Nýja dagblaðið - 31.08.1938, Side 2
2
N Ý J A
Steindór Einarsson á 72 bíla.
Þar af eru 30 stórir vagnar, 18
og 22 manna, og 42 fjögura og
sex manna.
*
Ameríski pólarfarinn og land-
könnuðurinn Lincoln Ellsworth
flugmaður er nú að undirbúa
nýja ferð til Suðurpólslandanna.
Að þessu sinni ætlar hann eink-
um að rannsaka Enderbyland.
*
Kona ein að nafni mrs. Wright
í ríkinu New York safnar tölum.
Hún á nú 14 þús. tölur af mis-
munandi gerðum.
*
Englendingur einn heldur því
fram í blákaldri alvöru, að stein-
ar vaxi. Kveðst hann hafa kom-
izt að raun um það með rann-
sókn á steinum á landeign sinni.
*
Vísindamenn fullyrða, að i
hverri máltíö matar, sem við
neytum sé nokkuð af aluminium.
Einkum segja þeir, að það sé í
kartöflum, tómötum og yfirleitt
flestu grœnmeti.
*
„Vei yöur! vei yður! Augu
drottins lita bœði réttláta og
rangláta!“
Þessi orð heyrðust endurtekin
með grafarraust frá kirkjugarð-
inum í Atlanta, höfuðborg Ge-
orgiu, kvöld eftir kvöld. — Um-
hverfis kirkjugarðinn er jafnan
fjölfarið, er kvölda tekur. Ber
þar mest á ungum elskendum og
ýmsu œfintýrafólki, sem jafnan
er meira og minna undir áhrif-
um víns. Þessi óvenjulegi boð-
skapur frá kirkjugarðinum hafði
þau áhrif, að kvöldgöngur um-
hverfis hann voru með öllu að
leggjast niður, því að talið var,
að þarna vœri um að rœða boð-
skap einhvers framliðins, helzt
John Wesley.
Síðar upplýstist, að hróp þessi
stöfuðu frá kirkjugarðsverðinum
og presti einum í borginni. Höfðu
þeir fólgið hátalara í garðinum
og hrópuðu síðan þessi huggun-
arorð til vegfarenda.
Aðspurðir kváðust þeir gera
þetta til þess að venja fólk af
drykkjuslarki og ástleitni um-
hverfis kirkjugarðinn.
*
í London hefir nýskeð verið
smiðaður mótorvagn, sem vegur
um 300 kg. Farmurinn, sem á
honum verður fluttur að jafnaði,
mun vega 1 g. Á slíkum vögnum
á að flytja radíum milli ýmissa
deilda stórra sjúkrahúsa. Þyngd
vagnsins er svona mikil af því
að framrýmiö er klœtt innan
með geysiþykkum blýplötum til
þess að inniloka radiumgeislana.
*
Elsti maður heimsins er inn-
fœddur Bechuanmaður, sem
Rammonotwane heitir. Hann er
126 ára gamall. Þessi aldraði,
svarti heiðursmaður er nú blind-
ur orðinn og á erfitt um mál.
*
TIL ATHUGUNAR:
Sá, sem élskar aga, elskar
þekking, en sá, sem hatar um-
vöndun, er heimskur.
Salómon konungur.
DAGBLAÐIÐ
Fást i öiíum rerz/unum.
20% 30°|o 45% i Rcyhitl ~L.
o s T A R ÍÍiÍÍÍfMM ViRCINlA UvMcXlUK ^ rnFi?
frá Mjólkursamlagri Eyfirðíngra
alltai lyrirliggjandi W CT-V
i heildsolu. /I paMdnn
Samband ísl. samvinnufélaga. \ .
kr. I
Sími 1080.
Haustfrakkar og Vetrarkápur kvenna.
Fallegt úrval. — Gott snið.
V
Verzlun Kristínar Sigurdardóttur,
Laugavegi 20 A. — Sími 2571.
alla dagra nema mánudaga.
Frá Laugarnesskóla.
Öll börn, sem sækja eiga Laugarnesskólann í haust, mæti
í skólanum á morgun (fimmtudaginn 1. september).
Börn úr 9 og 8 ára bekkjum kl. 1 e. h., en börn úr 7
ára bekkjum kl. 2 e. h. Læknisskoðun fer fram frá kl. 2 e. h.
og eru börnin áminnt um að hafa með sér 50 aura hvert, til
að greiða skoðunina.
Börn sem ekki sóttu skólann í vor, en eíga að sækja
hann í haust, mæti með 8 og 9 ára börnum kl. 1 e. h. þenn-
an sama dag.
Kennsla hefst 2. september. —
Skólastjórinn.
Afgreíðsla í Reykjavík:
Bifreiðastöð Islands, sími 1540.
Bífreiðastöð Akureyrar.
Kjarnar — (Essensar)
Höfum bfrfiðir af ýmiskon-
ar kjörnnm til iðnaðar. —
ÁFENGISVERZLUN
RíKISINS
Jarðsettur 35 árum fyrir andlátið
í þessari grein er sagt frá herforingjanum Hector MacDon- H
ald, sem frægur varð fyrir hugprýði sína og hreysti þegar «
á unga aldri. Nokkru eftir aldamótin var það látið í veðri !!
vaka, að hann hefði svipt sig lífi, vegna ákæru, sem fram !!
kom á hendur honum. En brátt kom upp sá kvittur, að
hann væri enn í lifenda tölu. Á heimsstyrjaldarárunum var !!
sagt að Kitchener lávarður hafi oft setið á ráðstefnu með !|
honum. Nú er talið að þessi maður hafi nýlega dáið í *j
Frakklandi ;j
ttttttttmttmmmtttttttttttttttmttttttttttttttttttttttttttttttttttttmttttttttttttttttttttttttttt:
Frá Suður-Frakklandi hefir
sú fregn borizt út, að enski
herforinginn Hector MacDon-
ald hafi nýlega látizt þar, eftir
að hafa lifað þar lengi í gerfi
uppgjafa bankamanns. Ef þessi
fregn er rétt, þá er þar að nokk-
uru ráðin torleyst gáta, sem
mjög hefir verið umrædd í hópi
enskra herforingja um langt
árabil. Þessi maður var nefni-
lega sagður hafa látizt fyrir 35
árum, en svo margt var undar-
legt við hið svokallaða sjálfs-
morð hans, að fæstir tóku það
trúanlegt að hann hefði svipt
sig lífi.
Hector MacDonald var einn
af hugprúðustu mönnum í enska
hernum. Átján ára gamall komst
hann í hina frægu herdeild
Gordon Highlanders. Þar gat
hann sér fljótlega mikinn frama.
Á fáum árum varð hann einn
nafnkenndasti maður herdeild-
arinnar. í Búastríðinu var hann
tekinn höndum af óvinunum en
sýndi svo mikla hugprýði að
hann fekk að bera vopn sín
öll, þótt fangi væri. í orustu við
Majuba barðist hann fáliðaður
við óvinina. í þeirri hríð braut
hann vopn sín; þó lét hann
hvergi undan síga og réðist til
atlögunnar með tvær hendur
tómar.
í marzmánuði 1903 kom hann
til Parísar og settist að í gisti-
húsi einu. Hann var mjög fá-
skiptinn og dvaldi tíðast í her-
bergi sínu. Morgun einn árla
kom hann niður í forsalinn og
keypti blað. Meðan hann las
það, hristi hann höfuðið og smá-
hló. Skyndilega hnoðaði hann
blaðið saman, kastaði því frá
sér og gekk upp í herbergi sitt.
Fáum mínútum síðar heyrðist
skot.
Gistihússtjórinn gerði lögregl-
unni tafarlaust aðvart en áður
en hún kæmi á vettvang var
starfsmaður frá ensku sendi-
sveitinni og tveir læknar komnir
á staðinn. Gistihússstj óranúm
var tilkynnt, að herforinginn
hefði framið sjálfsmorð í ör-
væntingaræði. Líkið fekk enginn
að sjá. Hið eina, sem almenn-
ingur fekk að vita um þennan
atburð, var að finna í örstuttri
fregn, sem birtist í blöðunum
hinn sama dag og hljóðaði á
þessa leið:
„Samkvæmt áreiðanlegri heim
ild hafa handhafar ákæruvalds-
ins á eynni Ceylon borið fram
þungar ákærur á hendur Hector
MacDonald herforingja, sem
þegar er lagður af stað þangað
austur til að verja mál sitt.“
Enska hermálaráðuneytið
bauðst til að taka á sig kostnað-
inn við útförina ef MacDonald
yrði jarðsettur erlendis. En ætt-
ingjar hans báru fram þá ósk,
að lík hans yrði flutt til Edin-
borgar. Ef treysta má þeim
gögnum, sem fundizt hafa um
heimflutning líksins, var það
flutt til Englands í venjulegri
líkkistu og ekið í vagni til nyrðri
járnbrautarstöðvarinnar í Lon-
don, en þaðan var það sent til
Skotlands. Ekki var enskum fána
sveipað um kistuna, er henni
var rennt ofan í gröfina.
Það varð aldrei kunnugt, hvað
herforinginn var ákærður fyrir,
en margir töldu, að hann hefði
verið ásakaður um njósnir og
föðurlandssvik. í Frakklandi
gaus hinsvegar upp sá kvittur
að hann væri enn á lífi, en
hefði verið neyddur til að taka
sér dularnafn og lifa í útlegð
það sem eftir væri æfinnar.
Þessi orðrómur átti við nokkr-
ar líkur að styðjast. Árið eftir
varð kunnugt um liðsforingja í
her Rússa, sem þá áttu í stríði
við Japani, er sýndi' hugdirfð
mikla og herkænsku og sagt var,
að líktist mjög MacDonald.
Þær sögur ganga einnig, að á
heimsstyrjaldarárunum hafi
Kitchener lávarður margskiptis
átt viðræður við aldurhniginn
mann, hvítan fyrir hærum, sem
almennt var álitið að væri Mac-
Donald.
Hin seinustu ár hafa íbúarnir
í Nizza og Cannes tekið eftir
gömlum manni, sem ekið var í
hjólastól, og sífellt leitaðist við
að halda sér í hermannlegum
stellingum. Hann lét ávallt aka
(Framh. á 4. síðu.)