Morgunblaðið - 26.05.2004, Blaðsíða 5
UM tuttugu þúsund manns lögðu leið sína í Laugardalshöll um síð-
ustu helgi þar sem Sportbílasýningin fór fram. Þetta er í fjórða
sinn sem sýning af þessu tagi er haldin og er óhætt að segja að
hún hafi aldrei verið glæsilegri. Fyrir utan stóru nöfnin, Ferrari
Enzo, Lamborghini Gallardo, Lotus Elise og ótalda Mercedes-
Benz, BMW og Porsche voru þarna handsmíðaðir bílar og breyttir
bílar auk þess sem bílaumboðin sum hver sýndu það sportlegasta
úr sínum herbúðum. Brimborg var t.a.m. með myndarlegan bás
þar sem frumkynntir voru einir átta nýir bílar með sportgenum.
Volvo S60 R er 300 hestafla lúxusportbíll með hátæknivæddu
fjórhjóladrifi. Hann var á 18 álfelgum og 235/45 R18 Pirelli dekkj-
um, með sportleðurinnréttingu og tölvustýrðri sportfjöðrun.
Volvo S60 Sport var líka frumsýndur með 180 hestafla vél og
glæsilegu spoilerkitti, sportleðurinnréttingu, á 17" álfelgum. Volvo
S40 T5 er spennandi 220 hestafla bíll og þá ekki síður Ford Focus
ST170, 173 hestafla villidýr, en hann sýnir forsmekkinn af því sem
koma skal hjá Ford á næstu misserum í sportbílum. Hann er búinn
sóllúgu, Recaro stólum með ST sportleðurinnréttingu, ESP stöð-
ugleikastýrikerfi og xenon ljósum. Frá Citroën voru C2 VTR með
110 hestafla vél, Citroën C3 SX með Panorama risasóllúgu sem
nær yfir stóran hluta þaksins.
Nýr BMW X5
B&L sýnir nær alla línuna frá BMW, þ.m.t. 3 línuna, 5 línuna, X3,
og nýjan X5 með nýju útliti og búnaði. Stjarnan á bás B&L var X5
jeppinn sem hefur fengið nýtt útlit. Hann var kynntur með nýjum
og frísklegum framenda og er hann jafnframt nú búinn xDrive
kerfinu sem BMW eigendur kynntust fyrst í X3 jepplingnum. Auk
þess voru á sýningunni tveir sérlega glæsilegir sportbílar frá BMW,
645i og Z4, svartir á lit.
Lexus sýndi SC 430 kúpubak og einnig hinn hófsamari LS 430
auk lúxussportjeppans RX300. Þar voru að vísu engar nýjungar á
ferð en alltaf gaman að sjá vel hannaða bíla. Bernhard ehf. kynnti
Peugeot 206 RC, 180 hestafla rakettu, og 307 CC með rafknúnu
þaki, og þarna mátti líka sjá breiða línu frá Volkswagen, allt frá
Polo upp til Touareg. Ingvar Helgason sýndi í anddyri Laugardals-
hallar Nissan Z 350, aflmikinn tveggja sæta sportbíl sem byggir á
gömlum grunni. Við hlið hans var síðan sýndur líka í fyrsta sinn
Nissan Murano, stórglæsilegur lúxussportjeppi, en sá bíll er ekki
fluttur inn á vegum umboðsins.
Auk alls þessa mátti þarna sjá einn aflmesta sportbíl landsins,
Mercedes-Benz SL 55 AMG með Carlsson-breytingu, Mercedes-
Benz SLK árgerð 2005 með nýja laginu sem fyrirtækið Sparibíll-
.is er með til sölu og síðast en ekki síst kvartmílubíl Þórðar Tóm-
assonar, sem sagður er aflmesti bíll landsins.
Óvenju glæsi-
legri sportbíla-
sýningu lokið
Aðstandendur sýningarinnar, Guðbergur, Kristín, Sylvía og Brynj-
ólfur við Ferrari Enzo á Sportbílasýningunni í Laugardalshöll.
Ljósmynd/Haraldur Þór Stefánsson
Ford Cobra - eftirlíking af AC Cobra, afar laglegur að sjá.
Willys ’41 er aflmesti bíll landsins með 1.700 hestafla vél.
Snarpur Lotus Elise 111S, sá eini sinnar tegundar á landinu.
Mercedes Benz SLK, frumsýning á nýja laginu hér á landi.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MAÍ 2004 B 5
bílar
ÓDÝRT - ÓDÝRT - ÓDÝRT - ÓDÝRT - ÓDÝRT
Mikið úrval af notuðum dekkjum
13 - 14 - 15 - 16 - 17 og 18 tommu.
Eigum einnig nýja og
notaða sólaða hjólbarða
Eldshöfða 6 s. 567-6860
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s
BMW sýndi hugmyndabílinn
M5 með V10-vél á bílasýning-
unni í Genf síðastliðið vor.
Með þessu minnir BMW
óneitanlega á að fyrirtækið
smíðar vissulega V10-vélar,
þótt einkum hafi þær fram til
þessa verið settar í Formúlu
1-bíla BMW-Williams-liðsins.
Nýi M5 hugmyndabíllinn er
sem sagt með götubílaút-
færslu af sömu Formúla 1-
vélinni og það hlýtur að boða
nýja tíma fyrir unnendur
sportbíla.
Hugmyndabíllinn er með
sömu yfirbyggingu og nýr
BMW 5 en undir vélarhlífinni
er fyrsta V10-vélin fyrir götu-
bíl frá BMW og hún skilar
500 hestöflum og 500 Nm
togi. Bíllinn á að ná 100 km
hraða á vel undir fimm sek-
úndum. Gírkassinn er líka
nýjung hjá BMW og hann er
þróaður út frá Formúlu 1
tækni. Þetta er sjö gíra rað-
skiptur og beinskiptur kassi.
Eins og BMW 5 er M5
hugmyndabíllinn með undir-
vagn sem að mestu er gerður
úr áli og fremri hluti yfir-
byggingar er sömuleiðis úr
áli. Þótt bílarnir séu líkir
greinir M5 sig frá fólksbíln-
um með öðruvísi loftinntök-
um að framan og aftan og að
aftan eru líka fjögur púströr.
Að auki er hugmyndabíllinn á
19 tommu álfelgum og 8,5
tommu breiðum dekkjum að
framan og 9,5 tommu að aft-
an. BMW tekur það skýrt
fram að hér sé einungis um
hugmyndabíl að ræða og ekki
sé von á framleiðslubílnum
fyrr en á næsta ári. Menn
þykjast þó nokkuð vissir um
að BMW mun ekki valda
aðdáendum sínum vonbrigð-
um þegar á hólminn er kom-
ið.
Loftinntök eru á hliðunum.
Gerbreyttur en áfram með fjórum púströrum.
M5 hugmyndabíll
með V10-vél