Morgunblaðið - 24.06.2004, Blaðsíða 6
Arnar hafði ekki þungar áhyggjur
af málefnum framhaldsskólanna.
NOKKRIR unglingar sem Morg-
unblaðið ræddi við í gær höfðu
flestir áhyggjur af málefnum fram-
haldsskólanna.
Hulda Pétursdóttir var enn að
bíða eftir svari frá Borgarholts-
skóla. Hún sagðist ekki hafa hug-
mynd um hvert svarið gæti verið en
að margir unglingar hefðu fengið
neitun frá skólum sem þeir settu
sem fyrsta val. Hulda sagðist að-
eins vita um einn nemanda sem
ætlaði ekki í skóla en að allir aðrir
væru búnir að sækja um. Aðspurð
sagði Hulda það ekki vera jákvætt
ef unglingar sem vildu stunda nám
kæmust ekki inn í skóla. Arnar
Garðarsson sagðist ekki hafa þung-
ar áhyggjur af málinu. Hann væri
nokkuð öruggur um skólavist og
teldi að þeir nemendur sem ekki
fengju inni þyrftu ef til vill að
leggja meira á sig.
Jón Theódór Jónsson, Hilmar
Pétursson og Ægir Már Jónsson
voru sammála um að það myndi
hafa mjög neikvæð áhrif á unglinga
að komast ekki inn í framhalds-
skóla. Þeir færu þá út á vinnumark-
aðinn og myndu sennilega ekki
snúa aftur í nám. „Þetta er mjög lé-
legt. Mér finnst að ríkisstjórnin eigi
að hysja upp um sig brækurnar og
redda þessu,“ sagði Jón Theódór.
Skólarnir geta stækkað við sig
Aðalheiður Ragna Óladóttir,
Edda María Birgisdóttir, Birgir
Lúðvíksson og Erling Þór Birgis-
son sögðu það mjög slæmt ef nám-
fúsir unglingar kæmust ekki inn í
skóla. Það væri ábyggilega erfitt að
vera hafnað um skólavist. Þau
lögðu til að annaðhvort yrði byggð-
ur nýr skóli eða hver skóli myndi
stækka svolítið við sig og skapa
þannig pláss fyrir alla þá nemendur
sem hafa áhuga á að stunda nám.
Einn viðmælenda Morgunblaðs-
ins hafði ekki fengið inngöngu í
þann skóla sem var fyrsta val en
nafn hennar fór þó á biðlista.
Morgunblaðið/Eggert
Hulda var enn að bíða eftir svari frá Borgarholtsskóla.
Edda María, Birgir, Erling Þór og Aðalheiður Ragna lögðu til að skól-
arnir stækkuðu við sig svo hægt yrði að taka við öllum nemendum.
Tilvonandi nýnemar við framhaldsskóla landsins í óvissu með skólavist
Hafa áhyggjur af málefn-
um framhaldsskólanna
Jón Theódór, Ægir Már og Hilmar
voru vissir um að það væri erfitt
fyrir unglinga að vera synjað um
skólavist.
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MENNTASKÓLINN í Hamrahlíð
(MH) hefur hafnað 140 nýnemum
um skólavist, sem luku grunn-
skóla í vor. Alls bárust skólanum
470 umsóknir fyrir næsta vetur,
þar af 370 frá nýnemum. Því voru
230 nýnemar teknir inn og til við-
bótar aðeins 30 eldri nemendur.
Að sögn Sigurborgar Matthías-
dóttur, aðstoðarskólameistara
MH, er skólinn stokkfullur og
munu frekari fjárveitingar frá
stjórnvöldum hafa lítið að segja,
MH hafi einfaldlega ekki nægt
rými til að taka við fleirum að
þessu sinni. Beðið sé eftir því að
húsnæðið verði stækkað, þannig
að MH geti tekið við 100–150 nem-
endum til viðbótar.
Þurfti að hafna
140 nýnemum
MENNTAMÁLARÁÐHERRA hef-
ur tilkynnt öllum framhalds-
skólum að taka inn alla nýnema á
hausti komanda og greint þeim
frá því að þeir muni fá auka-
fjárveitingu til að mæta auknum
kostnaði.
Steingrímur Sigurgeirsson, að-
stoðarmaður ráðherra, segir að
þetta þýði að allir sem séu að
ljúka 10. bekk og vilji komast að í
framhaldsskóla eigi að geta það.
Hann segir kostnaðinn vegna
þessa muni nema um 200 millj-
ónum á þessu ári, þ.e. vegna
haustannarinnar. Fjárlög séu
ákveðin með árs fyrirvara og í
þeim byggi menn á reynslu síð-
ustu ára og þótt menn hafi vitað
að stór árgangur væri að koma
inn hafi menn ekki vitað end-
anlega hversu hátt hlutfall myndi
sækja um skólavist. Það liggi
ekki fyrir fyrr en tölur um það
berist. Þær hafi borist um miðja
síðustu viku og þá hafi komið í
ljós að nær 100% af árganginum
hafi sótt um að komast að í fram-
haldsskóla. Við því hafi nú verið
brugðist.
Aukafjárveiting til
framhaldsskólanna
FULLTRÚAR átakshóps Höfuð-
borgarsamtakanna og Samtaka um
betri byggð munu afhenda borgar-
verkfræðingi þær upplýsingar sem
hópurinn býr yfir vegna tillagna hans
um Hringbrautina. Málið var rætt í
borgarráði í fyrradag að frumkvæði
Ólafs F. Magnússonar og kom ósk frá
embætti borgarverkfræðings um að
fá gögnin í kjölfar þess.
Í dag er síðasti borgarstjórnar-
fundur fyrir sumarleyfi og segja
fulltrúar átakshópsins að ef ekki
verði fjallað um gatnamót Hring-
brautar og Bústaðavegar fyrr en í
byrjun september sé of skammur
tími fyrir gatnamálayfirvöld að end-
urhanna þau. Af þessum sökum mun
átakshópurinn í upphafi fundarins af-
henda borgarfulltrúum báðar tillögur
sínar, þ.e. um Hringbraut í stokk og
gatnamótin við Bústaðaveg. Örn Sig-
urðsson, einn talsmanna hópsins,
segir það gert í þeirri von að borg-
aryfirvöld sjái sig um hönd og reyni
að fresta framkvæmdum eða flýta
rannsókn á þessum tillögum og þá
ekki síst að gatnamótunum við Bú-
staðaveg.
Kynntu tillögur sínar
á fundi læknaráðs LSH
Fulltrúum samtakanna var í gær
boðið að koma á fund læknaráðs
Landspítala – háskólasjúkrahúss og
kynna tillögur sínar um Hringbraut-
ina. Að sögn Arnar Sigurðssonar,
skiptir tillaga hópsins um gatnamót
Hringbrautar og Bústaðavegar fram-
tíðaruppbyggingu Landspítalans
mjög miklu máli. Vegna þeirrar upp-
byggingar, sem nú sé í undirbúningi,
viti menn hjá LSH ekki hvort þeir
eigi að þróa sig fyrir norðan eða
sunnan gömlu Hringbrautina. „Ég
held að okkar tillaga hafi fallið þeim
mjög vel,“ segir Örn en tillagan snýst
um að þar verði venjulegt hringtorg
og svo venjulegar tengingar niður í
stokkinn sem Hringbraut lægi í.
Hringtorg
við Hring-
braut og
Bústaðaveg
Í VIÐEY var handagangur í öskj-
unni í gær, þegar unglingarnir í
Vinnuskólanum voru að raka sam-
an heyi af tjaldstæðinu og ganga
frá því vegna skátamóts sem hefst í
eynni í dag, en þá munu fimm
hundruð skátar mæta á svæðið,
tjalda, taka lagið, glíma við þrautir
og stunda skemmtilega útivist í
þeirri frábæru náttúruperlu sem
Viðey er.
Krakkarnir voru að vísu misdug-
legir og sumir höfðu fundið nýstár-
legar aðferðir við að vinna. Þótt
bæði blaðamaður og ljósmyndari
hefðu unnið garðstörf hafði þeim
aldrei dottið í hug að hægt væri að
raka liggjandi, en hugviti ungling-
anna eru engin takmörk sett. Unga
fólkið var þó stórskemmtilegt og
sagði einn verkstjórinn að sú launa-
lækkun sem fylgdi því að fara úr
skrifstofustarfi í útivinnu með
hressum krökkum borgaði sig út í
ystu æsar.
Þá sýndu krakkarnir mikla nær-
gætni við spóa sem átti hreiður í ná-
grenninu og gáfu honum nægt rými
til að liggja á eggjum sínum, enda
ungarnir alveg að skríða út.
Þessi ungi maður var ekkert að
slóra, þótt kátína brytist út þegar
ljós varð sú langa leið sem hann
valdi með hjólbörurnar á áfanga-
stað, án efa til að ná góðu spjalli við
stúlkurnar mörgu og fríðu.
Undirbúa skátamót í Viðey
Morgunblaðið/Árni Torfason
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi
sínum á þriðjudag að opna svonefnt
símaver Reykjavíkurborgar, þar
sem aðgangur yrði að borgarstarf-
seminni í gegnum eitt símanúmer.
Samkvæmt samþykkt borgarráðs er
stefnt að því að opna símaverið í
febrúar á næsta ári.
Í tillögum vinnuhóps borgarinnar
um símaver segir m.a. að hlutverk
símaversins yrði að auðvelda borg-
arbúum og öðrum viðskiptavinum
borgarinnar að nálgast upplýsingar
og þjónustu borgarinnar.
Eitt símanúmer
fyrir borgina
♦♦♦