Morgunblaðið - 26.05.2004, Page 4

Morgunblaðið - 26.05.2004, Page 4
4 B MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ bílar Vagnhöfða 7 110 Reykjavík Sími: 517 5000 fjallabilar@fjallabilar.is Japan/U.S.A. Öxulliðir í flestar gerðir jeppa FRAMÖXLAR Í JEPPA Kauptu næsta bílinn þinn beint frá Kanada - Allar tegundir bíla á sölu www.natcars.com LENGI hefur sá sem þetta skrifar heyrt farið fögrum orðum um BMW M5 og lengi hefur hann haft löngun til þess að keyra þann bíl. Tækifæri gafst á dögunum að prófa þennan grip, reyndar nokkuð hokinn af reynslu og með yfir 50.000 km að baki. Þetta er M5 árgerð 1999 sem B&L á og hafði tekið upp í viðskipti með nýjan bíl. Það lúmska við þennan bíl er hve lítið hann lætur fara fyrir sér. Ef ekki væri M-merkingin aftan á honum og 18 tommu álfelgurnar og lágprófíl- dekkin mætti ætla að þarna væri á ferðinni bara venjuleg fimma af eldri gerðinni. Hann er líka ósköp venju- legur að innan; að vísu leðurklæddur og með rafdrifnum sætum og minni fyrir stillingar, en að öðru leyti frek- ar hefðbundinn og jafnvel gamaldags í samanburði við nýju gerðirnar af BMW 5. Meira að segja enginn geislaspilari, einungis kassettutæki í útvarpinu. Það má líka sjá að bíllinn á sér fortíð því hrukkur eru eðlilega í leðrinu og hlutirnir ekki alveg nýir af nálinni. En skynfærin nánast umturnast um leið og bíllinn er settur í gang. Vélin öskrar strax við gangsetningu. Þetta er fimm lítra V8-vél með tveim- ur yfirliggjandi knastásum á hvora strokkaröð og fimm ventlum á hvern strokk. Þetta er ekki sama V8-vélin og boðin var á þessum árum með hefðbundnum gerðum BMW 5 og 7, heldur sérsmíðaður race-mótor og BMW sparaði ekkert til að gera hann sem magnaðastan og um leið sem léttastan með háþróaðri framleiðslu- tækni og efnisvali. Hljóðið er gróft og ógnvekjandi og það þarf ekki geisla- spilara í bílinn þegar vélin hljómar svona öfluglega. Það er heldur ekkert sérstaklega sportlegt við bílinn að innan – hann virkar miklu frekar eins og vel búinn lúxusbíll og meira að segja sætastað- an er eins og menn eiga að venjast í slíkum bílum. En um leið og ekið er af stað gerbreytist viðhorfið til bílsins. Þetta er sannkallaður úlfur í sauð- argæru. Vélin skilar 400 hestöflum til afturhjólanna í gegnum sex gíra handskiptan kassa. Vélin skilar tæpu 81 hestafli á hvern lítra slagrýmis og, það sem meira er, yfir 100 Nm togi á hvern lítra slagrýmis. Það finnst líka strax í akstrinum að BMW hefur ekki verið að leggja megináhersluna á mikið upptak, enda þótt það sé meira en viðunandi í 5,3 sekúndum úr kyrr- stöðu í 100 km, heldur frekar á togið, sem virkar þannig á mann að bíllinn er endalaust að hraða sér. Hann er t.a.m. ekki nema 4,8 sekúndur úr 80 km/klst í 120 km/klst í fjórða gír. Og þessi vél hefur ekkert á móti háum snúningi og er ennþá að skila feikna- vinnslu á milli 5.000 og 5.500 snún- inga á mínútu í flestum gírum. Fram- úrakstur er leikur einn í þessum bíl og þegar við bætast frábærir akst- urseiginleikar á öllum sviðum; ekki síst alger líming í beygjum, stíf og sportleg fjöðrun þá er ekki ofmælt að hér sé á ferðinni einn af athyglisverð- ari „performance“-bílum landsins, jafnvel þótt fimm ára gamall sé. BMW M5 er bíll sem freistar mjög þungstígs hægri fótar og það er at- hyglisvert að sjá hvernig BMW gerir varúðarráðstafanir gegn slæmri meðferð vélarinnar. Það er auðvitað afleitt til lengdar fyrir vélina og smurningu hennar að botngefa bíln- um með hana kalda og þess vegna er snúningshraðamælirinn þannig gerð- ur að það kemur gulur litur á hann strax frá 4.000 snúningum og gull- itaða svæðið minnkar eftir því sem vélin hitnar. Það þarf sterka kúplingu til að taka við þessu afli öllu og það hafa víst nokkrar verið „steiktar“ í þess- um bílum. Kúplingin er stór og er lengi að slíta, sem er óhjákvæmilegt með allt þetta vélarafl, en fyrir vikið verður álagið á kúplinguna líka meira en ella. Það eina í tækni þessa bíls, sem er meira í takt við tiltölulega hóf- stillt útlit hans en síður í takt við sjálfa tæknina, er sex gíra handskipti kassinn. Ekki að hlutföllin séu ekki rétt í honum, eða því sem næst, held- ur einvörðungu að það vantar meiri sporttakta í skiptinguna; það er langt á milli gíranna og maður saknar kassa eins og í Z3 M eða Lotus Elise, þar sem örstutt er milli gíra og skipt- ingin verður mun hraðari fyrir vikið. Ekki að það sé alveg nauðsynlegt í þessum togmikla bíl því bíllinn nær sómasamlegum þjóðvegahraða strax í öðrum gír. Eins og við mátti búast er M5 með rafeindastýrðri spól- og skriðvörn. Hún er aftengjanleg og þá breytist karakter bílsins strax úr því að vera öruggur en feiknaaflmikill í það að vera reykspólandi dreki með hættu- legri yfirstýringu. En þeir sem við hana ráða njóta þá bílsins enn betur. BMW 5 er einn af þeim bílum sem setjast í sálina – hann getur verið hagnýtur sem fjölskyldubíll en um leið draumur bílaáhugamannsins vegna fyrirhafnarlausrar og magn- aðrar hröðunar og vinnslu. Nýr BMW M5 kostar vel yfir tíu milljónir króna, nota bene ennþá með gamla útlitinu. Þessi notaði vagn fæst fyrir um 5,5 milljónir króna hjá B&L. Grimmur úlfur í sauðargæru Morgunblaðið/Árni Torfason gugu@mbl.is Vél: Átta strokka V-vél með fjórum yfirliggjandi knastásum, 4.941 rúm- sentimetri. Afl: 400 hestöfl við 6.600 snúninga á mín- útu. Tog: 500 Nm við 3.800 snúninga á mínútu. Hröðun: 5,3 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km. Hámarkshraði: 250 km/ klst. (með takmarkara). Gírkassi: Sex gíra hand- skiptur. Hemlar: 345 mm diskar að framan, 328 mm diskar að aftan, loft- kældir. Lengd: 4.784 mm. Breidd: 1.800 mm. Hæð: 1.432 mm. Hjólhaf: 2.830 mm. Eiginþynd: 1.795 kg (með ökumanni). Heildarþyngd: 2.290 kg. Farangursrými: 460 lítr- ar. Verð: 5,5 milljónir kr. BMW M5 Vélin er V8, 5 lítra og skilar 400 hest- öflum og 500 Nm togi. Snúnings- hraðamæl- irinn litast gulur þegar vélin er köld. Vörumerki BMW M5 er fjögur púströr. M5 hentar ekki síður sem fjölskyldubíll og er vel búinn. Árgerð 1999, BMW M5, í engu tapað töfrunum. REYNSLUAKSTUR BMW M5 Guðjón Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.