Nýja dagblaðið - 12.08.1938, Síða 1

Nýja dagblaðið - 12.08.1938, Síða 1
í ♦ ANNÁLL r^miA ID/S\G*IBILÍSMÐIHÐ 6. ár Reykjavík, föstudaginn 12. ágúst 1938. 183. blað Heimsókn ensku skátanna Vopnahlé millí Japana og Rússa Sérsíök ncfnd fær á- greimngsmál þeirra íil úrlausnar. Um 570 manns tóku þátt í austurförínni Baden-Powell lávarSur treystist ekki til landgöngu Skátaskipið Orduna kom til Reykjavíkur á tíunda tímanum í gærmorgun og varpaði akkerum á ytri höfninni. Safnaðist bráð- lega saman fjöldi fólks við steinbryp-p-iuna, þar sem skátaforingjarnir áttu að stíga á land, en íslenzku skátarnir stóðu í tveim röð- um á bryggjunni, kvenskát- ar öðru megin en drengir hinu megin. Að stundu liðinni komu hinir útlendu gestir í land, þar á með- al lafði Baden-Powell og dóttir hennar, en Baden-Powell lávarö- ur sjálfur treystist ekki, sökum vanheilsu, til landgöngu. Var búizt við, að hann myndi koma í land síðar í gær, en af því varð þó 'ekki. Umhverfis Austurvöll biðu um þrjátíu stórar bifreiðar, er flytja skyldu, skátana austur að Geysi. Gengu þeir þangað jafnóðum og þeir komu i land. Drógst burtför bifreiðanna þar til klukkan að ganga tólf. Voru þátttakendur í förinni alls um 570, þar af á annað hundrað íslendingar. Einnig voru farnar ferðir að Sogsfossum og Þingvöllum og tóku þátt í þeim ferðum ca. 70 manns. Veður var dágott, en þó ekki í bezta lagi. Sólskin var öðru hvoru, en þokubakkar á fjöllun- um og dimmir skýjaflókar á lofti hér og þar. Skátarnir gerðu ráð fyrir að koma til Þingvalla í gærkvöldi seint, og komu þeir flestir þang- að á tímanum frá kl. 10—11. Var þar áð í tjaldborg kven- skátanna og setið þar lengi kvölds við langelda. Seint í gær- kvöldi komu skátarnir til Reykjavíkur. Verður nánar skýrt frá aust- urförinni síðar. í dag fyrir hádegi munu skát- arnir skoða Reykjavík, en skip þeirra leggur úr höfn úr hádegi. Mikil síld Gott veiðíveður FÚ 1 gærkvöldi: Norðanlands hefir verið mikil sild síðasta sólarhring og veiðiveður gott. Hjá ríkisverksmiðjunum í Siglufirði hafa 32 skip affermt frá hádegi í gær til nóns í dag samtals 12.000 mál af síld. Mikið af þessu var afgangssíld frá söltun. Veiðin var mest við Tjör- nes og í Skjálfanda í gær. Var þá afar- mikil síld á þeim slóðum. Veiðiveður var gott, en um tíma var þokubræla. Einnig hefir fengizt allmikil síld út af Siglufirði og Haganesvík. Söltun í Siglufirði var í gær 9.106 tunnur — þar af 3462 tunnur matjessíld og 834 tunn- ur reknetasíld af 19 bátum. Rekneta- veiðin er misjöfn, frá 7 til 104 tunnur á bát. Til Hjalteyrar komu í nótt og í morgun 9 skip með samtals 10.000 mál síldar. Veiddist hún út af Eyjafirði, Haganesvík og Skjálfanda. Síldarverk- smiðjan á Hjalteyri hefir nú tekið við 135.000 málum síldar alls. Síldarverksmiðja Kveldúlfs á Hest- eyri hefir veitt viðtöku 23.000 málum af síld. Þórólfur kom til Hesteyrar í morgun með 2300 mál, en þá voru tveir aðrir togarar á leið þangað með full- fermi. í Raufarhöfn lönduðu í gær 5 skip samtals 3750 mál. Verksmiðjan hefir fengið alls 22.850 mál. Togarinn Brimir affermdi í gær í Norðfirði 18—19000 mál af bræðslusíld, sem veiddist við Tjörnes. — FÚ. Verða Olympíuleík- arnír haldnír í Nor- Umhyggja Vísís íyrír spönsku stjórnínni Blaðið áfellir fjár- málaráðherra fyrir 224. dagur ársins. Sólaruppkoma kl. 4.10. Sólarlag kl. 9.18. Árdegisháflæður í Reykjavík kl. 5.55. Næturlæknir er í nótt Gísli Pálsson, Laugaveg 15, sími 2474. Næturvörður er í Lyfjabúð- inni Iðunni og Reykjavíkur Apóteki. Dagskrá útvarpsins: 10.00 Veðurfr. 12.00 Hádegisútvarp. 15.00 Veðurfr. 19.10 Veðurfr. 19.20 Hljómplötur: Norskir söngvar. 19.40 Auglýsingar. 19.50 Fréttir. 20.15 Erindi: Um samlíf plantnanna, II. (Steindór Steindórsson menntask.kennari). 20.40 Strokkvartett útvarpsins leikur. 21.05 Hljómlötur: a) Sönglög eftir Brahms. b) Harmonikulög. Skipafréttir. ^ Súðin var á Patreksfirði í gærkvöldi. Esja fer frá Glasgow í dag áleiðis til landsins. Gullfoss var í Reykjavík í gær. Goðafoss fór í fyrrakvöld frá Leith áleiðis til Hamborgar. Brúarfoss kom til Leith í gær. Dettifoss fór vestur og norður í gærkvöldi. Lagarfoss er í Kaupmannahöfn. Selfoss er í Rvík. Tvær fólksbifreiðar rákust á um hádegið í gær á mótum Ægisgötu og Ránargötu. Báðar bifreið- arnar skemmdust. j&Útvarpsstjóri hefir óskað eftir gjafsókn í meið- yríamáli því, sem hann ætlar að höfða gegn Jórunni Jónsdóttur og ritstjóra Vísis. Vitanlega verður sú beiðni ekki tekin til greina. Úr Stöðvarfirði er símað, að þar hafi verið stöðugir þurrkar síðustu 10 daga, hitar miklir og heyskapartíð góð. Síðustu þrjár vikur hafa suðvestanvindar hamlað róðrum, en fiskafli á smábáta er þó orðinn álíka mikill og samtals á árinu sem leið. — FÚ. Ríkisútvarpinu hafa borizt fjöldamargar úrklippur úr Norðurlandablöðunum um opnun nýju útvarpsstöðvarinnar. í helztu blöðum Norðurlanda var getið fyrir- fram um, hvernig athöfninni yrði hag- að og að henni yrði endurvarpað af danska ríkisútvarpinu. Blöðin skýra meðal annars frá stofnun útvarpsins hér á landi og hver nauðsyn rak til að orka stöðvarinnar var aukin. „Hin nýja sendistöð hefir 100 kw. orku, segir Aft- enposten t. d., „og er bylgjulengdin 1442 metrar og mun heyrast til stöðv- arinnar í flestum löndum álfunnar." Huvudstadsbladet í Helsingfors á Finn- landi býst við, að heyrast muni til stöðvarinnar á Finnlandi. Að sjálf- sögðu birtust ýtarlegri frásagnir í blöð- unum, er opnun stöðvarinnar var um garð gengin. Verður blöðunum, sem verða mátti, tíðrætt um það, að krón- prinshjónin sýndu útvarinu og íslenzk- um útvarpshlustendum þann heiður, að vera viðstödd athöfnina. Krónprinsess- an með því að hleypa orkunni á vél- arnar og ríkiserfingi með því að vígja stöðina og ávarpa útvarpshlustendur á íslenzku. í Reykjavíkurskeyti til Ritzau fréttastofunnar segir, að íslenzkir út- varpshlustendur dáist að því, hversu ríkiserfinginn hafi borið islenzkt mál vel fram. — FÚ. Þýzki fáninn blakti einn erlendra fána á Hótel Borg í gær, þegar ensku skátarnir voru að leggja af stað í austurförina frá Austurvelli. Þótti mörgum þetta óviðkunnanlegt, sem von er, enda létu sumir Englendingarnir orð falla á þá leið, að þeir skildu ekki hversvegna verið væri að hampa hakakrossfánan- um sérstaklega. Ekki minni undrun vakti það meðal þeirra, að sjá og heyra þýzka sjóliða ganga fylktu liði um göt- ur bæjarins og syngja fullum hálsi nazistasöngva. Knattspyrnukappleikur fór fram í gærkvöldi á íþróttavellin- um milli Vals og skipverja af þýzka herskipinu Emden. Fóru leikar svo, að Valur vann með 5 mörkum gegn einu. LONDON. Á hádegi í gær hættu bardagarnir milli Japana og Rússa, á vígstöðvun- um við Chang-ku-feng, samkvæmt samkomulagi því, er náðist í Moskva í fyrrakvöld, um vopnahlésskilmála. Hvor aðili um sig heldur því landi, sem hann hafði fyrra miðnætti. Báðir deiluaðilar virðast eftir atvikum una þessum úrslitum vel. Japanir hafa frá upphafi deilunnar verið því fylgjandi, að nefnd væri ski- puð til þess að taka ágreiningsmálið til meðferðar, þótt eigi hafi náðzt sam- komulag um það fyrr en nú, hvernig nefndin skyldi skipuð, en Rússar tóku að lokum aftur þá kröfu sína, að nefndarmenn skyldu vera fimm og fimmti maðurinn Rússi, og voru því í nefndinni tveir Japanir og tveir Rúss- ar. Þessi tilslökun Rússa hafði góð áhrif og stuðlaði að því að samkomulag náðist, Um Rússa er það að segja, að þeir. una því og vel, að samkomulag náðist, þar sem þeir hafa náð því landsvæði, sem um var barizt, en Litvinoff hefir alltaf haldið því fram, að það væri höfuðskilyrði af Rússa hálfu, að Jap- anir hyrfi á brott með her sinn frá Chang-ku-feng. Hermenn beggja aðila hættu skot- árásum sínum nákvæmlega á tiltekn- um tíma. Sumstaðar er mjög stutt milli skotgrafa þeirra, aðeins 50—60 metrar. Þótt samkomulag þetta hafi náðzt og vopnaviðskipti séu hætt, er ástæða til að minna á það, að hér er aðeins um að ræða samkomulag um vopnahlé, en ekki deilumálið sjálft. Allt er nú undir þvi komið, hver árang- urinn verður af störfum nefndar þeirr- ar, sem skipuö var. — FÚ. Broltflufnmgur sjálfboðalíðanna Franco heflr enn ekkl svarað til- lögum lilutleysis- nefndarinnar. LONDON: Spánarmálin eru enn mjög mikið rædd, aðaliega með tilliti til þess, að stjórnin í Burgos hefir dregið að til- kynna hvort hún muni fallast á til- lögur hlutleysisnefndarinnar um brott- flutning sjálfboðaliða, en spánska stjórnin hefir fyrir alllöngu fallizt á þær. Hefir sendiherra Breta í Róma- borg rætt þetta mál við ítalska utan- ríkismálaráðherrann og bent honum á, að því sé haldið fram í Frakklandi, að ítalir haldi áfram að styðja Franco með liðsendingum, og það hafi bakað frakknesku stjórninni erfiðleika, þar sem hún er vítt fyrir að hafa lokað spánsk-frönsku landamærunum fyrir hergagnaflutningi frá Frakklandi. Utanríkismálaráðh. spánsku stjórn- arinnar, Del Vayo, hefir bent á það að Franco hafi notað tímann meðan hann dró að svara, til þess að draga að sér miklar hergagnabirgðir. Fulltrúi Breta í Burgos, Sir Robert Hodgson, hefir spurt stjórn Francos um, hvenær hún muni tilkynna af- stöðu sína til tillagnanna. Mun stjórn Francos hafa svaraö því, að drátturinn stafi ekki af skorti á góðum vilja, held- ur þvi, hversu flókið og vafasamt mál sé um að ræða. — FÚ. egí og Fínnlandí ? Norðmenn og Finnar tjá sig fúsa að taka að sér að halda leikana Þann 14. júlí sl. tilkynnti heilbrigðis- málarálherrann japanski að hætt væri við að halda Olympíu-leikana í Tokio árið 1940. Daginn eftir staðfesti stjórnin þetta á sameiginlegum ráð- herrafundi. Og siðan var lagt bann við þvi, að japanskir íþróttamenn tækju (Framh. á 4. síöu.) pao. sem paO lietir sjálft gert Fyrir nokkru birtist viðtal við Ey- stein Jónsson fjármálaráðherra í danska blaðinu „Politiken“. Var við- talið mjög ýkt og ýmislegt haft eftir ráðherranum, sem hann hafði ekki sagt. Viðtal þetta heflr því orðið íhalds- blöðunum nokkurt huggunarefni í raunum þeirra út af erindislokum Pét- urs borgarstjóra og játningum Knúts Arngrímssonar. Hafa þau bæði gert það að umtalsefni og snúið út úr því á sinn venjulega hátt. Vísir gengur þó öllu lengra í ósvifn- inni. í „Politiken" var þess getið í sambandi við viðtalið, að íslendingar hefðu selt spönsku stjórninni saltfisk. Segir Vísir að þessar upplýsingar séu auðvitað frá ráðherranum og hafl hann með þessu „fleipri sínu“ vel getað orðið þess valdandi, að Franco létl halda uppi njósnum um flutninga salt- fiskjarins héðan, og stjórnin fengi hann þá aldrei! Þessi umhyggja Vísis fyrir spönsku stjórninni er alveg ný og myndi heldur ekki eiga sér staff undir öffrum kring- umstæðum. Menn muna t. d. ekki eftir því, að Vísir léti það nokkuff átalið, þó Morg- unblaðið skýrði strax frá þessari fisk- sölu og frá henni var gengið, enda sagði Vísir sjálfur frá henni athuga- semdalaust. Sýnir það bezt, hversu lítil alvara býr á bak við þessi skrif, þar sem ráðherrann er áfelldur fyrir það, sem blaðið hefir sjálft gert. Vígbúnaður Þjóðverja Uimlð kappsamlcga að eflingu víggirð- inga á landamærun- um. LRP: Síðustu fregnir um stórkostlegan hernaðarundirbúning Þjóðverja hafa ekkí farið fram hjá stjórnmálamönn- um í London, segir i Reutersfrétt, og hafa þessar fréttir einnig valdiff tals- verðum óróa meðal þýzkra manna á landamærasvæðunum. Tali(a er að fjöldi manna vinni nú að því aff styrkja víggirðingamar, bæði á austur- og vesturlandamærum Þýzkalands. T. d. er talið að á þýzk-frönsku landamær- unum vinni allt að 50 þúsund manns í þessu skyni, en þessi tala, segir Reu- ter, er vafalaust of lág, þegar þess er gætt, að fjöldi manna vinnur að skyld- um störfum, sem einnig eru í þjón- ustu hemaffarundirbúningsins. Þá er og á gjörvöllum landamærasvæðum þýzka ríkisins unnið mjög að því að bæta vegakerfið og öll flutningatæki og vinnur aff því fjöldi manns. — FÚ.

x

Nýja dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.