Lesbók Morgunblaðsins - 17.04.2004, Page 4
4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 17. APRÍL 2004
1.
Maður fer yfir götu og
hittir konu með blæju
M
aður fer yfir götu og
gengur í átt að torg-
inu. Hann er hvorki
ungur né gamall.
Húðin er ekki dökk
en ekki heldur bein-
línis hvít.
Tveir lögreglu-
menn standa vörð á torginu. Þeir veita
manninum enga athygli. Hann stansar spöl-
korn frá þeim og lítur í kringum sig. Hann
virðist bíða eftir einhverjum.
Við erum á Plaza de Castilla í Madrid,
nokkrir dagar eru liðnir frá hryðjuverka-
árásinni þann 11. mars.
Ung kona kemur upp úr neðanjarðarlest-
argöngum. Hún lítur í kringum sig, sér
manninn og gengur í átt til hans. Þau halda
af stað. Hún er augljóslega arabísk því að
hún er í síðum kyrtli og hylur hár sitt með
einhverskonar blæju.
Þegar lögreglumennirnir koma auga á
konuna grípa þeir strax til símans og byrja
að tala í hann; það heyrast einkennileg
málmkennd hljóð. Þeir horfa gaumgæfilega
í kringum sig meðan þeir tala.
Við lifum á tímum þar sem þörf á örygg-
isgæslu fer vaxandi, við vitum þó ekki ná-
kvæmlega hverju við erum að verjast. Áður
fyrr lofuðu stjórnmálamenn því að við vær-
um að hnattvæðast í tryggum fjárhagsleg-
um vexti en nú tala þeir um hnattvæðingu í
sívaxandi hryðjuverkaógn. Og við verðum
að berjast gegn því.
Það virðist hins vegar sem við áttum okk-
ur ekki á að með vaxandi öryggisþörf sköp-
um við almennt óöryggi og óstöðugleika.
Málmkenndu hljóðin deyja nú út. Lög-
reglumennirnir líta hvor á annan og hefjast
handa. Annar þeirra gengur til mannsins.
Hann segir eitthvað. Maðurinn sem hvorki
er ungur né gamall svarar engu. Hann tæm-
ir vasa sína með hraði og setur orðalaust
innihaldið á gangstéttina milli fóta sinna
eins og til að varðveita eigur sínar. Hann
gæti verið sérfræðingur í að tæma vasa sína
sé tekið mið af hversu hratt hann hlýðir
skipuninni. Ekkert kemur á óvart. Hann er
svipbrigðalaus.
Hinn lögreglumaðurinn fer til konunnar.
Hann lyftir kyrtlinum og setur báðar hend-
ur undir hann. Hún sýnir engin viðbrögð.
Það virðist sem hendur hans finni ekkert
grunsamlegt. Hann hættir að þreifa og
sviptir af henni slæðunni. Konan stendur
kyrr.
Í kringum þau hefur safnast fólk en fæst-
ir vegfarendur veita þessu athygli. Flestir
sjá þetta ekki. Svo virðist sem þeim komi
þetta ekki við eða að þeir séu orðnir vanir
slíku.
Eldri mennirnir eru forvitnari en þeir
yngri. Þeir virðast sjá eitthvað í hegðun lög-
reglumannanna sem minnir þá á svipaða at-
burði á Francotímanum.
Þegar lögreglumaðurinn afhjúpar konuna
horfa aðrar konur á eins og þær séu að
velta fyrir sér hvað sé undir slæðunni, en
svo snúa þær sér undan. Aðeins ein ung
kona virðist njóta þess að horfa á þegar
slæðunni er svipt af konunni. Hún lyftir
höndunum eins og lögreglan hafi frelsað
konuna.
Síðan skoða lögreglumennirnir persónu-
skilríki parsins. Enn heyrist málmkennt
hljóð þegar annar þeirra notar eitthvert
tæki. Hann segir eitthvað og eftir stutta
stund fær hann svar.
Lögreglumennirnir eru hvítir. Hinar tvær
manneskjurnar eru ekki beinlínis dökkar.
Lögreglumennirnir hafa augljóslega leyfi
til að gera það sem þeim sýnist. Þessar
tvær manneskjur geta ekki annað en hlýtt.
Lögreglumennirnir eru kristnir. Hin tvö
eru líklega múslímar.
Þegar lögreglumaðurinn hefur talað í sím-
ann gefur hinn þögli bendingu. Maðurinn
sem hvorki er ungur né gamall hirðir eigur
sínar upp af gangstéttinni. Hann setur þær
aftur í vasa sinn. Konan beygir sig og setur
á sig slæðuna. Þau eru líklega laus.
Maðurinn og konan ganga í burtu. Lög-
reglumennirnir standa eftir.
Hvað var ósýnilegt í þessu dæmi sem við
sáum og virtum fyrir okkur?
Við vitum það ekki nákvæmlega.
Vitum við það kannski ekki þar til ein-
hvern daginn þegar þetta ósýnilega brýst
fram sem sýnilegt hatur?
Munu karlinn og konan líta á þessa rann-
sókn sem eðlilegan hlut, hluta af daglegu lífi
þeirra?
Við vitum það ekki. En okkur gæti grun-
að að við hræðumst ekki einungis hið sýni-
lega heldur miklu fremur hið ósýnilega,
þetta óljósa vald sem eitt sinn var eignað ill-
um öndum eða hefndarþyrstum álfum.
Vegna þekkingar okkar og vísinda nú-
tímans teljum við að við séum aldrei nægi-
lega varin gegn því ósýnilega. Hættan er
jafnvel of mikil fyrir hin valdamiklu Banda-
ríki. Jafnvel gervitungl, farsímar, njósna-
kerfi, myndavélar eða háþróuð tækni koma
að litlu gagni. Og Guð kemur ekki lengur til
aðstoðar.
2.
Maður situr í áætlunarbíl
Gamall maður situr einn síns liðs í áætl-
unarbílnum. Hann er á ferð frá suður-
ströndinni til vesturstrandarinnar. Þetta
hefur hann gert reglulega í sextíu ár til að
skoða sína ástkæru fæðingarsveit. Árum
saman tóku margir farþegar þennan bíl og
alltaf fann hann einhvern meðal þeirra til að
ræða við um atburði úr Eyrbyggjasögu.
Þeir þekktu hana, söguna sem gerðist í
sveitinni þeirra. Þeir voru flestir á hans
aldri og á þessari löngu ferð gátu þeir borið
saman hreysti hetjanna og aðalpersónurnar
í öðrum Íslendingasögum. Stundum voru
þeir ekki sammála. En að lokum komust
þeir að þeirri niðurstöðu að Grettir sterki
var sterkasti maðurinn í fornsögunum.
Þessi sameiginlega niðurstaða vakti með
honum talsverða gleði.
En gamla manninum fannst áhugaverðast
að ræða um Eyrbyggjasögu, sérstaklega
hinn heillandi þátt um berserkina. Tveir
bræður, Halli og Leiknir, komu frá Noregi
til Íslands með Vermundi sem Eiríkur hinn
sigursæli Svíakonungur hafði upphaflega
sent Hákoni jarli.
Það var því engin furða að gamli mað-
urinn yrði sérstaklega spenntur þegar bíll-
inn nálgaðist Bjarnarhöfn. Hann horfði af
ákafa út um gluggann til að sjá hvort enn
mætti grilla í veginn og vegginn í gegnum
sögulegt hraunsvæðið. Eða var þetta
kannski tálmynd sem sagan hafði kveikt í
huga hans? Hann velti því fyrir sér hvort
þessir tveir sænsku berserkir hafi, í nafni
ástarinnar, getað rutt veginn á stuttum tíma
með berum höndum. Og ef svo var, hvers
vegna urðu þeir þá fyrir svo miklu órétt-
læti? Hvers vegna hafði Styr, eigandi
þeirra, ekki staðið við loforð sitt og gefið
berserknum, Halli, dóttur sína Ásdísi, en
gift hana í staðinn hinum slóttuga Snorra?
Gamli maðurinn vissi að hinum berserkn-
um, Leikni, hafði ekki verið ætluð ást og
þess vegna hafði hann ekki lent í vandræð-
um eða mótlæti.
„Gerðist þetta vegna þess að berserkirnir
voru útlendingar og líklega ekki þeirrar trú-
ar sem viðurkennd var?“ hugsaði hann með
sér.
Með tímanum og eftir því sem hann varð
eldri hafði æ færra fólk tekið þennan áætl-
unarbíl og hann skildi ekki hvers vegna.
Hann taldi að áætlunarbílar væru sérstak-
lega hannaðir fyrir langar samræður. Fyrir
utan hann voru þarna að mestu útlendir
verkamenn. Þeir vissu auðvitað ekkert um
fornsögurnar. Það var tilgangslaust að
reyna. Innfæddir kusu frekar að ferðast
með einkabílum og þeir fáu sem voru í áætl-
unarbílnum vildu annaðhvort ekki spjalla
eða vissu jafn lítið og útlendingarnir.
Gamli maðurinn viðurkenndi að lokum
með sjálfum sér að héðan í frá myndi hann
sitja einn með hugsanir sínar.
Það leið að lokum ævidaga hans. Í hvert
sinn sem hann tók sér þessa ferð á hendur
fannst honum að það kynni að vera hans síð-
asta ferð. Þess vegna langaði hann afskap-
lega mikið til að tala við einhvern um
áhugamál sín: muninn á styrk frjálsra
manna og þræla. Hann langaði líka að vita
hvort réttvísin hefði alltaf verið í höndum
slóttugra og valdamikilla manna eins og
Snorra sem giftist að lokum Ásdísi, en auð-
vitað líka að einhverju leyti í höndum
sterkra manna eins og Grettis en aldrei í
höndum útlendinga, hvorki þræla né ber-
serkja sem höfðu nytsamlegra afl en Grettir
og Snorri.
Hvers vegna höfðu berserkir í ókunnu
landi engan rétt þrátt fyrir kraft sinn?
Nú var gamli maðurinn á leið suður aftur
frá vesturströndinni. Þegar áætlunarbíllinn
kom til Stykkishólms var stöðvað við póst-
húsið. Þar kom gamli maðurinn auga á hóp
af ungum mönnum í áköfum samræðum.
„Þeir hljóta að vera að ræða fornsög-
urnar,“ hugsaði hann.
Þarna fékk hann óvænt tækifæri til að
tala við unga fólkið. Hann flýtti sér út, gekk
að hópnum og spurði um berserkina. Menn-
irnir litu á hann. Hann beið. Loks greip einn
þeirra farsímann sinn eins og hann ætlaði
að hringja til að komast að hinu sanna.
Gamli maðurinn beið skjálfandi. Hinir voru
hljóðir og flóttalegir.
Þá gerði hann aðra tilraun.
Þegar þeir heyrðu sömu spurninguna
virtust þeir ekki vita hvað þeir ættu að gera
af sér, þeir snerust á hæli, settust inn í bíl-
ana sína og þeystu burt.
Þegar gamli maðurinn kom heim var hann
í uppnámi. Hann skildi ekki hvað hafði kom-
ið fyrir fólkið í heimasveit hans. Landslagið
var það sama. Hraunið var þar sem það
hafði alltaf verið. Sjórinn blár. Jökullinn
hvítur. En það mikilvægasta, Eyrbyggja-
saga, var ekki lengur þar sem hún hafði allt-
af verið: í huga fólksins.
Aftur á móti var hann sjálfur og það sem
hann sá með eigin augum og í huga sér
óhreyfanlegt, óbreytt.
„Það er eitthvað ósýnilegt í því sýnilega,
ég skil þetta ekki,“ hugsaði hann.
Hann virtist ekki skilja þær stigvaxandi
breytingar sem höfðu átt sér stað í þjóð-
félaginu í tímans rás. Enginn nema hann
var upptekinn lengur af berserkjum, styrk,
réttlæti eða óréttlæti.
Hið sama átti við um hann og sögurnar
hans og Don Kíkóta sem trúði á libros de
caballerias.
Á þessum tíma var sonur hans að þýða
Don Kíkóta og hann var sammála föður sín-
um um að ekki ætti að ögra ævareiði sam-
anborið við reiði el caballero.
En eitt sinn spurði hann hvort það væri
ekki fyrir neðan virðingu hetju að þurrka
föt með móður sinni eins og ein þeirra hafi
gert í ákveðinni sögu.
Nei, svaraði gamli maðurinn. Ef ekki þarf
að berjast gegn augljósu óréttlæti þá getur
hetjan hjálpað móður sinni með heimilis-
verkin. Það er engin skömm að því. Stolt
sonar af móður og þörf hans fyrir hana er
hið sama og stolt móður af syni og þörf
hennar fyrir hann.
Rök gamla mannsins voru ævagömul og
svo sagði hann:
Það eina sem mér líkar ekki í Eyrbyggja-
sögu er að sænsku berserkirnir, Halli og
Leiknir, eru í 24. kafla sagðir vera svo
sterkir að þeirra líka væri hvorki hægt að
finna í Noregi né annars staðar. Er það
mögulegt að sagan af Gretti sterka hafi
HIÐ SÝNI-
LEGA Í ÞVÍ
ÓSÝNILEGA
E F T I R G U Ð B E R G B E R G S S O N
Reuters
„Þegar lögreglumaðurinn afhjúpar konuna horfa aðrar konur á eins og þær séu að velta fyrir sér
hvað sé undir slæðunni, en svo snúa þær sér undan. Aðeins ein ung kona virðist njóta þess að horfa
á þegar slæðunni er svipt af konunni. Hún lyftir höndunum eins og lögreglan hafi frelsað konuna.“