Lesbók Morgunblaðsins - 17.04.2004, Side 11
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 17. APRÍL 2004 11
Hvers vegna hlær fólk þegar það
er kitlað?
SVAR: Vísindamenn hafa lengi talið að við-
brögð við kitli tengist vörnum líkamans og
séu ætluð til þess að forðast snertingu sem
gæti reynst okkur hættuleg. Þegar við erum
kitluð vindum við upp á líkamann og færum
okkur undan snertingunni.
En þá er eðlilegt að spyrja hvers vegna fólk
hlær þegar það er kitlað, fyrst um varnar-
viðbrögð er að ræða og jafnvel ótta. Þessi
spurning hefur raunar þjakað fræðimenn sem
skrifað hafa um hlátur og fyndni í aldanna
rás. Charles Darwin var víst manna fyrstur til
að benda á þróunarfræðilega þáttinn í
viðbrögðum okkar við kitli – þau væru skyld
viðbrögðum dýra, til dæmis hesta og naut-
gripa, við ásókn flugna og annarra kvikinda á
viðkvæm svæði á líkamanum.
Þá blasir augljós staðreynd
við okkur: Hesturinn eða kýrin
hlær ekki þegar fluga sest á
skrokkinn á þeim, að minnsta
kosti ekki svo að við vitum til.
Önnur staðreynd er jafn mik-
ilvæg: Við hlæjum alls ekki allt-
af þegar við erum kitluð.
Ungversk-breski fræðimað-
urinn Arthur Koestler (1905–
1983) setti fram hugmyndir sín-
ar um hlátur og fyndni í grein
frá árinu 1949 og síðar í bókinni
The Act of Creation sem kom út
1964. Hann telur að hlátur
spretti af árekstri ólíkra orð-
ræðna. Koestler smíðaði raunar
sérstök hugtök fyrir þetta fyr-
irbæri, bi- og disociation, sem
hann notaði á mismunandi tíma
en tákna það sama. Erfitt er að
þýða þessi hugtök á íslenku en
skilgreining Koestlers felur í sér
að þegar við sjáum/heyrum eitt-
hvað fyndið, upplifum við okkur
á tveimur (eða fleiri) orðræðu-
sviðum. Þetta virðist eiga vel við
fyndni í mæltu og rituðu máli,
jafnvel einnig myndræna, en
hvað segir þessi setning um kitl?
Koestler vitnar til rannsóknar
sem gerð var við Yaleháskólann og sýndi
fram á að börn hlógu 15 sinnum oftar þegar
móðir þeirra kitlaði þau en þegar þau voru
kitluð af einhverjum ókunnugum. Börnin
voru ennfremur mun líklegri til að gráta þeg-
ar sá ókunnugi kitlaði þau en að hlæja. Þetta
útskýrir Koestler með því að börnin upplifi
kitl móðurinnar sem platárás og tengir þetta
kenningu sinni með því að benda á að líklega
sé kitl móður (eða annars náins aðstandanda)
fyrsta skiptið sem barnið upplifir sjálft sig á
tveimur (orðræðu-) sviðum; það veit að ráðist
er á viðkvæm svæði þess en um leið að árásin
er ekki raunveruleg og það mun ekki hljóta
neinn skaða.
Niðurstaðan er því þessi: Við hlæjum þegar
við erum kitluð ef við treystum þeim sem kitl-
ar. Hvort sem það er ættingi, elskhugi eða
vinur sem kitlar, verður manni að vera ljóst
að ekki er um alvöruárás að ræða heldur atlot
sem enda oftar en ekki með einhverju inni-
legra og ástúðlegra. Um þetta getum við ekki
verið örugg þegar ókunnugir eiga í hlut.
Þetta skýrir líka hvers vegna okkur gengur
illa að kitla okkur sjálf. Við ráðumst ekki á
okkur sjálf, nema ef við glímum við alvarlega
geðræna sjúkdóma. Þegar við setjum okkur
viljandi í hættu, sem er þó um leið langoftast
örugg, eru okkar fyrstu viðbrögð eftir á
venjulega að hlæja. Teygjustökk, fallhlíf-
arstökk og rússíbanakeyrsla eru því eiginlega
dæmi um aðferðir sem við notum til að „kitla“
okkur sjálf.
Unnar Árnason bókmenntafræðingur.
Er til tónn sem er svo ljótur að
hann er kenndur við djöfulinn?
SVAR: Hugtakið tónskratti eða diabolus in
musica varð til á miðöldum og á við tónbil en
ekki stakan tón. Ekki er víst hvort ástæðan
fyrir nafngiftinni hafi verið sú að tónbilið
þótti ljótt.
Á miðöldum voru svonefndar kirkjutónteg-
undir notaðar í tónlist. Frumtóntegundirnar
fjórar voru: dórísk, frýgísk, lýdísk og mix-
ólýdísk. Þær voru allsráðandi í kirkjutónlist
allt fram til 1600, þegar dúr og mollkerfið tók
við.
Í lýdísku tóntegundinni, sem samsvarar
tónstiga hvítu nótnanna á píanóinu frá f til f,
er tónbilið á milli 1. og 4. tóns stækkuð ferund
eða tónskratti. Tónbilið fékk snemma á sig
óorð og var kennt við djöfulinn. Tónskrattinn
þótti ekki æskilegur og er í sumum ritum tal-
inn beinlínis hættulegur.
Tónfræðilegir eiginleikar tónskrattans eru
þeir að hann skiptir áttundinni upp í tvo jafna
hluta og speglast um miðju hennar. Þetta er
eina tónbilið sem hefur þann eiginleika að
vera hið sama sé það speglað. Tónskrattinn er
óstöðugt tónbil, það er að segja hann leitar að
lausn og hefðbundið lag getur þess vegna
ekki með góðu móti endað á tónskratta. Þetta
heyra flestir, hvort sem þeir eru tónlistar-
menntaðir eða ekki.
Á 15. öld fóru menn að lækka 4. tóninn í
lýdísku tóntegundinni, h varð að b, og mynd-
aði hann þá hreina ferund við 1. tóninn. Þetta
er sú tóntegund sem við þekkjum í dag sem
dúr.
Á seinni hluta 19. aldar var tónskrattinn
tekinn í sátt og hann er meðal annars að finna
í tónlist eftir Liszt, Wagner og Debussy. Á 20.
öld gátu tónskáld notað þetta áður forboðna
tónbil óhindrað og í eyrum nútímamannsins
hljómar það afar sakleysislega og erfitt er að
ímynda sér að það hafi einhvern tímann þótt
erfitt áheyrnar.
Karólína Eiríksdóttir tónskáld.
HVERS VEGNA
HLÆR FÓLK ÞEGAR
ÞAÐ ER KITLAÐ?
Hvað þýðir orðið kaldaljós, hvernig lýsir glúten-
óþol sér og hvernig er lífsferill kólfsveppa? Þess-
um spurningum og fjölmörgum öðrum hefur verið svarað að undan-
förnu á Vísindavefnum og hægt er að lesa svörin á slóðinni
www.visindavefur.hi.is.
VÍSINDI
Morgunblaðið/Ásdís
Við hlæjum ef við treystum.
1907
SLÁTTUVÉL
OG KÝRVERÐ
Í bréfi af Fljótsdalshéraði
sem birt var í Lögréttu 17.
apríl 1907 sagði að skilvindur
og eldavélar væru nærri á
hverjum bæ en að nú væri
enn ein vélin komin í Hjaltastað á Héraði „sem
mörgum sýnist vel þess verð að fyrir hana sé
látið hálft annað kýrverð. Þetta er sláttuvél“.
Nokkrar voru pantaðar hjá búnaðarsamband-
inu, aðallega frá neðstu bæjum Héraðsins „því
þar eru slétt engi“. Þá var þess getið að átt-
ræður bóndi, séra Jakob á Hallfreðarstöðum,
hefði pantað bæði sláttuvél og rakstrarvél „og
sýnir það hvern þátt hann hefði tekið í umbót-
um vorum, hefði hann verið 30–40 árum yngri“.
1925
AÐ KOMAST ÚT
ÚR BÆNUM
Sunnudagsbílar var heiti á
málefni sem sagt var frá í
Morgunblaðinu 17. apríl 1925
að hefði verið til umræðu á
bæjarstjórnarfundi í Reykja-
vík. Það fjallaði um að „erfitt
væri fyrir margar efnaminni fjölskyldur að
komast á sumrin út úr bænum á grasigróna
bletti þó þær hefðu fulla þörf á því og löngun“,
enda sæjust efnalítil hjón oft vera „að reyna að
komast með börn sín fótgangandi eitthvað burt,
en kæmust vitanlega stutt“. Samþykkt var að
hvetja bifreiðastöðvarnar til að bjóða „ódýrar
ferðir, t.d. inn að Elliðaám eða eitthvað annað.
Yrði þó að velja góða staði þar sem börn gætu
leikið sér og vistlegt væri“.
1936
SPÆLDU EGG
UPPI Á JÖKLI
„Áhugi Reykvíkinga fyrir
fjallgöngum og útilegum fer
hraðvaxandi,“ sagði greinar-
höfundur í Vísi 17. apríl 1936.
„Hver skyldi hafa trúað því
fyrir nokkrum árum að góðir og gegnir menn
héðan úr Reykjavík færu upp á Langjökul til að
borða páskamatinn? En þetta átti sér þó stað
núna um páskana. Og hvað haldið þér að þeir
hafi haft til matar þar uppi á hájöklinum? Það
var flesksteik og spæld egg, hvoru tveggja
matbúið á staðnum. Og svo hituðu þeir sér
súkkulaði á eftir.“ Greininni lauk á þessum orð-
um: „Og mætið þér reglulega sólbrunnum
manni á götu næstu dagana þá er það óefað ein-
hver þessara jöklafara.“
1946
HÆTTULEGAR
MATBAUNIR
„Við og við brýst út bauna-
byssufaraldur meðal stráka
hér í bænum. Þeir búa sér til
gúmmíslöngur til að slöngva
matbaunum eða þeir blása
þeim út um rör. Oft getur þetta verið hættu-
legur leikur og slys hafa hlotist af er strákarnir
hitta með baununum t.d. í augu félaga sinna.
Það er þess vegna ekki nóg að skammarlega sé
farið með matvæli í þessum ljóta leik.“ Um
þetta var fjallað í Morgunblaðinu 17. apríl 1946
og lagt til að kennarar hjálpuðu til við að út-
rýma baunabyssunum með því að segja nem-
endum frá hörmungarástandinu í heiminum og
heita á þá „til liðveislu um það að fara ekki illa
með matinn“.
1953
TVEIR UTAN
AF LANDI
„Gullfaxi fór í gær til Parísar
með Spánarfara Ferðaskrif-
stofunnar,“ sagði í frétt á for-
síðu Alþýðublaðsins 17. apríl
1953, og var flugvélin sex
tíma á leiðinni. „Í gærkvöldi skemmti ferðafólk-
ið sér í París, skoðar borgina í dag, fer svo til
Versala á morgun og síðan fer það með Gullfaxa
til Barcelona. 35 eru í förinni, fólk af ýmsum
stéttum í Reykjavík, verslunarmenn, bifreiða-
stjórar o.fl. Þá eru og með í förinni tveir bænda-
synir utan af landi.“ Þetta mun hafa verið ein af
fyrstu hópferðunum til Spánar.
1964
HIÐ HÁLEITA
Í TILVERUNNI
Hannes á horninu fjallaði um
deilur um byggingu Hall-
grímskirkju í Alþýðublaðinu
17. apríl 1964 og sagði að sér
fyndist mynd af fyrirhugaðri
kirkju vera falleg og að kirkjan „hljóti að vekja
lotningu þeirra sem fram hjá henni fara eða
hennar eiga að njóta. Raunar finnst mér nú-
tímamaðurinn sem alltaf horfir niður fyrir sig
og gruflar og grúskar í efninu hafi gott af því að
líta einstöku sinnum upp fyrir sig og sjá eitt-
hvað sem vekur lotningu hans, eitthvað sem
leiðir hugann að því háleita og dularfulla í tilver-
unni“. Og hvað kostnaðinn varðaði var bent á að
hann dreifðist á mörg ár og væri álíka mikill og
árleg eyðsla landsmanna í vinsælan gosdrykk.
1984
GLERAUGU OG
GERVITENNUR
DV sagði frá því 17. apríl 1984
að sala Hagkaupa á lestrar-
gleraugum, sem þá var ný-
lega hafin, ætti eftir að draga
dilk á eftir sér, en gleraugun í
Hagkaupum kostuðu aðeins þriðjung eða fjórð-
ung þess sem slík gleraugu kostuðu í gler-
augnaverslunum. Blaðið sagði að þessi sölu-
aðferð hefði náð miklum vinsældum bæði í
Svíþjóð og Bandaríkjunum. En gleraugnasalar
voru ekki ánægðir og biðu eftir lögum til að
stöðva söluna, í þeim tilgangi að vernda almenn-
ing. Talsmaður þeirra sagði: „Ætli þeir finni svo
næst upp á því að selja hjá sér gervitennur.
Komið og mátið!“
T ÍÐARANDINN Á TUTTUGUSTU ÖLD
„Karlmannafatnaðir og fataefni, afmælt í einn klæðnað af hverri gerð,“ sagði í auglýsingu sem
birtist í Lögréttu 17. apríl 1912, en myndin gefur til kynna hvernig herrafatatískan var á þeim
tíma. Þá var rúmur áratugur síðan orðið fermingarföt sást fyrst á prenti en orðið reiðjakki mun
hafa verið nýtt í málinu. Sturla Jónsson rak verslun í Reykjavík í rúm fjörutíu ár og einnig þil-
skipaútgerð um skeið. Hann var einn af stofnendum hlutafélagsins Málms, sem lét bora eftir
gulli í Vatnsmýrinni í byrjun tuttugustu aldar.
AFMÆLT Í
EINN KLÆÐNAÐ
J Ó N A S R A G N A R S S O N T Ó K S A M A N