Nýja dagblaðið - 31.08.1938, Page 3

Nýja dagblaðið - 31.08.1938, Page 3
N Ý J A DAGBLAÐIÐ 3 INÝJA DAGBLAÐI9 Útgefandl: BlaSaútgáfan h.f. Rttatjórt: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. RltstJ ómarskrlí stof umar: Llndarg. 1 D. Simar 4373 og 2353. Afgr. og auglýsingaskrifstofa: Lindargötu 1D. Siml 2323. Eftir U. fi: Siml 3048. ÁskriftarverS kr. 2,00 á mánuSi. í lausasölu 10 aura elntaklS. PrentsmiSjan Edda h.í. Simar 3048 og 3720. „Úrelt vopn“ í lok júlímánaðar síðastl. hélt enska námumannasambandið aðalfund sinn. í byrjun fundar- ins flutti formaður sambandsins, Mr. Joseph Jones, ítarlegt ávarp, sem síðar hefir verið mikið rætt í enskum blöðum. „Verkföll eru“, sagði Mr. Jones meðal annars, „orðin úrelt vopn nú, nema til þess að svara óþolandi rang- sleitni“. Þessum orðum hans var ekki mótmælt á fundinum. Eru þó námumennirnir sá hluti enska verkalýðsins, sem talinn er fúsastur til verkfalla og háð hefir flest stærstu verkföllin á Bretlandi á þessari öld. Meðal þeirra blaða, sem gert hafa ræðu Mr. Jones að umtals- efni, er hið frjálslynda vikublað Spectator. „Mr. Jones hefir full- gilda ástæðu til að kveða upp slíkan dóm“, segir blaðið, „þegar tekið er tillit til sögu verkalýðs- hreyfingarinnar eftir ósigur hennar í kolaverkfallinu 1926. Bæði verkalýðsforingjar og vinnuveitendur hafa lært, að það er ekkert unnið með því, að halda þannig á málunum, að verkfall eða verkbann verði ekki umflúið. Það er rétt, að verk- fallsréttur þarf jafnan að vera einskonar varaeign verkalýðsins. En það á ekki að koma til þess, að hann sé notaður, nema ann- arhvor aðilinn stjórnist ekki lengur af skynseminni. Verkföll- in eru orðin úrelt vopn í félags- lega þroskuðum iðnaði al- veg eins og styrjaldir eiga að vera úrelt vopn hjá menningar- þjóðum Evrópu. Enski iðnaður- inn virðist vera að komast á það menningarstig, að verkföll, sem byggð eru á sanngirni, séu orð- in mjög sjaldgæf". Sú reynsla Englendinga, sem kemur fram í þessum ummælum, er fullkomlega þess verð að henni sé góður gaumur gefinn hér á landi, bæði af vinnuveit- endum og af leiðtogum verka- lýðsfélaganna. milli stétta. Allir „réttlínu“- marxistar aðhyllast því jöfn laun. En nú vill svo einkenilega til, að í engu landi veraldarinnar eru misjafnari launagreiðslur en einmitt í Rússlandi. Þetta stétt- lausa þjóðfélag. sem átti að vera, hefir tekið upp þá háttu í launa- greiðslum, sem óhjákvæmilega hljóta að leiða af sér stétta- skiptingu. Hið svokallaða Stakh- anov-kerfi í launagreiðslum, sem ekki alls fyrir löngu hefir verið tekið upp í Rússlandi, leiðir af sér misjafnari ,aun verkamanna en þekkist í nokkru öðru landi. Það byggist á sömu grundvallar- atriðum og ágóðahlutur verka- manna og hlutaráðning, en það kaupgreiðslufyrirkomulag hafa engir fordæmt meira en ein- mitt kommúnistar. Enda hefir stéttaskiptingin meðal rússneskra verkamanna skerpzt mjög mikið upp á síð- kastið. Stakhinov-verkamenn- irnir eru nú opinberlega viður- kenndir sem yfirstétt meðal rússneskra verkamanna. Laun þeirra eru mikið hærri en ann- ara verkamaana og lífsvenjur þeirra aðrar. í hinni ágæru ferðabók Gust- avs Hellerstöms, frá Rússlandi, er eftirfarandi samtal, sem átti sér stað milli Stakhanov-konu og formanns stéttarfélags henn- ar: — Hvað hefir þú í kaup? spurði formaðurinn. — Meðallaun eru 158 rúblur á mánuði. f september vann ég fyrir 426 og í október fyrir 886. — Hvaða kaup hefir vinkona þín? — 1336 rúbiur. — Hvað gerix hún með alla þessa peninga? — Hún ætlar að kaupa sér skó fyrir 186 rúblur, dragt fyrir 200 rúblur og kápu fyrir 700 rúblur. Þessar tölur gefa nokkra hug- mynd um hina geysilegu dýrtið sem ríkir í Rússlandi. (Úr Dagbledet, Oslo) „Gullfoss(< fer héðan fil Breiða- fjarðar og Vestfjarða samkv. áætlun mánu- dagskvöld p. 5. sept. Ný yíírstétt í Rúss- landi Vegna aukaferðar skipsíns til Bsldudals á laugardaginn óskast Ein af hugsjónum rússnesku bolsjevikkanna var sú að skapa stéttalaust þjóðfélag. Allir áttu að vera verkamenn, hugtök eins og borgarastétt eða yfirstétt, dauðadæmd. Þannig átti það að ganga til í hinu sósialistiska ríki. Samkvæmt kenningum Marx er mismunandi efnahagur höf- uðorsök til stéttaskiptingar. Mis- munandi launagreiðslur eru því eitt af því helzta, sem mörk setja vörur til Vesturlands- ins afhentar fyrir há- degi á laugardag. KAIJPEXDIJR NÝJA DAGBLAÐSINS eru vinsamlega beðnir að tilkynna afgr. tafarlaust öll vanskil af hálfu blaðs- ins. — Kjötlögin ok framkvæmd þeirra Svar til Sígurdar Kristjánssonar Irá Páli Zóphóníassyni Sigurður Kristjánsson er þrautseigur maður. Þótt hann viti sjálfur, að bændur landsins séu fyrir löngu hættir að taka mark á því, sem hann segir, þá er hann enn að reyna að blekkj a með ósannindum, ef ske kynni að hann með því gæti gert þeim, sem hafa það hlutverk með höndum, að reyna að hækka verð sauðfjárafurðanna til bænda, einhvern óleik. Og hann sækir nú það langt til þessa, að hann vegur að sínum beztu flokksmönnum með verstu dylgj um, til þess að reyna að ná til kj ötverðlagsnef ndar. í Morgunblaðinu frá 25. ág. ritar Sigurður um kjötlögin og framkvæmd þeirra, og má telja líklegt, að ritstjórar ísafoldar láti það skrif líka birtast þar, því þeir eru kunnir að því, að vita ekki hvað hentar blaði sínu. Sigurður byrjar á að tala um það, að kjötverðlagsnefndin sé nú búin að eyðileggja sumar- slátrun. Ekki reynir hann að finna þessum orðum sínum stað. Ég skal nú upplýsa, að kjöt- verðlagsnefnd hefir ráðið því hvenær sumarslátrun hefir byrjað síðan 1935. Og ég skal upplýsa að síðan 1931 hefir sumarslátrun byrjað sem hér segir: 1931, 1. ágúst. 1932, 28. júlí. 1933, 15. júlí. 1934, 1. ágúst. 1935, 11. ágúst. 1936, 22. júlí. 1937, 15. júlí. 1938, 29. ágúst. Að meðaltali fjögur árin áð- ur en nefndin byrjaði er því byrjað 27. júlí en síðan 4. ágúst. Og allur munurinn stafar frá árinu í ár, en haustið 1937 til- féllst einum fimmta meira kjöt til sölu, en nokkurntíma áður. Á þessu geta menn séð hið rétta í málinu. Þá talar hann um það, að or- sökin til þess að svona seint sé byrjað í ár að slátra, sé sú, að nefndin sjái engin önnur ráð „þangað til búið sé að svæla þessu bráðum ársgamla sæl- gæti í Grimsbylýöinn eða þá að lauma því í sjóinn, þegar nótt er orðin hæfilega dimm.“ Sig- urður gleymir sýnilega hverjir eiga kjöt nú. Kjötverðlagsnefnd á aldrei neitt kjöt. Hún getur því hvorki svælt því í Grimsby- lýðinn né ekið því í sjóinn. Þeir, sem hér eiga kjöt nú, eru þessir: Garðar Gíslason, stór- kaupmaður, Sláturfélag Suður- lands, Kron, Tómas Jónsson, kaupmaður, Kaupfélag Borgfirð- inga, Hjalti Lýðsson og hf. Nor- dalsíshús. Nú hefir Sigurður heyrt einhverjar sögur um það, að það kemur fyrir í þeim lönd- um þar sem auðvaldsskipulagið er mest ráðandi, að vörur eru eyðilagðar, og til þess að reyna nú að ná með eitthvað misjafnt til kjötverðlagsnefndar, þá reyn- ir hann að læða því inn hjá mönnum, að hún ætli að gera þetta. En ef um það væri að ræða, að ætla einhverjum slíka svívirðu, þá væri líklegra að það væru þeir, sem eru yfirlýstir fylgjendur auðvaldsstefnunnar, en það eru hér þeir flokksmenn Sigurðar, sem enn eiga kjöt. Það sé mjög fjarri mér að láta mér detta slíkt í hug, en Sigurði Kristjánssyni, sem er þeim kunn ugri en ég, að ég ætla, dettur það sýnilega i hug, því ella hefði hann varla skrifað eins og hann gerir. Þetta hjal vesalings Sigurðar er því vægast sagt illgirnisleg aðdróttun til sinna beztu flokks- manna, og þeirra fáu samvinnu- félaga, sem enn eiga kjöt. Þá talar Sigurður um það, að kjötneyzlan í landinu hafi minnkað , og hve dýrmæt sum- arslátrunin sé fyrir bændur. 1937 var sumarslátrun það mest sem hún hefir orðið lengi. Þá kom 1,8% af öllu kjötmagni ársins á sumarmarkaðinn. Venjulega er það milli 1 og 1,5% af kjöt- magni haustsins, sem kemur og selst á sumarmarkaðinum. Halda menn ekki, að bændunum sem heild muni mikið um það? Sannleikurinn er sá, að sem heild er sumarmarkaðurinn á- kaflega lítils virði fyrir kjöt- söluna. En hann er mikils virði fyrir einstaka menn, og bændur almennt i Skagafirði austan- verðum; þess vegna ber líka að nota hann eftir því sem stað- hættir liggja til á hverjum tíma, enda þótt hann sé bænd- um kostnaðarsamur. Eg hygg nú að ekki þurfi meira að tala um nytsemi sumarmarkaðarins, hún er mönnum, vona ég, ljós. En þá er minnkun kjötneyzl- unnar í landinu. Sigurður vitnar þar í „Rauðku“ og er gott til þess að vita að hann skuli þó lesa þá bók.En hitt er verra að hann les hana eins og sagt er að viss hugsuð persóna lesi biblíuna. Það er rétt, að þegar hann tekur reiknaða áætlaða kjötneyzlu á mann 1933, sem tal- in er 51 kg. og 1934, sem talin er 30 kg., þá fær hann 41% minnkun. En hvernig eru svo þessar tölur fundnar hjá „Rauðku“? Þær eru fundnar með þvi að áætla, að árlega sé slátrað einu lambi undan hverri á, sem fram er talin að vorinu. Gera lambið 13,5 kg. þungt og finna svo heildarkjötmagnið eftir tölu framtöldu ánna, marg- faldaðri með 13,5. Til þess svo að reyna að finna neyzluna í landinu, þá er frá þesari tölu dregið það, sem skýrslur segja útflutt á árinu. Vegna þessa eru þessar tölur rangar og gefa ranga hugmynd um kjötneyzl- una í landinu. Og vitanlega verð ur þetta aldrei áætlað, þegar engar skýrslur eru til að byggja á. En ég skal benda Sigurði á að vanhöldin eru mismikil eftir árunum. Til þessa tekur nefndin ekkert tillit. 1933 lét Þorsteinn Briem, eftir áskorun frá S. í. S., safna skýrslum um slátrunina. Kom af þeim i Ijós, að í kaup- stað var slátrað fjórum lömbum undan hverjum 7 ám framtöld- um, og hefir það ekki orðið svo lítið, miðað við ærtöluna, sem slátrað hefir verið síðan. En nefndin reiknar lamb undan hverri á. 1933 var meira óselt af kjöti frá haustinu 1933 en 1932 frá haustinu á undan. Það útaf fyrir sig lækkar töluna 51 niður í48en hækkar aftur töluna fyrir 1934 úr 30 í 33. Það er þvi alveg óhætt að segja það sem víst, að skýrsla „Rauðku“ um þetta er áætluð og getur ekki orðið annað. Enda er það berum orðum tekið fram, og hefir Sig- urður rangfært heimildir. Þá kemur Sigurður að heima- slátruninni, en það er löngu kunnugt, að hann heldur að kjötið verði bezt ef hver bóndi slátrar heima hjá sér og flytur það svo á klökkum, eða bátum, í búðirnar til kaupmannsins. Og æfinlega eru það einhverjir í ísa fj arðarsýslu, sem versta hafa að stöðu til að reka féð i sláturhús og slátra því að hætti siðaðra manna. Nú eru það nokkrir bændur á Norður-Strönndum, sem eiga sérstaklega erfitt og sem kjötverðlagsnefndin hefir leikið grátt með því að banna þeim að slátra heima hjá sér. Það er satt í þessu máli, að erf- iðleikar eru á því fyrir þessa bændur að koma fé sínu til ísa- fjarðar, enda þótt sumt, sem Sig urður segir um það sé ósatt. T. d. er bygð á Hrafnsfjarðareyri, en þar er þetta fé tekið í bát, og bíða þeir því, ef um bið er að ræða, hjá bóndanum þar, Líka- f rón Sigurðssyni, en ekki í óbyggð. Hitt er aftur rangt, eins og raun- ar flest annað, að kjötverölags- nefnd hafi bannað þessum mönn um heimaslátrun. Þeir hafa ald- rei beðið um hana. Ef til vill ætlar Sigurður sér að fá þá til þess að sækja um að fá að slátra heima, en ég er ekki viss um hvort þeir kæri sig um það. Þeir vilja selja slátur á ísafirði, og ég hygg að það sé orsök þess, að þeir löngu áður en kjötlögin voru sett, voru farnir að haga rekstr- um á fé sínu eins og Sigurður lýsir. Og þeir gera þetta enn og dettur engin breyting í hug. Fyr- ir einum þrem árum var mest talað um það hvaö, bændur í Sléttuhreppi ættu erfitt með að reka sitt fé og flytja það til ísa- fjarðar. Þeir sóttu þá um leyfi til slátrunar. Þá var þeim leyft að slátra á Hesteyri í fiskhúsi, sem til þess taldist fært. En þegar sláturtíðin kom, vildu all- ir fara til ísafjarðar, og af slátruninni á Hesteyri varð ekki. Ætli það yrði ekki svipað, þó slátrun yrði eyfð í Furufirði? Það gæti vel komið til mála, en það hefir ekki verið farið fram (Framh. á 4. slSu.)

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.