Nýja dagblaðið - 16.08.1938, Page 4
REYKJAVÍK, 16. ÁGÚST 1938.
6. ÁRGANGUR — 186. BLAÐ
G A M Ij A B I Ó
Seípío Afrícanus
Hin heimsfrœga italska
sögulega kvikmynd um
hershöfðingjana úr 2. pún-
verska stríðinu, Scipio og
Hannibal. — Heimsblöðin
kalla myndina „stórkost-
legustu kvikmynd heims-
ins.
Börn fá ekki aðgang.
aðeins Lofiur.
Lesið Nýja dayblaðið!
Dularfullar eyjar
í suðurhöfum
(Framhald a) 2. síðu.)
Spönsk og ensk skip sáu Au-
rora eyjarnar alltaf öðru hvoru
næstu þrjátíu árin. Síðasta sögn-
in um Auroraeyjarnar er frá
herskipinu „Alrevida", sem
spanska stjórnin sendi til þess
að helga sér eyjarnar. „Alrevida“
fór frá Falklandseyjum og tíu
dögum síðar báru Auroraeyjarn-
ar við sjóndeildarhringinn. Á
einni eyjunni var hátt fjall með
snjókrýndum toppi. Þrátt fyrir
ákafa leit, fannst engin vík, þar
sem hægt væri að lenda. Klett-
arnir gengu í sjó fram með allri
ströndinni, og voru með öllu ó-
gengir, og skipið varð að hverfa
aftur heim, án þess að hafa lokið
erindi sínu.
Englendingurinn Weddell ætl-
aði að koma við á Auroraeyjum
1820 í suðurpólsför sinni, en þá
fundust eyjarnar ekki.
Sennilegast er að jarðhrær-
ingar hafi orsakað hvarf eyj-
anna. Einnig telja menn það
hugsa,nlegjt, að eyjarnar hafi
bara verið óhemju stórir borgar-
isjakar, sem síðar hafa horfið.
Þetta er þó talið mjög ósenni-
legt, þar eð margir finn-
endur mældu stöðu eyjanna og
reyndust þær þá óhagganlegar,
og þeír segja einnig frá hömrum
með ströndum fram, sem þeir,
sumir hverjir, hafi athugað all-
nákvæmlega.
Söngur dimittenda
(Framhald af 3. síðu.)
Helgi Þorkelsson, samdi lag við
kvæði Magnúsar, og var hvort-
tveggja flutt á kveðjufundi,
þegar sjálfu náminu var lokið
á síðastliðnum vetrl og upp-
lestur undir lokapróf hófst.
Loks verður það að teljast
góðs vitl i þessu sambandi, að
piltur sá, sem kvæðið samdi,
lauk einu hinu glæsilegasta
stúdentsprófi, sem saga
Menntaskólans greinir.
En viðhorfið gagnvart skóla,
sem dvalið er í við erfitt nám
á æskuárum, setur svipmót á
viðhorfið til viðfangsefnanna,
þegar út í lífið kemur.
G. M.
NYJA DAGBLAÐIÐ
.....VEIT ÉG ÞAÐ, en pað
er pó að minnsla kosti eitt
sem má reyna til ad bœta
og blídka skapið með og pað
er REGLULEGA GOTT KAFFI
En ef pú villt búa til óað-
finnanlegt kaffi þá verðurðu
blessuð góða að nota
P R
j 17
KAFFIBÆTL
Maðurinn minn, JóseS Jónsson Syrr-
um bóndt að Melum í HrútaSirði, andað-
ist að kvöldi pess 14. p» m., að heimili
sínu HverSisgötu 104 C.
Reykjavík, 16. ágúst 1938.
Anna Bjarnadóttir.
■smmBBSBBsntnuHmBnmsmsi
Reykjavíkurmótið
(Framhald af 1. síðu.)
og Frímann bakverðir hjá Val, voru
einnig mjög góðlr.
Þegar 14 mlnútur voru liðnar aí leik
fœr Ellert knöttlnn út á vinstri kant-
inn, gefur vel fyrir, en Björgúlfur,
sem stendur alveg við markstöngina,
hittir ekki. Tuttugu minútur eru liðn-
ar af lelk þegar Jón Sigurðsson í
Fram fœr knöttinn, hleypur fram með
hann og gefur gott skot skáhalt fyrir
markið. Hermann nær ekki til knatt-
aríns og hann lendir aðeins innanvið
stöngina í horninu.
Fram hefir nú tvö mörk á móti
engu.
Valsmenn sækja nú í sig veðrið og
tókst þeim að setja tvö mörk í hálf-
leiknum. Var annaS vitaspyrna. Egill
hljóp fram með knöttinn, en var
brugðið, Hrólfur tók vítaspymima.
Knötturinn lenti i netinu, en fór mjög
nærri Þráin. Átti Þráinn að geta
varið þetta skot?
Fyrrl hálfleikur endaði með jafn-
tefli, 2:2.
Síðarl hálfleikur var nokkuð harður
þegar frá byrjun .Frammenn hugsuðu
auðsjáanlega um að láta ekki undan
síga, en Valsmönnum þótti seint sækj-
ast, þar sem þeir eru íslandsmeistarar.
Leikurinn var mjög fjörugur, en hark-
an þó stórum of mikil. Bar sérstak-
lega mikið á því að menn héldu and-
stæðingunum og gengu Valsmenn þar
framar. Má það teljast sérstaklega
álasvert, þegar þeir taka i buxur
andstæðingsins og halda honum á
þeim. Guðjón Einarsson dæmdi leik-
inn og dæmdi hann mörg víti, en sást
þó yfir allmargt ólöglegt. Var og held-
ur eigi við öðru að búast, þar eð menn
hnipptust jafnvel þar, sem boltinn
var fjarri. Mannl gat ekki annað en
gramist að sjá, hve leikmenn sýndu
lítið lþróttamannaskap, þrátt fyrir
mjög fjörugan leik.
Fram-menn sóttu allfast í þessum
hálfleik og „áttu leiklnn" eins og það
er orðað á máli knattspyrnumanna.
Tókst þeim þó eigi að skora mark,
enda léku þeir of lítið á vinstri kant-
inn til Jón Sigurðssonar, en hann var
mjög góður. Valsmönnum tókst hins-
vegar að skora eitt mark er stutt var
eftir af leik. Við þetta harðnaði leik-
urlnn um allan helming. Sáust menn
nú lítt fyrir og er bezt að segja sem
minnst frá svip leiksins þá stundina.
Þegar mjög skammt er eftir af leik
gerðist það, sem vakti einna mestan
„spenning" meðal áhorfenda. Vals-
menn gefa skot á markið. Þráinn
hleypur fram úr hægra horni, en miss-
ir knöttlnn og hann veltur fyrir
Drengur drukknar
Sex ára drengur, Árni Björn Árna-
son, datt út af Húsavíkurbryggju i
íyrradag og drukknaðl. Enginn var
viðstaddur, nema annar drengur jafn-
gamall, er sagðl frá slysinu. Líkið
fannst eftir litla stund, en lífgunar-
tilraunir reyndust árangurslausar.
Drengurinn var sonur Árna Friðbjarn-
arsonar, skósmiðs í Reykjavík. Var
hann nýiega kominn norður til Húsa-
vikur ásamt móður sinnl.
markið. Valsmaður nær honum og
gefur á mark, en einn Fram-maður
bjargar með fæti og knötturinn veltur
enn fram fyrir markið. Er nú á svip-
stundu orðin þarna allmikil þröng og
Þráinn fjarri. Einn Fram-maður tekur
það ráð að næla utan um knöttinn,
með báðum fótum og setjast á hann.
Valsmenn vilja ekki missa tækifærið
fyrir ekki neitt og sækja að honum
og Frammenn á þá ofan til varna. Sru
þeir eigl færri en fimm komnir í þvög-
una. Þráinn var aftur kominn 1 mark-
ið en hleypur nú fram og stingur sér
á höfuðið ofan í kösina, nær knett-
inum og ætlar að spyma fram. Vals-
mönnum þótti hart að tapa tækifær-
inu og hlupu þeir nú svo hart á Þrá-
in, að á þá voru dæmd vlti fyrir.
Leikurinn var enn afar harður þaö
sem eftir var, en ekki tókst að skora
fleiri mörk og endaði hann því með
sigri Vals, 3 : 2.
Á síðustu mínútum leiksins var
einn Valsmaðurinn dæmdur úr leik
fyrir ósæmilega framkomu.
Framm. hefir auðsjáanlega farið
mjög mikið fram í sumar. Leikni þeirra
var nú góð, og hraðinn mikill. Eink-
um sköruðu Jónarnir fram úr, og má
hiklaust telja Jón Magnússon bezta
manninn á vellinum 1 gærkvöldi.
UBMW
B í Ú
N Ý J A
Þrælaskípid
Amerlsk kvikmynd frá Fox
félaginu, er byggist á ýms-
um sögulegum viðburðum,
er gerðust á síðustu árum
þrælaflutninganna frá Af-
ríku til Ameríku.
Aðalhlutverkin leika
WARNER BAXTER,
ELIZABETH ALLEN,
WALLACE BEERY
og hinn 14 ára gamli af-
burðaleikari
MICKEY ROONEY
Aukamynd:
Talmyndafréttir frá Fox.
Beztu kolín
GEIR H. ZOEGA
Símar: 1964 og 4017.
Bretar gangast fyrir
fangaskíptum
á Spáni
LONDON:
Brezka stjómin hefir skipað nefnd,
sem fær það hiutverk að greiða fyrir
því, að styrjaldaraðilar á Spáni skipt-
ist á fundum. Nefndin er stofnuð með
samþykki stjórnarinnar í Burgos og
Barcelona stjórnarinnar. Aðsetur nefnd
arinnar verður í Toulouse i Frakk-
landi. Starf hennar miðar eingöngu
að því að koma á stórum auknum
fangaskiptum og þar með greiða göt-
una að bættri líðan fjölda manna, sem
nú dvelja í fangabúðum margir særðir
og illa haldnir. FÚ.
Heræfíngar Þjóðverja
(Frh. af 1. síðu.)
vill megi líta svo á, að í heræfingun-
um vlð landamæri Tékkóslóvakiu felist
hótun til Tékka, vegna deilunnar við
Sudeten-Þjóðverja. Hið sama kemur
fram í nokkrum frönskum blöðum, en
yfirleitt líta blöð Frakklands ekki
áhyggjufullum augum á þetta. Sum
frönsku blöðin telja allan ótta
ástæðulausan. FÚ.