Nýja dagblaðið - 20.08.1938, Blaðsíða 2

Nýja dagblaðið - 20.08.1938, Blaðsíða 2
2 N Ý J A DAGBLAÐIÐ í Gautaborg vakti það nýlega mikla athygli og óskipta gremju allra, að ferðamenn á stórum skemmtiferðaskipum skemmtu sér við að kasta smápeningum niður á bryggjuna og láta smá- drengi slást um þá. Lögreglan hefir verið kvödd til, en hún hefir ekki fengizt til þess að láta málið til sín taka. * Prestsetur eitt í Sussex í Eng- landi er frœgt fyrir draugagang. Allir prestar, sem síðastliðin sextán ár, hafa búið þarna, hafa sent beiðnir um að vera fluttir brott. Þeir hafa ekki getað hald- izt þar mð. Hinn núverandi prestur þar sendi nýlega slíka beiðni til hlut- aðeigandi biskups. En þá var þolinmœði biskups nóg boðið. Hann víll fá málið full upplýst og hefir kvatt þekktan mann við þá deild háskólans í London, sem fjallar um sálfrœðirann- sóknir, Mr. Harry Price, til þess að ráða gátuna. Price hefir margskiptis áður leyst svipað verkefni af höndum og sannað, að það, sem menn héldu vera drauga og anda, var hugarburð- ur einn. Price hefir nú dvalið í húsi þessu um hríð, en ekki getað ráðið hina dularfullu gátu. Hann sér menn á gráum klœðum reika um stofurnar og ósýnilegar hendur skrifa á veggina. Stund- um fyllast herbergin annarlegri angan og bókum úr bókaskápn- um er dreift út um öll gólf. Price telur sig hafa komizt í kynni við þetta allt saman áður, en í þetta sinn getur hann ekki skýrt hvernig á þessu stendur. Ef Príce getur ekki leyst ráð- gátuna, verður prestsetrið lagt niður. * Nœrgœtin kona hefir lagt þúsund sterlingspund í merki- legan sjóð.Fyrir tekjur sjóðsins á nefnilega að sjá sjómönnum fyrir ódýru og góðu öli, þegar þeir stíga á land í fjarlœgum höfnum. Þessi kona hefir jafnframt látið í Ijós þá ósk, að hún verði siðar þess megnug að stofna fleiri slíka sjóði, svo að enskir sjómenn geti átt völ á hinu góða og ódýra öli í hvaða höfn heims- ins sem er. * Vélin í bifreiðinni hafði bilað, þegar hjónin voru þrjá kíló- metra frá bœnum. Þeim tókst alls ekki að koma henni i gang, svo að hringja varð eftir bil til hjálpar. Bílstjórinn krafðist 15 króna fyrir vikið. Þegar bilaði billinn hafði verið festur aftan i hinn og hjónin voru sezt inn, segir kon- an: — Mér finnst þetta nokkuð dýrt. — O, jœja. Ég er nú búinn að bremsa. % TIL ATHUGUNAR: Konan getur sýnt líkama sinn nakinn, en hún getur ekki af- hjúpað sál sína. George Moore. TYRKNESKAR CIGARETTUR " 20 STK- PAKKINN KOSTAR * 150 W.W.V.V .V.'.V.V.V. .‘.V.V.V.V. .V.V.V.V.V .■.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.v.vv .V.V.'.V.SV.V.V.V.V.V.V.'.V.V.V.V.V.V.V.V l.,.V%V.V.V.V.,.V.V.V.V.,.V.,.V.V.V.,.W.VAy '.■.V.V.V.V.V.V.V.V.V/.W.V.V.V.V.V.V.V/ THE WORLD'S GOOD NEWS will come to your home every day through THE CHRISTIAN SCIENCE MONITOR An International Daily Newspaper It records for you the world’s clean, constructive doings. The Monitor does not exploit crime or sensation; neither does it ignore them, but deals correctively with them Features for busy men and all the family, including the Weekly Magazine Section. The Christian Science Publishing Society One, Norway Street, Boston. Massachusetts Please enter my subscription to The Christian Science Monitor for a period of 1 year $12.00 6 months $6.00 3 months $3.00 1 month $1.00 Wednesday issue. including Magazine Scction : 1 year $2.60. 6 issues 25c Name___________________________________________ Address - £ Samþle Copy on Requcst K jar nar -- (Essensar) Höfnm birgðir af ýmiskon- ar kjörnnm til iðnaðar. Er mjúk sem rjómi og hefir yndislegan rósailm. Pæst í öllum verslunum, sem leggja áherslu á vöru- gæði. ÁFENGISVERZLIJN RÍKISINS M.s. Dronníng Alexandríne fer mánudaginn 22. þ. m. kl. 6 síðdegis til Kaupmannahafnar (um Vestmannaeyjar og Thors- havn. Farþegar sæki farseðla i dag fyrir hádegi. Tílkynningar um vörur komi sem fyrst. Skipaafgreiðsla Jes Zimsen Tryggvagötu. Sími 3025. Innrílun í Iðnskólann í Reykjavík hefst laugardaginn 20. þ. m. og fer fram daglega á Sóleyjargötu 7, kl. 11—12 til 25. september. Til inntöku í fyrsta bekk skólans er, samkv. ákvörð- un skólanefndar, krafizt góðrar þekkingar í íslenzku og heilum tölum og brotum í reikningi. Námskeið verður haldið í skólan- um í september fyrir þá, sem þurfa undirbúnings í einhverjum námsgreinum undir próf í alla bekki skólans. Innritun á nám- skeiðið fer fram á sama stað og tíma til 1. september. Reykjavík, 18. ágúst 1938. Helgi H. Eiríksson. aðeins Loftur. Fyrsta bófafélagíð í London Þegar menn heyra minnst á bófafélag verður þeim oftast hugsað til Ameríku. Bófafélag eru þó ekki amerísk uppfynding, heldur er hugmyndin fyrst komin fram í Lond- on fyrir 250 árum. — í eftirfarandi grein er sagt frá fyrsta bófaforingja heimsins, Jonathan Wild. Hann stofnaði félag meðal þjófa og ræningja í London og stjórnaði starfsemi þeirra, en þóttist sjálfur vera leynilögreglumaður. Þegar menn lesa um skipu- lögð samtök göturæningja,.verð- ur þeim oft á að telja þetta sér- einkenni yfirstandandi tíma. En þetta er eldra fyrirbrigði. Á xík- isstjórnarárum Jakobs II., eða fyrir 250 árum, var uppi í Eng- landi maður, sem safnaði saman öllum glæpamönnum í London og myndaði félag sem starfaði á líkan hátt og amerísku bófa- félögin nú. Þá var hálf miljón íbúa í Lon- don. Velmegun var mikil, en op- inbert öryggi var af skornum skamti. Það reyndist árangurs- laust þó að yfirvöldin hegndu með þungum refsingum fyrir litið afbrot. Smáþjófnaðir voru t. d. dauðaorsök. Árangurslaust var heitið miklum launum fyrir að koma upp um eða handtaka glæpamenn. Yfirvöldin voru van megnug gagnvart „undirheim- unum“. Lögreglan var lítils megnug, og það af sömu orsök- um, sem torvelduðu starf amer- isku lögreglunnar til skamms tíma. Það var nefnilega afar- algengt, að yfirmenn lögreglunn ar hefðu samband við glæpa- mennina og tækju heldur hlut af ágóða þeirra en að láta taka þá fasta. Jonathan Wild varð einskonar konungur í „undirheimunum", og þar með fyrsta bófaforingi heimsins. Hann hafði á æskuár- um framið allmarga áberandi þjófnaði og innbrot, en tók síðar að sér að varðveita þýfi fyrir aðra. Þannig gat hann áhyggju- laust innbyrt ágóðann meðan aðrir lögðu sig í hættuna. Hægri hönd hans var „rauða hefðar- konan“, duglegur vasaþjófur og auk þess ljómandi fögur kona, sem fyrst stal hjörtum fórnar- dýra sinna, en síðan pyngjum þeirra. Þau unnu saman í mörg ár og giftu sig að lokum. Einn dag, þegar Jonathan Wild kom heim frá „störfum“ sínum, sagði rauða hefðarfrúin honum að hún hefði fengið góða hugmynd um, hvernig þau gætu orðið rík á hættulausan hátt. Þegar hún hafði skýrt áætlun sína var hann sannfærður um ágæti hennar. Nokkrum dögum síðar var saman kominn þokkalegur hóp- ur á krá einni í Soho. Ef Lund- únalögreglan hefði haft hug- mynd um þennan fund þá hefði hún getað veitt vel. Þarna voru giæpamenn borgarinnar saman komnir að boði Jonathan Wild. Þegar allir voru mættir stóð Jonathan Wild upp og hóf að skýra hugmynd sína. Áheyrendurnir urðu allir einn áhugi. Það var ákveðið að semja skrá yfir alla borgara „undir- heimanna", og sérgrein þeirra, og einnig yfir alla þá borgara í London, sem mundi borga sig að heimsækja. Eftir þessum skrám átti svo að skipta „vinnunni" og með þvi ná betri árangri með minni áhættu. Jonathan Wild var auð- vitað kosinn foringi þessa fé- lagsskapar. Allir vasa- og inn- brotsþjófar stóðu beint undir stjórn hans. Þeir skyldu leggja áætlanir sínar fram og síðan væru þær ræddar af „ráðinu“. Þegar verkið væri framkvæmt skyldu þeir aftur mæta hjá for- ingjanum til þess að athuga á- rangurinn. Jonathan Wild hafði leigt sér skrifstofu í City og þar stóð á dyrunum: „Jonathan Wild, einkaleynilögreglumaður.“ Ekki leið á löngu áður en öll (Framh. á 4. síöu.)

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.