Nýja dagblaðið - 14.08.1938, Page 4

Nýja dagblaðið - 14.08.1938, Page 4
REYKJAVÍK, 14. ÁGÚST 1938 NYJA DAGBLAÐIÐ 6. ARGANGUR — 185. BLAÐ »4 GAIHLLA BtO Scipío Afrícanus Hin heimsfræga ítalska sögulega kvikmynd um hershöfðingjana úr 2. nún- verska stríðinu, Scipio og Hannibal. — Heimsblöðin kalla myndina „stórkost- legustu kvikmynd heims- ins. Börn fá ekki aðgang. Sýnd í kvöld kl. 7 og 9. Á albýðusýninp-u kl. 5: Franska gamanmyndin Atvinmileysmgiim Jórunnarmálíð Þáttur meðhjálparanna (Framhald af 3. síðu.) sjálfri, því ekki er hægt að láta unga stúlku gera sig öllu ber- ari að ósæmilegum og óviðeig- andi hugsunarhætti en með því að bjóðast til að þegja um ást- leitnisafbrot karlmanns gegn einhverjum fríðindum, eins og t. d. betri stöðu. Hvernig, sem málið er rætt og rakið, verður því hlutur þeirra manna verstur og sið- lausastur, sem hafa ýtt undir stúlkuna að kæra á ÞENNAN veg og bera að líkindum aðalá- byrgðina á þessu framferði hennar. Enn þá óveglegri verður líka hlutur þessara manna, þegar það er athugað, að þeir hafa auðsjáanlega hvatt stúlkuna til að reyna að fá málið þannig leyst í kyrþey, í þeim tilgangi, að geta síðar notað kæruna í baktjaldahernaði gegn útvarps- stjóranum. Á því og öðru er augljóst, að þeir hafa litið á heiður og virðingu stúlkunnar sem aukaatriði, en aðalatriðið hefir verið að geta notað hana sem vopn gegn útvarpsstjór- anum á sem lævíslegastan hátt. Og enn ljótara og leiðinlegra verður þó þetta mál, þegar blöð íhaldsmanna og socialista ganga í einskonar fóstbræðralag um það, að æsa upp almenningsálit- ið gegn útvarpsstjóra fyrir um- rædd formsbrot hans, áður en málið er dæmt og upplýst, og reyna jafnframt að nota málið til svívirðilegra árása á dóms- málaráðherrann fyrir það eitt, að hann hefir nú sem endranær fylgt reglu ábyrgra valdhafa, að dæma ekki í óupplýstu máli. Kórónuna á hina svívirðilegu málafærslu má þó telja það, þeg- ar menn eins og Kristján Guð- laugsson og Árni frá Múla eru látnir telja sig þess umkomna, að geta prédikað um „siðgæði og göfugmennsku“ í sambandi við þetta mál og láta á sér bera eins og þeir séu Mnir einu menn, sem hafi fortíð til að fylgja reglunni: Sá yðar, sem syndlaus er, kasti fyrsta steininum. Samt getur verið að menn eigi enn eftir að sjá það, sem verða myndi ódrengilegasti þáttur málsins. Það væri það, ef þeir menn, sem staðið hafa á bak við stúlkuna og töldu hana á þetta, i stað þess að vara hana við að fara þessa leið, reyndu er til kæmi að laumast undan á- byrgðinni af verkum sínum og létu hið óreynda stúlkubarn standa eitt uppi, þegar út í ófær- una er komið. En um það skulu engar full- yrðingar hafðar. Úr því verður tíminn að skera. Þ. Þ. Námsierill einvaldanna (Framhald af 2. síðu.) dæmið um það, hvernig Musso- lini getur algerlega skipt um látbragð og skoðanir. Það má svo heita, að hann hafi í flestum málum, farið heilan hring. Mussolini varð þó ekki lang- lífur í kennarastarfinu. Hann gerðist ritstjóri að tímariti, sem socialistar gáfu út, og var dæmd- ur í nokkurra mánaða fangelsi fyrir áróður gegn herferð ítala í Tripolis. Annar einvaldsherra, Stalin, var eitt sinn á prestaskóla. Faðir hans var skósmiður i Georgiu, mjög svo frómur maður. Hann hafði ákveðið að sonur sinn skyldi verða prestur, þótt það kostaði fjölskylduna mikla erfið- leika. Josep litli Dzjugasvili, en það er hið rétta nafn Stalins, var innritaður í klausturskóla í Gori og var þar til 14 ára aldurs, en fór síðar í prestaskóla í Tiflis. Stalin stundaði nám sitt vel, og menn bjuggust við að hann ætti góða framtíð fyrir sér sem prest- ur. Tveim árum áður en hann skyldi ljúka prófi, var hann rek- inn úr skólanum fyrir byltinga- áróður, og þar með var náminu lokið. Þessum áróðri var ekki beint gegn stjórn landsins sér- staklega, heldur fyrst og fremst gegn því, hvernig Rússar inn- limuðu Georgiu, og fjölluðu um mál hennar. Brottreksturinn úr skólanum var upphafið að bar- áttu Stalins fyrir byltingunni. Um skólaár Hitlers er fremur lítið að segja. Hann var, á æsku- árum sinum, svo áfjáður í að teikna og mála, að hann gaf sér mjög lítinn tíma til náms. Faðir hans var tollþjónn, stundaði starf sitt með skyldurækni og vildi að sorjur sinn yrði einnig starfsmaður ríkisins. Hann lézt, þegar Hitler var 13 ára. Hitler fékk nú meira tóm til teikninga en áður, og lagði af stað til Vin, þegar hann var 18 ára, til þess að komast að við listaháskólann. Það virðist þó svo, að teikningar þær, er Hitler hafði með sér, hafi alls ekki þótt mikils virði. Honum var að minnsta kosti neitað um inn- göngu í skólann. Hann reyndi þá fyrir sér við byggingaverk- fræði, en fékk ekki aðgang þar heldur. Þetta andstreymi bugaði Hit- ler næstum alveg, og hann átti um tíma mjög erfiða daga. Hann varð að vinna fyrir sér með í- hlaupavinnu, sendiferðum og því líku. Franco verður hér talinn með einræðisherrunum, þótt hann ráði ekki yfir nema nokkru af föðurlandi sínu, a. m. k. ennþá. Verðlag á kartöflum. Eliis og iindaiifarln ár, verður verðlag' á kartöflum á komandi hausti ekki á- kveðið fyrr en uui miðjan septemb. Hins- vegar er því eimlregið beint til bænda að halda framboði á nýjuni kartöflum svo í hófi, að verðlag til ágástloka geti haldizt kr. 36.00—40.00 pr. 100 kg., eftir gæðuin vörunnar. Verðlagsnefnd Grænmetís- verzlunar ríkísíns. Saltkjöt af veturgömlu fé Nokkrar 1/2 og 14 tunnur seljast næstu daga. Kjötið hefir verið geymt í hœlirínni oy er eins yott oy á verður hosið. Samband ísl, samvinnufélaga Síini 1080. Kjarnar — (Essensar) Höfum birgðir af ýmiskon- ar kjörnum til iðnaðar. — AFENGISVERZLUN RÍKISINS ■■V.V.W.'.VAV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V ■■-■-■-■-vav/AWVAV.V.V.V.'.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.VV .■.v.w.w.v.wv.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.w.v/av.v.w .V.WV.V.VAV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.’' THE WORLD'S GOOD NEWS wlll come to your home every day through THE CHRISTIAN SCIENCE MONITOR An International Daily Netvspaper It records for you the world’s clean, constructlve doings. The Monltor does not exploit crime or sensation; neither does it ignore them, but deals correctively with them'''Features for busy men and all the family, including the Weekly Magazine Section. The Christian Science Publishing Society One, Norway Street, Boston, Massachusetts Please enter my subscription to The Christian Science Monitor for a period of 1 year $12.00 6 months $6.00 3 months $3.00 1 month $1.00 Wednesday issue, including Magazine Section: 1 year $2.60. 6 issues 26o P Name____ Address. Sarnþle Coþy on Request Uppeldi hans virðist hafa verið nokkuð á annan hátt en hinna einvaldanna. Forfeður hans voru hermenn; gekk hann í klaustur- skóla til tólf ára aldurs, en inn- ritaðist síðan í liðsforingjaskól- ann. Franco vildi verða sjóliðs- foringi, en þá kom í ljós, að ekki var mögulegt að bæta nemend- um við þá deild skólans, svo að hann hvarf til herforingjaskól- ans í Toledo. Franco þótti í bernsku nokkuð meirgeðja, en það eltist af honum og hann harðnaði með árunum. Það er sagt um hann, að hann hafi eitt sinn heimsótt systur sína, þar sem hún var að leika sér. Hún lézt vera furstaefni og þóttist vera að brennimerkja þræla sína. Hún tók allt í einu nál, hélt _ henni yfir eldinum, svo að hún varð rauðglóandi, og rak hana síðan í hendi bróður síns. Fran- cisco litli kippti hendinni ekki undan, þótt .bold handarinnar sviðnaði, svo að brunalyktina lagði af. Hann sagði aðeins: „Óg- urlega er vond lykt af brenndu kjöti.“ Þessi saga hefir verið birt í öllum fasistablöðum á Spáni, en hún er nú máske ýkt. Einvald- arnir hafa ætíð verið ráðagóðir, þegar þeir hafa þurft að útbreiða sinn eigin hróður. N Ý J A B í Ó IÞrælaskipið Amerísk kvikmynd frá Fox ; félaginu, er byggist á ýms- ;; um sögulegum viðburðum, : er gerðust á síðustu árum þrælaflutninganna frá Af- ; ríku til Ameríku. Aðalhlutverkin leika WARNER BAXTER, ELIZABETH ALLEN, WALLACE BEERY og hinn 14 ára gamli af- : burðaleikari MICKEY ROONEY : | Aukamynd: ITalmyndafréttir frá Fox. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Lækkað verð kl. 5. Börn fá ekki aðgang. Beztu kolín Síinar: 1964 og 4017. Nautgripasýiiingar (Framháld a) 1. slðu.) að hún hefir alstaðar verið seinni en venjulega, svo að munað hefir sem nemur tveim eða þrem vikum. Sum- staðar verður sprettan aldrei góð i ár, t. a. m. á Hólsfjöllum, Borgarfirði eystra, Skeggjastaðahreppi og nyrzt í Norður-Þingeyjarsýslu. Sláttur hófst seint. í Skeggjastaöahreppnum og Borgarfirðinum var verið að byrja að slá í þann mund, sem ég var þar á ferð í byrjun ágústmánaðar. Túnaslætti er víðast lokið, nema þá þar sem allra seinast var byrjað, og hefir nýting töðunnar orðið ágæt norð- anlands og austan, aðeins volgnað í hjá þeim, sem verið hafa helzt til bráðir á sér um hirðingu. Nýyrkja var á þessum slóðum svip- uð í ár og verið hefir að undanförnu. Eg veitti því athygli á ferðum mínum, að Eyfirðingar og Norður-Þingeyingar vanda betur til nýræktar sinnar en almennt er gert í öðrum héruðum og munu þeir því ná hinum bezta árangri, ekki hvað sízt, þegar fram í sækir. Fiskafli hefir verið dágóður á Aust- urlandi og Norðurlandi i vor og sumar, hinn langbezti um langt árabil. Má vænta mjög þolanlegs árangurs af smábátaútgerðinni á verstöðvunum þar. Á undanförnum árum hefir veiðin verið ákaflega treg og tilfinnanlegur halli á rekstri bátanna. Óeirðin í Shanghai. (Frh. af 1. síðu.) unum að alþjóðahverfinu. Brezki herforinginn þar hefir mót- mælt þessu harðlega og hótað sams- konar gagnráðstöfunum af hálfu her- Uðsins. Æsingar eru miklar meðal Kínverja í borginni. — FÚ.

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.