Morgunblaðið - 24.06.2004, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
"stílhreint snilldarverk"
HP Kvikmyndir.com
Ó.H.T Rás2
SV MBL
SKONROKK
Sýnd kl. 10.10. Síðasta sýning
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.I. 16.
1/2
HL Mbl
ÓÖH DV
Frá framleiðanda
Spider-Man
Fjölskylda hans var myrt
og hefnd hans er miskunnarlaus!
Hvað gerist þegar tveir andstæð-
ingar gifta sig fyrir slysni?
Það verður allt vitlaust!
Sýnd kl. 6. Síðasta sýning
Sýnd kl. 8.
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.00
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 3.40. Með ísl. tali
"stílhreint snilldarverk"
HP Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.40 og 10.30.
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40. B.i. 16.Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15.
"..hreinn „gullmoli...
Brilljant mynd.“
ÞÞ FBL
1/2
HL Mbl
kl. 5.20, 8 og 10.40.
ÓÖH DV
Frá framleiðanda
Spider-Man
Fjölskylda hans
var myrt
og hefnd hans er
miskunnarlaus!
Þær eru illgjarnar. Hún er ný.
Og fljótlega fær hún alveg nóg af þeim.
Frábær og
frumleg
gamanmynd
sem hefur svo
sannarlega
slegið í gegn í
Bandaríkjunum
Með Lindsay
Lohan úr
„Freaky Friday“
Ó.H.T Rás2
SV MBL
SKONROKK
30.000
manns
á 19 dögum!!!
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40.
ETERNAL
SUNSHINE
Kvikmyndir.is
Í ENDAÐAN ágúst mun Græna
ljósið – kvikmyndadreifing standa
fyrir bandarískri kvikmyndahátíð í
samstarfi við Sambíóin og Háskóla-
bíó. Sýndar verða tíu nýjar óháðar
bandarískar kvikmyndir og þar á
meðal myndin Super Size Me sem
vakið hefur gríðarlega athygli síðan
hún var frumsýnd á Sundance-
hátíðinni í janúar síðastliðnum.
Um er að ræða heimildarmynd
sem tekst á við skyndibitamenn-
inguna í dag og er risinn McDo-
nalds í forgrunni. Titillinn vísar í
þann kost á McDonalds að láta
stækka máltíðina og gæti íslenski
titill myndarinnar verið „Má bjóða
þér að stækka máltíðina?“, frasi
sem margir kannast líklega við.
Höfundur myndarinnar, Morgan
Spurlock, mun af þessu tilefni
heimsækja Ísland og verður við-
staddur sérstaka viðhafnarforsýn-
ingu á myndinni, miðvikudaginn 25.
ágúst kl. 20.30 í Háskólabíói. Mun
hann svara spurningum áhorfenda
eftir sýninguna og með honum
verður kærasta hans, Alexandra
Jamieson, grænmetiskokkur sem
spilar stóra rullu í myndinni.
Við dauðans dyr
Í myndinni, sem er heimild-
armynd, fylgjumst við með höfund-
inum, Spurlock, þar sem hann gerir
tilraun til að lifa einvörðungu á
matseðli McDonalds í 30 daga. Setti
hann sér ákveðnar reglur í þessu
sambandi. Máltíðirnar urðu að vera
þrjár; morgun-, hádegis- og kvöld-
matur. Hann varð að borða alla
rétti á seðlinum a.m.k. einu sinni.
Ef honum væri boðið að stækka
máltíðina yrði hann að þiggja það
en hann mátti ekki hafa frumkvæði
að því. Spurlock fékk til liðs við sig
lækna og næringarfræðinga sem
fylgdust með honum allan tímann.
Skemmst er frá því að segja að
eftir tuttugu og einn dag var Spur-
lock nánast við dauðans dyr. Blóð-
þrýstingurinn var kominn upp úr
öllu valdi, lifrin nánast orðin að
skorpulifur, þolið ekki neitt, kyn-
lífslöngun engin auk þess sem
þunglyndi sótti á hann. Og eina
sem gat létt lund hans var máltíð á
McDonalds en þá sveif hálfgerð
gleðivíma á Spurlock. Læknar ráð-
lögðu honum að hætta strax, en
hann kláraði þó dæmið – og hélt
lífi.
Risaskammtar
teknir af matseðli
McDonalds í Bandaríkjunum hef-
ur lítið gefið út á þetta en hættu
með risaskammtana í kjölfar frum-
sýningar myndarinnar. For-
ráðamenn þar hafna því þó að það
standi í einhverjum tengslum við
myndina.
Myndin var nýverið frumsýnd í
Ástralíu og þar í landi hóf Mc-
Donalds mikinn áróður gegn mynd-
inni og lýsti forstjórinn því yfir að
það væri hreint og beint heimsku-
legt að borða bara mat frá Mc-
Donalds og að matur þeirra eigi að-
eins að vera partur af mataræði
fólks.
Spurlock fékk þó hugmyndina að
myndinni þegar hann las að lög-
fræðingar McDonalds halda því
blákalt fram að maturinn á Mc-
Donalds væri það hollur að fólk
ætti að geta lifað af honum einum
saman. Þessar yfirlýsingar komu í
kjölfar kæru frá feitu fólki í Banda-
ríkjunum, sem kærði McDonalds
fyrir að gera það feitt.
Spurlock vann til verðlauna á
Sundance sem besti leikstjórinn
fyrir Super Size Me og sló hún í
gegn þar. Í kjölfarið hefur hún svo
náð gríðarlegri hylli í heimalandinu
og sat á topp 10 listanum yfir að-
sóknarmestu myndir Bandaríkj-
anna í þrjár vikur, sem er afbragðs-
árangur fyrir heimildarmynd sem
var gerð fyrir lítið fé.
Heimildarmynd | McDonalds-maðurinn til Íslands
Nærri því McDauður
„Umm...borgari!“
www.supersizeme.com
HILMAR Oddsson hlaut á þriðju-
dag aðalverðlaun kvikmyndahátíðar-
innar Art Film Festival í Slóvakíu
fyrir bestu leikstjórn fyrir kvik-
myndina Kaldaljós. Þess má geta að
önnur mynd í leikstjórn Hilmars,
Tár úr steini, var einnig í keppni á
þessari hátíð árið 1997.
Í fréttatil-
kynningu frá
Kvikmynda-
miðstöð segir
að hátíðin leggi
áherslu á að
sýna listrænar
kvikmyndir.
Annar ís-
lenskur leik-
stjóri, Börkur
Gunnarsson,
var einnig með
myndina Sterkt kaffi í keppninni.
Kvikmyndir| Kaldaljósi vel tekið
Hilmar verð-
launaður
Heimasíða hátíðarinnar er: http://www.artfilm.sk/
Hilmar Oddsson
HEIMILD hefur fengist til
að selja fleiri miða á tón-
leika bandarísku þunga-
rokksveitarinnar Metallica
í Egilshöll.
Alls höfðu selst upp um
15 þúsund miðar á tón-
leikana en nú hafa tónleika-
haldarar að sögn fengið
leyfi fyrir því að selja 3 þús-
und miða til viðbótar, bæði
á A- og B-svæði.
Seljist þeir miðar upp
munu alls 18 þúsund manns
sækja tónleikana sem yrðu
langstærstu einstöku inni-
tónleikar í Íslandssögunni.
Miðasala verður í versl-
unum Og vodafone í Síðu-
múla og Akureyri og á
www.farfuglinn.is og hefst
laugardaginn 26. júní kl.
12.00. Er það von tónleika-
haldara að þetta aukna miða-
framboð muni anna hinni miklu eft-
irspurn sem verið hefur eftir miðum.
Fjöldi blaðamanna mun að sögn
koma til landsins frá Evrópu og
Bandaríkjunum gagngert til að
fylgjast með Íslandsför Metallica.
Auk þess hefur sveitin boðið um-
boðsmönnum sínum og starfs-
mönnum plötufyrirtækisins víða um
heim á tónleikana, sem ætti að geta
orðið kjörið tækifæri fyrir íslensku
sveitirnar sem hita upp, til að sýna
hvað í þeim býr. Áður hefur verið
kunngjört að Mínus hiti upp en nú
hefur Brain Police einnig verið bætt
á dagskrána sem gerir hana að von-
um enn þá feitari.
Metallica| Þrjú þúsund fleiri miðar í boði
18 þúsund
manna tónleikar
Metallica slær nýtt Íslandsmet í Höll Egils 4.
júlí næstkomandi.
! "
#
$
%&
'
$( )*% #
!"
# $ % %
( ) $ $ $
'
'*
' %
+
%
%
%
,
-
.
/
0
++
+1
2
+3
+-
4
1
+2
+/
+,
+0
#
,
+
+
+
-
.
-
/
-
1
4
,
2
+,
-
,
0
+-
4
!
"#$% &'()*
#& &+&, &")
#-.&!/#/,0'&(1&
56
7 *8
9 $8
:;6 568
< 8
<* 8
9 ;568
' ;56856
56
< 8
<* #58
;56
56
7 *8
:;6 568
9 $ ;568
=8
56
;568
=8
56
9 $ 56
7 *8
9 $ 56
7 *8
:;6 568
< :;6 56
56
7 *8
9 $8
<* #5
= ' ;56
56
7 *8
:;6 568
*>?
;56
' ;56
= < ' ;56
56
7 *
:;6 56
EINN þekktasti útvarpsmaður/
plötusnúður Bretlands, Tony Black-
burn, hefur verið rekinn frá útvarps-
stöðinni Classic Gold Digital í Bret-
landi. Þetta gerðist í gærmorgun.
Ástæðan? Jú, hann spilaði lög með
Cliff Richard of oft að mati forráða-
manna stöðvarinnar.
Deilur hófust á milli Blackburn og
tónlistarstjóra stöðvarinnar þar sem
stjórinn, Paul Baker, hafði sent
Blackburn illskeytt rafbréf þar sem
hann þvertók fyrir það að Blackburn
myndi spila fleiri lög með Cliff –
enda væri það á móti stefnu stöðv-
arinnar. Blackburn er gert að lúta
ákveðnum spilunarlista en hann
ákvað að ganga gegn honum vegna
ítrekaðra óska frá hlustendum um að
fá að heyra eitthvað með Cliff. Hann
reif því varnaðarbréfið í tætlur í
morgun með viðhöfn og spilaði því-
næst tvö lög með Cliff, „We Don’t
Talk Any More“ og „Living Doll“
Blackburn var rekinn með það
sama í kjölfarið en vinur hans segir
að hann vonist til þess að það sé
hægt að leysa málið svo hann geti
snúið aftur til vinnu hið fyrsta.
Stál í stál
Útvarp | Tony Black-
burn rekinn fyrir að
spila Cliff Richard
www.classicgolddigital.com