Nýja dagblaðið - 24.07.1938, Page 4

Nýja dagblaðið - 24.07.1938, Page 4
REYKJAVÍK, 24. jtJLÍ 1938. 6. ÁRGANGUR — 168. BLAÐ NYJA DAGBLAÐKk GAMLA B í Ó | Á skyrinnni gegnumbæinn | afar fjörug gamanmynd Sýnd kl. 7 og 9. Alþýðusýning kl. 7. Barnasýning kl. 5: Smámyndasafn III þ. á m. 3 Skipper Skræk myndir. Bygging halnarhússins Fyrir bæjarstjórnarfundinum á fimmtudaginn lá tillaga aö ljúka við byggingu hafnarhúss- ins. Hafði hafnarstjórn lagt til, að það yrði gert, án þess að verkið yrði boðið út. Guðm. Eiríksson kom með breytingartillögu þess efnis að verkið skyldi bjóða út á venju- legan hátt. Jakob Möller mót- mælti þessari tillögu harðlega og sagði að hafnarsjóður myndi leggja til efnið og þessvegna væri ekki hægt að bjóða hús- bygginguna út. Sigurður Jónasson kvaðst að vísu bera hið fyllsta traust til hafnarstjóra, en hinsvegar taldi hann ekki ná nokkurri átt að bjóða ekki svona verk út. Sýndi hann fram á, að viðbára Jakobs væri hin mesta fjarstæða, því það væri auðvelt að bjóða hús- byggingar út, enda þótt húseig- endur legðu til efni. Sigurður bað Jakob, sem er í hafnar- stjórn, um upplýsingar um, hvað húsbyggingin ætti að kosta, en Jakob neitaði að svara því og var helzt á honum að skilja, að bæjarstjórnin mætti ekki fá að vita það. Er þetta enn eitt dæmi um þá skoðun meirihluta bæjarstjórn- ar, að hann hafi rétt til að fara leynt ipeð stórvægilegar fjár- málalegar ákvarðanir fyrir bæj- arstjórninni. Einhver bæjarfull- trúanna gat þess þá til, að bygg- ingin myndi alltaf kosta 300— 400 þús. kr. Jón Björnsson hafði í hafnarstjórninni dregið það í efa, að þörf væri á byggingunni strax og vildi láta bæjarstjórn- ina fella úrskurðinn um það. En það vildi Jakob ekki og þar sat. Jakob Möller sagði, að allt efni til húsbyggingarinnar væri kom- ið á staðinn, en Guðmundur Ás- björnsson upplýsti að ekkert af því myndi komið á staðinn og myndi í fyrsta lagi koma eftir hálfan mánuð. Var auðheyrt á Guðmundi að hann væri sömu skoðunar og Jón Björnsson, að hann vlldi láta verkið bíða. Sigurður Jónasson spurðist fyrir um hvað ætti að gera með hina nýju byggingu og taldi varla þörf á meira geymsluplássi við höfnina eins og stæði. Ef hinsvegar ætti að nota plássið til annars, þá vildi hann benda á, að skynsamlegast myndi vera að flytja þangað allar skrifstofur bæjarins, sem eru nú í alger- lega ófullnægjandi húsrúmi. Ari Jóhannesson (FramhalcL af 3. síöu.) um árum, en Þuríður er enn á lífi, háöldruö. Árið 1904 fíuttist Ari með for- eldrum sínum að Ytra-Lóni á Langanesi, er þau keyptu þá jörð, og bjuggu þar æ síðan. Þar ólst hann upp og dvaldi þar mestan hluta æfinnar. Hann útskrifaðist úr Gagnfræðaskól- anum á Akureyri vorið 1909 með mjög hárri einkunn og settist í 4. bekk Menntaskólans hér, haustið eftir, en varð að hætta námi, sökum vanheilsu. Mun hann áldrei hafa verið heilsu- hraustur upp frá því. Nokkura vetur var hann barnakennari á Langanesi, þar til hann kvæntist eftirlifandi konu sinni Ásu Aðalmundar- dóttur frá Eldjárnsstöðum, mestu dugnaðar- og myndar- konu. Eignuðust þau 6 mann- vænleg börn, en misstu eitt þeirra ungt. Bjuggu þau fyrst á Ytra-Lóni um nokkurra ára skeið, en fluttu síðan til Þórs- hafnar þar sem hann stundaði ýmsa vinnu á sumrum og ung- lingafræðslu á vetrum. Síðustu tvö árin dvöldu þau hjónin að mestu hér í bænum, aðallega til þess að létta undir með eldri börnunum, er hér voru við nám. Var heilsa hans mjög tæp síð- astliðinn vetur og gáfu læknar von um að takast mætti með uppskurði að ráða bót á meini því, er þeir töldu vera orsök margra ára heilsubrests hans. En hér fór sem oftar að mann- legur máttur varð að lúta í lægra haldi fyrir öðrum öflum sterk- ari. Ari heitinn var meðal greind- ustu manna er ég hefi kynnst. Hann var fróður og viðlesinn, þrátt fyrir erfiða aðstöðu til þess að afla sér bókakosts og hafði mikla ánægju af að miðla öðr- um af þekkingu sinni. Hann var ræðinn og skemmtinn í vinahóp þrátt fyrir heilsubrest og ýmis- konar örðugleika er hann átti við að stríða. Hann hafði mikið yndi af söng og hljóðfæraslætti, hafði góða söngrödd, lék ágæt- lega á harmoníum og var um skeið organisti í Sauðaneskirkju. Ég minnist hans jafnan með þakklæti og hlýhug frá þeim tíma er hann var kennari minn í æsku. Enginn kennari sem ég kynntist síðar var samvizkusam- ari né skylduræknari en hann, enginn betri kennari, þó lærðari væru og langskólagengnari, að öðrum ólöstuðum. Sár harmur er kveðinn að konu hans, sem var honum tryggur og fórnfús lífsförunaut- ur, annaðist hann og hjúkraði honum í veikindum og vakti við banabeð hans síðustu stundirn- ar, börnum hans, sem hann jafn- an var ástríkur faðir, móður hans aldraðri og kærum bróður. Friður veri yfir moldinni sem geymir jarðneskar leyfar hans. V. H. Engin svör fengust við þessu, annað en Jón Axel taldi sig vita, að húnæðið myndi vera hægt að leigja. Skríistoíur vorar verða lokaðar mánudagínn 23. þ. m. írá kl. 12--4. r Aíengisverzlun ríkísins. Stefán Guðmundsson Kveðjukonsert í Gamla Bíó þríðjudagínn 26. p. m. kl. 7,15. N Ý J A B 1 O Leikaralíf í Hollywood (A Star is Born) Hrífandi fögur og til- komumikil mynd. er ger- ist í kvikmyndaborginni Hollywood Öll myndin er tekin í eðlilegum litnm Techni color Aðalhlutverkin leika Fredríc March Janet Gaynor Sýnd kl. 5, 7 og 9. Lækkað verð kl. 5. SÍÐASTA SINN. Beztu kolín GEIR H. ZOEGA Símar: 1964 og 4017. Víð hljéðfærið: Haraldur Sígurðsson. Aðgöngumíðar seldir hjá Katrínu Viðar og Eymundsen. Söngurinn verður ekkí endurtekinn. Bálfarafélag íslamls. Skrifstofa: Hafnarstrœti 5. Pélagssklrteini (æfigjald) kosta 10 kr. Skírteini, sem tryggja bálför, kosta 100 krónur, og má greiða þau í fernu lagi, á einu ári. Allar nánari upplýsingar á skriístofu félagsins. Sími 4658. Furðuverð björgun (Frli. af 2. síðu.) ust af þorsta. Síðustu ljóskerin voru slokknuð. Sumir mannanna voru alveg að gefast upp, en Lawton eggjaði þá ákaft á að halda áfram. Eftir fjóra sólarhringa sáu verkamennirnir nokkurn árang- ur erfiðisins. Einn þeirra rak upp gleðióp. Hann hafði fundið trjá- rætur og hélt sig finna nýtt loft streyma á móti sér. Fyrsti ljósgeislinn féll inn til námumannanna nákvæmlega hundrað klukkustundum eftir að Franktown eyðilagðist. Þeir unnu nú allir sem óðir menn, en er þeir voru komnir heilir á húfi upp á yfirborðið, trúðu þeir vart sínum eigin augum. Þar sem staðið hafði blómleg borg fyrir fjórum dögum, var nú ekkert að sjá nema eyðileggingu. Hús þeirra voru horfin, vandamenn þeirra sömuleiðis og þeir hefðu sjálfir farið sömu leiðina, ef þeir hefðu ekki verið grafnir niðri í námunni. Það er mjög sjaldgæft að námuslys verði þeim, er í því lenda, til lífs, eins og þarna var. í hesldsolu. Ishúsíð HERÐUBREIÐ Fríklrkjuveg 7. — Sími 2678. Rjómabússmjör Irá K. E. A. í hálfs kíló pökkum er komíð altur. Samband ísl. samvínnuiélaga. Sími 1080.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.