Morgunblaðið - 26.05.2004, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 B 3
bílar
ÞAÐ er nú staðfest að BMW er að
koma á markað með alvöru sport-
hjól í sumar, fyrr en búist hafði
verið við. BMW hefur haldið hjólinu
að mestu leyndu fyrir pressunni og
strítt henni aðeins með óskýrum
og hreyfðum myndum af hjólinu á
vefsíðu sinni. Sjóræningjamyndir úr
höfuðstöðvum BMW birtust af hjól-
inu um daginn á ísraelskri vefsíðu
og hafa nú ratað til Evrópu. Á þeim
má sjá verklegt sporthjól með
nokkuð óvenjulegum útlits-
einkennum, eins og margformuðum
bensíntanki og gagnsæjum aftur-
öxli, og án forþjöppunnar sem búið
var að spá að yrði í hjólinu.
Léttara og kraftmeira
Búast má við að BMW verði fylli-
lega samkeppnishæft við kraft-
mestu japönsku og ítölsku hjólin
með þessum grip, en framleiðend-
urnir hafaþegar látið hafa eftir sér
nokkur atriði um nýja K1200S
sporthjólið. Þeir segja hjólið upp-
fullt af tækninýjungum og hafa
óvenjugóða aksturseiginleika og
gnótt af afli. BMW segir að afl sem
hlutfall af þyngd verði að minnsta
kosti 50% betra en í K1200RS
hjólinu. Samkvæmt heimild-
armönnum innan BMW-verksmiðj-
anna verður vélin 1.157 rúmsenti-
metra, fjögurra strokka og mun
halla 55° fram til að ná 50/50
þyngdardreifingu. Vélin er ekki
meiri um sig en 600-mótor þannig
að hægt var að hafa hana neð-
arlega í grindinni og fá samt góða
veghæð í beygjum. Samkvæmt
sumum heimildum er vélin 160
hestöfl sem ætti með lítilli heild-
aþyngd að gera BMW kleift að
keppa við Suzuki Hayabusa eða
Kawasaki ZX-12. Hægt mun vera
að fá annan tölvukubb í hjólið sem
bætir við 10–15 hestöflum. Hjólið
verður með drifskafti eins og lang-
flest BMW-hjólin hingað til, en sér-
stakt við það er að það er allt
smíðað úr léttmálmum og er því
viðbragðsbetra en áður. Þannig
næst nánast sama viðbragð og úr
keðjudrifnu hjóli með öllum kostum
drifskaftsins, eins og litlu viðhaldi.
Síðast en ekki síst verður nýja
hjólið með hinum einstaka Hoss-
ack-framenda og nýjustu kynslóð
ABS-hemlalæsivarnar fyrir mót-
orhjól. Heyrst hefur að Cycle
World-tímaritið í Bandaríkjunum
verði fyrst til að fá að taka í grip-
inn sem gefur hugmynd um hvar
búast má við því á markað fyrst. Í
Evrópu kemur það líklega fyrst fyr-
ir almenningssjónir á Intermot-
mótorhjólasýningunni í München í
september.
Njáll Gunnlaugsson
BMW-of-
urhjólið
kemur í
sumar
Hjólið virkar allt létt að sjá og takið eftir sérkennilega formuðum bens-
íntankinum sem setur sérstæðan svip á hjólið.
Drifskaftið verður nú vinstra megin í hjólinu líkt og í K3 til-
raunahjólinu sem kynnt var árið 1980.
Drifskaftið er úr álblöndu og til að spara þyngd er miðjan
með gati þar sem sést í gegnum hjólið.