Morgunblaðið - 24.06.2004, Side 29

Morgunblaðið - 24.06.2004, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 2004 29 að færa von r meðal aratriði frá bant sem manni að eit. iat g er fædd yrst í Sviss ol of Art am hún kjölfarið ondon, þar sem þekkt- íunda rísku n Michel- og ítalska Clemente. undir lok n misst áhugann á því hvert listin var að stefna og hóf að sinna heimsminjum í gegnum sérstaka stofnun, ARCH, sem hún sjálf setti á stofn. Hún hafi síðan haldið innreið sína á nýjan leik í heim nútímamynd- listar með stofnun T-BA21 árið 2002. T-BA21 hefur á skömmum tíma safnað álitlegu safni nútímamynd- listar eftir marga helstu myndlist- armenn heims, eins og má glögglega sjá á heimasíðunni www.tba21.org. Meðal þeirra verka sem von Habsburg hefur fest kaup á og má sjá á heimasíðunni, er einmitt verk Finnboga Péturssonar „Sphere“ sem sýnt var á hliðarsýningu Art Basel, Art Unlimited, og vakti þar mikla athygli. Þá á T-BA21 eina myndröð eftir Gjörningaklúbbinn. Listin að breytast Von Habsburg segir að listin sé að breytast hratt og að hún sjálf og aðr- ir sem sýni myndlist í söfnum og öðrum stofnunum þurfi að læra sitt hlutverk alveg upp á nýtt. „Við þurf- um að laga okkur að þeim lista- mönnum sem starfa í dag, og virða hin nýju landamæri listarinnar sem eru orðin ótrúlega víðfeðm.“ En hvernig er listin að breytast? „Listin hefur verið að breytast mjög mikið. Fólk er nú í auknum mæli að láta reyna á mörk framsetn- ingar listarinnar og listamenn eru farnir að búa til listaverk sem miklu erfiðara er að setja upp inni á heim- ilum. Safnarar hafa nú þá skyldu að vinna með opinberum söfnum og sýningarrýmum við framsetningu myndlistar, sem þeir hafa kannski ekki átt að venjast.“ Von Habsburg segir að hin hefð- bundnu söfn eins og Guggenheim í New York séu orðin íhaldssöm og hafi gleymt sér í markaðssetningu og vörumerkjum (branding). „Ég sé núna mörg ný og spennandi söfn í Þýskalandi og í Austurríki þar sem er verið að gera tilraunir með sam- tímalist. Það er vettvangur sem hin íhaldssamari söfn þurfa að líta til.“ Von Habsburg segir að ýmislegt sé á döfinni hjá sér og T-BA21. Til dæmis hafi verið rætt um að lána verk úr safninu til Reykjavíkur. „Ég vil nota hverja ástæðu sem ég get til að komast aftur til Reykjavíkur. Svo er ég að vinna að verkefni í Berlín og mörgum verkefnum í Vín í Aust- urríki.“ Varðandi mikilvægi þess fyrir nýtt gallerí eins og i8 að komast að með bás á Art Statements á Art Basel og listamann á sýninguna Art Unlimited, segir von Habsburg að mikilvægið sé mikið enda Art Basel miðja hins alþjóðlega myndlist- arheims. „Stjórnandi Art Basel, Samuel Keller, ver öllum tíma sínum allt ár- ið um kring í að fara um heiminn og skoða myndlist í galleríum og söfn- um til að sjá allt það nýjasta og ferskasta, því allir safnarar vilja í raun uppgötva nýja listamenn þegar þeir koma á listastefnur. i8 er eitt þessara nýju gallería og ég er stolt af því að hafa átt þátt í því að i8 komst að með sýningu Finnboga Péturssonar á Art Unlimited. Það eru allir að tala um það verk. Ég er mjög ánægð með að hafa hitt frá- bæra listamenn í Reykjavík og hvatt þá til að koma til Basel. Ég á samt minnstan þátt í þessu öllu saman, Edda Jónsdóttir hjá i8 hefur skipu- lagt þetta af mikilli fagmennsku. Vera gallerísins hér er mikilvæg til að minna okkur á hve Ísland er mik- ilvægt í okkar evrópska samhengi. Hið listræna framlag Íslendinga í Basel í ár er umtalsvert og hefur vakið eftirtekt. Hér snýst allt um tengsl og að kynnast og tala við fólk, og fullt af fólki, bæði áhrifamiklir safnarar og sýningarstjórar, hefur kynnst i8 hér úti í Basel. Basel er frábær staður og ég er góð í því að tengja fólk saman,“ segir Francesca von Habsburg. ja fólk saman Morgunblaðið/Þóroddur Habsburg er aðdáandi hljómsveitarinnar. ncesca von Habsburg og Samuel Keller, stjórn- i Art Basel listastefnunnar, skemmtu sér vel. York og Los Angeles, stofnaði hún árið ARCH-stofnunina sem hefur það að miði að varðveita heimsminjar og hefur engið þó nokkur verðlaun fyrir störf sín sviði. Árið 2002 stofnaði hún svo nútíma- tofnunina T-BA21 sem getið er í grein- hér annars staðar á síðunni. Gift inn í sögufræga fjölskyldu rónessan giftist inn í hina sögufrægu psku Habsborgarætt 25. september árið en eiginmaður hennar er Karl von burg erkihertogi, elsti sonur erki- gans Otto von Habsburg sem er beinn gi Karl Franz Josef Ludwig Hubert g Maria von Habsburg síðasta keisarans turríki (1916–1918) og síðasta konungs verjalands. Karl þessi var sonur erki- gans Otto Franz Joseph, yngri bróður ertogans Franz Ferdinand en morðið á m hleypti fyrri heimsstyrjöldinni af stað. bsborgarættin var ráðandi valdaætt í pu sem hertogar, (æðstu þjóðhöfð- ingjar), í Austurríki á árunum 1282–1453, sem erkihertogar, á árunum 1453–1804 og sem keisarar á árunum 1804–1918. Einnig sem konungar á Spáni 1516–1700 og sem keisarar í „Holy Roman Empire“, forvera Þýskalands nútímans, í nokkrar aldir fram til ársins 1806. Eiginmaðurinn á Evrópuþinginu Karl von Habsburg er fæddur 11. júní 1961. Hann hefur meðal annars setið á Evr- ópuþinginu á árunum 1996–1999 og var kjörinn yfirmaður UNPO, The Unrepres- ented Nations and Peoples Organization, ár- ið 2002 en það eru óháð samtök sem berjast gegn ofbeldi, berjast fyrir mannréttindum, lýðræði, umhverfisvernd og umburðarlyndi. Þau Francesca von Habsburg og Karl von Habsburg búa í Salszburg í Austurríki og eiga þrjú börn; Eleonore Jelena, fædda 28. febrúar 1994, Ferdinand Zvonimir, fæddan 21. júní 1997, og Gloriu, fædda 15. október 1999. frægri fjölskyldu Átröskunarteymi sem hefurstarfað við geðdeildLandspítala – háskóla-sjúkrahúss síðustu þrjú ár hefur ekki bætt við skjólstæð- ingum frá áramótum sökum mann- eklu og hefur nýjum átrösk- unarsjúklingum verið vísað á al- menna göngu- deild á geðdeild. Tvö ár eru síðan þingsályktun- artillaga var samþykkt sam- hljóða á Alþingi um að fela heil- brigðisráðherra að sameina þver- faglega þjónustu þeirra sem hafa sérþekkingu á átröskun svo bjóða megi upp á sérhæfða meðferð fyrir átröskunarsjúklinga á öllum aldri, en engin ákvörðun þar um hefur verið tekin enn. Guðlaug Þorsteinsdóttir, geð- læknir á almennri geðdeild LSH og ein þeirra sem stofnuðu átrösk- unarhópinn árið 2001, segir að al- gjört ófremdarástand ríki nú í mál- um átröskunarsjúklinga. Á síðastliðnum þremur árum hafi að jafnaði einn til þrír nýir sjúklingar leitað eftir meðferð hjá teyminu í hverri viku. Hún hefur ekki tölu um hversu margir hafi þurft á þjónust- unni að halda frá því hætt var að bæta við sjúklingum eftir áramót, en ætla megi að ekki hafi dregið úr þörfinni. Guðlaug segir að mikil þörf sé á þjónustunni, en tilfinnanlega vanti meðferðarúrræði fyrir þessa sjúk- linga. Skortur sé á starfsfólki á geð- deildinni og það vanti fé til að hægt sé að ráða fólk. Af þessum sökum hafi verið ákveðið að gera hlé á inn- töku nýrra sjúklinga um síðustu ára- mót. Stefnt er að því að hefja starfsem- ina aftur í haust en Guðlaug segir nauðsynlegt að tryggja fjárhags- legan stuðning áður. Í nóvember í fyrra skilaði nefnd sem landlæknisembættið skipaði til- lögum til heilbrigðisráðherra um hvernig væri best að sinna átrösk- unarsjúklingum og er nú beðið eftir svari frá ráðherra. Í nefndinni sátu fulltrúar frá át- röskunarteymum fullorðins- geðdeildar LSH og Barna- og ung- lingageðdeildar. Auk þeirra var fulltrúi frá Speglinum og sjálfstætt starfandi sálfræðingur sem hefur langa reynslu í meðferð á átrösk- unarsjúklingum. Vilja sérstaka meðferðarmiðstöð Nefndin lagði til að stofnuð yrði meðferðarmiðstöð á Íslandi fyrir einstaklinga með átraskanir sem myndi þjóna öllum aldurshópum. „Auk öflugrar göngudeildar teljum við nauðsynlegt að opna dagdeild fyrir einstaklinga með átraskanir, sem er opin fimm daga vikunnar og sem þyrfti að manna þannig að hægt væri að taka við 8–10 sjúklingum. Göngudeildin og dagdeildin þurfa að geta veitt þverfaglega þjónustu, með t.d. lækni, sálfræðingi, félagsráð- gjafa, næringarráðgjafa og hjúkr- unarfræðingum. Við teljum einnig að það þurfi lítið meðferðarheimili, sólarhringsheimili fyrir veikustu sjúklingana, sem yrði ekki staðsett á spítalalóðinni, og myndi taka við sjúklingum eftir að sjúkrahúsvist lýkur. Þar yrði einstaklingum hjálp- að að endurhæfa sig til að komast aftur út í þjóðfélagið, hvort sem það er í vinnu eða nám og ná tökum á sínum sjúkdómi. Þar væri hægt að vera í jafnvel 1–2 ár, en þetta úrræði væri fyrir veikustu sjúklingana. Dagdeildin yrði aftur á móti fyrir þá sem geta búið heima hjá sér, hafa góðar félagslegar aðstæður og eru í einhverri virkni,“ segir Guðlaug. Hún minnir á að margir séu orðn- ir langeygir eftir aðgerðum. Ekkert hafi gerst þrátt fyrir að þingsálykt- unartillaga hafi verið samþykkt á Alþingi vorið 2002 um að byggja upp þverfaglega þjónustu á Íslandi fyrir einstaklinga með átraskanir og eng- ir peningar hafi fylgt þessari sam- þykkt. Ekkert stöðugildi á geðdeild vegna átröskunarsjúklinga Guðlaug segir að í dag séu engin stöðugildi á geðdeildinni fyrir með- höndlun átröskunarsjúklinga og sér- hæfingu skorti. Ef sjúklingur með lystarstol þurfi að leggjast inn sé hann lagður á almenna geðdeild, móttökudeild, þar sem með- allegutími sé orðinn mjög stuttur vegna niðurskurðar. „Þetta getur gengið í stuttan tíma en þar sem ekkert meðferðarheimili tekur við sjúklingnum eftir að bráðahætta er liðin hjá dragast innlagnir oft óhóf- lega á langinn. Slíkt er mjög óheppi- legt fyrir sjúklinginn og getur hrein- lega tafið fyrir bata.“ Guðlaug er geðlæknir í almennum geðlækningum. Í teyminu hafa verið auk hennar félagsráðgjafi og hjúkr- unarfræðingar og næringarráðgjafi. „Næringarráðgjafinn er t.d. í 40% vinnu á spítalanum og sinnir öllu geðsviðinu, allri barna- og unglinga- geðdeildinni og svo þessu verkefni aukalega þannig að það er lítill tími.“ Guðlaug segir að í dag sé þó starf- andi meðferðarteymi á legudeildinni sem hún vinnur á, deild 33 C, en það sé bundið við þá sjúklinga sem séu það veikir að það þurfi að leggja þá inn. „Í vetur höfum við verið fjórar, fyrir utan hjúkrunarfræðingana hér á deildinni, sem höfum sinnt þessu. Við þurfum miklu fleira starfsfólk og betri aðstöðu og þá getum við sinnt þessu betur. Ég hef trú á því að það sé tímaspursmál hvenær verði sett- ur í þetta peningur og það verði byggð hér upp markviss þjónusta fyrir þessa sjúklinga,“ segir Guð- laug. Átröskunarteymið byrjaði sem grasrótarstarf innan spítalans. „Við sem höfum sinnt þessu höfum gert þetta sem nokkurs konar aukabú- grein. Við höfum haft áhuga á þessu og viljum koma að því að byggja upp þjónustuna. Við höfum séð neyðina og þörfina. Þetta er ákveðið grasrót- arstarf sem byrjaði hérna og vatt upp á sig þar til við sáum að við gæt- um ekki starfað svona við óbreyttar aðstæður, án þess að fá einhver stöðugildi í þetta og fleira hæft starfsfólk til að sinna þessu svo vel væri. Þess vegna er málið aðeins í biðstöðu því við höfum verið að bíða eftir að heyra frá ráðuneytinu.“ Hentar illa fyrir langtímameðferðir Í dag er sjúklingum með átrask- anir vísað á almenna göngudeild geðdeildar. „Hún er skipulögð þann- ig að hún sinnir fyrst og fremst bráðamóttöku og skammtíma- meðferð. Ætlast er til að öll eft- irmeðferð og langtímameðferð fari fram í heilsugæslu eða á einkastof- um. Þar sem átraskanir eru lang- vinnir sjúkdómar kemur þetta illa við þennan sjúklingahóp. Að hluta til er þetta vegna stefnu spítalans að vera fyrst og fremst bráðasjúkra- hús,“ segir Guðlaug. Átröskunarteymið vinnur enn með þá einstaklinga sem voru teknir inn í hópinn fyrir áramót. „Við höf- um verið starfandi í þrjú ár og við höfum marga skjólstæðinga sem við höldum áfram að sinna. Einnig tök- um við þá sjúklinga sem þurfa að leggjast inn á deild 33 C, sem hefur sérhæft sig í inniliggjandi meðferð þessara sjúklinga,“ segir Guðlaug. Í skýrslunni fyrir ráðherra kemur fram að sé miðað við tölur um tíðni átraskana í Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum megi búast við um 24 nýjum sjúkdómstilfellum lyst- arstols (anorexia nervosa) árlega og 36 tilfellum lotugræðgi (bulimia ner- vosa). Líkur á að einstaklingar með átröskun fái bata aukast því fyrr sem sjúkdómurinn greinist og með- ferð hefst. Rannsóknir hafa sýnt að um 50% lystarstolssjúklinga hafa náð að halda eðlilegri þyngd fimm árum eftir greiningu á sjúkrahúsi, um 20% hafa slæmar horfur og um 5% deyja innan tíu ára frá grein- ingu. Horfur sjúklinga með lotu- græðgi eru svipaðar en dánarhlut- fall er lægra. Tíðni átröskunarsjúkdóma hefur farið vaxandi í vestrænum löndum á síðustu árum og hefur aðsókn í með- ferð og alvarlegum tilfellum fjölgað síðustu ár hér á Íslandi. Í skýrslu nefndarinnar segir að Ísland standi öðrum Norðurlandaþjóðum langt að baki hvað varðar meðferð átrösk- unarsjúklinga. Í Svíþjóð séu t.d. 40 sérhæfðar meðferðarstofnanir fyrir sjúklinga með átraskanir. Átröskunarteymi geðdeildar LSH hefur ekki getað bætt við sig sjúklingum frá áramótum Ófremdarástand í málefnum átröskunarsjúklinga Brýnt er að byggja upp þverfaglega þjónustu fyrir sjúklinga með átröskun en ekkert bólar enn á slíkum á úrræð- um. Nína Björk Jónsdóttir ræddi við Guðlaugu Þorsteinsdóttur geðlækni í átröskunarteymi geðdeildar LSH. Morgunblaðið/Golli Átröskunarsjúkdómar leggjast á fólk af báðum kynjum og á ýmsum aldri. Til át- raskana teljast sjúkdómar eins og lyst- arstol (anorexia), lotugræðgi (bulimia), lotuofát (binging) og offita. nina@mbl.is Guðlaug Þorsteins- dóttir geðlæknir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.