Morgunblaðið - 24.06.2004, Side 11

Morgunblaðið - 24.06.2004, Side 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 2004 11 HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrverandi aðalgjald- kera Landssíma Íslands hf., í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir fjárdrátt upp á 261 milljón króna á árunum 1999 til 2003. Meðákærðu, Árni Þór Vigfússon og Kristján Ra. Kristjánsson, voru dæmdir í tveggja ára fangelsi fyrir hylm- ingu með því að hafa tekið við og ráðstafað um 163 milljónum króna af fénu sem Sveinbjörn dró sér. Árni Þór hefur þegar ákveðið að áfrýja dóminum til Hæstaréttar. Þá var Ragnar Orri Benediktsson dæmdur í 8 mánaða fangelsi fyrir hylmingu upp á 30 millj- ónir króna af Landssímafénu. Auður Harpa Andrésdóttir, sem ákærð var fyrir hylmingu á þremur milljónum króna, var sýknuð af ákæru. Ákærði Sveinbjörn játaði fjárdrátt upp á 250 milljónir króna en neitaði afganginum sem varðaði 10 milljónir króna vegna þátttökugjalda vegna tölvuleikjamóta, svokallaðra Skjálfta- móta Landssímans, þar sem hann dró í efa að samanlögð fjárhæð væri rétt. Bar hann því við að hafa að nokkru leyti lagt þátttökugjöld inn á reikning Landssímans án þess þó að hann gæti tilgreint nákvæmar fjárhæðir í því sambandi. Þegar til þess var horft að hann játaði að hafa dregið sér stóran hluta þátttökugjalda tölvu- leikjamótanna, að hann annaðist sjálfur tekju- skráningu gjaldanna og að ítarleg rannsókn á bókhaldi Landssímans hefði ekki leitt í ljós að þátttökugjöld hefðu verið lögð inn á reikning fé- lagsins, þótti dóminum ekki varhugavert að miða við að hann hefði dregið sér þátttökugjöld í samræmi við fjárhæðir í ákæru. Styrkur og einbeittur brotavilji Að mati dómsins voru brot hans stórfelld og áttu sér enga hliðstæðu. Eins og málið lá fyrir miðaði dómurinn við að hann hefði ekki notið nema hluta ávinnings af brotum sínum. Hins vegar hafi brotavilji hans verið styrkur og ein- beittur. Varðandi þátt Árna Þórs og Kristjáns Ra. sagði dómurinn að ákærur á hendur þeim byggðust á að þeim hefði verið kunnugt um að Sveinbjörn hefði með refsiverðum hætti komist yfir og ráðstafað fjármunum Landssímans til þeirra. Þeir neituðu sök og byggðu varnir sínar í fyrsta lagi á því að ákæra í málinu fullnægði ekki áskilnaði laga um meðferð opinberra mála. Brotum þeirra væri lýst sem gáleysisbrotum í verknaðarlýsingu ákæru, en þau væru heim- færð aðallega undir 254. gr. almennra hegning- arlaga, en til vara undir 264. gr. sömu laga. Hylming skv. 254. gr. hegningarlaga væru ásetningsbrot og því væri einungis hægt að sak- fella þá fyrir hylmingu framda með ásetnings- broti skv. 263 gr. hegningarlaga og laga um meðferð opinberra mála. Í dómi segir að í ákæru sé háttsemi þeirra lýst sem hylmingu, með því að þeim sé gefið að sök að hafa veitt viðtöku, haldið og ráðstafað fjármunum, „þrátt fyrir að ákærðu hafi mátt vera ljóst“ að vörslur fjárins í höndum með- ákærða Sveinbjarnar hafi ekki stofnast með löglegum hætti. Í þeim tilvikum er ákæruefnið hafi varðað fjármuni er runnu til Alvöru lífsins ehf. og Íslenska sjónvarpsfélagsins ehf. hafi háttseminni verið lýst með sambærilegum hætti. Þrátt fyrir hin tilvitnuðu orð í ákæru yrði að skilja verknaðarlýsingu hennar að öðru leyti þannig að hún lýsti ásetningsbroti. Þá miðaði tilvísun til refsiákvæða í ákærunni við slíka heimfærslu en ekki gáleysisákvæði 263. gr. hegningarlaga. Að öðru leyti beindust varnir Árna Þórs og Kristjáns Ra. að því að þeir töldu sig þess full- vissa að Sveinbjörn hefði haft viðhlítandi heim- ildir til að ráðstafa fjármunum Landssímans. Það hefði ekki verið fyrr en í símtali Sveinbjarn- ar og Kristjáns Ra. í maí 2003 að ákærðu hefðu orðið heimildarskorturinn ljós. Sveinbjörn hefði frá upphafi staðfastlega haldið því fram að hann hefði frá fyrstu tíð látið í það skína að hann hefði fullt umboð Landssímans til að annast lánafyr- irgreiðslu til ákærðu. Að mati dómsins voru fjárhæðir sem runnu til Árna Þórs og Kristjáns Ra, Alvöru lífsins og Íslenska sjónvarpsfélagsins, stórfelldar eða rúmar 163 milljónir króna. Í öðru lagi stóð yf- irfærsla fjármuna frá Landssímanum til ákærðu eða félaga þeim tengdum yfir í nærri þrjú ár. Í þriðja lagi hefði í engu tilvika verið gengið frá undirritun lánaskjala, einnar eða annarrar gerðar, eða rætt um ábyrgðir eða tryggingar tengdar fyrirgreiðslum til ákærðu eða félaga þeirra, svo sem gera varð ráð fyrir miðað við þær fjárhæðir sem um var að ræða. Í fjórða lagi leit dómurinn til þess að yfirlit eða önnur skrifleg gögn um skuldastöðu ákærðu og félaga þeirra hjá Landssímanum bárust þeim aldrei. Að lokum var litið til þess að ákærðu gerðu enga tilraun til þess að halda utan um þær fjárhæðir sem þeir og félög þeirra fengu frá Landssímanum. Hafi bókhald Alvöru lífsins þannig ekki verið fært og hefðu lögmæt skatt- skil félagsins síðast átt sér stað fyrir rekstr- arárið 1998. Hafi þetta verið til þess fallið að leyna viðtöku fjár frá Landssímanum. Þegar til alls þessa var litið var það niður- staða dómsins að framburðir Árna Þórs og Kristjáns Ra. stæðust engan veginn. Enda þótt þeir hafi í upphafi kunnað að hafa litið á um- ræddar greiðslur sem lán sem þeim hafi borið að endurgreiða, hafi þeim ekki getað dulist að Sveinbirni var óheimilt að ráðstafa fé Lands- símans. Án tillits til þess hvort og þá hvenær þeim hafi orðið ljós ásetningur Sveinbjarnar hafi þeim hlotið að vera ljós heimildarskortur hans að þessu leyti og þar með refsiverð hátt- semi hans. Voru þeir því sakfelldir. Um Ragnar Orra Benediktsson sagði dóm- urinn að framburður hans gæti ekki staðist og hafi honum ekki getað dulist að Sveinbirni hafi verið óheimilt að ráðstafa fénu til hans og Haf- skipa ehf., Hanas ehf. og Lífstíls ehf. Án tillits til þess hvort og þá hvenær Ragnari Orra hafi orðið ljós ásetningur Sveinbjarnar hafi honum hlotið að vera ljós heimildarskortur Sveinbjarn- ar og var hann því sakfelldur. Sakir fyrndar á 2 árum Um Auði Hörpu Andrésdóttur sagði dómur- inn að ekki hafi komið fram í málinu að hún hafi átt hlut í félögum sem aðrir ákærðu í málinu hafi tengst eða að hún hafi borið ábyrgð á rekstri þeirra eða rekstrareiningum þeim tengdum. Gögnin hafi heldur ekki leitt í ljós önnur tengsl hennar og Sveinbjarnar en fram- burðir þeirra hafi gefið til kynna. Í því ljósi væri varhugavert að telja sannað að hún hafi vitað um ólögmæta tilurð þeirra fjármuna sem hún ráðstafaði að fyrirmælum Sveinbjarnar. Var hún því ekki sakfelld fyrir peningaþvætti fram- ið af ásetningi. Að mati dómsins veitti Auður Harpa ólög- mætum ávinningi viðtöku á bankareikning sinn og ráðstafaði honum að fyrirmælum Svein- bjarnar. Sú ráðstöfun hafi ekki verið tilviljun, þar sem hún hafi tekið þá ákvörðun að aðstoða hann við að framselja tékka er óumdeilanlega stöfuðu frá Landssímanum en ekki Sveinbirni svo sem ljósrit af þeim báðum hafi skýrlega bor- ið með sér. Að mati dómsins varð að meta þá ráðstöfun ákærðu til gáleysis. Með þeirri hátt- semi gerðist ákærða sek um brot gegn 4. mgr. 264. gr. hegningarlaga. Refsing vegna brota á þessum ákvæðum varðar fangelsi allt að 6 mánuðum en fyrnast á tveimur árum. Brot ákærðu voru framin í apríl 2001 en hún var fyrst yfirheyrð af lögreglu 4. júní 2003. Voru sakir því fyrndar og ákærða sýknuð. 246 milljóna kr. skaðabótakröfu Landssím- ans í málinu var vísað frá dómi á þeim forsend- um að hún var margskipt og nam umtalsverðum fjárhæðum. Þá höfðu ákærðu krafist þess að bótafjárhæðir yrðu lækkaðar án þess þó að mál- ið hafi verið flutt með þeim hætti að unnt væri að taka viðunandi afstöðu til slíkrar máls- ástæðu. Með vísan til þessa var það niðurstaða dómsins að skaðabótakrafan þyrfti aðra og frekari umfjöllun en hér yrði komið við og var henni vísað frá. Málið dæmdu Símon Sigvaldason dómsfor- maður, Helgi I. Jónsson dómstjóri og Skúli Magnússon héraðsdómari. Verjendur voru Helgi Jóhannesson hrl. fyrir Sveinbjörn, Brynj- ar Níelsson hrl. fyrir Auði Hörpu, Gestur Jóns- son hrl. fyrir Árna Þór, Ásgeir Þór Árnason hrl. fyrir Kristján Ra. og Sigmundur Hannesson hrl. fyrir Ragnar Orra. Sækjandi var Jón H. Snorrason, saksóknari hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra. Fyrrverandi aðalgjaldkeri Landssímans dæmdur í 4 1/2 árs fangelsi fyrir fjárdrátt Brot þykja stórfelld og eiga sér ekki hliðstæðu Fyrrverandi forsvars- menn Íslenska sjón- varpsfélagsins dæmd- ir í 2 ára fangelsi Morgunblaðið/Þorkell Verjendur og tveir sakborninga mættu í dóminn en aðalsakborningarnir voru fjarverandi. EFTIRFARANDI yfirlýsing barst í gær frá Símanum vegna dóms Héraðsdóms Reykja- víkur í Landssímamálinu: Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu í dag, að fjórir ákærðu, í svonefndu Landssímamáli, hefðu verið sekir fundnir um refsiverð brot í samræmi við ákæru ríkislögreglustjórans í málinu. Í þessu felst, að lagður er grundvöllur að bótaskyldu þeirra aðila gagnvart Símanum. Niðurstaða dómsins var hins vegar sú, að fjárkröfum Símans, eins og þær voru lagðar fram í hinu opinbera máli, var vísað frá dómi. Taldi dómurinn bótakröfuna þurfa aðra og frekari umfjöllun en við verður komið í sakamáli. Símanum var á rannsókn- arstigi málsins veittur kostur á að setja fram bótakröfur í málinu, á grundvelli sér- stakrar heimildar í lögum um meðferð op- inberra mála. Frávísun slíkrar kröfu frá dómi, hefur hins vegar ekki neina efnislega þýðingu um slíkar bótakröfur. Að mati Símans felur dómur héraðsdóms í dag í sér, að lagður hefur verið grunnur að bótaskyldu þeirra sem dæmdir voru til refs- ingar. Síminn mun leita viðeigandi úrræða gagnvart umræddum aðilum í samræmi við niðurstöðu héraðsdóms, eftir atvikum með einkaréttarlegum úrræðum. Yfirlýsing frá Símanum „ÞETTA er besta byrjun í Haffjarð- ará í að minnsta kosti áratug, fyrsta þrjá og hálfan daginn veiddust 28 laxar og margir tóku grannt og sluppu. Auk þess var 15 þriggja til fjögurra punda sjóbleikjum landað. Þessi mikla veiði náðist þrátt fyrir erfið veðurskilyrði, sólskin og mik- inn hita,“ sagði Einar Sigfússon, annar eigenda Haffjarðarár, í sam- tali við Morgunblaðið, en veiði í ánni hófst sl. föstudag. Einar bætti við að lax væri dreifð- ur um alla á og væri bæði stórfiskur og smár á ferð, þeir stærstu upp í 14–15 pund. Þegar leið á veiðiskap- inn veiddu nær allir veiðimenn með gárubragði. Ingvi Hrafn Jónsson var kátur á bökkum Langár, sagði byrjunina nú þá bestu í manna minnum. „Það er aðeins 23. júní og áin komin yfir 100 laxa. Þetta er með ólíkindum,“ sagði Ingvi. Hann bætti við að 17 hreist- ursýni hefðu verið tekin og allur fiskurinn því úr náttúrulegu klaki. „Við eigum því sjógönguseiðin öll eftir,“ bætti Ingvi við. Lofar góðu „Það eru komnir tólf á land eftir fyrsta daginn og fiskur upp um alla á, mest 5 til 8 punda fiskur. Þetta lof- ar mjög góðu fyrir framhaldið,“ sagði Egill Kristjánsson, staðarhald- ari við Grímsá, í gærdag, en þá hafði áin verið opin í sólarhring. „Við áttum ekki endilega von á miklu eftir smálaxaleysið í fyrra, en það komu samt fjórir á land í opnun og nokkrir sluppu. Þetta er ekki mikið magn enn þá, en sá fiskur sem kemur stoppar ekki niður frá, held- ur rýkur í gegnum Flóðið og hverfur inn á dal,“ sagði Pétur Pétursson, leigutaki Vatnsdalsár, í gærdag, en þá var fyrsta hollið að ljúka veiðum. Mikill risi sleit 18 punda taum veiðimanns í Hólakvörn í Vatns- dalnum um helgina. Veiðimaðurinn var Guðjón Engilbertsson sem var með 10 feta títanstöng frá Scierra og fluguna Maríu eftir Ólaf Vigfús- son. „Að þessu voru vitni, en menn eru ekki á eitt sáttir hvort laxinn var 25 pund eða 30, við skulum bara sættast á 27 pund! En látum það vera, fiskurinn óð niður úr kvörn- inni og niður Skriðuvað og ég hefði ekki trúað því að hægt væri að taka 100 metrana á 9,8 sekúndum í full- um veiðimannaskrúða, en ég held bara að Guðjón hafi gert það. Og skórnir hljóta að vera góðir, því hann datt aldrei á hausinn. En grín- laust þá var þetta feiknalegt æv- intýri og stórkostlegt að fá að fylgj- ast með svona glímu.“ Héðan og þaðan Það er loks komið líf í Laxá á Ás- um, veiðimaður veiddi t.d. fjóra í beit í hylnum Kóka og fleiri lutu í gras, auk þess sem menn sáu laxa nokkuð víða. Blanda er líka að skila góðu og dagsveiðin þar að fara í 7–8 laxa og eru margir mjög vænir, 12 til 15 pund. Þá er góður gangur í Laxá í Kjós og Norðurá. Í Kjós veiddist m.a. 15 punda flugufiskur í Kvíslafossi. Fljúgandi byrjun í Haffjarðará Morgunblaðið/Einar Falur Sett í lax á Brotinu í Norðurá. ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? FASTEIGNAMAT ríkisins hefur lokið endurmati fasteigna að beiðni sveitarstjórnar Fjarðabyggðar. Það tekur til íbúðarhúsnæðis og íbúðarlóða í sveitarfélaginu og hækkar um tæplega tvo milljarða króna 1. september nk. Yfirfasteignamatsnefnd hækkaði á síðasta ári fasteigna- verð á íbúðarhúsnæði og lóðum í Fjarðabyggð um 20%. Bæjar- stjórn óskaði í kjölfarið eftir endurmati, þar sem hækkunin þótti ekki í samræmi við raun- verulegt verð fasteigna á svæð- inu. Heildarhækkunin er nú 25% og hækkar fasteignamat íbúða og íbúðalóða úr rúmlega 7,2 milljörðum í 9,6 milljarða króna. Unnt er að skila inn athuga- semdum til ágústloka. 25% hækkun fasteigna í Fjarðabyggð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.