Nýja dagblaðið - 02.09.1938, Page 4
REYKJAVÍK, 2. SEPT. 1938.
NYJA DAGBLAÐIÐ
6. ÁRGANGUR — 201, BLAÐ
G A M L A B í Ó
Söguleg, rússnesk kvik-
mynd um frelsishetju
Rússa I byltingunni 1917—
1919.
Aðalhlutverkin leika rúss-
neskir úrvalsleikarar.
Sýnd kl. 9.
Araki hershöiðingi
(Framháld af 2. síðu.)
af hálfu Japana. Araki fylgdist
nákvæmlega með styrjöld Mus-
solinis í Abessiníu, og sótti þang-
að ýms rök til stuðnings þeirri
kröfu sinni, að japanski herinn
yrðí að fá betri hergögn heldur
en hann hefði. En það var að-
eins eitt land, sem bæði gat og
vildi láta slík hergögn af hendi,
nefnilega Þýziialand.
Araki staðhæfði að sönnu á-
vallt, að hann vildi aðeins skapa
traustan varnarher. Hvort hann
hefir látið sér detta í hug, að á
það yrði trúnaður lagður, er
annað mál. Atburðirnir tala sínu
máli.
Þótt Araki sé nútímans maður,
þegar til herbúnaðarins tekur, er
hann fastheldinn á gamlar lífs-
skoðanir og siðvenjur Japana.
Hann fylgir nákvæmlega hátt-
um ættmenna sinna og trúir því
staðfastlega, að hin forna menn-
ing nái enn að blómgast, og þá
sé Japan borgið. Hann er þátt-
takandi í svartliðahreyfingunni
Kokuan-Sha, en sú hreyfing er
mjög andvíg auðvaldinu þar
eystra.
— Auðkýfingarnir hafa leitt
fólkið afvega, segir Araki, og
fengið það til að snúa bakinu við
keisaranum, sem er þungamiðja
hins japanska þjóðfélags.
Skoðanir Araki eru hiklaus
túlkun á viðhorfi hinna yngri
liðsforingja, sér í lagi þeirra, sem
eru af bændaættum og er í brjóst
lagið hatur til iðnaðarhöldanna
og viðleitni þeirra til að teygja
angana inn á svið landbúnaðar-
ins.
Sadao Araki er höfundur
margra bóka um þjóðernismál,
sem mjög eru lesnar af æsku-
lýðnum. Þar úir og grúir af setn-
ingum sem þessum:
— Við þyrftum að eignast nýja
stétt manna, svipaða og her-
mannaaðalinn á miðöldunum, er
lifði sparsemdarlífi og fórnaði
æfi sinni í þjónustu keisarans.
— Allar hugsjónir, sem gagn-
stæðar eru japönsku hugarfari,
verður að brjóta á bak aftur.
— Japönsku bændurnir þarfn-
ast meiri jarðar. Sé þess nauð-
syn, þá á ekki að hlífast við að
vökva hina nýju jörð með blóði
hermannanna og vígja hana
þannig og helga til japanskrar
eignar.
Þannig er maðurinn, sem nú er
áhrifamesti leiðtogi japanska
æskulýðsins, ekki aðeins þess
hluta hans, sem til hermennsku
Beztu kolin
Síniar: 1964 og 4017.
SCHUSSNIGG
fyrir dómstóli
nazista
Eftir að Þjóðverjar lögðu undir
sig Austurríki, stofnuðu þeir sér-
stakan dómstól í Wien, sem
fjallar um mál pólitískra saka-
manna. Fyrir þennan dómstól
hefir nú verið stefnt ýmsum
þeim mönnum, er fyrir samein-
ingu ríkjanna voru leiðandi
menn á ýmsum sviðum í Austur-
riki.
Af þeim má t. d. nefna Schu-
schnigg', fyrrv. kanzlara, Vau-
goin, fyrrv. landvarnarmálaráð-
herra, Baarenfeld, fyrrv. sendi-
herra Austurríkismanna í Buda-
pest, Schmitz, fyrrv. borgar-
stjóra í Wien, o. m. fl.
Forseti dómstóls þessa á að
vera löglærður, en 6—8 meðdóm-
endur hans skulu vera leikmenn
í þeim efnum. Þeir eru tilnefndir
af SA-félögunum, SS-félögun-
um, Gestapo, hernum og vinnu-
fylkingunni.
Dómstóll þessi má aðeins
dæma sakborninga seka, hann
má hvorki dæma til dauða eða
sýkna. En eftir því, er dómstóll-
inn upplýsir í njálum sakborn-
inga, mun svo hinn opinberi á-
kærandi fara, er hann ákveður,
hvort mál viðkomandi sakborn-
ings skuli látið niður falla eða
það tekið upp fyrir þeim dóm-
stóli, er rétt hefir til að kveða
upp dauðadóm eða aðra hegn-
ingu.
Fyrir þennan dómstól hefir
Schuschnigg verið stefnt, eins og
áður getur. Um þessar mundir
býr hann sig undir að færa
sönnur á fullkomlega ariskan
uppruna sinn.
ræðst, heldur og þeirra, er nám
stunda í skólunum og vinna á
ökrum og í verksmiðjum.
Ellilaun.
Umsóknum um ellilaun á þessu ári sé skilað
hingað á skrifstofuna fyrir lok þessa mánaðar.
Eyðublöð fyrir umsóknir í ofangreinda átt fást
hér á skrifstofunni. Nýir umsækjendur verða
að láta fæðingarvottorð fylgja umsókn sinni.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 1. september 1938.
N Ý J A B I Ú
Spaða
asmu
Síðari hluti af
Dularfullu
flugsveitiiml
sýndur í kvöld.
Börn fá ekki aðgang.
Pétur Halldórsson.
Samsæti heldur
Félag Vestur-Íslendínga
þessum nýkomnu Vestur-íslendingum: Mr. og Mrs. Ásmundur P.
Jóhannsson, Mr. Gísli Guðmundsson, Mr. Guttormur J. Guttorms-
son, Misses Hlín og Margrét Eiríks, Mrs. Jósephina Jóhannsson,
Mr. Ólafur Sigurbjörnsson, Mr. og Mrs. Páll Dalman, Miss Pearl
Pálmason, Miss Sigríður Guðmundsdóttir, Miss Sigurlaug Jónsdóttir,
Mr. Theodór Sigurbjörnsson, Mr. og Mrs. Thorvaldur Thoroddsen
og dætrum þeirra, í Oddfellowhöllinni n. k. sunnudagskvöld (4. sept-
ember) klukkan 9. —
Þeir, sem kynnu að vita um fleiri Vestur-íslendinga, sem dvelja
hér um þessar mundir, en þá sem að ofan er getið, geri svo vel að
tilkynna það í síma 1455.
Öllum Vestur-íslendingum, svo og skyldfólki og vinum heiðurs-
gestanna, er heimil þátttaka.
Áskriftarlistar liggja frammi til hádegis á laugardag á B. S. 1,
sími 1540 og hjá frú Halldóru Sigurjónsson, Aðalstræti 16, sími 1455.
FÉL AGSST J ÓRNIN.
ENGLISH. - As Used in Englnad.
Reading, Writing, Conversation, Literature and/or
Business Methods, as required. Also certain Technical
Subjects. „ - ^JJ
HOWARD LITTLE,
Laugavegi 3 B.
Að g’cínu tilefni
og samkvæmt tilmælum herra Stefáns S. Rafnar, bók-
haldara Sambands ísl. samvinnufélaga, lýsi ég yfir því,
að ég er óskyldur ættinni Rafnar og mun framvegis kalla
mig og reka verzlun mína undir fullu nafni.
Reykjavík, 31. ágúst 1938.
Virðingarfyllst,
STEFÁN RAFN SVEINSSON,
Nönnugötu 7.
Kjarnar — (Essensar)
Höfnm birgðir af ýmiskon-
ar kjörnnm til iðnaðar. —
Afengisverzlvn
RÍKISINS
Kjötyerzlanir
Seljum hreinsaðar híndagarnír.
GARNASTÖÐIN, Beykjavík.
Sími 4241.
Hvað er borgfirzka
sauðf járpestin ?
(Framháld af 3. siðu.)
grein hans um Jaagsiekte:
„Further Observations on the
Etiology of Jaagsiekte in Sheep“.
(15th. Annual Report of the
Director of Veterinary Services
of South Afrika 1929)?
Þegar gild rök eru færð fyrir
því, að borgfirzka sauðfjárveik-
in sé fyrst og fremst lungnaorm-
um að kenna, og þó sennilegast
samspili tveggja sjúkdóma að
kenna. n.l. lungnaormabólgu og
lungnadreps, þá spyrja menn,
hversvegna þessi fjárpest hafi
reynzt miklu skæðari nú en
nokkru sinni áður. Ég hygg, að
samskonar fjárpest hafi oftar en
einu sinni í núlifandi manna
minni verið jafn skæð og nú,
munurinn aðallega sá, að ekki
var gert eins mikið úr pestinni
þá og nú. Þá var ekki sú grýla
höfð, er hræddi fólkið, að nýr,
innfluttur sjúkdómur væri á
ferðinni. Annars er skæð orma-
veiki samfara slæmu tíðarfari —
bleytum og rigningum — hér
sem erlendis.
Af því sem að framan er sagt,
hljóta varnir gegn veikinni að
falla niður, að minnsta kosti í
haust, en varnir gegn því, að slík
raunasaga sem þessi endurtaki
sig, eru bráðnauðsynlegar.
Akureyri 4. ág. 1938.
Sig. Ein. Hlíðar
dýralæknir.
Kínverjar vinna
mikinn sigur
LONDON:
Kínverjar segjast hafa unnið mikinn
sigur í orrustum við Japana á Yangtze-
vígstöðvunum, í nánd við Kiu-Kiang.
Neyddust Japanir til þess að hörfa
undan og misstu þeir mikið af rifflum
og vélbyssum. Kínverjar telja, að af
liði Japana hafi sœrzt og fallið um 2000
menn. — FÚ.
Stórfelldir skógar-
brunar í Rússlandi
EINKASKEYTI FRÁ KHÖFN:
Á stórum svæðum hafa Rússar unnið
að því undanfarið, að brenna skóga til
þess að greiða fyrir um ræktun lands-
ins. Reykinn frá hinum miklu skógar-
eldum leggur nú eins og kolsvört ský
yfir til Finnlands og þykjast menn
finna brunalyktina alla leið til Sví-
þjóðar og Noregs. — FÚ.