Nýja dagblaðið - 04.08.1938, Blaðsíða 4
REYKJAVÍK, 4. ÁGÚST 1938
6. ÁRGANGUR — 176. BLAÐ
X cla,jg e** sidasti endux>nýjiiiia,i^<la,^i£ia
GAMLA BtÓ
Sjóhetjan
Efnisrík og hrífandi sjó-
nannamynd, að mestu
leyti gerð eftir hinu al-
kunna kvæði Þorgeir í Vík.
AÖalhlutverkið leikur hinn
ágæti þýzki „karakter“-
leikari
Iteinrich George.
H
Síðan er fögur sveit.
Fastar áætlunarferðir frá Rvík
að Kirkjubæjarklaustri alla
þriðjudaga. Frá Kirkjubæjar-
klaustri til Reykjavíkur alla
föstudaga. Vandaðar bifreiðar.
Þaulæfðir bílstjórar. Afgr. Bif-
reiðastöð íslands. Sími 1540. —
„Vélin er ástmey mín“
(Framhald af 2. síðu.)
ari og hefi kennt mörgum Ame-
ríkumönnum, en mig hefir allt-
af langað til þess að fljúga yf-
ir Atlantshafið.
Flugvélina, sem ég á núna,
keypti ég fyrir 6 árum síðan.
Ég veit að hún er orðin fullorð-
in, en ég þekki líka hverja ein-
ustu skrúfu, og ég hefi breytt
henni úr fjögra manna flugvél
í eins manns flugvél og nota
farþegarúmið, sem benzín-
geymi.
Mig hefir alltaf langað til þess
að komast í félag amerískra
flugmanna. Ég barðist fyrir því,
vann sem óður maður, að ég
yrði svo vel fær, að ég gæti orð-
ið flugmaður. Það má heita að
ég lifði af skóbótum, til þess að
geta keypt mér flugvél. í fyrra
var mér neitaö um réttindi í fé-
laginu, af því að flugvélin mín
var sögð ófær til flugs!
Þeir sögðu að flugvélin mín
kæmist ekki yfir Atlantshafið.
Ég hefi nú sannað, að hún
komst það. Ég veit ekki hvað
yfirvöldin kunna að segja um
flugför mína, en ég hefi þegar
gefið þeim hina réttu skýringu.
Mér hafa verið boðnir miklir
peningar fyrir flugvélina mína,
en við erum ekki á því að skilja
að svo stöddu. Hún getur ennþá
leyst af hendi mörg góð flug.
Ég hætti lífinu til þess að göm-
ul Wright-vél skyldi fljúga yfir
Atlantshafið, og hún hefir gert
það.
Ég er ekki ásthrifinn af neinni
konu, en ég ann vélum. Ég
hefi hætt lífi mínu í þessari
vél og hún sveik mig ekki. Ég
vil ekki að vélin mín fúni á
safni. Hún á ennþá um nokk-
ur ár heima meðal skýjanna og
hún á að vera annað og meira
en augnagaman gónandi
manna.
Xtappdrættíd.
IHiistsý'nimg
Bandalags íslenzkra llstamanna
í Mtðbæjarskólanum veróur op-
in í síðasta slnn föstudaginn 5.
ágúst.
VERÐ VIÐTÆKJA ER LÆGRA HER A
LANDI, EN I ÖÐRUM LÖNDUM ALF-
UNNAR.
Viðtækjsverzlunln veitlr kaupendum viOtækja melri
tryggingu um hagkvæm viðskipti en nokkur önnur
verzlun mundl gera, þegar bilanlr koma fram í tækj-
unum eða óhöpp bera að höndum.
Ágóða Vlðtækjaverzlunarinnar er lögum samkvæmt
eingöngu varlð til reksturs útvarpsins, almennrar út-
breiðslu þess og tll hagsbóta útvarpsnotendum.
Takmarkið er: Viðtæki inn á hvert hclmili.
Víðtækjaverzhm ríkísins
Lækjargötu 10 B. Símí 3823.
Kj arnar — (Essensar)
Böfum birgðir af ýmiskon-
ar kjörnnm til iðnaðar. —
Afengisverzlun
RlKISINS
Breytingar á lög-
reglusam þykktinni
Börnum bönnuÖ útfivera
eftir klukkan 8 á kvöldin
yfir vetrarmánuðina
Blíicher víll stríð
(Frh. af 1. síðu.)
Evrópu, hversu vígbúnaðurinn
er stórkostlegur í Austur-Sibiriu.
Það má sannarlega líkja allri
Austur-Sibiriu við herbúðir.
Landamærin líkjast helzt víg-
línum. Þar eru gaddavírsgirð-
ingar og skotgrafir og stöðugt
kveða við dunurnar og hvellirnir
frá æfingum rússneska stór-
skotaliðsins.
í sumar hefir verið erfitt að
komast með járnbraut frá Mosk-
va til Vladivostok. Vagnarnir
hafa verið fullir af hermönnum.
Austur-Sibiria minnir nú helzt
á vígstöðvar.
r
Ur Rangárvallasýslu
Fyrra hluta júlímánaðar var
veðrátta þurrviðrasöm en hlý-
indalítil, svo að grassprettu
seinkaði. Var þess vegna víðast
hvar ekki byrjað að slá fyrr en
um og eftir miðjan mánuðinn.
En með sláttarbyrjun komu hlý-
indi með nokkurri úrkomu, svo
að tún urðu vel sprottin. Um
miðjan júlímánuð náðu þeir, er
fyrst byrjuðu að slá, nokkru inn
af grænni töðu, en síðan hefir
verið óþurrkur og lítið náðzt inn
af heyi, þangað til nú um mán-
aðamótin að góður þurrkur kom
og mikið náðist saman. Gras-
spretta á útengi er þannig, að
valllendisjörð er allvel sprottin
víðasthvar, en mýrlendi allt
miklu lakar sprottið, bæði á-
veituengi og annað votengi. FÚ.
Kvenfé!. Fljótshlíðar
15 ára
Kvenfélag Fljótshlíðar hélt hátíð-
legt 15 ára afmæli sitt 24. júní síðast-
liðinn í samkomuhúsi sveitarinnar.
Formaður félagsins setti samkomuna
og skýrði frá starfsemi félagsins, en
markmið þess er að efla menntun og
menningu í sveitinni og beita sér fyrir
alþýðufræðslu, bóklegri og verklegri,
heilbrigðismálum og ýmsu fleiru. Þá
hefir félagið gengizt fyrir jólatrés-
skemmtunum fyrir börn og gamal-
menni. Ljósahjálma, er kostuðu 1000
krónur, hefir félagið gefið í Hlíðar-
endakirkju og Breiðabólstaðarkirkju.
og á annað þúsund krónum hefir það
varið til glaðnings og hjálpar fátækum
gamalmennum. Loks hefir félagið haft
hjálparstúlku, og hefir hún verið þar,
sem veikindi hafa komið og erfiðar á-
stæður verið. Sjóðir félagsins eru nú
kr. 3657.00.
í tilefni af þessu afmæli félagsins
voru 4 konur kjörnar heiðursfélagar:
fyrst stofnendur og stjórnendur þess,
þær Guðrún Hermannsdóttir frá
Breiðabólstað, Sigríður Jónsdóttir, Ey-
vindarmúla, Guðbjörg Þorleifsdóttir,
Múlakoti og Ragnheiður Pálsdóttir,
Sámsstöðum. Voru þær heiðursgestir
á samkomunni. Guðmundur Erlends-
son hreppstjóri á Núpi, tók til máls
og lýsti ánægju sinni yfir því mann-
úðar- og menningarstarfi, sem félagið
hefir unnið á undanförnum árum. —
Skemmtu félagskonur og gestir þeirra
sér við samræður, söng og dans fram
Á bæjarstjórnarfundi í dag
eru til 2. umræðu breytingar á
lögreglusamþykktinni. Flestar
breytingarnar eru viðkomandi
umferðinni. Þá er lagt til að eft-
irfarandi ákvæði verið sett um
aðgang unglinga að opinberum
skemmtistöðum og útiveru,barna
á kvöldin:
„Unglingum innan við 16 ára
aldur er óheimill aðgangur að
almennum knattborðsstofum,
dansstöðum og öldrykkjustofum.
Þeim er og óheimill aðgangur að
almennum kaffistofum eftir kl.
20, nema í fylgd með fullorðnum,
sem ber ábyrgð á þeim. Eigend-
um og umsjónarmönnum þess-
ara stofnana ber að sjá um, að
yfir miðnætti. Stjórn félagsins skipa
nú: Formaður Guðríður Jónsdóttir,
Hlíðarendakoti, ritari Ragnheiður Ni-
kulásdóttir, Sámsstöðum, gjaldkeri
unglingar fái þar ekki aðgang
né hafist þar við.
Börn, yngri en 12 ára, mega
ekki vera á almannafæri seinna
en kl. 20 á tímabilinu frá 1. októ-
ber til 1. maí og ekki seinna en
22 frá 1. maí til 1. október, nema
í fylgd með fullorðnum.
Börn frá 12—14 ára mega ekki
vera á almannafæri seinna en
kl. 22 á tímabilinu frá 1. október
til 1. maí og ekki seinna en kl.
23 frá 1. maí til 1. október, nema
í fylgd með fullorðnum.
Foreldrar eða ' húsbændur
barnanna skulu, að viðlögðum
sektum, sjá um að ákvæðum
þessum sé framfylgt."
Telja má víst að þessar tillög-
ur verði samþykktar af bæjar-
stjórninni.
Ingilaug Teitsdóttir, Tungu og með-
stjórnendur Guðrún Pétursdóttir, Núpi,
Guðbjörg Ólafsdóttir, Litla-Kollabæ og
Guðný Guðnadóttir, Torfastöðum. FÚ.
N Ý J
R I Ú
Zigöjna-
prínsessan
Heillandi fögur og skemmti
leg ensk kvikmynd, er ger-
ist á írlandi árin 1889 og
1936. Öll myndin er tekin í
eðlilegum Iitlum, „Techni-
color“.
Aðalhlutverkin leika:
Ænnahella,
Henry Fondu,
Stensart Rome
o. fl.
aðeins Loftur.
Sigur Francos er aukin
hætta fyrir Tékkoslo-
vakíu.
(Framhald af 3. síðu.)
hverjum 100 sigrum Francos við
hjálp hinna erlendu hersveita
og sérfræðinga. Hér við bætist
eitt enn, sem útlendingar vita
ógerla um. Franco hefir orðið
að þiggja að láni því nær öll
þau hergögn, sem hann hefir
fengið frá Þýzkalandi og Ítalíu.
Lánaupphæðin mun nú nema
meira en tuttugu milljónum
sterlingspunda. Enskir frétta-
ritarar á Spáni hafa sent skeyti
um það, að ítalir og Þjóðverjar
hafi lagt hald á ýms verðmæti,
námur, olíuekrur og margt ann-
að, sem Francos-stjórnin á ráð
á. Með þessu lagi hefir liðveizl-
an frá Þjóðverjum og ítölum
fengið á sig, í augum Spánverja,
meiri blæ síngirni og ágengni,
heldur en vináttu. Þegar stríð-
inu lýkur, hlýtur fólkið að
leggjast fast á móti varanlegu
bandalagi við þessar þjóðir.
Samt sem áður myndi áhrif-
in af sigri Francos styrkja að-
stöðu Hitlers og Mussolinis
fyrst um sinn. Evrópa má vera
við því búin, að fyrsta afleið-
ingin af slíkum endalokum
Spánarstríðsins yrðu harðari
kostir af Þjóðverja hálfu í garð
Tékka. En hvernig fer þá um
framhaldið? Munu Tékkar berj-
ast til þrautar, hvað sem liður
efndum á gefnum loforðum um
liðstyrk? Á því veltur framtíð-
in, en máske þó öllu heldur
hvernig Hitler býst við, að mál-
in muni snúast.