Morgunblaðið - 24.06.2004, Page 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
4½ ÁRS FANGELSI
Fyrrverandi aðalgjaldkeri,
Landssíma Íslands, Sveinbjörn
Kristjánsson, var í Héraðsdómi
Reykjavíkur dæmdur í fjögurra og
hálfs árs fangelsi fyrir 261 millj-
ónar króna fjárdrátt. Árni Þór Vig-
fússon og Kristján Ra. Krist-
jánsson hlutu tveggja ára
fangelsisdóm fyrir að hafa tekið við
og ráðstafað um 163 milljónum af
fénu.
Heimta ekki friðhelgi
Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa
gefist upp við að fá Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna til að fram-
lengja sérstaka friðhelgi banda-
rískra hermanna gagnvart al-
þjóðlega sakamáladómstólnum í
Haag gegni þeir friðargæslu á veg-
um SÞ. Talið er að upplýsingar um
pyntingar Bandaríkjahermanna á
íröskum föngum hafi ráðið úrslit-
um í málinu.
Ekki hætta af geislun
Umfangsmiklar rannsóknir á
geislaálagi flugáhafna hafa leitt í
ljós, að sú starfsstétt býr ekki við
hættu af völdum geislunar.
Framkvæmdar voru mælingar á
geimgeislun á flugleiðum Ice-
landair í tengslum við rannsóknina.
Reykingar stytta ævina
Niðurstöður rannsókna sem
staðið hafa í hálfa öld í Bretlandi
gefa til kynna að reykingar stytti
að jafnaði ævina um tíu ár.
Konur í mál gegn Wal-Mart
Um 1,6 milljónir kvenna, sem
starfa eða hafa starfað hjá versl-
anakeðjunni Wal-Mart í Bandaríkj-
unum, hyggjast fara í mál við fyr-
irtækið vegna meintrar kynja-
mismununar. Þær benda á að
konum séu að jafnaði greidd lægri
laun en körlum.
Y f i r l i t
28. JÚNÍ - 4. JÚLÍ
Forsala miða í stúkusæti er eingöngu í Nesti á bensínstöð
Esso við Ártúnshöfða og í síma 514 40 30.
Forsala aðgöngumiða er á eftirtöldum bensínstöðvum Esso:
Kynnið ykkur dagskrána og leitið frekari upplýsinga á www.landsmot.is
Forsala í stúkusæti
er hafin!
Ártúnshöfða Reykjavík
Borgartúni Reykjavík
Gagnvegi Reykjavík
Geirsgötu Reykjavík
Lækjargötu Hafnarfirði
Stórahjalla Kópavogi
Háholti Mosfellsbæ
Fossnesti Selfossi
Hlíðarenda Hvolsvelli
Hyrnunni Borgarnesi
Ábæ Sauðárkróki
Leiruvegi Akureyri
Bensínafgr. Egilsstöðum
Bensínafgr. Varmahlíð
Aðalstöðin Keflavík
Í
S L
E N
S K
A
A
U
G
L Ý
S I
N
G
A
S T
O
F A
N
/ S
I A
. I
S
L
A
N
2
5 1
1 2
0
6 /
2 0
0 4
!
"
#
$
%&' (
)***
+
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 28
Erlent 12/13 Viðhorf 30
Heima 16 Minningar 32/39
Höfuðborgin 17 Brids 42
Austurland 18 Dagbók 44/46
Landið 18 Listir 47/48
Akureyri 19 Fólk 50/53
Daglegt líf 20 Bíó 50/53
Neytendur 22/23 Ljósvakamiðlar 58
Umræðan 24/30 Staksteinar 55
Bréf 31 Veður 43
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnar-
fulltrúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkj-
ustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
TÍKIN Móna, sem er af ensku setter-
kyni, var sædd með innfluttu frystu
sæði á Dýralæknastofunni í Garðabæ
á þriðjudagskvöldið. Þetta mun vera í
fyrsta sinn sem hundtík hefur verið
sædd með innfluttu frosnu sæði hér á
landi enda tiltölulega stutt síðan að
opnað var fyrir þann möguleika. Allt
gekk vel og er þess nú bara beðið
hvort Móna verði ekki hvolpafull en á
því eru góðar líkur. „Nú bíð ég bara í
62 daga en eftir tvær til tvær og hálfa
viku ætti að sjást hvort þetta hefur
gengið,“ segir Vilhjálmur Ólafsson,
eigandi Mónu.
Sæði og dýralæknir frá Noregi
Hann segir sæðið koma frá Noregi,
úr veiðihundaræktun og undan hundi
sem sé mjög efnilegur og hafi unnið
til nokkurra stórra verðlauna. „Það
var búið að finna þarna hund sem
passaði henni [Mónu] vel, með svip-
aða skapgerð og lundarfar.“
Vilhjálmur fékk dýralækni frá
Noregi, sem er sérmenntaður á þessu
sviði, til þess að sæða Mónu. „Það eru
ekki mjög margir í heiminum sem
hafa þessa þekkingu, þeir eru sárafá-
ir að því er mér skilst. Það eru til
tvær aðferðir við að sæða tíkur með
frosnu sæði, annars vegar með skurð-
aðgerð en hins vegar með þræðingu.
Það er sú aðferð sem Norðmenn nota
og var notuð í þessu tilfelli.“
Vilhjálmur segir að alltaf sé ein-
hver áhætta að dæmið gangi ekki
upp. Þesi dýralæknir hafi hins vegar
sætt fleiri þúsundir tíka og árang-
urinn sé um 80%. Þegar það hafi ekki
heppnast hafi tíkin í flestum tilvikum
ekki verið tilbúin eða þá eitthvað hafi
verið að sæði eða tík. „Ég er nokkuð
vongóður. Ég skoðaði sjálfur sæðið í
smásjá og það var mjög lifandi þann-
ig að ég er nokkuð viss um að sá þátt-
ur hafi verið í góðu lagi. En maður
veit auðvitað aldrei,“ segir Vil-
hjálmur.
Móna sædd með
innfluttu frosnu sæði
OSMO Vänskä, aðal-
stjórnandi Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands á
árunum 1993–96, snýr til
Íslands næsta vetur og
stjórnar hljómsveitinni á
sérstökum viðhafnartón-
leikum í Háskólabíói 9.
desember, þar sem verða
flutt verk eftir Jón Leifs
og finnsku tónskáldin
Sibelius og Einojuhani
Rautavaara. Einleikari á
tónleikunum verður enn
einn Finninn, Jaakko
Kuusisto fiðluleikari.
Osmo Vänskä tók við
hljómsveitinni af landa sínum Petri
Sakari, og þótti þroska hljómsveitina
af miklum metnaði á þeim tíma.
Hann stjórnaði hljómsveitinni í tón-
leikaferð til Banda-
ríkjanna árið 1996,
þar sem hún lék með-
al annars í Carnegie
Hall í New York við
gríðargóðar undir-
tektir.
Þetta er í fyrsta
sinn sem Osmo
Vänskä stjórnar Sin-
fóníuhljómsveit Ís-
lands frá því hann
kvaddi hana á sínum
tíma, en hann er nú
stjórnandi Sinfóníu-
hljómsveitarinnar í
St. Paul í Minnesota í
Bandaríkjunum.
Osmo Vänskä hefur hlotið mikið
lof á síðustu árum fyrir túlkun sína á
meistaraverkum tónbókmenntanna.
Osmo Vänskä
snýr aftur
Osmo Vänskä
ÁSKRIFENDUM Morgunblaðsins
býðst nú sú nýjung hjá Fríþjónustu
blaðsins að sækja blað sitt á flestum
sölustöðum Morgunblaðsins úti um
landið, gegn framvísun Fríþjónustu-
miða. Áskrifendur sem vilja nota
þessa þjónustu þurfa að hafa sam-
band við áskriftardeild til að fá Frí-
þjónustumiðana senda. Þetta er sér-
staklega handhægt fyrir þá
áskrifendur sem ekki ætla sér að
dvelja lengi á sama stað í fríinu.
Jafnframt býðst sú nýjung að láta
senda blaðið til vina eða ættingja
meðan á fríinu stendur. Undanfarin
sumur hefur áskrifendum staðið til
boða að láta safna blaðinu fyrir sig á
meðan þeir eru í fríi eða að fá blaðið
sent á nýjan dvalarstað svo fremi
blaðberi sé á staðnum eða póstur
borinn út. Þá býðst áskrifendum
áfram að fá blaðið sent plastað og
merkt á valda sölustaði blaðsins
nærri helstu sumardvalarsvæðum.
Ný þjónusta
fyrir áskrif-
endur Morg-
unblaðsins
MAÐURINN
sem drukknaði í
höfninni á Þing-
eyri á þriðjudags-
kvöld hét Guð-
mundur Friðgeir
Magnússon, til
heimilis að
Brekkugötu 2,
Þingeyri. Hann
fæddist á Suðureyri við Súganda-
fjörð 2. maí árið 1927 og var ókvænt-
ur og barnlaus.
Drukknaði
í Þingeyrar-
höfn
LÖGREGLAN á Ísafirði handtók pilt
á átjánda ári í gærmorgun og fann í
fórum hans um 60 grömm af kanna-
bisefnum. Pilturinn var handtekinn
er hann kom með áætlunarvél frá
Reykjavík.
Var honum sleppt að loknum yfir-
heyrslum, en hann sagðist hafa ætlað
efnið til eigin neyslu. Pilturinn hefur
ekki áður komið við sögu lögreglu
vegna fíkniefnamála en hins vegar
legið undir grun, samkvæmt upplýs-
ingum frá Ísafjarðarlögreglunni.
Tekinn með
60 grömm af
kannabis
DÓMKIRKJUGESTIR settust fyrir utan kirkjuna í
góða veðrinu í gær og fengu sér kaffi og meðlæti.
Hjálmar Jónsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, brá á
það ráð að hafa kaffi utandyra eftir bænastund. Er
bænastundin haldin í hádeginu á miðvikudögum allan
ársins hring. Hjálmar segir að fólk mæti á bænastund-
ina af fúsum og frjálsum vilja og um 30 til 70 manns
sæki bænastundina í hverri viku.
Morgunblaðið/Ásdís
Setið og spjallað eftir bænastund
♦♦♦
♦♦♦