Morgunblaðið - 24.06.2004, Side 1
Nærri því
McDauður
McDonalds-skelmirinn Morgan
Spurlock til landsins | Menning 50
Ver | Leitin að heppilegustu aflareglunni Hafið er hraðbraut framtíð-
arinnar Viðskipti | Efnahagsbati í Bandaríkjunum Hættir sem deild-
arforseti HR Íþróttir | Þjóðverjar sendir heim Fyrsti sigur Víkinga
Úr verinu, Viðskipti, Íþróttir
SAMKVÆMT nýrri rannsókn voru
um 78% kvenna sem stunda nám við
háskóla í Nýju-Delhí, höfuðborg Ind-
lands, beittar kynferðislegu ofbeldi á
heimilum sínum í æsku.
Könnunin var gerð á vegum RAHI,
samtaka sem vinna með fórn-
arlömbum sifjaspella. Viðtöl voru tek-
in við 1.409 konur á aldrinum 18–26
ára sem stunda nám í 39 háskólum í
Nýju-Delhí. Í ljós kom að 42% ger-
enda eru frændur en 4% feður og
bræður. Þá eru 26% gerenda grann-
ar, 23% fjölskylduvinir og þjónar en
10% karlkyns kennarar. Anuja
Gupta, forstöðukona RAHI, segir að
yfir helmingur þátttakenda í könn-
uninni hafi verið misnotaður af fleiri
en einum manni, þar af 30% af tveim-
ur en 22% af þremur eða fleirum.
„Misnotkunin var allt frá kynferð-
islegu tali, ósæmilegum faðmlögum
og kossum, þukli, að gerendur höfðu
fróað sér fyrir framan fórnarlömbin
og sýnt þeim klámmyndir, upp í
munnmök og samfarir,“ sagði Gupta.
Hún bætti við að 78% stúlknanna
hefðu verið misnotaðar á fleiri en einn
hátt. Lögreglan í Nýju-Delhí segir að
90% þeirra 300 kvenna sem leituðu til
hennar í fyrra vegna nauðgunar hafi
verið nauðgað af kunningja eða nán-
um ættingja.
78% sættu kynferðisofbeldi
Nýju-Delhí. AFP.
FJÓRIR aðilar hafa kært ákvörðun fjar-
skiptayfirvalda í Búlgaríu um úthlutun far-
símaleyfis þar í landi til búlgarska landsím-
ans BTC, sem er í meirihlutaeigu Viva
Ventures. Meðal eigenda Viva Ventures,
með Björgólf Thor Björgólfsson í farar-
broddi, eru Síminn, Straumur og Burðarás.
Þrjú símafyrirtæki hafa kært leyfisveit-
inguna, en BTC fékk farsímaleyfið án út-
boðs og gegn greiðslu 54 milljóna leva, eða
um 2,4 milljarða íslenskra króna. Telja hin
símafyrirtækin að með leyfisveitingunni
hafi búlgörsk fjarskiptayfirvöld brotið þar-
lend lög, sem kveða á um að bjóða skuli út
öll farsímaleyfi. Þá kærði embætti saksókn-
ara ákvörðunina fyrir nokkrum dögum þar
sem talið var að hún stangaðist á við þar-
lend samkeppnislög. BTC fékk farsíma-
leyfið afhent sl. fimmtudag.
Deilt um far-
símaleyfi BTC
í Búlgaríu
Fjórir/D1
FORSÆTISRÁÐHERRA bráða-
birgðastjórnar Íraks, Iyad Allawi,
hefur beðið ríki Atlantshafsbanda-
lagsins, NATO,
um hjálp, m.a.
við „þjálfun og
aðra tæknilega
aðstoð“. Hann
hefur hins vegar
ekki óskað eftir
herliði á vegum
bandalagsins.
James Appat-
hurai, talsmaður
NATO, segir að
ráðherrann hafi lagt óskina fram á
mánudag og verður bréf hans sent
til stjórna NATO-ríkjanna. Beiðni
Allawis verður rædd á fundi banda-
lagsins í Tyrklandi í næstu viku.
Embættismaður hjá bandalaginu
sagði að í bréfinu kæmi fram að
„brýn þörf“ væri á aðstoð við verk-
efni eins og að „þjálfa íraskar her-
sveitir, útvega búnað og annars
konar tæknileg mál“.
Sextán ríki af 26 aðildarríkjum
NATO hafa þegar sent hersveitir til
Íraks. Frakkar og Þjóðverjar, sem
hafa útilokað að senda eigin her til
Íraks, hafa lýst því yfir að eigi
bandalagið að láta til sín taka í Írak
verði að koma um það ósk frá írösk-
um stjórnvöldum.
Allawi bið-
ur NATO
um hjálp
Brussel. AP.
Hóta/12
Iyad Allawi
framhald friðargæsluverkefnis í
umboði SÞ. Bandaríkin hafa að
sögn fréttavefjar BBC gert tví-
hliða samninga við alls 89 ríki
um að þau muni ekki draga
bandaríska hermenn fyrir dóm-
stólinn í Haag en leysa með öðr-
um hætti mál sem upp geta kom-
ið.
Talið er að hvatning Kofi Ann-
ans, framkvæmdastjóra SÞ, um
að undanþágan yrði ekki fram-
lengd hafi haft mikil áhrif. Ann-
an hefur frá upphafi andmælt
harðlega undanþágunni, hann
segir hana grafa undan dóm-
stólnum og hæpið að hún sé lög-
leg. Annan sagði í liðinni viku að
yrði undanþágan samþykkt nú í
kjölfar pyntinganna í íröskum
fangelsum yrði það hneisa fyrir
ráðið.
valdið klofningi“. Sáttmáli um
sakamáladómstólinn var gerður
1998 í Róm og tók hann til starfa
í fyrra. Hafa alls 94 ríki nú stað-
fest sáttmálann en ekki Banda-
ríkin. Bandaríkjamenn eru víða
með friðargæslulið á vegum SÞ
en fengu tveggja ára undanþágu
frá dómstólnum er hann tók til
starfa. Þeir óttast að ella muni
andstæðingar þeirra misnota
ákvæði sáttmálans til að koma
risaveldinu í vanda. Hótuðu
Bandaríkjamenn að draga sig út
úr friðargæslu á vegum SÞ. Að-
ildarríki sáttmálans segja að
tryggt sé í ákvæðum hans að
ekki sé hægt að misnota hann í
pólitískum tilgangi.
Ekki er ljóst hver afstaða
Bandaríkjamanna verður næst
þegar greidd verða atkvæði um
BANDARÍKJAMENN hafa gef-
ið upp á bátinn tilraunir sínar til
að fá Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna til að framlengja um
eitt ár ákvæði um sérstaka frið-
helgi bandarískra friðargæsluliða
gagnvart lögsókn hjá alþjóðlega
sakamáladómstólnum í Haag.
Ljóst þótti að ekki væri nægur
meirihluti, níu af 15, í ráðinu fyr-
ir að framlengja undanþáguna.
Talið er að upplýsingar um pynt-
ingar bandarískra hermanna á
íröskum föngum í Abu Ghraib-
fangelsi í Bagdad hafi ráðið úr-
slitum í málinu.
Starfandi sendiherra Banda-
ríkjanna hjá SÞ, James Cunn-
ingham, sagði stjórnvöld í Wash-
ington hafa dregið tillögu sína til
baka að þessu sinni til að forðast
„langvarandi umræður sem gætu
Bandaríkin krefjast
ekki lengur friðhelgi
Sameinuðu þjóðunum. AP, AFP.
göngufólkið var að orna sér við bálið sem var kveikt
í fjörunni að göngu lokinni. Harmonikkuleikari var
með í för og leiddu söngelskir göngugarpar fjöru-
söng og var vel tekið undir.
SELTIRNINGAR efndu til léttrar Jónsmessugöngu í
gærkvöld. Kristján Sveinsson sagnfræðingur var
með í för og sagði m.a. sögu Gróttuvitans. Bar ljós-
myndara Morgunblaðsins að við Seltjörn þar sem
Morgunblaðið/ÞÖK
Jónsmessugleði í Seltjarnarfjöru
FAHD, konungur Sádi-Arabíu,
bauð í gær sakaruppgjöf þeim liðs-
mönnum hryðjuverkasamtaka í
landinu, sem gæfu sig fram við yf-
irvöld innan mánaðar.
Kom þetta fram í ræðu, sem Ab-
dullah bin Abdul Aziz krónprins
flutti fyrir hönd konungsins, sem
lengi hefur verið sjúkur. Af ræð-
unni mátti ráða, að ríkið myndi
gefa hryðjuverkamönnum upp
sakir en þeir yrðu samt að fá fyr-
irgefningu ættingja þeirra, sem
þeir hefðu hugsanlega skaðað eða
drepið. Í ræðunni sagði, að þeir,
sem yrðu ekki við þessu kalli, yrðu
upprættir miskunnarlaust.
Býður sak-
aruppgjöf
Riyadh. AFP.
♦♦♦
FYRRVERANDI aðalgjaldkeri Landssíma
Íslands, Sveinbjörn Kristjánsson, var í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur dæmdur í fjögurra og
hálfs árs fangelsi fyrir 261 milljónar króna
fjárdrátt. Árni Þór Vigfússon og Kristján
Ra. Kristjánsson, fyrrum forsvarsmenn Ís-
lenska sjónvarpsfélagsins, hlutu tveggja
ára fangelsisdóm fyrir að hafa tekið við og
ráðstafað um 163 milljónum af því fé sem
Sveinbjörn dró sér. Ragnar Orri Benedikts-
son var dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir
hylmingu 30 milljóna en Auður Harpa
Andrésdóttir var sýknuð af ákæru um
hylmingu. Bæði Árni Þór og Kristján Ra.
neituðu sök og hefur Árni Þór þegar ákveð-
ið að áfrýja dómnum til Hæstaréttar.
Í yfirlýsingu frá Símanum segir að dóm-
urinn hafi vísað fjárkröfum Símans frá og
talið hana þurfa aðra og frekari umfjöllun.
Með dóminum hafi verið lagður grunnur að
bótaskyldu þeirra sem dæmdir voru og
Síminn muni leita viðeigandi úrræða gagn-
vart þeim, eftir atvikum með einkaréttar-
legum úrræðum.
Dómur héraðsdóms
í Landssímamálinu
Hlaut 4½
árs fangelsi
Brot/11
Tveir aðrir hlutu
tveggja ára fangelsi
♦♦♦
Indverskar
háskólastúlkur
lýsa æsku sinni
STOFNAÐ 1913 170. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is