Nýja dagblaðið - 26.07.1938, Blaðsíða 1

Nýja dagblaðið - 26.07.1938, Blaðsíða 1
6. ár ID/^G* IB \U\\Ð II iD Reykjavík, þriðjudaginn 26. júlí 1938. 169. blað ANN ÁLL 206. dagur ársins. Sólaruppkoma kl. 3.18. Sólarlag kl. 9.48. Árdegisháflæður i Reykjavík kl. 4.40. Dagskrá útvarpsins: 10.00 Veðurfr. 12.00 Hádegisútvarp. 15.00 Veðurfr. 19.10 Veðurfr. 19.20 Hljómplötur: Vínarlög. 19.40 Auglýs- ingar. 19.50 Fréttir. 20.15 Erindi fyrir húsmæður: Um grænmeti, II. (ungfr. Helga Sigurðardóttir). 20.40 Symfóníu- tónleikar (plötur): a) Fiðlukonsert eftir Paganini. b) Pianókonsert eftir Tschaikowsky. c) Lög úr óperum. Póstferðir á morgun. Frá Rvík: Mosfellssv.-, Kjalarness-, Reykjaness-, Ölfuss- og Flóapóstar. Hafnarfjörður. Seltjarnarnes. Þrasta- lundur. Laugarvatn. Bílpóstur að norð- an. Fagranes til Akraness Laxfoss til Borgarness. Álftanesspóstur. Stykkis- hólmur. Strandasýslupóstur. Til Rvíkur: Mosfellssv.-, Kjalarness-, Reykjaness-, Ölfuss- og Fióapóstar. Hafnarfjörður. Seltjarnarnes. Þrasta- lundur, Laugarvatn, Þingvellir, Fagra- nes frá Akranesi, Laxfoss frá Borgar- nesi. Álftanespóstur. Breiðafjarðar- póstur. Skipafréttir. Súðin kom til Norðfjarðar í gær. Esja kemur til Glasgow í dag. Stefán Guðmundsson heldur kveðjukonsert í Gamla Bíó í kvöld og hefst hann kl. 7.15. Haraldur Siguýðsson aðstoðar. Þessi konsert verður ekki endurtekinn, þar eð Stefán er alveg á förum til útlanda. Á alþjóðamóti kennara, sem nú stendur yfir í Christiansborg, eru tveir íslendingar, Guðjón Quðjóns- son skólastjóri og Jón Emil Guðjónsson kennari. Alls sitja mótið 70 kennarar frá 32 löndum. Félag mjólkurfræðinga. Menn þeir, sem mjólkuriðnað stunda hafa myndað með sér félag og er til- gangur þess að efla mjólkuriðnaðinn og starfa að aukinni mjólkurneyzlu vera leiðbeinandi um mjólkuriðnað og til aðstoðar þeim, er stunda vilja mjólkuriðnaðarnám erlendis. Formað- ur félagsins er Sigurður Guðbrandsson í Borgarnesi, en meðstjórnendur Sig- urður Pétursson gerlafræðingur og Pétur M. Sigurðsson stöðvarstjóri í Reykjavík. Skemmtiferðaskipið Colombia frá Amsterdam, var hér í gær. Var með því fjöldi farþega, einkum frá Hollandi, og fóru þeir víða um meðan skipið hafði hér viðdvöl og létu hið bezta af viðkomu sinni. Á morgun kemur skemrptiferðaskipið Atlantis frá Englandi. Víkingur keppti í knattspyrnu á laugardags- kvöldið við Knattspyrnufélag Akur- eyrar. Leiknum lauk með jafntefli, þrem mörkum gegn þrem. Síldveiðin að gfiæðast Míkil síld í Húnaflóa í gaer. í Siglufirði voru saltaðar á sunnu- dag 3030 tunnur síldar — þar af 2512 tunnur grófsaltaðar. 1160 mál af bræðslusíld hafa á þessum sólarhring komið til Siglufjarðar. Allmikil síld var í fyrrakvöld og í fyrradag í vestan- verðum Húnaflóa og frá Axarfirði til Langaness. Á báðum stöðum voru all- mörg skip, og fengu þau góða veiði. Lítilsháttar hafði orðið síldarvart í Skagafirði og við Skaga í gær, en sama (Framh. á 4. síSu.) Heimsókn krónprinshjónanna Frá móttöku krónprinshjónanna á sunnudagskvöldið. Á mynd- inni að ofan sést mannfjöldinn, sem bíður þeirra á bryggj- unni en á hinni sjást krónprinsh jónin og forsætisráðherrahjónin. Dr. Alexandrine lagðist að Grófarbryggju kl. ná- kvæmlega 7 á sunnudags- kvöldið. Mikill mannfjöldi var þar þá samansafnaður, til þess að sjá þegar krón- prinshjónin stigu á land, og margir höfðu beðið þar nið- ur frá tímunum saman, til þess að fá hentugt stæði. Uppi á þökum húsanna í grennd við höfnina, stóð fjöldi fólks. Niðri á hafnarbakkanum hélt lögreglan uppi röð og reglu með tilstyrk skáta. Yfir höfninni og bænum öllum blöktu hvarvetna fánar og veifur. Hermann Jónasson forsætis- ráðherra heilsaði hinum tignu gestum með stuttri ræðu, er þau stigu á land. Síðan gengu þau, krónprinsinn og krónprinsessan, forsætisráðherra og frú hans, á- samt konungsritara og fylgdar- liði krónprinshjónanna upp bryggjuna. Þar hélt forseti bæj- arstjórnar, Guðmundur Ás- björnsson, stutta ræðu. Krónprinshjónin heilsuðu ýms um embættismönnum er biðu á hafnarbakkanum, ræðismönn- um erlendra ríkja, embættis- mönnum úr stjórnarráðinu, æðstu starfsmönnum bæjarins, lögmanni, lögreglustjóra og fleirum. Meðan þau gengu milli tvöfaldrar raðar kvenskáta, laust mannfjöldinn upp fagnað- arópi. Siðan stigu þau inn í bif- reiðina, er ók með þau að Hótel Borg, en þar búa þau á annarri hæð. Margir, sem beðið höfðu niður við bryggjuna, fylgdu eftir bifreiðinni heim að gistihúsinu. Um klukkan 8 óku krónprins- hjónin til bústaðar forsætisráð- herra, þar sem þeim var veizla búin. í gær fóru krónprinshjónin austur að Geysi og Gullfossi, í boði ríkisstjórnarinnar. Var lagt af stað frá Hótel Borg kl. 9 ár- degis. Um 50 gestir voru með i för- inni og bifreiðar á vegum ríkis- stjórnarinnar voru 19. Auk þess voru margar bifreiðar tilheyr- andi bæjarstjórninni. í fremstu bifreiðinni ók Haraldur Árna- son, er var fararstjóri. Næst kom bifreið krónprinshjónanna. — Henni ók Viggó Eyjólfsson. í þriðju bifreiðinni var Hermann Jónasson forsætisráðherra og frú. í fjórðu bifreiðinni voru Komtesse Reventlow, Kapt.löjt- nant Weiibach og Jón Svein- björnson konungsritari. Verður þessari röð haldið í öllu ferðalagi krónprinshjónanna hér á landi. Austur að Geysi var komið kl. 12.30, eins og gert hafði verið ráð fyrir. Þar var snæddur há- degisverður. Meðan dvalið var við Geysi, gaus hverinn mjög fögru gosi. Síðan var haldið upp að Gull- fossi og þaðan heimleiðis. Voru skoðaðar aflstöðvar við Ljósa- foss og síðan ekið í Þrastaskóg og i Þrastalundi var snæddur kvöldverður í borði bæjarstjórn- ar Reykjavíkur. Klukkan 10 um kvöldið var haldið af stað til Reykjavíkur og tveim mínútum fyrir hálf tólf óku bifreiðarnar, er austur fóru, niður að skipshlðinni og krón- prinshjónin og fylgdarlið þeirra steig um borð, ásamt forsætis- % ráðherra og frú hans og Stefáni Þorvarðssyni, fulltrúa í utan- ríkisráðuneytinu. Lét skipið frá bryggjunni kl. 12. Krónprinshjónin létu í ljósi á- nægju sína yfir þessari för og því, sem fyrir augun hafði borið. Ekki hvað sízt dáðust þau að út- sýninu til norðvesturs í gær- kvöldi, er dumbrauður kvöld- bjarmi lá yfir Snæfellsnesinu og (Framh. á 4. síðu.) RæDi Usiiihni yr ■.*» * v * i»-w jarjKt »«--*—> K»rr---.- réers^o -r* ií^r,1,TV'.ff'5r'..u ► J við móttöku krónprinshjónanna „ Yðar konunglegu tignir! |l Háttvirtu gestir! Fyrir hönd ríkisstjórnar ís- lands og í nafni hinnar íslenzku þjóðar, býð ég krónprinzhjónin íslenzku velkomin til íslands. Þetta er í fyrsta sinn í sögu landsins, sem krónprinshjónin okkar taka sér ferð á henidur yf- ir hafið til að kynnast landi og þjóð. Krónprinsinn sækir nú fsland heim í þriðja sinn. Krón- prinsessan sæmir oss nú með heimsókn sinni í fyrsta skipti, og setur það sérstaklega á- nægjulegan svip á þessa heim- sókn. íslenzku þjóðinni er heim- sóknin til mikillar ánægju og býður yður, konunglegu gestir, hjartanlega velkomna. Vér von- um að landið sjálft, sem nú er klætt sumarskrúða, megi einnig taka vel á móti yður. Þegar þér, konunglegu gestir, komuð undir land, hafið þér séð fannhvít f jöll og dökkar hamra- hlíðar, — og vafalaust hefir yð- ur virzt landið kuldalegt. En milli fjallanna dyljast grænir og gróðursælir dalir, þar sem gott er að búa. Og undir hinum kalda klaka leyndist eldur jarð- arinnar, eins og heitt hjarta. Þannig er ísland, land hinna miklu andstæðna, — land stórra sanda, stórra sæva. Það ér oft kalt við fyrstu sýn, er stormar æða. Hin háu fjöll verða þung- brýn, og hafið, þangað sem landsins börn sækja mikið af lífsbjörg sinni, úfið og ægilegt. — En svo skiptir um. Sjórinn hvílir spegilsléttur við strend- urnar. Sólin varpar geislum sín- um yfir kyrláta dalina, „þar sem um grænar grundir líða elfur ísbláar að ægi fram“. En að baki rísa fjöllin, sem teygja tindana upp í himin- blámann. Þannig er fsland, landið, sem þið munið kynnast nánar næstu daga. Þjóðin sjálf, sem þið einnig munuð kynnast, hefir tekið svipmót af landinu og náttúru þess. Þjóðin öll vill taka vel á móti yður, konunglegu gestir, og við færum fram þá ósk, að íslenzk náttúra megi einnig opna yður faðminn í sinni sólbjörtu sum- ardýrð. Við vitum að ferð yðar hing- að til landsins eykur kynni yð- að af landi og þjóð og við von- um að þau kynni megi styrkja bræðraböndin milli frændþjóð- anna. Ég bið yður, góðir gestir, að rísa úr sætum yðar og drekka skál íslenzku krónprinshjón- anna, um leið og vér þökkum þeim komuna hingað, færum vér fram þá ósk, að ferðin megi verða hin ánægjulegasta.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.