Nýja dagblaðið - 26.07.1938, Blaðsíða 4
REYKJAVÍK, 26. JÚLÍ 1938.
GAMLA B í Ó
Viðskiptaháskóli
íslands
(Framhald af 3. síðu.)
sinni. Og ég álít að hver slíkur
maður sem lætur sjá sig undir á-
hrifum áfengis, eigi tafarlaust
að missa réttindi til þessa náms
og starfs. Þetta er ekki sama og
að nemendur eigi að vera æfi-
langir bindindismenn, heldur
hitt, að ríkið hafi ekki með þá
að gera á þessum vettvangi, ef
þeir láta eitthvað af vitsmunum
sínum í sambandi við áfengis-
nautn. Meðan ekki eru gerðar
sömu kröfur við aðra skóla, geta
vínhneigðu mennirnir enn um
stund freistað gæfunnar annars-
staðar.
Tvær ástæður eru til þess að
viðskiptaháskólinn má ekki fyrst
um sinn verða venjuleg háskóla-
deild. Það er ekki heppilegt að
heimta beinlínis að allir nem-
endur hafi stúdentspróf, því að
reynslan sýnir að margir af fær-
ustu viðskiptaforkólfum landsins
og þeir sem aðalflokkar landsins
beita og hafa beitt fyrir sig í
milliríkjasamningum, hafa ekki
stúdentsmenntun. Eg nefni úr
Framsóknarflokknum menn eins
og Jón Árnason og Vilhjálm Þór,
úr Sjálfstæðisflokknum Jóhann
Jósefsson og Richard Thors og
úr Alþýðuflokknum menn eins
og Jón heitinn Baldvinsson og
Finn Jónsson. Enn er óséð
hversu hægt er að tryggja slik-
um mönnum inngang í slíkan
skóla, þar sem þeir hafa á unga
aldri meira af meðfæddum hæfi-
leikum heldur en skólaþjálfun.
En svo mikið er víst, að ríkið hef-
ir ekki efni á að neita slíkum
mönnum um tækifæri til að fá
þá beztu almennu æfingu, sem
völ er á í landinu, vegna þeirra
starfs.
Hitt atriðið er sjálf kennslan
í viðskiptaháskólanum. Hennar
vegna þarf að fá fjölmarga af
hinum allra færustu mönnum
sem völ er á í höfuðborginni til
að kenna. Eg nefni dómara í
hæstarétti, prófessora við há-
skólann, tungumálakennara við
aðra skóla, starfsmenn úr utan-
ríkisdeildinni o. s. frv. Háskólinn
starfar aðeins með föstum
mönnum, og viðskiptaháskólinn
getur ekki gert alla að dósent-
um og prófessorum, sem þar
eiga að starfa. Þvert á móti er
ætlazt til að hinir færustu menn
í landinu, í hverri grein, geri það
af þegnskap við landið, að kenna
sín fræði við þessa stofnun fyrir
venjuleg tímakennaralaun. Þó
NYJA DAGBLAÐIÐ
6. ÁRGANGUR — 169. BLAÐ
verður ekki komizt hjá að hafa
einn fastan mann við þessa
stofnun. Ekki svo mjög til að
kenna, heldur til að tryggja það
skipulag og reyna að kenna hin-
um ungu mönnum að vinna á
skipulegan hátt. Ríkisstjórnin
mun hafa í þessu skyni samið
um forstöðuna næsta vetur við
einn af kennurum menntaskól-
ans, Steinþór Sigurðsson stærð-
fræðikennara. Hann hefir sýnt í
starfi við báða menntaskólana
álitlega hæfileika til að vinna
með ungum mönnum að margs-
konar hagnýtum störfum og í-
þróttum. Þegar hann kemur ofan
af öræfum í byrjun september,
úr landmælingum herforingja-
ráðsins, mun hann byrja að und-
irbúa vetrarstarfið. En væntan-
legir nemendur geta á meðan
gefið sig fram við rektora beggja
menntaskólanna, sem eru kunn-
ugir þessum ráðagerðum.
Eg álít nauðsynlegt að þjóðin
öll viti um þá tilraun sem hér á
að gera um vandasamt framtíð-
armálefni. Hér er lagt inn á nýja
leið. Það á að taka mjög tak-
markaða tölu ungra manna eftir
ströngu úrvali um hæfileika,
dugnað og reglusemi. Þessir
menn eiga að fá mjög hagnýta
kennslu, með miklu frelsi en
hörðum aga um hegðun og
manndáð. Það á að vera erfitt að
komast inn í skólann og erfitt að
komast gegnum hann. Og að
loknu námi blasa ekki við sendi-
Slelán Guðmundsson
Kveðjukonsert í Gamla Bí6 i kvöld kl. 7,15«
Víð hljóðfæríð: Haraldur Sigurðsson.
Aðgöngumíðar seldir hjá Katrínu Víðar og
Eymundsen.
Söngurinn verður ekki endurtekinn.
Samníngur hafnar-
stjórnar víð Skánska
Cementgjuteriet A.B.
í smágrein í Nýja dagblaðinu
í gær, 23. júlí, er frá því sagt,
að Sig. Jónasson bæj arfulltrúi
hafi á síðasta bæjarstjórnar-
fundi spurzt fyrir um: „við
hvaða verði hið sænska firma
seldi efnið (í Ægisgarðsbryggju)
og sagðist hafa heyrt sagt að a.
m. k. sumt af efninu væri reikn-
að hafnarsjóði allmiklu hærra
en hægt væri að kaupa það
annarsstaðar frá“.
Út af þessum ummælum bæj-
arfulltrúans vil ég geta þess, að
hafnarstjórn bárust þrjú tilboð
í Ægisgarðsbryggju og var til-
boð sænska firmans að öllu leyti
hagkvæmast, mun ódýrara en
hin tvö og skilmálar þannig, að
sænska firmað vildi gefa höfn-
Bifreídarslys
Bifreiðarslys varð kl. 2—3 í fyrrinótt
skammt fyrir vestan Haffjarðará í
Hnappadalssýslu hjá svonefndum
Stöpum. Stórri flutningabifreið, með
hálfkassa og allmörgu fólki, sem stóð
í grindum á palli bifreiðarinnar,
hvolfdi ofan í skurð utan við veginn.
í bifreiðinni voru um 25 manns, er
voru að koma af skemmtisamkomu að
Vegamótum. Fólkið var flest úr Kol-
beinsstaðahreppi, nema tveir piltar,
annar úr Reykjavík, en hinn úr Hafn-
arfirði, sem voru á skemmtigöngu um
Snæfellsnes. Þeir höfðu slegizt í förina
á Vegamótum. Fólkið, sem á pallinum
stóð, varð aílt ’undir bifreiðinni, en
tveir ríðandi menn, sem þar voru nær-
staddir, gátu bjargað því frá köfnun í
skurðinum. Margir þeirra, er í bifreið-
inni voru, fengu meiri eða minni á-
verka, þar á meðal pilturinn úr
Hafnarfirði, Ársæll Jónsson, sem fékk
allmikið sár á kálfa. Var hann fluttur
á sjúkrahúsið í Stykkishólmi, og líður
nú eftir vonum.
Bifreiðin var frá Grund í Kolbeins-
staðahreppi, en bifreiðarstjórinn var
Þorsteinn Guðmundsson. — FÚ.
N Ý J A B I Ú
Heímsókn
hamingjunnar
Amerísk stórmynd frá Uni-
versal Film, gerð eftir
hinni víðlesnu sögu, IMI-
TATION OF LIFE, eftir
amerísku skáldkonuna
FANNY HURST.
Aðalhlutverkin leika:
Claudette Colbert,
Warren Williams,
iVed Sparhs o. fl.
AUKAMYND:
Verkfall storkanna
Litskreytt teiknimynd.
AUSTURFERÐIR s
í Ollusy Þrastalund,
Grímsnes, Laugarvatn,
Laugardal, Bískups-
tungur að G e y s i í
Haukadal
frá Bifreiðast. Geysi
Sími 1633.
’JDX
aðeins Loftur.
herrastöður með glitrandi ein-
kennisbúninga og sífelldu veizlu-
lífi. í stað þess hyllir aðeins und-
ir starf undir ótilteknum kring-
umstæðum fyrir duglega, reglu-
menn, því að bað er alltaf skort-
emnn, því að það er alltaf skort-
ur á slíkum mönnum. Og ef ís-
land á að ná sínu fulla frelsi og
þjóðin að geta verið frjáls um
allar ókomnar aldir, þá þarf hún
að eiga sem flesta slíka borgara
og starfsmenn til verka bæði
heima og erlendis. Ég tel það
eitt af hinum góðu veðramerkj-
um um framtíð landsins, að leið-
andi menn úr öllum aðalflokkum
þingsins hafa sameinazt um að
styðja þessa nýjung, sem er svo
nátengd þeim vonum sem fylla
brjóst allra þjóðrækinna manna,
sem unna landi sínu og geta ekki
hugsað til annars en að þjóðin
geti annast öll sín málefni, þrátt
fyrir mannfæð og einangrun,
eins og forfeður okkur gerðu á
þeim tíma, sem kallaður er gull-
öld landsins. J. J.
Heimsókn
krónprinshjónanna.
(Framhald af 1. síðu.)
rauðum blæ sló yfir höfnina og
sjóinn.
Á norðurleiðinni koma þau við
á ísafirði og Siglufirði og koma
til Akureyrar á miðvikudaginn.
Þaðan verður farið í bifreiðum
austur í Þingeyjarsýslu. Á föstu-
dagsmorguninn verður lagt af
stað landleiðina suður.
Um klukkan 1 í nótt héldu þeir
Haraldur Árnason, Ragnar Kva-
ran og fleiri af stað í átta bif-
reiðum norður til Akureyrar og
verða þeir komnir þangað á
undan krónprinshjónunum.
inni 10 ára greiðslufrest með
4y2% vöxtum.
í hinum tveim tilboðunum
voru greiðsluskilmálar hjá öðru
firmanu við móttöku verksins,
en hjá hinu 5 ára greiðslufrest-
ur og 5% vextir.
Tilboði sænska firmans var
tekið vegna þess, að það var í
alla staði aðgengilegast; um
verðlag firmans á einstökum
liðum í tilboðinu, svo sem efni,
er hafnarstjórn alveg ókunn-
ugt jafnt og Sig. Jónassyni bæj-
arfulltrúa.
Þór. Kristjánsson.
Leiðrétting hafnarstjórans
snertir raunverulega ekki það,
sem rætt var um á bæjarstjórn-
arfundinum og skýrt þá frá hér
í blaðinu. Verðið á efni því, sem
sænska félagið selur bænum,
getur vel verið hærra en hægt
væri að kaupa það annarsstað-
ar frá, enda þótt einhverjum
dönskum firmum hafi verið gef-
inn kostur á að gera tilboð, og
þeirra tilboð verið hærri en
sænska firmans. Með því að
skýra tilboð sænska firmans í
öllum atriðum opinberlega, ætti
hafnarstjórn að geta bezt bægt
frá allri gagnrýni og sannað
mál sitt á einfaldan hátt.
- Kaup og sala -
ÚRVAL af þýzkum sumar-
kjólaefnum nýkomið. Saumið
sumarkjólinn sjálfar. Kaupið i
kjólinn hjá okkur og þér fáið
hann sniðinn og mátaðann eða
saumaðan alveg með stuttum
fyrirvara. Alltaf, fyrirliggjandi
tilbúnir kjólar og blússur.
Saumastofan Uppsölum,
Aðalstræti 18.
Drengur hrapar
Á sunnudagskvöldið vildi það slys
til í Borgamesi, að sjö ára gamall
drengur, sonur Ingimundar Einarsson-
ar verkamanns, hrapaði fram af 10—15
metra háum kletti og hlaut mjög mikil
meiðsli á höfuðið. Brotnaði höfuðkúp-
an, auk þess sem hann skarst allmikið.
Læknar gerðu þegar að áverkum
drengsins.
Laxfoss var síðan fenginn til þess að
sækja drenginn upp í Borgarnes og
lagði hann af stað héðan klukkan að
ganga ellefu. Þegar suður kom, var
drengurinn fluttur í Landspítalann.
Nýja dagblaðið spurðist fyrir um líð-
an hans í gærkvöldi, og var hann þá
enn því nær meðvitundarlaus.
Síldveiðín að glœðast
(Framhald af 1. síðu.)
og ekkert hafði verið saltað, nema lít-
ilsháttar af reknetabátum. í gærmorg-
un varð dálítið síldarvart við Tjörnes.
Veiðiveður var allgott, austankaldi og
bjartviðri. Um kl. 16 í gær kom eitt
skip til Siglufjarðar með um 400 tn.
síldar til söltunar. Síldin veiddist í
Eyj af j arðarmynni.
Til Húsavíkur kom í fyrrinótt skipið
Liv frá Akureyri, með 550 mál síldar
til bræðslu. Síldin veiddist í Axarfirði.
Síldarverksmiðjan í Húsavík hefir nú
fengið 800 mál síldar alls og átti að
taka til starfa í nótt eða dag.
Vélbáturinn Drífa frá Norðfirði lagði
á land í Raufarhöfn í fyrrinótt um 500
mál af síld. Sild sást vaða í fyrrinótt
fyrir allri Sléttunni með löndum fram
frá Rauðanúp að Raufarhöfn. Torf-
urnar virtust þunnar.
í gær höfðu komið til Skagastrandar
með síld til söltunar Óðinn og Ófeigur
með 250 tunnur, Björn með 300 tn. og
Árni Árnason með um 450 tn. eða sam-
tals 1000 tunnur síldar.
í Sauðárkróki voru saltaðar 900 tn.
síldar á fyrri sólarhring. Þar var í dag
tunnuskip, sem setti á land tómar
tunnur, en tók það, sem saltað hafði
verið af síld, en það eru um 2000 tunn-
ur. Veiðiveður var ágætt í Skagafirði
»Dagur híns þjóð-
ernislega heíðurs«
Morðmgjai* Dollfnss
fá eftirlann!
LONDON:
Tvö hundruð mönnum, sem tóku
þátt í samsærinu gegn Dollfuss ríkis-
kanzlara, var tilkynnt í gær, af yfir-
mönnum nazista, að þeir mættu
treysta því, að þeir yrðu aldrei látnir
líða skort. Vom í fyrradag fjögur ár
liðin frá því, er Dollfuss var myrtur,
og eru samkomur haldnar af því til-
efni og dagurinn kallaður „dagur hins
þjóðernislega heiðurs". — FÚ.
Göring
í Danmörku
Kemur Hitler
þaugað líka?
KAUPM ANN AHÖFN:
Göring, flugmálaráðherra Þýzka-
lands, er sem stendur í sumarleyfi á
einkalystisnekkju sinni. Kom snekkjan
til Kaupmannahafnar í gær og ætlaði
Göring í gærkvöldi að vera viðstaddur
sýningu þýzkra úrvalsleikara á „Ham-
let‘“ eftir Shakespeare, og fer sýningin
fram í Kronborghöll í Helsingör. Víð-
tækar varúöarráðstafanir hafa verið
gerðar í tilefni af þessari heimsókn
hins þýzka ráðherra, lögregluvöröur
aukinn o. s. frv.
Samkvæmt óstaðfestum fregnum, er
Hitler, þýzki ríkisleiðtoginn, sem er
á flugferðalagi í Norður-Þýzkalandi,
væntanlegur til Helsingör, en það er
hæpið, að fregnin hafi við rök að styðj-
ast. — FÚ.
í gær, en engin skip höfðu þó sézt
vestan til í firðinum, að því er frétta-
ritari útvarpsins í Sauðárkróki hermdi.
— FÚ.