Íslendingaþættir Tímans - 10.10.1969, Blaðsíða 12
MINNING
ÁSGEIR MAGNÚSSON
FRÁ ÆGISSÍÐU
14. ágúst lézt hér í borg Ás-
geir Magnússon frá Ægissíðu, 83
ára gaimall.
Við þennan föðurbróður minn
eru tengdar einbverjar ljúfustu
bernskuiminningar mínar, og því
langar mig að geta hans að
noklkru.
Ásgeir fæddist 7. marz 1886 á
Ægissíðu á Vatnsnesi, V-Húnavatns
eýsiu, sonur hjónanna Sigurlaugar
Guðmundsd. og Magnúsar Kristins-
sonar, næstelztur af 6 sonum
þeirra, er upp koimust.
Ungur að árum var Ásgeir sett
ur í fóstur að Katadal til Ingólfs
Guðmundssonar móðurbróður
síns.
Aldrei verður með vissu úr því
skarið, hve miklu það veldur um
skapgerð barna að alast ekki upp
með foréldrum sínum. En það
vissi ég méð vissu, að þessi dvöl
Ásgeirs í Katadal hafði mikil áhrif
á þennan dula og gáfaða dreng
og mun e.t.v. hafa átt mikinn þátt
1 þeirri sérlund, sem nokkuð var
áberandi í fari hans, því að Ing-
ólfur móðurbróðir þeirra þótti sér
lundaður mjög, en kona hans mun
lítt hafa skilið þennan einræna og
hæfileikaríka dreng. Að vlsu bjarg
aði það miklu, að amma Ásgeirs,
Sigþrúður Jóhannsdóttir var hjá
syni sínuim þarna í Katadal. Sig-
þrúður var greind kona, heim-
spekbega sinnuð og hafði áhuga á
stjörnum, og miá e.t.v. rekja þang
að áhuga Ásgeirs á stjörnufræði
síðar meir. í Katadal ólst Ásgeir
upp fram yfir fermingu, en dvald-
ist síðan á ýmsum stöðum i Húna-
vatnssýslu.
Snemma mun hafa borið á
menntaþrá Ásgeirs, og man ég vel
sögu, er Björn föðurbróðir minn
sagði mér, sem lýsir Ásgeiri vel.
Bj'örn hafði komið að heimsækja
Ásgeir, sem þá var kaupamaður ó
Hrafnabjörgum í Svinadal, Ásgeir
kallaði á Björn og bað hann að
koma með sér út fyrir tún, fór
hann með Björn að hvammi ein
um við ána. Þar hafði Ásgeir hlað-
ið sér lítið og laglegt hús. líkt og
börn gerðu í hjásetu áður fyrr, en
inni 1 þessu húsi geymdi hann
horn eitt fagurt og hafði það sér
til dægrastyttingar að leika á það
í frístundum sínum. Ennfremur
bjó hann sér sundlaug í ánni og
stundaði líkamsrækt.
Seinna fékik Ásgeir svalað þrá
sinni til hljómlistar og lærði að
leika á orgel og píanó og hafði
yndi af klassískri músík.
Ekki gat Ásgeir eða þeir bræð-
ur treyst á fjárhagsstuðning for-
eldra sinna til nárns, en þó tókst
þeim að brjótast áfram og af'a sér
nokkurrar menntunar. Björn, Ás
geir, Magnús og Sigþór fóru allir
á Gagnfræðaskólann á Akureyri og
Magnús síðar í langskólanám. Guð
mundur, elzti bróðirinn, gerðist
bóndi < g bjó lengst af með for
eldrun sínum, en Kristinn yngsti
bróðirinn fór seinna í skóla hjó
Ásgeiri bróður sínum.
Asgeir lauk ekki prófi frá Ak-
ureyri, en fór síðan til Hafnarf jarð
ar og tók kennarapróf frá Flens-
borg 1908, 1910 var hann á kenn-
kennaranámskeiði í Askov. Hann
starfaði við Alþýðuskólann á Hvít
árbakka 1908—10. 1913 stofnar
hann svo Alþýðuskólann á
Hvammstanga og tel ég, að það sé
með því merkilegasta, sem Ásgeir
tók sér fyrir hendur um dagana,
er hann allslaus og með litia að-
stoð fjárhagslega stofnaði þennan
skóla af einskærum áhuga á að
gera ungu fólki auðveldara að afla
sér einhverrar menntunar í heima
héraði sínu. Mun sumum stórbokk
anum hafa fundizt þessi piltur fær
ast fullmikið í fang og væri naer
að taka sér eitthvað þarfara fyrir
fyrir hendur. Mér finnst íreistandi
að tilfæra hér ummæli Kristmund
ar Þorleifssonar, tekin úr ræðu,
er hann flutti, þegar nokknr nem
endur Ásgeirs komu saman ásamt
honum til að minnast þess, að lið-
in voru 35 ár frá stofnun skólans:
„Enginn mun ganga þess dul-
inn, að sá maður, sem réðst í slíkt
fyrirtæki, sem skólastofnun þessi
var, hlýtur að vera gæddui' mikilli
bjartsýni, „trúa á táp sitt og fjör,
trúa á sigur þess góða“. Það var
ékki mikil von fjár og frama að
leggja hér til atlögu og ekki var
skólastofnuninni tekið með sér-
stakri hrifningu af ráðamönnunn
héraðsins".
Og ennfremur segir í sömu
ræðu:
„Öllum mun oss nemendum
skýrt í minni óþreytandi elja skóla
stjórans við starf hans og frábær
samvizkuseimi. Það má>ti heita, að
hann hefði einn á höndum alla
kennslu í skólanum fyrsta vetur-
12
SSLENDtNGAÞÆTTlR