Grikkland og Búlgariu eru svipaðir samningar hafnir. Hingað til hafa samningarnir strandað á því, að Englending- ar kæra sig ekki um aukinn innflutning á höfuðframleiðslu- vöru þessara landa, tóbaki. Sama máli gegnir um hin grísku vín. Hvað Grikkland snertir hafa þó þessir samningar geng- ið greiðar, eftir að Bretar á- kváðu að veita því svipað lán og Tyrkjum til hagnýtingar á náttúruauðæfum landsins. — Jafnhliða þessu hafa Rúmenar tekið upp baráttu gegn áhrifa- valdi Þjóðverja með tollsam- bandi við Jugoslavíu. Síðustu dagana í júní héldu fulltrúar Jugoslavíu í París ráðstefnu með franska utanrík- ismálaráðherranum Bonnet um endurreisn verzlunarviðskipt- anna milli hlutaðeigandi landa. England mun einnig aðili að þessum samningum. Áður höfðu þr j ár „cellulosa“-verksmiðj ur verið byggðar í Jugoslavíu fyrir franskt og ítalskt fjármagn. Hlutverk þeirra er að fullnægja þeim markaði, sem Austurríki hefir áður notið. ítalir leggja sig alla fram um að treysta fjár- hagslega aðstöðu sína í Jugo- slaviu og ferð Stoyadinovitsch til Ítalíu, er talin hafa staðið í sambandi við samninga um slík mál. ítalir hafa horfið að því að kaupa þær trjávörur, er þeir þarfnast, í Jugoslavíu, en ekki Austurríki. Franskir og enskir bankar hafa um sama leyti lagt fram fé til málmvinnslu í Ju goslavíu. Þar með er hafin samkeppnin við Þjóðverja, sem eiga þar svipaðar innstæður, sem taldar eru að nema 500 milljónum denara. Nú standa einnig samningar milli Breta og Ungverja, sem eiga um 50% af sínum viðskipt- um við Þýzkaland. Fiiíílspiiíl mnn bráðlega ná tökum á olíufram- leiðsln Rúmena. í lok júnímánaðar fór Ta- tarescu til London í fylgd með enska ræðismanninum í Búka- rest. Þessi ferð var mjög þýð- ingarmikil. Rúmenar hafa þrjár fyrirætlanir í huga, sem þá skortir fé til að hrinda í fram- kvæmd. Þeir vilja leggja járn- braut frá Constanze við Svarta- hafið til landamæra Tékkósló- vakíu, gegnum Siebenburg. Hún lægi ekki einungis gegn- um þau héruð, sem auðugust eru af olíu og hráefnum, heldur hefði stórvæga hernaðarlega þýðingu. Ennfremur hafa þeir hin síðari ár lagt þvílíkt ofur- kapp á hagnýtingu olíulinda sinna, að talið er að sumar þeirra verði tæmdar árið 1942. Minnkandi olíuframleiðsla hefir því neytt Rúmena til að auka hveitiútflutning sinn. Þjóðverj- ar, sem voru fúsastir til að kaupa hveitið, náðu talsverðum áhrifum í landinu af þeim sök- um. Nú er það uppi á teningn- um, að byggja gífurlega stórar korngeymslur við Svartahafið fyrir enskt fjármagn. Loks hefir verið mikið um það rætt í London, að lána háar fjárhæðir til hagnýtingar nýrra olíulinda í Rúmeníu. Það hefir verið talað um 8 milljarða lán í þessu skyni. Nákvæmar rann- sóknir á þessum möguleikum eru hafnar. Samkvæmt frá- sögnum enskra og rúmenskra blaða mun Rúmenía skuldbinda sig til þess að selja megnið af framleiðsluaukningunni til Englands, sem innan fárra ára virðist beinlínis fá drottnunar- aðstöðu yfir rúmensku olíulind- unum. Það er augljóst, hvað þetta gildir fyrir Þýzkaland, bæði á friðartimum og styrj- aldar. Einnig er gert ráð fyrir ensku láni til þes að starfrækja nýjar gullnámur í Karpatafjöll- unum. Þetta allt leiðir til þess, að þýzkt áhrifavald rénar í Rúmeníu, samhliða því, sem ensk yfirdrottnun færist í auk- ana. Viðskiptum Pólverja og Djóðverja hefir hrakað. Það er öllum kunnugt, að enskt fjármagn hefir lengi ver- ið mikils megnugt í Tékkósló- vakíu. En það er líka aðgæt- andi, að það er einnig að ná tökum í Varsjá. í lok júnímán- aðar fjallaði pólski sendiherr- ann í París um þessi mál við Bonnet og þar var meðal ann- ars talað um 16 milljón sterl- ingspunda lán, sem Pólverjar hugðust að fá í London, með til- styrk Frakka. Samvinna Pól- verja og Þjóðverja hefir hins- vegar hrakað í seinni tíð. Þegar Pólland lét undan síga fyrir (Framh. á 4. siöu.)

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.