Morgunblaðið - 26.05.2004, Síða 2
Morgunblaðið/Ásdís
Toyota Corolla Verso: Miðjusætaröðin fellur slétt ofan í gólfið eins og öftustu
sætin. Örfá handtök þarf til að breyta bílnum í sendibíl.
Opel Zafira: Annað aftursætið hefur verið lagt slétt niður í gólfið. Einnig er
hægt að velta miðjusætabekknum upp að framsætisbökum.
VW Touran: Miðjubekkur lagður upp að framsætisbökum. Hægt er að fjarlægja
miðjusætin úr bílnum og skapa enn meira rými.
NÚ þegar eru á markaði fjórir sjö
sæta fjölnotabílar í C-flokki, þ.e.a.s.
þeim stærðarflokki bíla sem kenndur
hefur verið við Golf, og innan tíðar
bætist sá fjórði við, Renault Scenic II.
Fyrstur á markað árið 1999 var Opel
Zafira, sem vakti þá mikla athygli fyr-
ir svokallað Flex-7 sætakerfið og naut
þess í næstum fjögur ár að vera því
sem næst einn um hituna. Í fyrra kom
síðan á markað Peugeot 307 SW og
VW Touran, sem hefur hlaðið á sig
viðurkenningum og loks á þessu ári
Toyota Corolla Verso með Easy
Flat-7 sætakerfinu og má greinilega
heyra samhljóm í nafngiftinni við
sætakerfið í Opel. Allir þessir bílar
eru eingöngu boðnir sjö sæta hér-
lendis.
Gerður var samanburður á sæta-
kerfum þessum bíla. Hann leiddi í ljós
að hvert kerfi hefur margt til síns
ágætis en það kerfi sem er auðveldast
í notkun er Easy Flat-7 kerfið í Co-
rolla Verso.
Úr fólksbíl í sendibíl með
fjórum handtökum
Miðjusætaröðin, sem skiptist 60/40,
þ.e.a.s. eitt fullvaxið sjálfstætt sæti og
annað sambyggt fyrir tvo farþega, er
á sleða og því hægt að auka fótarýmið
eða minnka það eftir aðstæðum. Bíl-
arnir þrír eiga það allir sameiginlegt
að vera með miðjusæti á sleða. Hvort
sætið í Verso er fellt niður með einu
handtaki, með því að toga í þar til
gerðan spotta, og falla þau þá slétt of-
an í gólfið. Tvö lítil barnasæti eru í öft-
ustu sætaröð og þau eru felld hvort í
sínu lagi með einu handtaki. Þannig
tekur það örfáar sekúndur, og fjögur
handtök, að breyta bílnum úr sjö
manna fólksbíl í tveggja manna bíl
með miklu flutningsrými, eða alveg
frá framsætisbökum að afturhlera.
Tvö handtök þarf hins vegar til þess
að reisa hvort aftursæti í upphaflega
stellingu. Stóri kosturinn við þetta
kerfi er hve auðvelt það er í notkun og
hversu mikið flutningsrýmið verður.
VW Touran er með svipuðu sæta-
kerfi en þar munar þó helst því að
miðjusætaröðin, sem er þrjú sjálf-
stæð sæti, öll á sleða, er felld niður í
þrennu lagi og þarf til þess samtals
sex handtök. Fyrst er sætisbakið fellt
niður og síðan er sætinu sjálfu velt
upp að framsætisbökunum. Með
þessu móti gengur dálítið á farang-
ursrýmið í samanburði við Easy
Flat-7 kerfið í Verso, nema þau séu
fjarlægð hvert fyrir sig úr bílnum.
Það þarf í raun ekki nema tvö hand-
tök til að fjarlægja hvert sæti en
ókosturinn er sá að koma þarf sæt-
unum fyrir í geymslu.
Sætakerfið í Peugeot 307 SW er í
raun nauðalíkt kerfinu í Touran. Þar
eru miðjusætin sjálfstæð sæti sem
hægt er að velta upp að framsætis-
bökum eða fjarlægja úr bílnum.
Heill miðjubekkur í Zafira
Elsta sætakerfið er í Opel Zafira
einfaldlega vegna þess að hann er
elsti bíllinn af þessum þremur. En
Opel var á sínum tíma brautryðjandi
á þessu sviði og hefur tekið forystu
hvað varðar snjallar lausnir í sæta-
kerfi í öðrum stærðarflokki, þ.e.a.s. í
b-flokki með Meriva-fjölnotabílnum,
sem byggður er á sama undirvagni og
Opel Corsa. 7-Flex-kerfið í Zafira er
þannig gerð að miðjusætaröðin er
einn heill bekkur og því ekki hægt að
fella niður einstök sæti. Þó er hægt að
fella niður sætisbökin hvert fyrir sig.
Ef breyta á innanrýminu í Zafira í
sem mest flutningsrými þarf að fella
niður sætisbökin og færa bekkinn,
sem er á sleða, upp að framsætisbök-
unum, og velta bekknum síðan upp.
Þannig gengur hann nokkuð á flutn-
ingsrýmið.
Það sem stendur eftir er að Corolla
Verso er eini bíllinn í þessum flokki
sem myndar alveg slétt rými frá
framsætisbökum að afturhlera og
sætakerfið er að auki einfaldast í
notkun. Stærðir, rými og verð má síð-
an sjá í upptalningu hér til hliðar.
Mismunandi sætakerfi
í c-flokki fjölnotabíla
2 B MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Farangursrýmið
í málum
Volkswagen Touran:
Öll sæti uppi: 121 lítri.
Öll sæti niðri: 1.989 lítrar.
Lengd farangursrýmis: 155 cm
með öll sæti niðri.
Breidd farangursrýmis: 129 cm
með öll sæti niðri.
Grunnverð: 2.350.000 kr.
Toyota Corolla Verso:
Öll sæti uppi: 63 lítrar (upp að
beltum).
Öll sæti niðri: 1.563 lítrar (upp
að beltum).
Lengd farangursrýmis: 186 cm
með öll sæti niðri (miðað við bíl-
stjórasæti í fremstu stöðu), 163
cm (miðað við bílstjórasæti í
öftustu stöðu).
Breidd farangursrýmis: 143 cm.
Grunnverð: 2.390.000 kr.
Opel Zafira:
Öll sæti uppi: 150 lítrar.
Öll sæti niðri: 1.705 lítrar.
Lengd farangursrýmis: 153 cm.
Breidd farangursrýmis: 147 cm.
Grunnverð: 2.290.000 kr.
Peugeot 307 SW:
Öll sæti uppi: 138 lítrar.
Öll sæti niðri: 1.328 lítrar.
Lengd farangursrýmis: 181 cm.
Breidd farangursrýmis: 145 cm.
Grunnverð: 2.199.000 kr.
gugu@mbl.is
„ÉG sá einhvern tíma svona bíl við
hliðina á SLK-bíl og langaði strax í
hann,“ segir Guðvarður Gíslason veit-
ingamaður, sem á einn glæsilegasta
sportbílinn sem sýndur var á Sport-
bílasýningunni í Laugardalshöllinni,
og það þótt hann sé kominn til ára
sinna. Þetta er Mercedes-Benz SL
190, rauður tveggja sæta bíll árgerð
1958, með blæju og hvítri leðurinn-
réttingu. Guðvarður flutti bílinn inn
frá Bandaríkjunum. „Hann var ágæt-
lega farinn, með báðum stuðurum
heilum, en ég lét króma margt upp á
nýtt en annað keypti ég að utan. Það
þurfti að skipta um bæði afturbrettin
og sjóða dálítið í botninn á honum.
Vélin var tekin upp og farið í allt sem
heitir bremsur, hjólaskálar og þess
háttar. Leðrið í bílnum var orðið tætt
og ljótt en ástand sætanna var gott.
Fyrirtæki í Þýskalandi, sem sérhæfir
sig í að sníða leðurinnréttingar í
svona bíla, seldi mér áklæði á sætin.
Mælarnir og vélin eru upprunaleg. Ég
skipti langmest við sérhæfð fyrirtæki
í Þýskalandi. Þar veit ég um sex eða
sjö fyrirtæki sem sérhæfa sig í sölu á
varahlutum og uppgerð á svona bíl-
um. Bíll af þessu tagi er seldur á
4,5–5 milljónir kr. í Þýskalandi og
Bandaríkjunum,“ segir Guðvarður.
Borin virðing fyrir bílnum
Bíllinn stendur meira inni í bílskúr
hjá Guðvarði en úti á götu en hann
segir að bíllinn veiti sér mikla ánægju
og greinilegt að menn bera virðingu
fyrir hlutum af þessu tagi. „Það tók
mig rúmlega sex ár að gera bílinn upp
og það fóru miklir peningar í þetta. Ég
fékk aðstoð góðra manna við verkið.
Það voru t.d. mágar mínir sem
sprautuðu bílinn og tóku upp vélina,“
segir Guðvarður og bætir við að það
sé gaman að keyra bílinn. Hann séná-
kvæmur í stýri og bremsurnar öflug-
ar, „en maður verður að vera mjög
vakandi gagnvart annarri umferð. Ég
hef ekki viljað vera að þenja bílinn
mikið því það getur svo margt gerst
með svona gamla bíla. Ég ber virðingu
fyrir bílnum og er ekki að misþyrma
honum,“ segir Guðvarður sem er fjór-
um árum yngri en bíllinn og hann seg-
ir að sennilega séu tveir aðrir bílar af
þessari árgerð til hér á landi. Hann
notar bílinn ekki dags daglega en í
góðu veðri fer hann á honum niður í
miðbæ Reykjavíkur og leggur honum
fyrir utan veitingastaðinn sinn, Apó-
tekið. „Það er mikil virðing borin fyrir
bílnum þar. Útlendingar sem hér eiga
leið um taka nánast undantekning-
arlaust myndir af bílnum. Hann er
orðinn eitt af kennileitum miðbæj-
arins,“ segir Guðvarður.
Rauði blæjubíllinn
hans Guðvarðar
veitingamanns
Orðinn eitt af kennileitum miðbæjarins
Morgunblaðið/ÞÖK
Guðvarður við nýuppgerðan Mercedes-Benz SL 190.
Vélarhlífin opnast fram á við í Bens-
anum góða.
Bíllinn er hinn glæsilegasti og greini-
lega hefur verið nostrað við hann.