Nýja dagblaðið - 04.09.1938, Blaðsíða 2

Nýja dagblaðið - 04.09.1938, Blaðsíða 2
2 N Ý J A DAGBLAÐIÐ Maður einn, er þótti nokkuð mikill á loftí, bar hið algenga nafn Schröder. — Hann vildi ðreyta um nafn og rœddi um þá fyrirœtlun við einn kunningja sinn. — Vœri ekki betra að ég ritaðí nafn mitt með oe í stað ö? spurði hann. — Þú œttir heldur að rita það með y, svaraði kunninginn. (Skryder = gortari.) * Grimur í glugganum skrifar M olum á þessa leið: Síðastí ðœjarstjórnarfundur hafði til meðferðar breytingar á lögreglusamþykkt bœjarins. — Meðal þeirra var það ákvœði, að óheimilt vœri að bera húsdýra- áburð á grasfleti á almannafœri, og hafði Bjarni Benediktsson mœlt mjög eindregið fyrir þess- ari breytingu. Áður en til at- kvœða var gengið, spurðist Ragnhildur Pétursdóttir fyrir um það, hvort túnið í Háteigi teldist á almannafœri. Úrskurð- aði forseti bœjarstjórnar að svo vœrí. Reis þá Ragnhildur upp og krafðist þess, að þetta ákvæði vœri ekki sett inn í lögreglusam- þykktina, en það var ekki tekið til greina. * . .Evening Standard vœntir þess, að ensku konungshjónin muni heimsœkja Bandarikin nœsta ár. Þetta hefir þó ekki verið opin- berlega tilkynnt. Líklegt má telja, að konungshjónin heim- sœki þá einnig Canada. * Tollverðir í New York rannsök- uðu nýlega húsbát við Brooklyn- hafnargarðinn. Þeir drógu upp taug, sem fest var við stefni bátsins. Kom þá upp stórt málm- hylki, sem hafði inni að halda 325 kg. af opium og heroin, sam- tals um 600.000 dollara virði. Er þetta mesta magn deyfilyfja, er reynt hefír verið að smygla inn í Bandaríkín á síðustu 10 árum, svo að vitað sé. * Ameriskur blaðamaður, Pat Dolan, sem undanfarið hefir ver- ið á ferð í Stokkhólmi, hefir skýrt svo frá, að amerlskur rak- ari hafi fundið upp aðferð til þess að leggja eilífðarlíðí í hár. Blaðamaðurinn gaf ekki aðrar upplýsingar um aðferðina en þœr, að þetta vœri framkvœmt með einhverjum aðgerðum á hárrótinni. Pat Dolan fullyrðir, að hár, sem á þennan hátt er liðað, geti ekki orðið slétt aftur. * Ungverskí erkihertoginn, JoseJ Franz og kona hans, munu koma i heimsókn til Oslo 8. okt. n. k. Upphaflega var œtlunin að hann sœti baðráðstefnuna, sem þar var háð fyrr i sumar, en af því gat eigi orðið. 9. okt. mun Josef Franz flytja fyrirlestur i Oslo um baðlíf i Ungverjalandi. * TIL ATHUGUNAR: Sannmálar varir munu ávallt standast, en lýgin tunga aðeins augnablik. Salómon konungur. Beztu kolín Símar: 1964 og 4017. aðeins Loftur. Síðan er fögur sveit. Fastar áætlunarferðir frá Rvík að Kirkjubæjarklaustri alla þriðjudaga. Frá Kirkjubæjar- klaustri til Reykjavíkur alla föstudaga. Vandaðar bifreiðar. Þaulæfðir bílstjórar. Afgr. Bif- reiðastöð íslands. Sími 1540. — „ - - - VEIT ÉG ÞAÐ, en það er pó að minnsta kosti eitt sem má reyna til að bœta og folíðka skapið með og það er REGLULEGA GOTT KAFFI En ef pú villt búa til óað- finnanlegt kaffi þá verðurðu blessuð góða að nota r R c Y J v SAFFIBÆTI Hítar, ílmar, heíllar drótt hressír, styrkír, kætír, fegrar, yngír, færír þrótt Freyju kaffíbætír. Gleymdar mílli ónir í bönkum Bandaríkjanna liggja innstæður, sem nema 190 milljónum dollara, er enginn hefir hirt um áratugum saman. Samkvæmt enn gildandi lögum mega bankarnir ekki slá eign sinni á þessar gleymdu innstæður, jafnvel þótt þær séu hundrað ára gamlar. Þær valda bönkunum hins- vegar margvíslegra óþæginda. Samkv. hagskýrslum Banda- ríkjanna hafa um fimm milljón- ir manna gleymt því, að þeir eiga 190 milljónir dollara innieign í bönkum víðsvegar um landið. Þessar fjárupphæðir hafa legið afskiptalausar í bönkunum ára- tugum saman, og hvorki eigend- ur né erfingjar gefið sig fram. Langflestar upphæðirnar eru að sönnu aðeins fáir dollarar, en 65 sparifjáreigendur hafa þó ger- samlega gleymt yfir 50.000 doll- ara og 1211 manneskjum hefir láðst að vitja um upphæðir, sem nema frá 10.000—50.000 dollur- jim. Nýlega voru lögð fyrir þing Bandaríkjanna lög þess efnis, að slíkar innieignir, sem eigendurn- ir hefðu gleymt, að þeir ættu til ávöxtunar í bönkunum, skyldi renna til innlánsstofnananna sjálfra, ef ekkert væri um pen- ingana skeytt í tuttugu ár. í engu ríki heimsins eru jafn mikil brögð, að innstæðufé, er enginn virðist telj a sér til eignar, sem í Bandaríkjunum. Maður gæti freistazt til þess að álykta, að þar búi gleymnasta fólk ver- aldarinnar. Mikið af þessum pen ingum hefir legið óhreyft í hálfa öld og sumt af fé þessu hefir enginn skeytt um í meira en hundrað ár. Milljónirnar liggja óhreyfðar, því að samkvæmt þeim lögum, sem enn eru í gildi, getur enginn ráðstafað þeim, nema hinir réttu eigendur. En hvernig getur bankainn- stæða gleymzt? Til þessa kunna margar ástæður að liggja. Það er til að mynda algengt, að for- eldrar leggi mánaðarlega inn vissa fjárhæð í sparisjóðsbók, sem þau hafa gefið barni sínu. Deyi þau snögglega, veit máske enginn um þessa innstæðu. Bönkunum er mjög illa við slíkar innstæður; þær leiða af sér margvíslegt aukaerfiði. Hin umfangsmeiri bankafyrirtæki hafa starfandi sérstaka deild, sem fjallar um þessar gleymdu fjárfúlgur og reynir að hafa upp á hinum réttu eigendum þeirra. Þessar eftirgrennslanir eru oft ákaflega kostnaðarsamar. Fyrir nokkru tókst stórbanka einum í New York að komast í samband við eiganda peninga, sem legið höfðu afskiptalausir hjá innlánsdeildinni í fimmtíu ár. Árið 1880 kom maður að nafni John Nugent frá Tipperary til New York og gerðist þar kennari. Hann lagði mánaðarlega inn í bankann dálitlar peningaupp- hæðir, sem hann sparaði saman. Eftir nokkur ár hætti hann skyndilega að skipta við bank- ann. Að nokkrum árum liðnum var tekið að leita mannsins og etfir ótal eftirgrennslanir frétt- ist um mann, með þessu nafni, sem dáið hafði í Brooklyn sama árið og John Nugent hætti að leggja inn sparifé sitt. En nán- ari athugun leiddi í ljós, að hér gat ekki verið um hinn sama mann að ræða. Bankinn auglýsti nú nýlega í stærstu blöðum ír- lands eftir John Nugent eða erfingjum hans. Með að- stoð prests eins tókst að hafa upp á manni, sem verið hafði svaramaður John Nugents í brúðkaupi hans í Tipperary. Með aðstoð þessa manns tókst að komast á rétt spor. John Nugent hafði snúið heim til fóst- urjarðarinnar og dáið þar. Hin áttræða ekkja hans fékk nú greidda upphæðina, sem maður hennar hafði lagt inn fyrir fimmtíu árum. Hún hafði aukizt dálaglega á þessum árum. Næstum daglega má lesa í stórblöðunum í New York aug- lýsingar, þar sem lýst er eftir eigendum gleymdra innstæða. Það hendir oft, að manneskjur, sem ekkert tilkall eiga til pen- inga, reyna að ná þeim út. Engar upphæðir eru þvi greiddar út fyrri en nákvæm rannsókn á rétti kröfuhafans hefir farið fram. í Manhattan-banka í New York er innstæða geymd, sem upphaflega var lögð þar inn árið 1924 af einhverri Jóhönnu Mur- phy. Þótt merkilegt sé, þá skeytti hún aldrei framar um þessa pen- inga sína og í hundrað ár hafa (Framh. á 4. síðu.)

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.