Nýja dagblaðið - 20.08.1938, Síða 4
REYKJAVÍK, 20. ÁGÚST 1938.
6. ÁRGANGUR — 190. BLAÐ
G A M L A BlÓ
Bulldog Dnimm-
ond skerst í
léikínn
S Afar spennandi amerísk «
!;<: talmynd, gerð eftir einní «
« af hinum írægu sakamála' |
II; Sögum H
H. C. Mc.NEILE
| (Sapper). |
| Aðalhlutverk leika:
Ray Milland,
| Heather Angel og |
Sir Gy Standing.
Fyrsta bóialélagið
í London
(Frh. af 2. siBu.)
borgin var þess fullviss að Jon-
athan væri eini maðurinn, sem
gæti klófest aftur stolin verð-
mæti. Þessi dásamlegi leynilög-
reglumaður gat æfinlega til-
kynnt innan fárra daga að hann
hefði komizt í samband við
þjófinn og að hann væri fús á
að afhenda þýfið aftur gegn
hæfilegri þóknun. Menn gátu
ekki treyst lögreglu borgarinn-
ar og voru því mjög fegnir að
geta náð aftur í hina stolnu
skartgripi og önnur verðmæti,
einkum þar sem Jonathan Wild
var nógu skynsamur til þess að
hafa lausnargj aldið ekki of hátt.
Undirmenn hans voru mjög
fegnir þessum skiptum. Nú
þurftu þeir ekki að fara með
hina stolnu muni til venjulegra
þýfiskaupenda, sem oftast guldu
aðeins lítið brot af hinu raun-
verulega verði, en Jonathan Wild
lét sér nægja fjórða hlutann af
peningunum, sem nú streymdu
inn.
Lögreglunni var ekki ókunn-
ugt um atferli Jonathans Wild,
en það reyndist ómögulegt að fá
sannanir gegn honum. Hann var
meira að segja svo forsjáll að
láta ýmsa af hinum verðminni
af stolnu mununum komast í
hendur lögreglunnar.
Jonathan Wild var ókrýndur
konungur i „undirheimum"
Lundúnaborgar í meira en
30 ár. Hann var nákvæmur í
bókfærslu sinni, skrifaði niður
öll gjöld og allar tekjur, og alla
þjófnaði og öll innbrot sem fram
in voru í borginni.
„Rauða hefðarfrúin“ var mjög
hjálpleg við hann i þessu, og hún
hefir, með dagbókum sínum, lát-
ið eftirkomendunum í té upplýs-
ingar um glæpamannalíf á
þessum tímum. Hún var mjög
mikill mannþekkjari og hún
réði því hvort nýr meðlimujr
væri tekinn í félagsskapinn eða
ekki. Hún teiknaði myndír af
hverjum nýjum meðlim og skrif-
aði á hana stutta lýsingu.
Jonathan Wild var ekki aðeins
rnjög duglegur að skipuleggja
heldur auk þess slyngur skjala-
falsari. Hann hafði útvegað sér
mörg „vitni“, sem skyldu votta
NYIA DAGBLADID
HMt lil Hkirevrir
alla daga nema mánudaga.
Afgreíðsla í Reykjavík:
Bífreiðastöð Islands, sími 1540.
Bifreiðastöð Akureyrar.
Gula bandið
er bezta og ódýrasta smjörlíkið.
í heildsölu hjá
Samband ísl. samvinnuféiaga
Sími 1080.
fjarveru hans, ef einhver skjól-
stæðinganna skyldi koma hætt-
ulega nærri galganum og verða
lausmáll. Hann gat ekki ein-
ungis verndað þjófana frá fang-
elsinu með félagi sínu heldur
einnig komið mönnum þangað.
Fyrsti bófaforingi heimsins
endaði æfi sína sem efni stóðu
til. Samkeppnin varð honum að
falli. Þeir, sem höfðu lifað á því
að kaupa þýfi, sköðuðust stór-
kostlega á starfsemi hans. Þeir
bundust samtökum og biðu
síðan tækifæris að hafa hendur
i hári honum. Þetta tækifæri
kom einn góðan veðurdag. „For-
inginn“ tók gömlu innbrotsá-
höldin aftur í hönd sér, til þess
að sýna hinni nýju kynslóð list
sína. Þýfiskaupendurnir fengu
hugmynd um þetta með tilstyrk
undirmanna Johathans Wild og
lögreglan tók hann þar sem
hann , ásamt þrem af mönnum
sínum, var að tæma peninga-
skáp biskupsins.
Réttarhöldin yfir honum tóku
ekki langan tíma, og hann var
hengdur daginn eftir. Æðsta ósk
hans gat ekki uppfyllzt vegna
þessa. Hann hafði, 10 árum áð-
ur, látið gera „rauðu hefðar-
frúnni“ mjög vandað grafhýsi,
og þar ætlaðist hann til að duft
sitt fengi einnig að hvíla.
Félagið var leyst upp eftir
dauða hans þetta félag, sem var
fyrsta skipulagða bófafélagið í
heiminum, og það er ekki fyr en
200 árum síðar að svipuð félög
koma aftur fram á sjónarsviðið,
og þá í Ameríku.
Tilraunastarisemi
landbúnaðarins
(Framhald af 3. síðu.)
bíði tjón af, gefið hænsnunum
meira af íslenzkum fóðurtegun-
um en nú er gert? Og ef svo er,
hvaða fóðurtegundir eru það þá,
sem við eigum völ á?
Þetta er stórmál, sem vel þarf
að athuga. Engar ítarlegar til-
raunir hafa ennþá verið gerðar
hér á þessu sviði.
Að vísu hafa nokkur hænsna-
bú, með góður árangri, blandað
kraftfóður handa hænsnum með
síldar- og fiskimjöli, og líka
þangméli, en þó aðeins í smáum
stíl. Og þessar tilraunix segja
auðvitað ekki mikið, þar sem
þær að jafnaði hafa verið gerð-
ar af handa hófi og án þess að
rannsakað hafi verið hvaða á-
hrif það hefði á heilbrigði dýr-
anna, afkvæmi, varp o. fl.
Nú sem stendur eru gerðar til-
raunir í Danmörku með síldar-
og fiskimjöl sem fóðurbæti
handa hænsnum, en það er ekki
nóg fyrir okkur.
Auðvitað er ekki hægt að kom-
ast af án korns að öllu leyti við
fóðrun á hænsnum, en án efa má
minnka kornskammtinn að veru
legu leyti, einnig mætti vafa-
laust ala hér upp hænsnateg-
und, sem gæti lifað meira af
íslenzkum fæðutegundum en
þær tegundir sem hér eru nú.
Fóðurtegundir, sem hér þarf
að athuga, eru margaír. Sem
dæmi mú nefna: Hrogn, þang,
söl, síldar- og fiskimjöl, ýmsaT
grænmetistegundir, blóð, o. fl.
Hér er verkefni fyrir hina
nýju nefnd, sem á að vinna að
rannsóknum í þágu landbúnað-
arins, og þetta atriði, sem ég
hefi hér minnzt á, hefir mikla
þýðingu, ekki aðeins fyrir land-
búnaðinn heldur og fyrir út-
flutning íslenzkra afurða í fram-
tíðinni.
E. Tönsberg.
Kennaraskipti
(Frh. af 1. siðu.)
ferðastyrk frá kennslumála-
ráðuneytinu danska, en auk þess
er reynt að gera þeim dvölina
hér sem ódýrasta.
Minn ferðastyrkur í fyrra var
að mestu veittur úr dansk-ísl.
félaginu.Auk þess hefir kennslu-
málastjórnin hér jafnan tekið
vel í málaleitanir mínar þessu
viðvíkjandi.
— En er ekki ætlun þín að slík
kennaraskipti sem þessi komizt
á milli fleiri landa en íslands
og Danmerkur?
— Jú, áreiðanlega. Kostnaðar-
hliðin hefir verið þar ennþá
þröskuldur í vegi. Nú vona ég
að úr rakni fljótlega.
Á norræna kennaramótinu að
Laugarvatni í síðasta mánuði,
var samþykkt áskorun frá mér
til stjórnar Norræna félagsins,
þess efnis, að félagið styrkti
kennaraskipti milli Norðurland-
anna í framtíðinni.
Danir hafa fyrstir veitt þessu
máli fjárhagslegan stuðning —
bæði vel og drengilega.
Og Nýja dagblaðinu er það vel
kunnugt, að í mínum augum er
hér þýðingarmikið mál á ferð-
inni, er ég hefi rakið fyr, og
endurtek ekki nú.
En eitt vil ég minnast á að
lokum, þótt það komi þessu ekki
beinlínis við.
Hér er nú á ferð ungur skóla-
stjóri frá Jótlandi, er nýlega
hefir stofnað lýðskóla í Grind-
sted í Danmörku.
íslendingum sýnir hann þá
velvild, að bjóða tveim náms-
mönnum héðan hvert ár dvöl í
skóla sínum fyrir einungis hálft
gjald eða ca. 35 kr. á mánuði.
Þessi skóli stendur 5 mánuði
að vetrinum og er bæði fyrir
pilta og stúlkur, en hefir auk
þess þriggja mánaða námskeið
að sumrinu, eingöngu ætlað
stúlkum.
Skólastjórinn heitir Olle Mad-
sen og heimilisfang: Den nye
Ungdomsskole Grindsted, Dan-
mark.
Hann á þakkir skihð fyrir vel-
vild sína og vinsemd í okkar
garð með þessu hagstæða til-
boði.
Meðferð sláturljáríns
(Framhald af 1. síðu.)
Niðurstaðan varð íslenzka
fénu ekki í vil. Það er útlima-
lengra, beinastærra, holdþynnra
og hefir minni fitu á lærum og
baki. Aftur á móti er íslenzka
kjötið fíngerðara og ljúffengara.
— Eru ekki talsverð brögð að
ágöllum á meðferð sláturfjárins
og kjötsins?
— Undanfarin ár hafa verið
mikil brögð að fláningságöll-
um og öðrum viðráðanlegum
skemmdum á kjötinu. Tvö síð-
ustu árin hefir Samband ís-
lenzkra samvinnufélaga og aðrir
aðilar, sem um þessi mál fjalla,
lagt mikið kapp á að koma í veg
fyrir slíkar skemmdir og meðal
annars hefir tvívegis verið efnt
til sláturnámskeiða á Akureyri.
Svo mikið hefir áunnizt, að telja
má útlit þess kjöts, sem sent
var á London-markaðinn i fyrra,
gott.
Þó þarf enn umbóta. Þetta
atriði er mjög þýðingarmikið
með tilliti til söltunarmöguleik-
anna. Góð meðferð á sláturfénu
N t J A B í Ú
IDrukkínn|
víð stýrid|
Amerísk kvíkmynd frá g
Columbia film, er vakið 8
hefir heimsathygli fyrir |
hina miklu þýðingu sem jf
hún hefur fyrir umferða- 8
mál allra þjóða. 8
Aðalhlutverkin leika: H
IRichard Díx, I
Joan Perry, §
Tony Stevens o. Sl. |
Þessa stórmerkilegu kvik- 8
mynd ættu allir sem s
stjórna bílum og ferðast 8
ll með bílum ekki að láta 8
óséða. 8
Síðan er fögur sveit.
Fastar áætlunarferðir frá Rvík
að Kirkjubæjarklaustri alla
þriðjudaga. Frá Kirkjubæjar-
klaustri til Reykjavíkur alla
föstudaga. Vandaðar bifreiðar.
Þaulæfðir bílstjórar. Afgr. Bif-
reiðastöð fslands. Sími 1540. —
verður heldur aldrei nógsamlega
brýnd fyrir mönnum.
— Hvaða verkefni bíða þin
næst?
— Eitt þeirra starfa, sem næst
liggja framundan eru hrútasýn-
ingarnar í haust, en þær verða
haldnar í Eyjafjarðarsýslu,
Skagafjarðarsýslu, Austur-Húna
vatnssýslu, Mýrasýslu og Borg-
arfjarðarsýslu. Það má vonast
eftir, að þátttaka í þeim verði
ágæt á hinum ósýktu sýslum,
sæmileg í vesturhluta Skaga-
fjarðar, Austur-Húnavatnssýslu
og Borgarfirði, en lítil í Mýra-
sýslu og alls angin í Vestur-
Húnavatnssýslu.
Síldveiðarnar
(Framhald af 1. síðu.)
búin að bræða 24.563 mál, en á sama
tíma í fyrra var hún búin að bræða
63.900 mál.
Það hlé, sem nú hefir orðið ú síld-
veiðinni, hefir komið sér vel fyrir
verkafólk á Siglufirði. Má segja að
það hafi unnið nótt og dag að undan-
förnu og var því orðið aðframkomið
af þreytu.