Nýja dagblaðið - 24.07.1938, Síða 2

Nýja dagblaðið - 24.07.1938, Síða 2
2 N Ý J A DAGBLAÐIÐ Allt siðan á dögum Aristoteles hafa vísindamennirnir leitt at- hygli sína að tvíhöfðuðum orm- um. Benjamín Franklín var van- ur að sýna lœrisveinum sínum tvíhöfðaðan orm og taka dœmi af honum um sundrung og tví- drœgni, því hin tvö höfuð gátu aldrei orðið ásátt um það, hvert skríða skyldi. Dr. Cunningham við Duke há- skólann, hefir lengi fengizt við rannsóknir á tvíhöfða ormum og gefið út bók um þetta efni. Hann hefir fundið mörg dœmi um inn- byrðis ófrið milli þessara tveggja höfða á sama líkama, og það jafnvel á svo háu stigi, að til bana hefir dregið. Hann hefir séð dœmi þess, að annað orms- höfuðið gleypti hitt og olli þann- ig báðum hinum stríðandi aðil- um óskemmtilegs dauða. * Það hefir nýlega hent i Sví- þjóð, að prestur, er fékk við prestskosninguna aðeins eitt at- kvœði af 92, hefir verið skipaður í embœttið. Svipað gerðist norður í Dölum á dögum Karls XV. Þar fór fram prestskosning og var valið um þrjá umscekjendur. Einn hlaut 400 atkvœði, annar 90 og sá þriðji 1. Þrátt fyrir þessi greini- legu úrslit treysti fólkið ekki meira en svo á það, að konung- urinn myndi hlíta þeim. Þess- vegna var kosin allmyndarleg nefnd til að túlka málstað fólks- ins og fylgja málinu fram. — Nefndin fór nú á konungsfund, þar sem eftirfarandi samtal átti sér stað: — Hvernig lauk kosningunni? — Einn umscekjandinn hlaut ncestum öll atkvœðin. — En sá nœsthœsti? — Fékk aðeins sárfá atkvœði. — Hvað fékk sá þriðji? — Hann fékk bara eitt at- kvœði, sögðu allir sendímennirn- ir einum rómi. — Vesalings maðurinn, sagði konungurinn. .Ég .gef. honum mitt atkvœði. * Mannfjölgúnarstefna Mussoli- nis hefir gert barneignir að mik- illi dyggð meðal ítala. Þar líðst engum að tala háðslega um þessa hluti. Nýlega var sýnt leik- rit í Róm, sem fjallaði um ótrúa eiginkonu, sem átti barn með elskhuga sínum. ítölskum eigin- mönnum fannst sér gert mjög lágt undir höfði og óvirðulega um sig og hjónabandið talað. Þegar höfundurinn, Benelli að nafni, sýndi sig á sviðinu, rudd- ust hinir scerðu og reiðu eigin- menn upp á sviðið og gafst tæki- fœri til þess að jafna ofurlltið um dónann, áður en lögreglan skakkaði leikinn. * — Rífstu nokkurn tíma við konuna þína? — Nei, aldrei. Hún þrœðir sín- ar götur og ég hennar. * TIL ATHUGUNAR: Iðnin er hœgri hönd hamingj- unnar. Þýzkur málsháttur. HÁRVÖTN OG ILHVÖTIV FRÁ ÁFEVGIS- VERZLUN IIIKISIIVS ERIJ MJÖG HEIVT- Reykjavík - Akureyri UGAR TÆKIFÆ ItlSG J ÁFIR AUSTURFERÐIR: í OlSus, Þrastalund, Grímsnes, Laugarvatn, Laugardal, Bískups- tungur að G e y s i í Haukadal frá Bíireiðasf. Geysi Sími 1633. Síðan er föyur sveit. Fastar áætlunarferðir frá Rvík að Kirkjubæjarklaustri alla þriðjudaga. Frá Kirkjubæjar- klaustri til Reykjavíkur alla föstudag-a. Vandaðar bifreiðar. Þaulæfðir bílstjórar. Afgr. Bif- reiðastöð íslands. Sími 1540. — Næsta oraðferð um Ákranes til Ak- ; ureyrar er á mánudag Bifreiðastöð Steindórs. Sími 1580. Málverkasýning Eggerts Guðmundssonar Skólavörðustíg 43 — áöur vinnustofa Kristjáns Magnússonar — Opin daglega kl. 1—9. — Aðeins nokkra daga. Furðuverð björéun f eftirfarandi grein segir frá 17 námumönnum, sem lok- uðust inni í námunni við jarðhrun og voru í fjóra sólar- hringa að grafa sér leið upp á yfirborðið. Þeir sáu þá, að það hafði orðið þeim til lífs að Iokast inni í námunni, því hún hafði fallið saman við bjarghrun, sem hafði al- gerlega hulið bæinn, sem þeir bjuggu í, og orðið flest- um íbúunum að bana. Gamall námuverkamaður dó fyrir skömmu í sjúkrahúsinu í Montreal. Það sást á skjölum þeim, er hann skildi eftir sig, að hann hafði eitt sinn unnið í Turtle-námunni i Franktown í Kanada. Hann var síðasti mað- urinn, sem lifði af þeim, er lok- uðust inni í námunni í slysinu hérna um árið, þegar Frank- town eyðilagðist. Morgun einn fóru 17 námu- menn niður í námuna eins og venja var til. Þeir unnu í bezta gangi námunnar og þar eð málmæðar voru ekki í grennd- inni, voru þeir venjulega klukkustundum saman einangr- aöir frá félögum sínum. Þeir áttu enn eftir að vinna nokkrar stundir, er mikill hávaði og dynkir tóku að heyrast í berg- inu. Þeir fundu hvernig gólfið í námuganginum gekk í öldum og þak gangsins riðaði. En eikarbjálkarnir í gangin- um héldu. Nú heyrðist ógurleg- ur hávaði og mold og grjót hrundi fyrir innganginn. Þessir 17 fölnuðu og litu hver á ann- an. Þeir skyldu gerla hvað þetta þýddi fyrir þá, þeir voru grafnir lifandi djúpt niðri í jörðinni og einangraðir frá umheiminum. Það leit út fyrir að þeirra biði kvalafullur dauði, þegar loftið gengi til þurðar. Verkamennirnir töldu sig ó- hamingjusömustu verur á jarð- ríki þessa stundina. Þeir höfðu heldur ekki grun um hvað hafði fram farið úti, sem sé, að Franktown þurkaðist burt í stærsta skriðuhlaupi, sem þekkst hefir í Ameríku. Turtle- hamarinn, sem var 1200 metra hár, hafði hrunið á nokkrum sekundum og skriðan hlaupið í Old Man-river. Borgin var að mestu leyti byggð frammi á hamrinum og hún hafði gersamlega horfið með hruninu og flestir íbúar borgar- innar fórust. Það hefir síðar verið reiknað út, að 17 milljónir smálesta af mold og grjóti hafi hrunið. Farvegur Old Man-river var 3 km. breiður, og hann fylltist 30 metra þyku lagi af möl og sandi. Fáeinum hræðum tókst að forðast eyðilegginguna. Hús þeirra stóðu handan við dalinn, en þau eyðilögðust nokkrum klukkustundum síðar í ægileg- um eldsvoða. Skelfingin var svo mikil, að enginn mátti vera að því að hugsa um verkamennina niðri í námunni, enda var eng- inn inngangur í námuna til þeirra. En þó að einhver hefði munað eftir þeim, þá hefði eng- um dottið í hug að þeir væru enn á lífi. Meðal námuverkamannanna var maður að nafni John Law- ton, sem var öllu vanur og hafði unnið í mörgum námum. Hann hafði orðið fyrir tveim námu- slysum og sloppið í bæði skiptin ómeiddur, og þess vegna vildi hann ekki trúa því fyr en hann tæki á, að hann ætti nú að far- ast. Lawton eggjaði félaga sína lögeggjan að taka þátt í björg- unarstarfinu. Hann var sann- færður um, að menn störfuðu ákaft að björgun utan frá. Hann gekk um og barði á vegg- ina, til þess að komast að í hvaða átt væri helzt að reyna. Eftir langa yfirvegun ákváðu þeir að reyna að komast áfram eftir sprungu, sem var níu metrum ofar en þeir, og reyna að komast gegn um ruðning- inn, sem fallið hafði fyrir munnann. Verkamennirnir 17 unnu nú ákaft að því að komast upp sprunguna. Þeir stönzuðu öðru hvoru til þess að hlusta eftir hjálp utan frá, en þeir heyrðu ekkert, þögnin var djúp og ógn þrungin, er þeir hlustuðu. Þeir gripu því áhöldin aftur og unnu með krafti örvæntingar- innar að lausn sinni. Ein klukkustundin leið eftir aðra. Nesti þeirra, sem hafði ver- ið mjög af skornum skammti, var þrotið með öllu, og þeir þjáð- (Framh. á 4. siðu.)

x

Nýja dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.