Nýja dagblaðið - 16.08.1938, Side 1
6. ár
Reykjavík, þriðjudaginn 16. ágúst 1938.
186. blað
ANN ÁLL
228. dagur ársins.
Sólarupprás kl. 4,20. Sólarlag kl. 8,40.
Árdegisháflæður í Reykjavík kl. 8,15.
Næturlæknir
er í nótt Kjartan Ólafsson, Lækjar-
götu 6B, slmi 2614. — Næturvörður
er í Ingólfsapóteki og Laugavegs-
apóteki.
Dagskrá útvarpsins:
10.00 Veðurfr. 12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfr. 19.10 Veðurfr. 19,20
Hljómplötur: Sönglög úr tónfilmmn.
19.40 Auglýsingar. 19.50 Fréttir. 20.15
Erindi: Loðdýraræktin (H J. Hólmjárn
forstjóri). 20.40 Hljómplötur: a) Fiðlu
konsert eftir Max Bruch. b) Pianókon-
semt nr. 1, eftir Tschaikowsky. c) Lög
úr óperum.
Jósef Jónsson
fyrrum bóndi að Melum andaðist í
fyrrakvöld.
í bifreið yfir Axarfjarðarheiði.
Guðmundur Jónasson frá Múla í
Húnavatnssýslu ók síðastliðinn föstu-
dag yfir Axarfjarðarheiði í vörubifreið,
hlaðinn simastaurum nokkurn hluta
leiðarinnar. Með honum voru Guð-
mundur Jónasson símalagningamaður
úr Reykjavík og Friðjón Jónsson í
Hrauntanga. Fór þeir frá Efri-Hólum
i Núpasveit og voru sjö klukkustundir
til Þórshafnar. Af þessari hefir all-
langur spölur ekki verið farinn fyrr.
á blfreið. Ferðln gekk þó greiðlega.
Sundmeistaramóti Evrópu
sem háð var i Wembley, lauk á laug-
ardaginn. Aðeins nfu þjóðir tóku þátt
í þeim sundum, sem íslendingarnir
tóku þátt í, íslendineamar komust
ekki 1 úrslitakeppni, en Ingi Sveins-
son tók þátt i aukakeppni og varð
þar þriðji og á undan Hollendingum
Gerkens.
Sundmót Norðlendingafjórðungs
hófst þann 13. þ. m. og er háð i sund-
laug Akureyrar. Aðeins tvö félög, sund-
félagið Grettir og iþróttafélaglð Þór,
bæði á Akureyrl, taka þátt i mótinu.
— Mótinu er ekki lokið enn, en mikla
athygli hefir vakið afrek 13 ára gam-
allar stúlku, Steinunnar Jóhannesdótt-
ur úr iþróttafélaginu Þór, er sett hefir
nýtt íslenzkt met i 200 metra bringu-
sundi kvenna. Synti hún þá vegalengd
á 3 mín. og 33,4 sek. Eldra metið, sem
var 3 mín. og 34,8 sek., átti Jóhanna
Erllngsdóttir í Sundfélaginu Ægi í
Reykjavík. — Steinunn var eini kepp-
andinn 1 200 metra bringusundi kvenna
Reykjavíkurmótið
Valur vann Fram
3:2
Reykjavíkurmótið hófst í gær á
íþróttavellinum kl. 7,30 með kappleik
mllli Vals og Fram, sem lauk með 6igri
Vals, 3 mörk gegn 2.
Veður var mjög gott, en þó var sól-
skinið nokkuð tll trafala. Áhorfendur
vom ekkl jafn margir og leikurinn
verðskuldaði.
Frammönnum tókst að ná upphlaupi
þegar i byrjim og var mjög
skammt liðlð af lelk, er Jóni Magnús-
synl tókst að skora mark. Stóð nú
1 :0. Það hefir efalaust gert sitt tll
um hvað leikurinn var fjörugur, að
mark skyldi skorað svo snemma.
Frammönninn óx ásmegin við markið,
en Valsmenn hugðu á hefndir. Skipt-
ust á snögg upphlaup af beggja hálfu,
en varnir beggja voru sterkar. Vöm
Fram var sérstaklega miklum mun
betri en í vor. Ólafur Þorvarðsson var
ágætur, og ekki hægt að þekkja Ragn-
ar fyrlr sama manna og í vor. Grlmar
, (Framh. á 4. siOu.)
Morgunblaðið íylgír íordæmi
Knúts Arngrímssonar
Hjá andstædíngunum „kveður mesi að íll-
vílja, skemmdafýsn og bölbænum”
segir blaðið
Er Knútur Arngrímsaon ftekinn við riftsftjórn á
Reykjavíkurbréium pess ?
Glæsilegft met
í krínglukasti
í fyrradag fór fram innanfélags-
keppni í. R. i fimmtarþraut og voru
þátttakendur. Gekk Ólafur Guð-
mundsson lögregluþjónn með sigri af
hólmi og hlaut samtals 2616 stig. ts-
landsmetið í fimmtarþraut er aðeins
81 stigi hærra. í kringlukasti setti Ól-
afur nýtt mett og kastaði 43,46 metra,
en eldra metið var 41,09 m. Þetta nýja
met er betra en danska og enska
metið í kringlukasti
Önnur afrek Ólafs voru þessi: í lang-
stökki stökk hann 5,16 m., í spjótkasti
kastaði hann 36,63 m„ 200 m. hljóp
hann á 25 sek. og 1500 m. á 4 mín.
44,8 sek.
Ólafur er 24 ára gamall, sonur Guð-
mundar Ólafssonar kennara á Laugar-
vatni. Hann heflr lengst af verið sjó-
maður á Akranesi, að undanteknum
tveim vetrum, er hann hefir verið við
nám í Laugarvatnsskóla, þar til hann
gerðist lögregluþjónn, þegar siðast
var fjölgað í lögregluliði bæjarins.
Ólafur hefir aðeins iðkað íþróttir
um fárra ára bil og eru afrek hans
þvi glæsilegri. Má hiklaust gera ráð
fyrir mörgum Iþróttaafrekum af hans
hálfu á næstu árum.
Heræfingrar
Þjódverja
vekja ugg
Mörg blöð álífta
þeim sftefnft gegn
Tékkum
LONDON:
Haustheræfingar i Þýzkalandi eru nú
i þann veglnn að byrja, en mikill und-
irbúningur heflr átt sér stað að und-
anfömu víða um landið.
í ýmsum blöðum álfunnar hefir orð-
ið mikið umtal um þessar heræfingar
og allvíða hafa þær vakið nokkurn
ugg. Mun það sumpart stafa af því, að
Þjóðcerjar eru nú að koma sér upp
auknum víggirðingum vlð vestur-
landamærin og landamæri Tékkósló-
vakíu. Fregnir hafa borizt um að
þeir séu að leggja nýja járnbraut í
Saxladni og á hún að ná að landa-
mærum Tékkóslóvakiu.
í blöðum Júgóslaviu, sem vinveltt
eru Tékkum, kemur fram, að ef til
(Framh. á 4. Höu.)
Reykjavíkurbréf Morgun-
blaðsins síðastl. sunnudag,
ber þess óræk merki, hversu
mikinn sigur liðsmenn Kn.
Arngrímssonar í Sjálfstæð-
isflokknum hafa unnið í
viðureigninni við lýðræðis-
öflin í flokknum, út af ræðu
Knúts á Eiði. Allt Reykja-
víkurbréfið er óslitið túlkun
þeirra kenninga, sem Knút-
ur flutti þar, og það er jafn-
vel reynt að ganga feti
framar í ósvífnu orðbragði
og vansæmandi ósannind-
um.
Kenningar Knúts voru í stuttu
máli þær, að til þess að Sjálf-
stæðisflokkurinn geti náð völd-
um, verði hann að telja kjósend-
um trú um, að ríkisstjórnin og
hennar flokkar reyni að gera
þjóðinni allt til böjvunar og
þess vegna verði Sjálfstæðis-
menn líka að fylgja þeirri reglu,
„að gefa andstæðingi aldrei rétt,
i hversu smáu atriði sem er, þvi
það veikir okkar málstað, en
styrkir hans“. M. ö. o. að Sjálf-
stæðisflokkurinn eigi að beita
nákvæmlega sömu starfsaðferð-
unj, sem nazistar hafa beitt og
beita annarstaðar.
„Það er illviljinn,
skemmdafýsnin og
bölbænirnar, sem
mest kveður að“.
Sú mynd, sem dregin er upp af
stjórnarflokkunum og verkum
þeirra i umræddu „Reykjavikur-
bréfi“, er fullkomlega i samræmi
við þessar kenningar Knúts.
Lýsing „Reykjavíkurbréfsins“ á
valdhöfunum er i stuttu máli
þessi:
„Þeir ætluðu að bæta fjár-
hag vorn en komu honum í
fullkomna órelðu“.
„Þeir ætluðu að minnka
skuldir þjóðarinnar en hafa
margfaldað þær“.
„Þeir ætluðu að bæta hag at-
vinnuveganna, en hafa iþyngt
þeim með margföldum tolla- og
skattaálögum, dýrtíð, höftum
og ógleymdri ofsókn gegn fram-
kvæmdamönnum þjóðarinnar“.
„Sveitirnar áttu að fá alhliða
viðreisn, en úr því varð flótti á
mölina“.
„Verzlun og viðskipti þjóðar-
innar hafa þeir með ofstopa og
ranglæti leitt í fullkomna glöt-
un“.
„Kennslumál og skólahald
þjóðarinnar hafa þeir gert að
fargani, sem leiðir til ófarn-
aðar“.
Og í stuttu máli lýslr blaðið
störfum þeirra og stefnu með
þessum orðum:
„Þeir hafa dregið úr fram-
leiðslu landsmanna, skapað hér
taprekstur fyrir gróða, ranglæti
i stað réttlætis, kyrstöðu í stað
framfara og atvinnuleysi í stað
vaxandi afnota af gæðum
landsins“.
„Meðal þeirra, sem nú stjórna
Iandinu, er það ILLVILJINN,
SKEMMD AFÝ SNIN OG BÖL-
BÆNIRNAR í GARÐ AND-
STÆÐINGANNA, SEM MEST
KVEÐUR AГ.
Verður kennlngum
Knúts fylgt betur?
Verður það áþreifanlegar
sannað en með ummælum sem
þessum, að Mbl. hefir tekið upp
þá kenningu Knúts Arngríms-
sonar, að telja andstæðingana
vilja gera þjóðinni alla þá bölv-
un, sem þeir geta? Og verður
reglunni „að gefa andstæðingi
aldrei rétt“, betur fylgt í hinni
pólitísku baráttu en með slík-
um skrifum um andstæðing-
ana?
Vissulega ekki. Það er tæpast
hægt að lýsa verstu glæpa-
mönnum og föðurlandssvikur-
um ver en gert er i þessum
skrifum. Það er ekki að gefa
öllu ljótari lýsingu á skapgerð og
fyrirætlunum manna en þá, að
„illviljinn, skemmdafýsnin og
bölbænirnar“ séu það, sem
„mest kveðl að“ i fari þeirra.
„Ranða hættan“.
Eitt þekktasta vopn nazist-
SíldaraHínn
svipaður og 1936
En bræðslusíldin er
enn priðjungi minni en
í fyrra
Síldaraflinn er nú orðinn
jafnmikill og á sama tíma
1936, en bræðslusíldarafl-
inn er Vs minni en á sama
tíma í fyrra.
Saltsíldaraflinn var orðinn í
vikulokin 145 þús. tn., á sama
tíma í fyrra 145 þús. tn. og 1936
152 þús. tn., en þó skýrslan gerð
tveimur dögum seinna.
Bræðslusildaraflinn var orð-
inn 1.093 þús. hl., á sama tíma
i fyrra 1.569 þús. hl. og 1936
1.038.113 hl.
Bræðslusíldaraflinn skiptist
þannig milli verksmiðjanna:
Sólbakkaverksmiðjan
Hesteyrarverksmiðj an
Dj úpuvikurverksmið j an
Ríkisverksmiðjurnar Sigiuf.
Rauðka
Grána
Hj alteyrarverksmiðj an
Dagverðareyrarverksmið j an
Krossanesverksmiðj an
Húsavíkurverksmið j an
Rauf arhaf narverksmiðj an
Sey ðisfj arðarverksmiðj an
NorðfJ arðarverksmiðj an
2.640 hl.
38.222 —
139.854 —
387.264 —
46.811 —
13.529 —
230.011 —
63.836 —
108.889 —
10.214 —
34.041 —
10.434 —
7.300 —
Samtals 1.093.045 hl.
Aflahæsftu skipin:
Botnvörpuskip:
Tunnur Mál i
1 salt breeðslu
Tryggvl gamli, Reykjavik 415 11369
Þórólfur, Reykjavík 10013
Júni, Hafnarfirði 9675
Garðar, Hafnarfirðl 12098
Gulltoppur, Reykjavlk 9574
Hilmir, Reykjavik 337 9202
Arinbjöm hersir, Rvlk 8989
Rán, Hafnarfirði 392 8988
Ólafur, Reykjavik 165 8223
Brimir, Neskaupstað 8263
Linugufuskip;
Tunnur Máií
I salt bræðslu
Jökull, Hafnarfirði 225 11239
Sigríður, Reykjavik 297 9891
Hvassafell, Akureyri 833 8278
Andey, Hrísey 1312 7670
M.s. Eldborg, Borgarnesl 1607 7363
Fjölnir, Þlngeyri 877 7708
Freyja, Reykjavík 1463 6827
Fróði, Þlngeyri 1209 6827
Ól. Bjarnason, Akran. 7792
Rifsnes, Reykjavík 58 7448
anna gegn andstæðingum sinum
er að telja þá kommúnista. Mbl.
gleymir heldur ekki þessum naz-
istisku vinnubrögðum í um-
ræddri grein.
Það segir m. a.:
„Svo heillum horfnir eru
þessir pólitfsku vindbelgir, sem
með stjórn landsins fara, að
þeir eru komnir undir áhrifa-
vald þeirra manna, sem laun-
(Framhald á 3. slðu.)