Morgunblaðið - 24.06.2004, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 24.06.2004, Qupperneq 4
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ BÍLL valt í fyrrakvöld við Sævarhöfða, á malarveg- inum sem tengir saman Bryggjuhverfið og Stór- höfða. Bílnum var ekið út af veginum og niður brekku með þeim afleiðingum að hann valt og endaði á hvolfi en ökumaður og farþegi virtust hafa sloppið vel. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem óhapp verður á þessari tengibrautinni enda vegurinn brattur og hlykkjóttur og hafa íbúar í Bryggjuhverfinu kvartað og sagt hann vera slysagildru. Þorgrímur Guðmundsson, aðalvarðstjóri í umferð- ardeild lögreglunnar, segir að borið hafi á miklum hraðakstri á þessum vegarkafla. „Vegurinn er dálítið hlykkjóttur sem kallar kannski ekki á að menn aki hratt en samt er það svo að það hefur verið ekið mjög hratt þarna, því miður.“ Þorgrímur segir að vegurinn þyki varasamur vegna þess hve hlykkjóttur hann er og kalli á að menn aki þar varlega. Hann segir þó að eftir því sem hann viti best séu þessi mál til skoðunar hjá Reykja- víkurborg, að gefnu tilefni raunar. Varasöm leið milli Bryggju- hverfisins og Stórhöfða Ljósmynd/Jón Árni Jónsson NIÐURSTÖÐUR rannsókna á veg- um Geislavarna ríkisins og Geisla- varnastofnunar Svíþjóðar á geim- geislun á flugleiðum Icelandair hafa leitt í ljós, að flugáhafnir búa við álíka geislun og íbúar Svíþjóðar, eða um 4 millisívert (mSv) á ári. Þessar niðurstöður sýna fram á, að ekki sé geisluninni um að kenna þegar hugað er að aukinni sjúk- dómatíðni flugáhafna. „Í þessu verkefni hafa verið framkvæmdar þúsundir mælinga um allan heim, og tóku Geislavarnir ríkisins þátt í verkefninu á flugleið- um Icelandair,“ segir Sigurður M. Magnússon, forstjóri Geislavarna ríkisins í samtali við Morgunblað- ið, en efnt var til fræðslufundar á þriðjudag til að kynna niðurstöð- ur mælinganna á íslensku flugleið- unum. „Með mæling- unum hefur feng- ist gott yfirlit yf- ir geislaálag flugáhafna, og sömuleiðis gott samræmi milli nið- urstaðna reiknilíkana og niðurstöðu mælinga. Það hefur staðfest áreið- anleika reiknilíkananna,“ bætir Sigurður við. Evrópusambandið stendur fyrir rannsóknunum, og er meginmarkmið þeirra að afla mæli- gilda sem hægt væri að nota í þeim tilgangi að bera saman og bæta nið- urstöður reiknilíkana. Álíka geislun áhafna og í Svíþjóð Sigurður segir geislunina sem flugáhafnir verða fyrir vera nokkuð stöðuga, og komi hún úr himin- geimnum. „Geislunin á rætur sínar að rekja til þess þegar heimurinn varð til, og allir jarðarbúar verða fyrir geislun frá getnaði til grafar. Lofthjúpur jarðar verndar menn fyrir geisluninni, en hún eykst með aukinni hæð, og er meiri nær pól- unum en við miðbaug,“ útskýrir Sigurður. Geimgeislunin er hluti svo- nefndrar bakgrunnsgeislunar, sem finna má í mismiklum mæli um heim allan. Skiptir þar mestu hvaða bergtegundir eru ráðandi á svæð- inu. „Á Íslandi er bakgrunnsgeislun mjög lítil, aðeins um 1 mSv á ári. Til samanburðar má geta þess að bak- grunnsgeislun er um 4 mSv á ári í Svíþjóð, álíka og íslenskar flug- áhafnir búa við í vinnu sinni,“ segir Sigurður að lokum. Nýjar rannsóknarniðurstöður Geislavarna ríkisins og Geislavarna í Svíþjóð Íslenskar flugáhafnir búa við álíka mikla geimgeislun og Svíar Sigurður M. Magnússon UMFANGSMIKIL leit var gerð að belgískri konu sem villtist eftir fjallgöngu á Heklu í fyrrinótt. Fannst hún undir hlíðum fjallsins í gærmorgun eftir næturlanga leit og var vel á sig komin, að sögn Ein- ars Brynjólfssonar í svæðisstjórn Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu. Konan gekk á Heklu ásamt sam- býlismanni sínum á þriðjudag. Þeg- ar hátt var komið í fjallið skildi leið- ir og maðurinn gekk á tindinn en konan beið eftir honum. Maðurinn fann hins vegar ekki konuna á nið- urleiðinni og lét vita að konu sinnar væri saknað. Voru allt að 50 björg- unarsveitarmenn kallaðir út og sjö leitarhundar. Rétt fyrir klukkan 6 í gærmorgun fannst hún við góða heilsu skammt frá bíl hennar og sambýlismanns síns. Hafði hún ver- ið á gangi alla nóttina og hafði með- ferðis vatn og dósamat, svo ekki væsti um hana, að sögn Einars. Fannst heil á húfi við Heklu RÍFA á fyrrverandi húsnæði Landssímans að Sölvhólsgötu 11 fyrir lok ágúst í sumar. Ríkiskaup hafa auglýst eftir tilboðum í nið- urrif hússins, sem er fimm hæða steinhús, alls 3.500 fermetrar, auk 350 fermetra geymslu. Lands- smiðjuhúsið, Sölvhólsgata 13, mun standa áfram, en þar hafa leiklist- arnemar Listaháskólans haft að- stöðu undanfarin ár. Landssíminn rak fjölþætta starfsemi í húsinu um áratuga skeið, til dæmis jarð- símadeild, lager og radíódeild. Starfsemi Símans flutti úr húsinu árið 2001. Rif hússins er hluti af undirbún- ingi byggingar stjórnarráðsins fyrir dóms- og kirkjumálaráðu- neyti, umhverfisráðuneyti og heil- brigðis- og tryggingaráðuneyti. Gerð var ítarleg athugun á ástandi hússins með tilliti til hvort það mætti nýta áfram og talið hag- kvæmara að rífa það og byggja nýtt. Haldin var samkeppni um hönnun húss fyrir ráðuneytin vor- ið 2002, og varð hugmynd Frank- en Architekten GmbH í Þýska- landi hlutskörpust. Nýja ráðuneytahúsið á að ná frá hús- næði Ríkisfjárhirslu að Lands- smiðjuhúsinu, á lóðunum númer 9 og 11 við Sölvhólsgötu. Það verður um 4.800 fermetrar og var upp- haflega ætlunin að það yrði tekið í notkun í ársbyrjun 2005. Þeim framkvæmdum var síðan frestað síðastliðið haust. Leiksmiðja leitar að húsnæði Sérsveit lögreglunnar hefur not- að húsið til æfinga undanfarna mánuði, en vorið 2003 fékk Þjóð- leikhúsið inni í húsinu og starf- rækti þar Leiksmiðju. Að sögn Stefáns Baldurssonar þjóðleik- hússtjóra var fullur vilji til að halda starfi smiðjunnar áfram í húsinu frá leikhússins hendi en þá hafi verið búið að ráðstafa því. „Við glöddumst yfir því að fá að vera þarna meðan á því stóð. Þau verkefni sem ætlunin var að hafa næst í smiðjunni frestuðust fram á komandi leikár, og erum við á höttunum eftir spennandi hráu húsnæði fyrir leiksmiðjuna,“ sagði Stefán í samtali við Morgunblaðið. Að sögn Halldórs Árnasonar hjá forsætisráðuneytinu var ákveðið að ráðast í að rífa húsið nú í sum- ar, þrátt fyrir að ekki væri séð fyrir hvenær bygging nýja hússins hæfist. Væri þá miðað við að verk- inu væri lokið áður en skólastarf hæfist í næsta húsi á vegum Listaháskólans á komandi hausti. „Húsið verður ekki notað framar fyrir nokkra starfsemi, og er því ekki um að ræða en að rífa húsið, enda gæti það verið hættulegt um að fara,“ sagði Halldór í samtali við Morgunblaðið. Rífa á fyrrverandi hús Landssímans við Sölvhólsgötu í Skuggahverfinu Rýmt fyrir væntanlegum stjórnarráðsbyggingum Morgunblaðið/Árni Torfason Sölvhólsgata 11 sem rífa á er í forgrunni, en einnig sést í Sölvhólsgötu 13.                           !"### $%&  $ ' & $#( (   ( ) HAFSTEINN Garðarson, hafn- arvörður Grundarfjarðarhafnar, segir að vegna hertra reglna um siglingarvernd hefðu mál sem tengj- ast hvalveiðiskipum verið skoðuð með tillti til markaðs- setningar hafn- arinnar en hrefnu- veiðiskipin er m.a. vopnuð skip. Í yfirlýsingu sem Morgunblaðinu barst frá hafn- arstjórn Grundarfjarðar, vegna fréttar sem birtist á vef Bæjarins besta, kemur m.a. fram að það að hafnarstjórn hafi bannað hrefnu- veiðiskipum að koma til Grund- arfjarðar séu rangtúlkanir á erindi hafnarstjórnar til sjávarútvegsráðu- neytis. Bent er á að vegna bréfs frá Ríkislögreglustjóra til allra lög- reglustjóra hafi í upphafi yfirstand- andi hrefnuveiðitímabils verið hvatt til aukins eftirlits vegna veiðanna. Í bréfinu hafi verið taldar upp 13 hafnir og hafi Grundarfjarðarhöfn verið ein þeirra. Hafi því verið óskað eftir því við sjávarútvegsráðuneytið að höfnin væri tekin út af skrá yfir löndunarhafnir hrefnuveiða. Hrefnu ekki landað í Grundarfirði KJARASAMNINGUR Félags bóka- gerðarmanna og Samtaka atvinnu- lífsins var samþykktur í atkvæða- greiðslu bókagerðarmanna. Samningurinn kveður m.a. á um 3,25% upphafshækkun launa frá 17. maí. Gildir hann til ársloka 2007. Á kjörskrá voru 1.189 félagar. Atkvæði greiddu 294 eða tæplega 25%. Af þeim samþykktu 76% eða 223 en 63 greiddu atkvæði gegn honum. Félag bókagerð- armanna samþykkir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.